Morgunblaðið - 19.09.1939, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 19. sept. 1939.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Gengi íslensku krónunnar
miðist við Öollar-gengi
Bráðabirgða-
lög í gær
RÍKISSTJÓRNIN gaf í gær út bráðabirgðalög,
er gera tvær breytingar á gengislögunum frá
4. apríl í vor.
í þeim lögum var, sem kunnugt er, gengi íslensku
krónunnar tengt við sterlingspund, þannig að ákveðið var,
að kr. 27.00 íslenskar skyldu vera í pundinu.
I bráðabirgðalögunnni frá í gær er svo ákveðið, að gengi íslensku
krónunnar skuli ekki fylgja sterlingspundi ef það fellur niður fvrir
það, að 4.15 dollarar sjeu í pundi, þá skúli íslenska krónan skilja við
pundið og fylgja dollarnum. En þegar þetta hlutfall er milli dollars
og punds kostar dollarinn kr. 6.50 íslenskar.
Meðan sterlingspundið var ófallið kostaði pundið 4.68 dollara.
Hvar hin nýju landamæri
Póllands og Rússlands verða
Kortið sýnir legu borganna Grodno, Brest-Litovsk og Lem-
berg, en um þessar borgir er gert ráð fyrir að hin nýju vestur-
landamæri Rússlands muni liggja.
Lækkun sterlingspundsins frá
því sem það v-ar í vor, er gengis-
iögin voru gefin út, og til þess
takmarks, sem gengi íslensku krón-
unnar á að skiija við það, nemur
11%. í Danmörku mun hafa verið
ákveðið að krónan þar skyldi
fjdgja 8% lækkun sterlingspunds.
Fyi’ir helgina voru um 3.75
dollarar í sterlingspundi. Var
pundið þá lækkað það mikið
niður fyrir 11% takmörkin,
að gengi þess í ísl. krónum
hefði verið um kr. 24.50. í
gær var gengi þess gagnvart
dollar svipað.
Þegar þingið ákvað í vor, að
binda gengi íslensku krónunnar
við sterlingspundið, var það gert
með tilliti til þess að það væri
öruggasti gjaldmiðillinn, gengi
þess stöðugast. En nú hefir styrj-
öldin raskað þessu gífurlega.
Hækki sterlingspundið aftur
upp í það að 4.15 dollarar sjeu í
pundi, þá kostar það hjer kr.
27.00, en aldrei meira, meðan nú-
gildandi gengislög standa.
Hin breytingin á gengislögun
um, sem gerð var með bráðabirgða
lögunum er sú, að í stað þess að í
lögunum í vor er ákveðið að engin
breyting megi fara fram á kaup-
gjaldi til 1. apríl 1940, þá er nú
gerð undantekning á því, sú, að
sjómenn, er sigli á hættusvæðum,
geti fengið kauphækkun sem á-
hættuþóknun.
Akranesbátar
á síldveiðum
Stjórn síldarverksmiðjunnar
á Akranesi hefir ákveðið
að greiða kr. 8,20 fyrir síldar-
málið. Upp á þær spýtur fara
Akranesbátar alment á síld-
veiðar hjer í Flóanum. Þeir„
sem eru byrjaðir hafa fengið
50—100 tunnur á dag. Búist er
við að fleiri bátar en þeir af
Akranesi leggi þar upp síld.
Alls hafa verið brædd um
4000 mál á Akranesi, en um
3000 tunnur verið saltaðar þar.
MatseOla-
úthlutuniD gekk
greiðlega
Matvælase<j(laúthlutun,inni í
bamaskóíunum var lok-
ið á sunnudaginn og var alls út-
hlutað 34,571 seðli. Starfsmenn
matvælaeftirlitsins telja að út-
hlutunin hafi gengið greiðlega,
þó enn vanti 3—-4 þúsund á að
allir bæjarbúar hafi fengið
matvælaseðla.
Stafar það meðal annars af
því, að ekki var búið að út-
hluta til sjúkrahúsa og nokkra
annara stofnana. Þá dvelja
margir bæjarbúar enn utanbæj-
ar og loks munu vera nokkrir,
sem ekki hafa haft hentugleika
til að sækja seðla sína þessa
tvo daga, sem úthlutunin fór
fram.
Þeir bæjarbúar, sem enn
hafa ekki fengið skömtunar-
seðla geta fengið þá á skömtun-
arskrifstofu bæjarins í S.R.-
húsinu við Tryggvagötu, en þar
var úthlutað um 100 seðlum í
gær. Fólk er þó varað við að
reyna að fá seðla, sem því ekki
ber, því slíkt mun óhjákvæmi-
lega komast upp og verður í
slíkum tilfellum dregið af við-
komandi við næstu skömtun.
Seðlaúthlutunin skiftist þann-
ig á skólana:
I Miðbæjarskólanum 14.577
í Austurbæjarskólanum 16.754
í Laugarnesskóla 1.638
í Skildingarnesskóla 1.602
ÓKUNNUGT UM
STRÍÐIÐ
ettnesk skonnorta hefir gert
það meistarastykki að sigla í
gegnum tundurduflasvæðið fyrir
sunnan Litlabelti án þess að
hlekkjast neitt á.
Skipstjórinn köm til Assens í
gær og kom þá í ljós að hann
hafði ekkert heyrt um' styrjöldina.
Norskt skip rekst á
tundurdufl, sekkur
á tveim mínútum
Osló í gær. FB.
ótorskipið Ronda, eign Joh.
Ludw. Mowinckels útgerð-
arfjelagsins, rakst á tundurdufl
við strendúr Hollands og sökk.
Skipið var 8000 smálestir og var
á því 30 manna áhöfn og 7 far-
þegar, þar af hafa 14 manns farist
og meðal þeirra skipstjórinn, Sol-
berg að nafni, kona hans og 2
farþegar.
Hinir komust í bát og reru í
áttina til lands, en sótti seint
vegna veðurs og strauma. Eftir
38 klst. volk við illan aðbúnað,
matarleysi og vosbúo, bjargaði ít-
alska skipið Providenzie skip-
brotsmönnum og flutti til Vliss-
ingen.
Skipið sökk á 2 mínútum ,og e<’
talið, að það hafi rekist á fleiri
en eitt tundurdufl. (NRP.).
Tyrkir?
London í gær. FÚ.
ikla athygli vekur það, að
utanríkismálaráðh. Tyrkja
fer hráðlega í heimsókn til
Moskva.
í því sambandi er þess getið,
að Bretar hafi alls ekki uppfylt
þau skilyrði, sem sett vöi’u til
þess að Tyrkir gengju í bandalag
við þá, nefmléga að Bretar væru
éður húnir að ganga frá bresk-
rússneskum sáttmála, (FÚ.).
Innrás
Rússa
íordæmd
Helstu blaSaummæli um
innrás Rússa í Pólland
eru þessi:
ENGLAND:
„Observer“ skýrir frá því, að
Hitler hafi í hyggju að gera
Bretum friðartilboð sem verður
í aðalatriðum á þá leið, að Vest-
urríkin viðurkenni skiftingu
Póllands gegn því, að Hitler
sleppi tilkalli til nýlendna.
„Manschester Guardian“ seg-
ir: Stalin reynir að komast hjá
stríði, en, gerist sníkjudýr á
fórnarlömbum stríðsins.
„Times“ segir: „Ósigur Breta
eða málamiðlun getur ekki
komið til greina. Stríðinu verð-
ur haldið áfram, þar til búið er
að þurka út Hitlerstjórnina.
Menn geta leitað upplýsinga í
„Mein Kampf“ um það, hvaða
afleiðingar sameiginleg landa-
mæri Þýskalands og Rússlands
munu hafa fyrir Rússa.
BANDARÍKIN:
Blaðið „New York Times“ seg
ir í grein um innrásina, að þetta
sje að líkindum það, sem Stal-
in hafi boðist til að gera til þess
að svíkja Bretland og Frakk-
land.
„The New York Herald Tri-
bune“ segir, að það, sem ger-
ast kunni í nánustu framtíð
muni ef til vill verða þess eðl-
is, að Bandaríkin yrði að beita
valdi sínu gegn því.
Á Spáni láta blöðin í ljós
samúð með bandamönnum.
Kveðjuhljóm-
leikar Emils
Telmðnyis
annað kvðld
Fáir gestir betri hafa í seinni
tíð gist land vort en
fiðlusnillingurinn ungverski,
Emil Telmányi sem ásamt konu
sinni hefir dvalið hjer undan-
farið á vegum Tónlistaf jelags-
ins.
En samtímis komu hans gerð-
ust þeir atburðir úti r heimi,
sem dregið hafa að sjer alla at-
hygli og hugsun fjöldans og-
hefir því koma þessa ágæta
listamanns vakið minni eftirtekt
en ella. En í samstarfi sínu við
Hljómsveit Reykjavíkur hefir
hann þó á skömmum tíma unn-
ið mikið og gott starf, sem vafa
laust á eftir að bera ávöxt í
tónlistalífi höf uðstaðarins og
sáust þess þegar merki á bljóm
leikunum í gær.
Þau hjón fara nú af landi
burt með Lyru á fimtudaginn,
en á miðvikudagskvöldið halda
þau kveðjuhljómleika fyrir al-
menning með aðstoð Hljóm-
sveitar Reykjavíkur. Mun Tel-
mányi leika þar meðal annars
verkefni eftir Mendelssohn,
Raval og Sibilius, og ásamt
Hljómsveit Reykjavíkur mun
hann leika E-dúr konsertinn
eftir Bach, en frú Telmányi
leikur undir sem áður.
Má búast við, að tónlistavinir
muni vilja nota þetta síðasta
tækifæri til að hylla þau hjón-
in og þakka þeim fyrir komuna.
Þá á og Tónlistafjelagið miklar
þakkir skyldar fyrir að hafa
fengið þau hjón hingað.
Bretar beygja
slg I Austur-
Asiu
apönsk blöð hafa enga skoðun
látið í ljós fram til þessa, um
innrás Rússa í Pólland. En eitt
aðalblaðið í Tokio segir í kvöld,
að ef Rússar vilji leggja fram
frekari samkomulagstillögur við
Japana, þá muni þeim verða vel
tekið.
Japanar hafa byrjað nýja
sókn í Kína í Honan og Hopei
fylkjunum.
Fregnir hafa borist í dag frá
Austur-Asíu um undanslátt Breta
við Japana. í fregn frá Shanghai
segir, að Bretar hafi látið af hendi
við Japana eina af varnarstöðvum
sínum í alþjóðahverfinu þar, við
Soochow.
Þá hefir orðið samkomulag miIÍi
Breta og Japana í Ku-lang-su. Þar
eiga Bretar sjerrjettindasvæði,
sem Japanar hafa haldið í hafn-
banni, frá því í júlí síðastliðnum.
í dag voru Japanar farr/j að
slaka á þessu hafnbanni.