Morgunblaðið - 11.06.1940, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 11.06.1940, Qupperneq 2
2 MORGUN BLAÐIÐ Þriðjudágur 11. júní 1940. Italir fóru í stríðið með Þjóðverjum kl. 12 í nótt Mussolini sagði Bret- um og Frökkum slríð á hendur í gær Woregur á valdi Þióöveria Bandamenn drógu alt herlið sitt burtu Ti að var tilkynt úr þýsku fangabækistöðvunum á vesturvígstöðvunum snemma í gærmorgun, að herför Þjóð. verja til Noregs væri lokið með fullum sigri. Hin hetjulega barátta þýsku hersveitanna í Narvik hefir nú hlotið krýningu sína með alger- um sigri, segir í tilkynningunni. í tvo mánuði hafa austurrísk- ar fjallahersveitir barist þarna hetjulega með stuðningi flugliðs og flotadeilda, gegn gífurlegu ofurefli. Þær hafa með úthaldi sínu sýnt það, að jafnvel þar sem fáliðaðar þýskar hersveitir berjast gegn ofurefli, geta þær trygt þýskum vopnum sigur. Hersveitir Bandamanna hafa nú verið neyddar til að yfirgefa Narvik og Harstad. Þýski fán- inn blaktir nú endanlega yfir Narvik. Aðfaranótt hins 10. júní, bað norski herinn um að samningar byrjuðu um uppgjöf hans. Tilkynning um brottflutning herliðs Bandamanna úr Norður- Noregi var birt í London um há- degi í gær. í tilkynningunni segir, að á- kvörðun þessi hafi verið tekin í samráði við Hákon VII. Noregs. konung og ríkisstjórn hans. Nokkur hluti hers Norðmanna í Norður-Noregi var fluttur á brott, ásamt breska og franska hprliðinu, og verður hann end- urskipulagður og æfður annars staðar. Hákon konungur, fjölskylda hans og norska ríkisstjórnin, steig á land í breskri hafnar- borg í gær, af bresku herskiþi, FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU KLUKKAN TÓLF Á MIÐNÆTTI fóru ítalir í stríðið með Þjóðverjum, gegn Bretum og Frökkum. Sendiherrum Frakka og Breta í Rómaborg var afhent stríðsyfirlýsing Itala um miðjan dag í gær og nokkrum klukkustundum síðar tilkynti Mussolini ákvörðun sína í útvarpSræðu, sem útvarpað var um allar ítalskar og þýskar stöðvar, og stöðvar í Bandaríkjunum. I ræðu sinni sagði Mussolini, að ítalir ætluðu ekki að draga önnur lönd, sem hefðu landamæri að ítalíu á landi eða sjó ,inn í stríðið. „Tyrkir, Grikkir, Júgóslafar, Svisslendingar og Egypt- ar ættu að veita þessu athygíi^, sagði Mussolini, „því að það er eingöngu undir þeim sjálfum komið hvort þeir dragast inn í stríðið“. VEGNA SKULDBINDINGA VlD ÞJÓÐVERJA Laust fyrir kl. 3 í gær, eftir Mið-Evrópu tíma, kallaði Ciano greifi, utanríkismálaráðherra ítala, sendiherra Frakka í Róma. borg, M. Francois Poncet, á si’hh fund og laö upp fyrir honum svohljóðandi yfirlýsingu: „Konungur og keisari ítala telur sig eiga í styrjöld við Frakkland frá deginum á morgun, 11. júní að telja“. Francois Poncet spurði utanríkismálaráðherrann: „Hver er orsök þess, að ítalir segja Frökkum stríð á hendur.?“ Ciano greifí svaraði, að þeir gerðu það til þess að uppfylla skuldbind- ingar sínar gagnvart Þjóðverjum. Sendiherra Frakka svaraði þá, að ekkert hefði breyst frá því, að Ciano greifi hefði sjálfur lýst yfir því, í ræðu sem hann flutti í desember síðastliðnum, að Italir væru ekki skuldbundnir til að hjálpa Þjóðverjum í næstu þrjú ár, á meðan þeir væru að birgja sig upp og efla her sinn. Síðan lýsti sendiherrann yfir því, að Frakkar hefðu öflugri her við Miðjarðarhaf heldur en nokkurs staðar annars staðar. Kl. 16,45 var sendiherra Breta í Rómaborg kallaður á fund Cianos greifa og honum afhent yfirlýsing samhljóða yfirlýsing- unni, sem sendiherra Frakka vár afhent. En á meðan sendiherrar Breta og Frakka voru í utanríkis-> málaráðuneytinu til að hlýða á ákvörðun ítala, sem lengi hafði verið boðuð, þótt hún kæmi ekki fram, fyr en Þjóðverjar voru við hlið Parísarborgar, var múgur og margmenni að safnast saman á torginu fyrir framan Feneyjahöllina. Italir hjeldu í gær hátíðlegan „flotadag" og það háfði verið boðað, að Mussolini getláði að flytj'a ræðu. Snemma í gærmorgun fóru kallarar um götur borgarinnar til að hvetja fólk til að safnast saman á Feneyjatorginu. Fólkið safnaðist saman í hópa og gekk síðan fylktu liði á ákvörðunar- staðinn. Múgurinn bar spjöld þar sem á voru letraðar hinar ýmsu kröfur ítala um landvinninga: Korsika! Tunis! Nissa o. s. frv. Það var auðsjeð á látbragði manna, að þeir bjuggust við stórtíð- indum og að þá meir en rendi grun í hver þessi tíðindi væru. Skömmu áður en Mussolini steig fram á svalir Feneyjahallarinn- ' ar, sauð og svall múgurinn á torginu með háværum hrópum á „11 Duce“. Með Mussolini á svölunum og við hlið hans var tengdason- ur hans, Ciano greifi, utanríkismálaráðherra Itala. * Mussolini talaði í 15 mínútur. En ræða hans var þó ekki eins löng og tíminn bendir t.D, því að hvað eftir annað varð hann að staldra við á meðan heyr-hrópin gullu í móti honum. Musso. lini mælti á þessa leið: RÆÐA MUSSOLINIS Hermenn á landi, sjó og í lofti. Svartstakkar, ítalska þjóð, menn og konur í Ítalíu, Albahíu og nýlendunum. Við stöndum á sögulegum tímamótum. Hlýðið á mál mitt. FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU. Þjóðverjar eru að um- kringja París Stj órnarskrifstofurn- ar íluttar á burtu PARÍS er nú í alvarlegri hættu. Það var til- kypt í gærkvöldi, að allar helstu stjórnar- skrifstofurnar hefðu verið fluttar frá París. út á land og að það hefði verið gert samkvæmt eindregn- um tilmælum frönsku herstjórnarinnar. Reynaud, forsætisráðherra Frakka, fór í gær frá París til vígstöðvanna. Síðustu dagana hefir verið stöðugur straumur flóttamanna frá borginni og hefir þessi straumur aukist síðasta sólarhringinn. En breskir frjettaritarar í París leggja áherslu á, að fólkið sje rólegt og æðrulaust. Kauphöllin hefjr verið flutt frá París út á land um stundar- sakir. En bankar starfa áfram í borginni, eins og venjulega. Mr. William Bullit, sendiherra Bandaríkjanna í París lýsti yfir því í gær, að hann myndi taka því, sem að höndum bæri í borginni sjálfri, á meðan stríðið stæði yfir. Það verður ráðið af hernaðartilkjmningu Frakka í gær- kvöldi að Þjóðverjar eru að reyna að umkringja París og sækja fram bæði austan og vestan við hana, að líkindum með það fyrir augum að láta hersveitirnar ná saman að sunnanverðu. Samtímis sækja Þjóðverjar fram á tveim öðrum vígstöðvum, austur hjá Rethel, þar sem þeir stefna að Reims og enn austar, fyrir austan Aisne. Þar sækja þýskar hersveitir suð-austur á bóginn og eru komnar að borginni Beaumont hjá Meuse. Svo virðist, sem mark. mið þessara hersveita sje að sækja að Maginotlínunni aftan frá. Öll víglínan er um 320 km. löng. Markmið Þjóðverja með því að sækja fram á allri víglínunni, er talið vera að "reyna að gjörsigra hinn franska her í þessari einu or- ustn, sem nú hefir staðið yfir í sex daga. Meginsókn Þjóðverja hefir verið eftir vegunum frá Amiens til Rouen og frá Amiens til Yernon. Báðar þessar borgir eru nú á valdi Þjóðverja. Hersveitir þeirra eru komnar til Signu á báðum þessum stöðum, og nolckrum her- sveitum hefir tekist að komast yfir fljótið, þótt Frakkar hafi veitt harðvítugt viðnám. Hersveitirnar, sem fóru yfir Signu, eru um 50 km. frá París. Þýsku hersveitirnar, sem eru að reyna að komast fram hjá París að austanverðu, voru í gær komn- ar til fljótsins Ourcq og stefndu j áttina til Chateau Thierry við fljótið Marne. í Champagne-hjeraðinu sækja Þjóðverjar fram beggja megin við Roosevelt opnar Bandamönnum auðlindir Banda- rfkjanna Roosevelt flutti kl. 11.15 í gær- kvöldi eftir ísl. tíma ræðu í Virginia og hafði verið boðað fyrirfram að hann m.yndi gefa mikilvæga yfirlýsingn varðandi styrjöldina. En talið var að hann hefði orðið að hreyta nokkrum köflum í ræð- unni á síðustu stundu vegna fregn- arinnar uffl að ítalir hefðu sagt Bretum og Frökkum stríð á hend- ur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.