Morgunblaðið - 16.11.1940, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 16.11.1940, Blaðsíða 3
Laugardagur 16. nóv. 1940. MORGUNBLAÐIÐ 3 Hin nýja Akureyrar- kirkja vígð á morgun Stærsta hús þjóðkirkj- r unnar á Islandi . Nýja kirkjan a Akureyri. VtGSLA hinnar nýju Akureyrarkirkju fer fram á morgun. Biskup landsins, herra Sigurgeir Sigurðsson framkvæmir vígsluna. KveSjuguðsþjónusta var í gömlu kirkjunni á sunnudaginn var; rakti vígslubiskup, síra Friðrik Rafnar, þar sögu kirkjunnar. Kirkjan var áður að Hrafnagili. Með konungsbrjefi 1851 var veitt leyfi til að fjytja kirkjuna ril Akureyrar og úrskurðurinn gefinn 20. júní 1860. Akureyri var því annexía frá Hrafnagili t.il 1880, en þá varð hún sjerstakt prestakall. Fyrsti prestur á Akureyri var síra Guðmundur Helgason. Hana hafði brauðaskifti við síra Þór*- hall Bjarnarson, síðar biskup, sem þjónaði í nokkra mánuði. Var þá síra Stefán Jónsson á Þóroddsstað settur prestur á Akureyri og þjón- aði hann þar til síra Matthías Jochumsson kom 1887. Hann þjóii- aði til 1900 og kom þá síra Geir Sæmundsson, er þjónaði ti 1 1927. Frá þeim tíma hefir síra Friðrik Rafnar vígslubiskup þjónað á Ak- urevri. Gamla kirkjan var orðin alt of lítil fyrir hinn fjölmenna söfnuð Akureyrar. Var þess vegna fyrir nokkrum árum hafist handa af ýmsurn áhugamönnum um söfnun í kirkjubyggingarsjóð. Gekk sjóðs- söfnunin hægt lengi vel, en hin síðari ár komst skriður á málið. einkum fyrir ötula forgöngu síra Friðriks Rafnars. Hann hefir unn- ið kappsamlega að málinu. Einnig hefir Kvenfjelag Akureyrarkirkju, undir forystu frú Asdísar Rafnar veitt málinu mikinn stuðning. Kirkjan var afhent söfnuðinuin 1938. Alls munu hafa safnast i samskotum og gjöfum xnn 40 þús. krónur. Byrjað var á grunni kirkjunn- ar í september 1938 og unnu aðal lega skólapiltar verkið í ákvæðis- vinnu. Guðmundur Ólafsson bygg- íngarmeistari bygði undirstöður og kjallara. En aðalbygginguna. töku í ákvæðisvinnu byggingar- meistararnir Ásgeir Austf jörð, Þorsteinn Þorsteinsson frá Lóni og Bjarni Rósantsson. Indriði Síra Friðrik J. Rafnar. Helgason rafvirkjameistari hafði umsjón ineð raflögnum. Raftækja- verksmiðja Hafnarfjarðar sá um hitunartækin. Ósvald Knudsen málarameistari annaðist málningu. Bekki smíðaði húsgagnameistari Kristján Aðalsteinsson, en Ólafur Agxistsson húsgagnameistari smíð- aði altari og kórumbúnað. Lag- myndir á söngloftsgafli gerði Ás- mundur Sveinsson myndhöggvari. Gúðjón Samúelsson, húsameistavi ríkisins, gerði uppdrætti að kirkj- unni og hafði yfirumsjón smíð- innar. Formaður sóknarnefndar, Kristján S. Sigui'ðsson hafði og umsjón með verkinu. Hin nýja, veglega kirkja mun vera stærsta hús þjóðkirkjunnar íslensku. Hún tekur 600 manns í sæti, en getur rúmað 1000—1200 manns. TJpplýsingar þessar fekk Morg- unbiaðið símleiðis frá, frjettarit- ara sínum á Akureyri. Lýst eftír póstbátntni „01af“ r Astæðttlaust að óttast um bátinn Slysavarnafjelagið auglýsti í út- varpinu í gærkvöldi eftir póstbátnum „01af“ frá ísafirði, er fór frá Patreksfirði kl. 2 aðfara- nótt fimtudags, á leið til Reykja víkur, en var ekki kominn fram. Voru skip, er kynnu að vera á þessum slóðum, beðin að veita bátnum eftirtekt og aðstoða hann. ef með þvrfti. Þegar Morgunblaðið átti í gær- kvöldi tal við Jón Bergsveinsson, erindreka Slysavarnafjelagsins, taldi hann ástæðulaust að vera hræddur um skipið. Þetta er 74 tonna gnfuskip og veður ekki vont. Ilinsvegar var dimmviðrl (hríð) við Snæfellsnes í gær. Margir farþegar munu hafa verið með „01af“ og telur Jón senni- legast, að skipið hafi legið í land- vari sunnan við Snæfellsnes og væri að bíða eftir að birti. Tal- stöð er í „01af“, en hann svaraði ekki kalli, hvort sem það stafar af því að stöðin hafi verið biluð eða ekki í notkun; um það verð- xir ekki sagt. Ægir fór vestur í gæi’kvöldi og átti að svipast um eftir bátnum. Eldborgin fekk bráðabirgðavið- gerð í Eyjum i Eldborgin hefir nú fengið bráðabirgðaviðgerS í Vestmannaeyjum og farin út með fiskfarminn. Voru tekin 8 tonn af fiski úr skipinu í Eyjum til þess að Ijetta á því, en þess þurfti með, vegna þess að talsvert af sem- enti var sett fram í, þar sem skemdirnar voru, en það þyngdi skipið á sjónum. Sjópróf voru haldin í Eyj- um yfir skipsmönnum á Eld- borginni. Er gert ráð fyrir, að með þeirri bráðabirgðaviðgerð, sem skipið fekk í Eyjum, geti það óhindrað farið ferðina ut og heim aftur. Fær svo skipið fullnaðarviðgerð, er það kem- ur til Reykjavíkur. Pólska skipið, sem rakst á Eldborgina, hafði stutta viðdvöl í Eyjum og liggur nú hjer í Reykjavík. Hófust hjer í gær sjópróf yfir skipsmönnum, en gengu erfiðlega að byrja með, vegna þess að skipstjórinn var vandlátur með túlkana. A hftnu leftllnu Stauning svarar orð- rómi um stjórnar- skifti í Danmörku „Engin staðfesting á fregnum um amerískar flugvjelastöðv- ar á Grænlandi* THORVALD STAUNING, forsætisráðh. Dana, las upp í danska þjóðþinginu í gær yfirlýs- ingu, sem var á þessa leið í stórum dráttum: Undanfarið hefir mikið verið talað um myndun nýrrar stjórnar í Danmörku. Það getur auðvitað komið til mála, að stjórnin verði endurskipulögð, en það verður þá að gerast á lög- legan hátt. Það getur ekki gerst á þann hátt, að ekki sje tekið tillit til ríkisþingsins. Konungurinn getur ekki skipað nýja ríkisstjórn án tillits til ríkisþingsins, enda hefir konungur enga ósk látið í ljós í þá átt. Hjer í landinu er lögleg stjórn, sem nýtur stuðn- ings ríkisþingsins. í stjórnarskránni er gert ráð fyrir að hinir þrír aðilar, konungur, ríkisstjórnin og ríkisþingið starfi saman. Það er ekki hægt að ganga á snið við stjórnarskrána. En það er hægt að breyta stjórnarskránni, en það verður þá að gerast á löglegan hátt. 29.500 króna sekt fyrir land- hslgisbrot H æstirjettur kvað í gær upp dóm í málinu: Valdstjórnin gegn Adolf Kristni Ársæli Jó- hannssyni skipstjóra á b.v. Sindra, er kærður var fyrir landhelgis- brot. Það var föstudaginn 30. ágúst s.l. að varðbáturinn Faxi stöðvaði Sindra, þar sem hann var að veið um út af Arnarfirið. Við mæling- ar yfirmanna varðbátsins kom í Ijós, að togarinn var 1.2 sjóm. inni í landhelgi. Við rjettarhöld- in hjá sýslumanni Barðastrandar- sýslu viðurkendi skipstjórinn 4 Sindra langhelgisbrot sitt og var dæmdnr í 29.500 króna sekt. — Hann áfrýjaði. Hæstirjettur stað- festi dóminn. Sækjandi málsins var Pjetur Magnússon hrm. - og verjandi Gunnar Þorsteinsson hrm. Iþróttaf jelag Stúdenta. Aðal- fundur Iþróttafjel. Stúdenta var haldinn í Háskólanum í gær- kvöldi. Fráfarandi formaður, Skúli Thoroddsen, stud. med., skýrði frá störfum fjelagsins á síðastl. ári og gjaldkeri Sigm. Jónsson stud. med. las upp reikninga og skýrði frá fjárhag fjelagsins. — 1 stjórn fjelagsins fyrir næsta starfsár voru kosn- ir: Logi Einarsson, stud. med., formaður, Harald Wigmo, stud. med. ritari og Jón Bergmann ;tud. med. gjaldkeri. Lögbundið stjórnskipulag — þjóðfjelag, sem reist er á lög- um, það er það sem dapska þjóðin vill. Um það hefir verið rætt, að láta fara fram nýjar kosningar til Þjóðþingsins. En það væri að gera þjóðinni þarflaust ónæði, þar sem ekki er nema 1 pá ár síðan þingið sem nú situr var kjörið til næstu 4 ára. Stauning vjek að lokum að Grænlandi, og sagði að frjettir þær, sem dönsku stjórninni hefði borist þaðan, gæfu ekki tilefni til neins kvíða. Hann sagði, að danska stjórnin hefði enga staðfestingu fengið á fregnum, sem gengju um það, að Bandaríkin væri að koma sjer upp flugvjelabækistöðvum á Grænlandi. VIÐSKIFTI DANA OG ÞJÓÐVERJA. Eric Scavenius, utanríkismála- ráðherra Dana, stóð upp, er Staun- ing hafði lokið máli sínu, Oig gaf yfirlit yfir utanríkisverslun Dana. Scavenius sagði, að þegar mark- aðir Dana í Vestur-Evrópu hefðu lokast, hefðu þeir orðið að hætt.a að greiða vörur sínar méð frjáls- um gjaldeyri. Þeir hefðu orðið að skipuleggja utanríkisverslun sína á „clearing“-grundvelli“. Þeir hefðu þegar haft „clearing“ samning við Þjóðverja, svo að gagnvart þeim hefði engin breyt- ing gerst í grundvallaratriðum. En það væri ekki nema eðlilegt, að viðskifti Dana við Þjóðverja hefði aukist. Það hefði verið Dönum mikið happ, að Þjóðverjar hefðu haft það skipulag á atvinnumál- um sínum, að þeir hefðu getað keypt af þeim vörur þeirra, sem ekki þyldu langa geymslu. Hinsvegar væri það eðlilegt, að Þjóðverjar gætu ekki greitt inn- flntninginn frá Danmörku með FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.