Morgunblaðið - 08.12.1939, Qupperneq 3
Föstudagur 8. des. 1939.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Flokkur kommúnista í upplausn!
Hjeðinn Valdimarsson og
með honum meiri hluti mið-
stjórnar fer úr flokknum
r
Agreiningurinn: Finn-
landsmálin og stefnan
í utanríkismálum
uiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiniiiimiiiim
ÍKolin hafal
I hækkaO I
Nýtt jöfnunarverð
segirVerðlaQsnefnd
I""^AU tíðindi gerðust í gær, að Hjeðinn Valdimarsson, á3amt 5
mönnum öðrum í miðstjórn Sósíalistaflokksins, sögðu sig
úr flokknum og er flokkur kommúnista þar með kominn í mola.
Tildrögin voru þau, að á laugarcíag var, samkævmt ósk
Hjeðins, boðaður fundur í miðstjórninni og þar samþykt með
eins atkvæðis meirihluta ályktun frá Hjeðni, í sambarídi við Finn-
landsmálin o. fl„ er gekk mjög á móti ,,línu“ kommúnista, en
kommúnistar skutu málinu til flokksstjórnar, þar sem Hjeðinn
varð undir.
Sitt af hverju frá bæjarstjórnarfundi:
Matgjaflr og mjólkurverð - bæjar-
reikningar og nauðsynleg gjðld
- bátaútvegur - hafnargjúld
FYRSTA MÁLIÐ, sem rætt yar um á bæjarstjórn
arfundi í gær, voru matgjafir til skólabarna,
er Soffía Ingvarsdóttir vildi að yrðu látnar
byrja strax.
En borgarstjóra fanst ekki taka því úr þessu, að láta þær byrja
fyr en eftir nýár, því nú væri orðið svo stutt, til jólafrís. Ef byrjað
| yrði nú, færi tiltölulega mikill kostnaður í fólkshalds, því starfsfólk
| fengi fast kaup frá byrjun.
Illllllllllllllllllllllll!
Illllllllllllllllllllllll
Kolaverðið hækkaði skyndi
lega hjer í bænum í gær
um 15 kr. tonnið, úr 77 kr.
upp í 92 kr. tonnið.
Þessi nýja verðhækkun á kol-
unum vakti mikla gremju hjá
almenningi og undrun, þar eð
ekki voru liðnir nema tveir
mánuðir síðan kolaverðið hækk-
aði um 19 krónur tonnið.
Þegar sú verðhækkun fór
fram, 9. okt., var það boð látið
út ganga, að verðhækkunin hafi
verið gerð í samráði við verð-
lagsnefnd, til þess að jafna verð-
ið á gömlu og nýju birgðunum.
Var jafn£pamt fullyrt, að kola-
birgðirnar með 77 króna verðinu
myndu nægja út janúar og jafn-
vel eitthvað fram í febrúar.
En nú, í byrjun ;desember,
kemur nýja verðhækkunin, svo
að heildarhækkunin á kolum er
þegar orðin 34 krónur á tonn,
eða nálægt 60%.
Morgunblaðið spurðist fyrir
um það hjá formanni verðlags-
nefndar í gær, hvernig stæði á
þessari nýju hækkun..
Hann svaraði því, að aðferðin
væri hin sama og síðast, að verið
væri að gera jöfnuð á birgðun-
um, sem íyrirliggjandi eru og
nýjum birgðum, sem eru komnar
hingað á höfnina og væntanleg-
ar næstu daga.
Þessar nýju birgðir eru þrír
farmar, sagði formaður verð-
lagsnefndar, samtals 8400 tonn.
Þegar þessar birgðir eru komn-
ar, verða allar kolabirgðir bæj-
arins á 13. þús. tonn, sem eiga
að nægja fram eftir vetrinum.
Þannig er skýringin, sem for-
maður verðlagsnefndar gefur á
þessari nýju verðhækkun, sem
hlýtur að koma harkalega niður
á öllum almenningi, því að verð-
hækkunin skellur á á þeim tíma,
sem verst er fyrir allan fjöld-
ann.
Miðstjórn Sósíalistaflokksins
er skipuð 11 mönnum, en flokks
stjórnin 33 mönnum.
ÁLYTKUN HJEÐINS
Á fundinum á laugardag bar
Hjeðinn fram svohljóðandi á-
lyktun:
„Miðstjórn Sameiningarflokks
alþýðu — Sósíalistaflokksins —
áfyktar að lýsa samúð flokksiijs
með finsku þjóðinni og baráttu
hennar fyrir sjálfstæði og sjálfs-
ákvörðunarrjetti gygh 5 árás
þeirri, 'éV gorð héfir verið á hana
af núverandi stjórnendum Sov-
jetlýðveldanna og herafla þeirra
og telur árás þessa um leið vei'a
árás á finsku verkalýðshi’eyfing-
una og brot á gnxndvallaratrið-
um sósíalistiskra baráttuað-
íerða.
Miðstjórnin felur ritstjórum
flokksblaðanna að stjórna þeirn
samkvæmt þessu og formanni
flokksins að birta yfirlýsihgu
þessa í þeirn og útvarpinu nú
þegar“.
Eftir að ályktun þessi hafði
verið rædd, bar Sigfús Sigur-
hjartarson fram rökstudda dag-
skrártillögú, þar sem því var
íýst yfir, að það myndi valda
klofningi flokksins hvort sem á-
lyktunin yrði samþykt eða feld,
■en hinsvegar lagt fyrir blöð.in að
skýra algerlega hlutlaus frá
styrjöldinni í Finnlandi.
Dagskrártillaga Sigfúsar var
feld með 6:5 atkvæðum í mið-
stjórninni. Kom svo ályktun
Hjeðins undir atkvæði og var
hún samþykt með 6:5 atkvæð-
um.
M.eð ályktuninni voru: Hjeð-
inn Valdimarsson, Arnór Sigur-
jónsson, Ólafur Einarsson, Þor-
lákur Ottesen, Pjetur G. Guð-
mundsson og Þorsteinn Pjeturs-
son.
En á móti voru: Brynjólfur
Bjaxmason, Einar Olgeirsson,
Sigfús Sigurhjartarson, Ársæll
Sigurðsson og Guðbrandur Guð-
mundsson.
„Höggormurinn“
A5. síðú birtist nýtt frum-
varp, sem fram er kom-
ið á Alþingi og hlotið hefir
nafnið „Höggormurinn“.
í frumvarpi þessu eru gerð-
ar margar víðtækar ráðstaf-
anir vegna stríðsins og gripið
inn á f jöldamörg svið.
STt&MH. Á SJÖTTU Sfi)U
Glæsilegt met
fl-liðs Ægis
i boOsundi
Sundhöllin var nærri full á-
horfenda á sundmóti Sund-
ráðs Reykjavíkur í gærkvöldi, þar
sem um 60 sundmenn og konur
þreyttu með sjer sundkepni. Eng-
in stórtíðindi gerðust þarna þó,
önnur en þau, að þrjár boðsunds-
sveitir fóru fram úr gamla met-
inu í 3x100 metra boðsundi (þrí-
sund).
Sigurvegari varð A-lið ADgis á
3 mín. 49.2 sek. Næs’t B-líð Æ'gis
á 3:57.2 og þriðja A-lið Ármanns
á 4:09.4. Gamla metið átti A-lið
Ægis, sett 1937; var það 4 mín.
11 sek.
Þetta þrísund fer fraiir með
þeim hætti, að þrír menn synda,
einn baksund, annar hringusund
og sá þriðji skriðsund. í sigurveg-
arasveit Ægis að þessu sinni voru
Jónas Halldórsson, Logi Einarsson
og Ingi Sveinsson.
Ingi Sveinsson (Æ) varð fyrst-
ur í 100 metra bringuSundi karla
á 1 mín. 22.3 sek. Annar varð Sig-
ui'ður Jónsson (KR) á 1:23.8 og
þriðji Einar Sæm.undsson (KR) á
1:24.B;
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.
Nlu þingmenn
ð móti „hreysti"
Við atkvæðagreiðslu um íþrótta
lögin í neðri deild Alþingis
í gær kom fýrir atvik, sem vakti
hlátur bæði ' í þingsalnum og á
pöllunum. ' ' :
Pjetur Halldórssoii 'h’afði borið
fram nokkrar breytingartillögur
við frumvarpið, og meðal þeirra
var-. „Við 1. gr. á eftir orðunum
„auka heilhrigði pianna“, komi:
og hreysti“.
Breytingaftmagá þe’ssi var vit-
anlega samþykt, en þó ekki mót-
atkvæðáláúst.
Þeir þingnienn, sem voru á móti
því-að frumvarpið gerði ráð fyrir
að hreysti rnanna yrði aukin með
íþrót.taiðkunmn, voi'u:
Pálmi Hannesson rektor, Ásgeir
Ásgeirsson, Bjarni Bjarnason,
Skúli Guðmundsson, Helgi Jónas-
son, Finnur Jónsson og Sveinbjörn
Högnason.
Pálmi Hannesson gekk svo
langt, að hann kallaði fram í:
„Jeg mótmæli harðlega“ (!)
íþróttalögin voru samþykt í n.
d. að mestu eins og Framsókiiar-
og Alþýðnflokksm«xxii vilja hafa
þau, þ. e. skifta yfirstjórn íþrótta-
málanna milli nngmennafjelag-
anna og í. S. í. og skipuleggja
hina frjálsu íþróttastarfsemi sem
mest undir stjórn ríkisvaídsihs.
Tillaga frá Thor Thors mn að
vísa málinu til ríkisstjórnarinnar
var feld með 14 atkv. gegn 9 og
rökstudd dagskrá frá Jóni Pálma-
syni um að vísa málinu frá, var
feld með 16:7.;
Fjárlögin
Fundur liófst í sameinuðu
þingi kl. 8V2 í gærkvöldi. Á
dagskrá voru fjárlögin, framhald
1. umræðu.
Samþykt var að fresta eldhús-
umræðum til 3. umræðu
Önnur umræða fjárlaganna
hefst kl. 5 í dag.
Jón A. Pjetursson vildi leggja
áherslu ,á, að matgjafirnar hyrj-
uðu áður én t. d. mjólkurverð1
hækkaði. En hann bjóst við vérðl
hækkun á mjólk nm áramót. d&fif
frú Guðrún Guðlaugsdóttir leif,
svo á, að þeim mun meiri þörf
væri á gjöfunum, sem váran yrði
dýrari, og því eins gott að leggja
meiri áherslu á þær eftir verðhækk
unina.‘ Frú Guðrún .1 ónassón var
á sama máli. En hún benti um leið
á, að hiest um *vert væri fyrir .hin
fátæku harnaheimili að mjólkur-
Verð hækkaði ekki. Hún gat vel
skilið, að framleiðendur væru ekki
ofhaldnir af að fá 22 aura fyrir '•
mjólkurlítrann. En þeir gætu feng
ið mun hærra verð fyrir mjólkina,
ef mjólkurlagavitleysunni, verð-
jöfnunargjaldinu, væri af þeiin'
Ijett. Það væri aðalatriðið fyfi^
heimilin í bænum, að komið yrði í
veg fyrir verðhækkun með’ ‘lág-
færing á því sölufyrirkomulagi,
sem nú er.
Börnin hjer í hænum þurfa sína
m jólk. En ef mjólkin hækkar mik-,
ið frá því sem hún er nú, þá verð-
r ■ v'íTisn
ur mörgum um megn að kaupa
hana. ,
Yar tillögu frú Soffíu vísað til
, . ■> ma "si
bæjarraös.
Yörugjald S. I. S.
í fundargerð hafnarnefndar frá
30. nóv. var samþykt, útaf umsókn
Samb. ísh samvinnufjelaga unj nið
Urfærslu á vörugjaldi. Öíðán’ stýrj-
öldin hófst hefir þessi innflytjándí,
þurft að fá vörur sendar á farm-
skírteini hingað til Reykjavíknr,
sem hafa átt að fara til hafna út
um iand. En við það legst á vör-
una hafnargjald er hún kemur og;.
fer. Vill S. í. S. fá þessu hreytt,
og fjelst hafnarst.jórn á að láta
falla niður gjaldið sem reiknað eíi
af vörunni þegar hún fer hjeðan, í
en það gjald er helmingi lægra en
gjaldið sem greitt er, er varan
kenxur. - (
Sigurði Jónassyni fanst þessi
ívilnun of lítil.
En borgarstjóri skýrði frá, að
lengra vildi hafnarstjórn ekki,
fara til móts við óskir þessa inn-
flytjanda, enda ekki eðlilegt. En
aðrir innflytjendur yrði vitanlega
að fá hjá höfninni sömu kjör og
S. í. S.
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.