Morgunblaðið - 31.03.1940, Síða 3

Morgunblaðið - 31.03.1940, Síða 3
* Sunnudagur 31- mars 1940. MORGUN BLAÐIÐ Skatturinn á raf- magnsstöðvar samhyktur i Nd. Neðri deild samþykti í gœr að leggja skatt á allar raf- magnsstöðvar á landinu, sem eru 150 kw. að stærð og yfir. Fjárhagsnefnd deildarinnar flutti breytingartillögur við raf- orkuveitusjóðs frumvarp Sjálf- stæðismanna um skatt þenna, sem er stighækkandi, eftir aldri stöðvanna, frá 2 krónum á kw. á ári og upp í 6 krónur. Breytingartillögur nefndarinn- ar voru samþyktar 1 deildinni með 16:10 atkvæðum og frum- varpið þannig breytt afgreitt til 3. umræðu. ★ Eins" og Morgunblaðið hefir áður skýrt frá, nemur þessi skattur fyrstu árin um 31 þús. kr. árlega fyrir Reykjavíkurbæ, hækkandi upp í 72 þús. kr. á ári, miðað við stærð rafmagns-< stöðva bæjarins nú. Þessi skattur er vitanlega ekkert annað en neysluskattur á almenning í bænum, því að hann verður að leggjast á raí- magnsnotkun fólksins. Þingmerinimir eru að reyna að telja sjer trú um það, að þessi skattur sje nauðsynlegur til þess' að hrinda eitthvað á- leiðis rafmagnsmálum sveit- anna. En þessir háu herrar gá ekki að því, að rafmagnsmál sveitanna verður aldrei leyst nema í sambandi við stórvirkj- un og til þess þarf erlent fjár- magn. - Þegar Jón Þorláksson, hinn víðsýni og stórhuga framfara- maður, var að hrinda Sogsvirkj-i uninni í framkvæmd, sýndi hann fram á hvernig ætti að leysa rafmagnsþörf hjeraðanna á Suð Vesturlandi. Hann ætlaðist til að það yrði gert í sambandi við Sogsvirkjunina. En slík raf- orkuveita um hjeruðin verður ekki framkvæmd nema með miklu fjármagni, sem ekki er til í landinu. En það er ekki hægt að vænta þess, að erlent fjármagn fáist til slíkra framkvæmda, ef Alþ. fer út á þá óheillabraut, að skattleggja rafmagnsstöðvar, Og það áður en f járhagsafkoma þeirra er trygð. Við vitum vel, að allar hinar stærri rafmagnsstöðvar, sem hjer hafa verið reistar (Sogs- stöðin, Isafjarðarstöðin, Laxár- stöðin) verða að standa undir dýrum lánum. Og til þess að rísa undir byrðinni, neyðast þær til að selja rafmagnið dýrt. — Nú kemur Alþingi og skattlegg- ur þessar stöðvar og þyngir byrðarnar enn meir! Er nokkurt vit í þessu? Er ekki með slíkri skattastefnu ver- ið að útiloka með öllu, að fram- vegis fáist eyrir af erlendu fjár- magni til slíkra framkvæmda á íslandi? ★ Samtímis því, sem neðri deild FRAMH. Á SJÖTTTJ BÍÐU 35% lækkun ýmsra lögboð- inna gjalda ríkissjóðs Stjórnin biður um heimild 1. FRAM ER KOMIÐ á Alþingi stjórnarfrumvarp „um heimild fyrir ríkisstjórnina til að fella niður eða lækka ýmsar greiðslur samkvæmt lögum“. Með frumvarpi þessu fer stjórnin fram á heimild til að lækka ýms lögbundin gjöld ríkissjóðs um 35%. Rök stjórnarinn- ar fyrir heimildinni eru þessi: „Sökum óvissunnar um fjárhags-<! afkomu ríkissjóðs á árinu 1941, sem og á yfirstandandi ári, þykir brýn nauðsyn á því, að þær heimildir, sem í frumvarpinu felast, verði veittar". I fjárlögunum er samskonar heimild að því er snertir hin ólögbundnu gjöld ríkissjóðs. Frumvarpið er aðeins ein grein, svohljóðandi: Á árinu 1941 er ríkisstjórninni heimilt, ef nauðsyn krefur: Að fella niður greiðslu á 35% af framlögum ríkissjóðs, sam- kvæmt fjárlögum, til: a. Byggingarsjóðs, sbr. II. kafla laga nr. 76, 11. júní 1938, um byggingar- og landnámssjóð. b. Endurbygginga íbúðarhúsa í sveAum, sbr. III. kafla sömu laga. c. Nýbýla og samvinnubygða, sbri. IV. kafla (34. og 37. j gr.) sömu laga. Að lækka um 35% framlag ríkiss.jóðs samkvæmt fjárlögum, til jarðabótastyrkja, sbr. 9. gr. jarðræktarlaga nr. 101, 23. júní 1936. Að miða framlag ríkissjöðs til byggingarsjóða, samkvæmt 3. gr. laga nr. 3, 9. jan. 1935, um vérkamannabústaði, við kr. 1,30 fyrir hvern íbúa kaupstaðar eða kauptún, gegn jafn háu framlagi bæjar. og sveitarsjóða, og að lækka fjárveitinguna samkv. fjárlögum í hlutfalli við það. Að láta tekjuauka þann, sem gert eí ráð fyrir í 2. gr. laga um bráðabirgðatekjuöflun ríkissjóðs og jöfnunarsjóðs bæjar- og sveitarfjelaga, er gilda fyrir árið 1941, renna beint í rík- issjóð og að láta tekjuauka þann, sem gert er ráð fyrir í 4. mgr. 3. gr. pefndra laga einnig renna beint í ríkissjóð. Að láta gjald í fiskimálasjóð samkv. 2. lið 13. gr. laga nr. 75 31. des. 1937 renna beint í ríkissjóð. Að fella niður 35% af framlagi ríkissjóðs til lífeyrissjóðs Is- lands samkv. 78. gr. alþýðutryggingarlaga, nr. 74 31. des- ember 1937. Að lækka verðlagsuppbót til embættis- og starfsmanna ríkis-’ ins samkvæmt lögum um 35%. Dýrtíðín vex hröðtim skrefum: Visitala kauplags- nefndar 121, eða 9 stigum hærri en á áramótum SAMKVÆMT ÚTREIKNINGI Kauplagsnefndar er vísitala framfærslukostnaðar í Reykjavík mánuðina janúar til mars 121 og er þá miðað við grundvöllinn 100 jan.—mars 1939. ;: Seinasta vísitalan, mánuðina okt.—des. 1939, var vísitalán 112 og Var kaupgjaldið reiknað með þeirri vísitölu frá 1. jan. þ. á. Þrjá tindanfarna mánuði hefir vísitalan þannig hækkað um 9 stig, eða um tæp 8%. 2. 3. 5. 6. 7. „Stundum - ug stundum ekki" Gamanleikur Leikfjelagsins A fimtudaginn kemur hefir Leikfjelag Reykjavíkur frumsýningu á gamanleik, sem Emil Thoroddsen hefir soðið upp úr leikriti eftir Arnold & Bach og er uppistaðan þeirra, en alt ívaf- ið hans og gerist leikurinn að nokkru leyti í Hvíta húsinu við Lækjartorg, en að nokkru leyti að Vatnalaugum. Leikurinn heitir „Stundum og stundum ekki“. Leikstjóri er Indriði Waage, en aðalleikendur Brynjólfur, Alfred Andrjesson og Auróra Halldórs- dóttir, en hún hefir áður haft smá- hlutverk nokkur hjá Leikfjelag- inu. En alls eru leikendur einir 18. Lárus Ingólfsson hefir sjeð um leiksviðsútbúnað. Leikurinn er sagður bráðskemtilegur. Hefir Em- il verulega tekist upp. Deilan um skáldin oo listamennina Breytingartillögur fjárveit. inganefndar við 3. umræðu fjárlaganna eru komnar fram. Eru þær 70 talsins og flestar ■ til gjaldahækkunar. Stærstu liðirnir eru: Öxar- fjarðarheiðarvegur 10 þús.; til dýpkunar paufarhafnar 10 þús- und; til vaxtagreiðslu samkv. nýju hjeraðsskólalögunum 20 þúsund (þenna bagga bætti síð- asta Alþingi á ríkissjóðinn) ; til rannsóknaráðs, til náttúrurann- sókna og áhaldakaupa 30 þús. Styrkurinn (10 þús. kr.) til Stúdentagarðs er bundinn því skilyrði, að stúdentar á viðskifta háskólanum njóti sama rjettar til garðvistar og aðrir stúdentar. Þá vekur nefndin enn upp deiluna um skáldin og lista-, mennina. Hún flytur tillögu um að tekin verði út af 15 grein nöfn 48 rithöfunda, skálda og listamanna, en veittar verði 80 þúsund krónur í þessu skyni, sem mentamálaráð úthlutar. Kolatonnið 155 krónur! Reykvíkingar fengu þá til- kynningn í gær, að kola- tonnið væri enn á ný hækkað um 30 kr. og kostaði nú 155 krónur, Þessi gífurlega verðhækkun kol- anna mun hafa komið bæjarbúum mjög á óvart. Fyrir tæpum mán- uð'i hækkaði kolaverðið' um 33 kr., úr 92 kr. upp í 125 kr. Þá var því borið við, að kolin í bæn- um værn mjög til þurðar gengin og væri hækkunin gerð til þess að draga úr sölunni. Ilinsvegar var því yfirlýst af verðlagsnefnd, að öll verðhækkunin yrðí látin ganga til lækkunaæ á nýjum kolabirgð um, þegar þær kæmu. Síðan þetta skéði er sem sje líðinn tæpur mánuður. M.. ö. o. kolaverslanir höfðu nálega mánað- artínia selt kol í bænum með 33 kr. aukaálagningu, til þess að ekki þyrfti að hækka verulega Jiinar nýju birgðir, er þær kæmú. Fyrsta kolaskipið kom fyrir 2 dögum, með nýjar birgðjr, rúm 5000 tonn. Því var yfirlýst af at- vinnumálaráðherra á Alþingi sama daginn og kolaskipið kom, að kolin kostuðu ,um 160 kr. tonn- ið. í gær kemur svo tilkynningin um verðið á þessum kolum. til bæjarbúa, ’og það er 155 kr. tonn- ið. M. ö. o. Reykvíkingar verða að greiða kolin nálega fullu verði, þrátt fyrir að þeir sjeu húnir í nálega mánaðartíma að greiða 33 króna aukaverðhækkun, til þess að mæta þessum nýju birgðum! Þessi 33 kr. ankaskattur hefir þannig alveg horfið og alls ekki komið bæjarbúum til góða nú. FRAMH Á 9JÖTTU SfeTJ. Kaupgjaldið reiknast nú frá 1. apríl með hinni nýju vísitölu (121) og helst það kaupgjald næstu þrjá mánuði, eða til 1. júlí. Þá breyt- ist kaupgjaldið aftur eftir nýrri vísitölu fyrir mámiðina apríl— júní.h Samkvæmt hinni nýju vísitölu (121) Verða kaupuppbætur verka- fólks samkvæint, gengislögunum frá 1. apríl sem hjer segir: I ll’ flokki 15.75% í 2.'-flokki 14.00% í 3. 'flokki 11.05% Með vísitölu þeirri, sem kaup- gjaldið var reiknað yfir mán- uðina jan.—mars voru uppbæturn- ar þessar: í 1. flokki 9%, 2. flokki 8% og í 3. flokki 6.1%. Samkvæmt gengislögunum mið- ast hinir þrír flokkar við eftir- farandi kaupgjald: 1. flokkur kr. 1.50 eða minna um tímann. 2. flokkur frá kr. 1.51—2.00 um tímann. 3. flokkur kr. 2.01 um tímann og yfir. Fyrir Alþingi liggur nú frum- varp um verðlagsuppbót á laun allra embættismanna og opinberra starfsmanna. Þar er uppbótin sém hjer greinir; í 1. flokki teljast laun 300 kr. eða minna á mánuði. í 2. flokki laun frá 300—400 kr. á mánuði. í 3. flokki laun yfir 400 kr. á mánuði, þó þannig, að af hærri mánaðarlaunum en 650 kr. greið- •ist einungis uppbót af 650 kr., en ekki af því sem fram yfir er. - Alþingi hefir ekki enn gengið endanlega frá þessum lögum. Hækkunin á hinum einstöku að- alliðum vísit.ölunnar var orðin semi hjer segir 1. mars: Matvæli Fatnaður og skófatn. Eldsneyti og ljósmeti Önnur útgjöld 33% 21% 76% 32% Sjálfstæðiskvennafjelagið „Vor- boði“ heldur aðalfund á Hótel Björninn annað kvöld 8.30.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.