Morgunblaðið - 29.09.1939, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.09.1939, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagrur 29. sept. 1939. Effir samningana i Moskva: Friöarboö frá Þjóöverjum? Samkomulag Rússa og Þj óð verj a Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. AMKVÆMT FREGNUM frá Ítalíu og Frakk- landi er búist við að Þjóðverjar geri Bretum og Frökkum friðarboð, að loknum þýsk-rúss- nesku samningunum í Moskva. Samningum þessum verð- ur að líkindum lokið í dag „með fullu samkomulagi“. S ENGINN FRIÐUR! Frönsk blöð gera ráð fyrir að Þjóðverjar byggi frið- arboð sitt á því, að Pólland sje nú úr sögunni, þar sem því hafi verið skift milli Þýskalands og Rússlands. BlÖðin eru á einu máli um það, þótt Frakkar hafi farið í etríðið til þess að veita Pólverjum aðstoð, þá komi hjeðan af ekki til mála að hætta því, fyr en búið sje að uppræta orsakir hinna stöðugu stríðsógnana í heiminum. Bresk blöð taka í sama sterng. VON RIBBENTROP OG NAPOLEON. Ein bresk fregn hermir að Þjóðverjar, Rússar og ítalir muni allir leggjast á eitt um það, að knýja Vestur- Evrópuríkin til þess að semja frið. Sumar fregnir herma að von Ribbentrop sje að semja í Moskva um lokun stórra hluta Evrópu- og Asíumeginlandsins fyrir bresk-frönskum viðskiftum, ef stríðið heldur áfram. Er mælt að von Ribbentrop hafi hjer tekið upp hugmynd Napo- leons, sem reyndi að útiloka Breta frá viðskiftum við megin- land Evrópu. UPPBÖT. von Ribbentrop ræddi í 5% klukkustund við Stalin og Molotoff í gærkvöldi, í hálfa þriðju klukkustund í dag og í kvöld var tilkynt — eftir átveislu, sem von Ribbentrop var haldin í Kreml — að samningar væru byrjaðir að nýju. Þjóðverjar spyrja: Hvar er nýjasta flugvjeiamóður- skip Breta? Þeir segjast hafa eyðilagt það s Varsjá gafsl upp með skil> niálunt VOHLJÓÐANDI tilkynning var birt í þýska út- varpið í gærkvöldi: Hvar er „Ark Royal?“ Hlustendur í Bretlandi, spyrjið breska flotamálaráðuneytið: Hvar er flugvjelamóðurskipið „Ark Royal?“ Sveit þýskra hernaðarflugvjela gerði síðastliðinn þriðjudag árás á breska flotadeild í Norðursjónum. 500 kg. sprengja hæfði breskt flugvjelamóðurskip framanvert, og tvær 250 kg. sprengjur hæfðu breskt orustuskip, önnur framanvert og hin miðskips. Mr. Churchill hjelt því fram í breska þinginu í gær, að ekk- ert skipanna hefði orðið fyrir sprengjum. En hvar er flug- vjelamóðurskipið „Royal Ark?“ Það þykir nú áreiðanlegt, að för von Ribbentrops til Moskva hafi verið óvænt. Saracoglin utan- ríkismálaráðherra Tyrkja var ekki kunnugt um að hann væri vænt- anlegur þangað. Er talið líklegt, að von Ribbentrop hafi farið til Moskva til þess að fá ein- hverja uppbót á því, sem Þjóðverjar hafa látið af hendi við Rússa í Póllandi. Er nú aftur talið ekki ólík- legt, að tilraun verði gerð til þess að ná samkomulagi um stofnun pólsks smáríkis, til þess að Þýska- land og SovjeCRússland hafi ekki sameiginleg landamæri. Eru Þjóð verjar sagðir hlvntir stofnun slíks smáríkis. Ef slíkt smáríki yrði stofnað, mundi það ekki hafa neinn her og framtíð þess verða háð þýsk- rússneskri samvinnu og sambúð. Orðrómur heldur áfram að ganga um það, að von Ribbentrop og' Stalin sjeu auk þess að semja um málefni Eystrasaltsríkjanna og Balkanríkjanna. „Stalin við borgarhliðin“ Frá frjettaritara vorum. Khöfn t gær. Svenska Dagbladet segir í dag: Harmleikurinn Stalin ante portas (Stalin við borgarhliðin) er farinn að varða allar þjóðirnar við Eystrasalt. Samkomulag Rúss- lands og Eistlands Fregn frá Málmey í Svíþjóð hermir, að þýska hafskipið Bremen sje í Murmansk í Norð- ur-Rússlandi. Skipshöfnin á eist- ,lensku skipi, sem er nýkomið til Málmeyjar frá Murmansk full- yrðír að Bremen liggi þar. FÚ F Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. REGNIR frá Riga í kvöld herma, að Eistlend- ingar og Rússar hafi gert með sjer 10 ára samkomulag og að Eistlendingar hafi fallist á að Rússar fái að hafa flotabækistöð á eyjunum Dago og Ösle. Selter, utanríkismálaráðherra Eistlendinga er enn staddur í Moskva. Fregnir frá Svíþjóð herma, að rússneskar hernaðarflugvjel- ar hafi sveimað yfir Tallin í dag óg með því freklega brotið hlutleysi Eistlendinga. Er talið, að ætlunin hafi verið að ógna Eistlendingum til að skjóta á þær úr loftvarnabyssum sínum. En Eistlendingar bærðu ekki á sjer. Rússar halda því fram, að öðru rússnesku kaupfari hafi verið sökt við Eistland var bjargað. dag. Skipshöfninn að fjöldafundir 'sjeu haldnir, þar . sem sovjetstjórnin er hvött til að lata til skarar skríða Eystrasaltsríkjunum. Fjöldafundir. I gær var óttast að tundur- skeytið sem hæfði rússneska skip- ið Metallist í Narvaflóanum, myndi hæfa sjálfstæði Eistlands. Rússnesk herskip hafa ferðast innan landhelgi Eistlands í dag, og leitað að kafbátum. gegn Póstferðir á morgun. Frá Rvík. Mosfellssveitar, Kjalarn., Reykja- ness, Ölfuss og Flóapóstar, Þing- vellir, Laugarvatn, Þrastalundur, Hafnarfjörður, Grímsness- og Biskupstungnapóstar, Akranes, Borgarnes, Stýkkishólmspóstur, Frá Rússlandi berast fregnir um ’ Norðanpóstur, Álftanespóstur. — SVAR BRETA Þessari tilkynningu svaraði breska útvarpið síðar í gærkv. á þessa leið: „Ekkert er hæft í því, sem þýska útvarpið hjelt fram í kvöld, að sprengja hefði hæft breskt flugvjelamóðurskip og eyðilagt það í viðureigninni í Norðúrsjónum á þriðjudaginn og tvær minhi sprengjur hefðu hæft breskt orustuskip. Ekkert breskt skip varð fyrir sprengj- um í þessari viðureign. Flugvjelamóðurskipið „Ark Royal“ er á þeim stað, sem því hefir verið fengið að gæta.“ Breska útvarpið svarar um leið fullyrðingu, er þýska herí stjórnin hefir birt um að þýskar flugvjelar hafi gert árás, sem tekist hafi vel, á breskt beiti- skip hjá May-eyju í Forth-firð- inum (G.s. ,,Island“ strandaði við May-eyju hjer um árið, eins og menn ef til vill muna). — Breska útvarpið segir, að eng- inn fótur sje fyrir þessari fregn. GÁTU FLOGIÐ LÁGT Um viðureignina í Norður- sjónum segir í fregn frá breska utariríkismálaráðuneytinu, að ský hafi gert flugvjelunum mögulegt, að fljúga lágt yfir skipin. Sumar flugvjelarnar flugu þó í 12.000 feta hæð. En loftvarnir skipanna reyndust svo góðar, að flugvjelarnar gátu hvergi komist að þeim t.il þess að varpa yfir þau sprengjum. Þær urðu frá að hverfa við svo búið. Er litið á þessa viður- Frá frjettaritara vorum. Khöfu í gær. f Varsjá var tilkynt í kvöld að varnarliðið þar hefði ekki gefist upp skilyrðis- laust. I tilkynningunni segir, að samningar standi nú yfir um skilmálana og að þeim verði að líkindum lokið á morgun (föstudag). Tilkynningin, sem le.sin var upp í útvarpið í Varsjá, er á þessa leið: „Vegna þess að vörugeymsluhús með matvælum hafa verið eyði- lögð, er matvælaskortur farinn að gera vart við sig. Tala særðra hermanna er um 16000 og tala óbreyttra borg- ara, sem særðir eru, er um 20.- 000. Enga ákveðna tÖIu er hægt að gefa upp um þá, sem fallið hafa vegna þess að mörg sjúkra- hús hafa verið skotin í rústir og oft orðið að flytja sjúklinga úr einu sjúkrahúsi í annað: Vegna þessa ástands vofir sú hætta yfir að drepsóttir breiðist út. Varnarráðið ákvað því að reyna að fá enda bundinn á hinar hræði- legu þjáningar fólksins og biðja um vopnahlje í 21 klukkustundir á meðan verið væri að semja um skilmálana fyrir uppgjöf Varsjár og Modlin. Baráttukjarkur setuliðsins er jafn óbilaðúr og áður og hver maður gætir ótrauð- ur stöðu sinnar. Pólsku hermennirnir liafa hvergi látið hlut sinn fyrir óvinunum nema þar sem þeir hafa átt við ofurefli í hergögnum og öllum útbúnaði að etja. ÞÝÐINGIN Franska blaðið „Le Temps“ ræðir í dag um þýðingu þá, sem vörn Pólverja hafi haft fyrir Bandamenn. Blaðið segir að þessi þýðing hafi verið mikil, því að á meðan að Þjóðverjar hefðu orðið að hafa mikið lið undir vopnum á austurvígstöðv- unum, hefðu Frakkar getað dregið saman lið sitt í ró og næði og fyrstu herdeildir Breta getað komið yfir Ermarsund. FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. Sænsku skipi sökt Enn eitt sænskt skip „Ny- Iand“, sem er 3300 smál. að stærð, hefir sokkið við strendur Noregs. Norskur tund- urspillir bjargaði áhöfninni. Það er ekki fullvíst hvort kaf bátur sökti skipinu, eða það rakst á tundurdufl. Skipsmenn halda því þó fram skv. fregnum frá Oslo, að skip- inu hafi verið sökt af þýskum, kafbát. (F.Ú.).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.