Morgunblaðið - 13.07.1941, Blaðsíða 7
Sunnudagur 13. júlí 1941.
MORGUNBLAÐIÐ
7
Húsin
í Skerjafirði
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
ing hafði fengið um bætur fyr-
ir tjón sitt annan en þann, sein
fólst í munnlegu loforði hins
breska foringja, sem með þessi
mál hafði haft að gera.
Er nú einnig tekið að rífa hin
tvö húsin, sömuleiðis án þess að
samningur hafi verið undirrit-
aður og gegn mótmælum húseig
enda.
Húsin, sem rifin hafa verið,
eru númer 6, 8 og 10 við Reykja
víkurveg.
Hafa Bretar lofað að flytja
þau þangað, sem leyfi fæst til
að reisá þau.
Hefir nú samkvæmt upplýs-
ingum Gunnars Þorsteinssonar
tekist að útvega lóðir undir þau
í Lauganesbygð við nýja götu,
sem áformað er að liggi sam-
hliða Lauganesvegi.
En all hart sýnist vera geng-
ið að fólki því, sem þannig nær
fyrirvaralaust er rekið úr hús-
um sínum, án þess þó að hafa
fengið nema munnleg loforð
um að fá tjón sitt og óhagræði
bætt.
*
Kona slasast
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
ósködduðu og lagði af stað með
það aftur niður stigann. En
efst í stiganum verður henni
fótaskortur og fellur niður hann
allan með barnið. Tókst stúlku,
sem nærstödd var að grípa það
neðst í stiganum. Var það mjög
lítið meitt. En Jódís var með-
vitundarlaus og var eins og fyr
segir, ekið á Landsspltalann.
Þegar blaðið átti í gær tal við
sjúkrahúsið, var hún við slæma
líðan, en var þá komin til með-
vitundar.
Töldu læknar hana hafa feng
ið töluverðan heilahristing. en
ytri áverkar væru litlir.
Móttekið áheit á Viðeyjarkirkju
frá Jóni 20 kr. Kirkjuhaldari.
Verkfæri
Járnheflar,
J árnhef ilstannir,
Vasalóðbretti,
Glerskerar,
Útskurðarverkfæri
(,í settum),
Skrúfjárn, margar teg.
Trjeborar, allar stærðir,
Sirkiar,
Meitlar
og margt fleira.
VERSLUNIN
Brynja
RekMurdiilf-
um fjölgar
Upp á síðkastið hefir borið
all mikið á rek-tundur-
duflum víðsvegar fyrir Norður-
og Vesturlandi.
Um tíma í vetur var og nokk
uð um þau, en síðar dró tölu-
vert úr hættunni.
I vetur voru settir rifflar á
Óðinn og Sæbjörgu, auk Þórs.
Fengu þessi skip- það hlutverk
að skjóta niður rekdufl, sem sæj
ust á skipaleiðum og hvar sem
þau anars sæjust við landið.
Hafa allmörg dufl vérið skot
in niður í vetur, ennfremur nú
í sumar upp á síðkastið.
Rorður-ísfirðingar
tiefjast handa um
samgðngumál sln
200 þús. kr. lofað
til nýs Djúpbáts
t’kriður er nú kominn á Djúp-
bátsmál Norður-ísfirðinga og
ísfirðmga. Var fyrir skömmu
haldinn fundur á ísafirði og skil-
aði þá nefnd sú, sem kosin var
á fundi í Reykjanesi í vetur, af
sjer störfum.
Það fje, sem lofað liefir verið
til býggingar nýs djúpbáts, nemur
;uú alt að 200 þús. krónum.
Alþing'i samþykti í vetur að
leggja fram 150 þús. kr. í þessum
tilgangi* þó ekki yfir % bvgging-
arkostnaðar; sýslusjóður N.-ís. 10
þús. kr.: ísaf jarðarkaupstaður 10
þús. kr.; hreppsf jelög og einstalc-
ingar 15 þús. kr.. og Kaupfjelag
Isfirðinga 10 þús. kr.
Heldur fjársöfnun t.il fyrirtæk-
isins áfram. Eru það áform hjer-
aðsbúa að vinna að því með oddi
og egg að ekki þurfi að byggja
í skuld. En ætla má að skip, sem
vel hentar, alt að 50 smálesta
stórt, niuni nú kosta um 300 , þús.
kr. Vantar því enn allmikið á að
nægilegt fje sje fyrir hendi. Væri
vel t.il fallið að Djúpmenn, sem
burtu eru farnir úr heimahögum,
eví eiga fjárráð nú. legðu eitthvað
af mörkum til þessa mikla nauð-
synjamáls bygðarlags síns.
Á fyrgreindum fundi var sanx-
þykt fjelagsstofnnn, sem annist
| Djúpferðir og uin Vestfirði með
nýju skipi, sem smíðað verði eins
fljótt og unt er.
» í stjórn fjelagsins voni kosnir:
Af hálfu sýslunefndai; N.-ís.:
Torfi Hjartarson og Einar Gnð-
finnsson, sem aðalmenn, en vara-
menn Grímur Jó.nsti.on og Bjarni
Sigurðsson. Af hálfu ísafjarðar-
kaupstaðar: Jón Auðunn Jónsson
og Hannibal Valdemarsson. sem
aðalmenn, en varamenn Olafur
Pálsson og Helgi Hannesson.
Fundurhm kaus af sinni hálfu
Ketil Giiðmundsson til þess að
taka sæti í stjórninni.
Fór fundurinn hið besta fram
og sýndi mikinn einhug jijeraðs-
búa urn að hrinda þessu máli í
framlcvæmd.
Dagbók
NætUrlæknir er í nótt Krist-
björn Tryggvason, Skólavörðustíg
33. Sími 2581.
Næturvörður er í Ingólfs Apó-
teki og Laugavegs Apóteki.
Hallgrímsprestakall. Hámessa í
Dómkirkjunni í dag kl. 2, síra
Jakob Jónsson.
Síra Árni Sigurðsson verður
fjarverandi næstu vikur í sumar-
leyfi. í fjarveru hans geta safn-
aðarmenn falið þeim presti,- er
þeir kjósa sjáifir til þess, að ann-
ast þau prestsverk, sem þeir þurfa
að fá unnin á þessum tíma.
Þingvallakirkja. Messað í dag
kl. 15, síra Hálfdan H'elgason.
Hjúskapur. í gæp. voru gefia
Saman í hjónaband af síía Garð-
ari Svavarssyni ungfrú Ásta Þór-
ariiisdóttir og Guðmundur G'. Guð-
mundsson. Heimili ungu hjónanna
er á Bragagötu 23.
Eimreiðin, 2. liefti 47. árgangs,
er nýkomin út og flytur margar
athyglisverðar greinar, sögur,
myndir o. s. frv. Fremst í heftinu
er mynd af ríkisstjóra fslands, en
1 ritstjórnargreininni Við þjóðveg-
inn er rætt um ályktanir Alþingis
í sjálfstæðismálinu, ríkisstjóra-
kjörið og ýms uý viðhorf í ís-
lenskum stjórnmálum. Steingrím-
ur Matthíasson læknir ritar þriðju
og síðustu grein sína um Ný-
fundnaland, og nefnist liún Við-
reisn Nýfundnalands. Þá er grein
eftir síra Guðmund Einarsson á
Mosfelli um .Áhrif hebresku á ís-
lenska tungu. Mjög fróðleg grein
ei- í heftinu eftir ísólf Pálssoii:
Um veðurfar og örimmerki. Rit-
stjórinn skrifar grein, sem hann
nefnir: Fórnarlund og auðsótti.
Eun eru í heftinu gi'ein efti.r
Indvterjann Mahatma Gandhi,
OIíixu Andijesdóttui' o. f!.. sögur
eftir Helga Valtýsson og Friðgeir
II. Berg og' aðrar tvSer eftir unga
og áður óþekta höfunda, þau
Ki'istmann Bjarnason frá Mælifelli
og Guðnýju Sigux’ðardóttur, kvæði
eftir IIöllu Loftsdóttur, Sigurjón
Friðjónsson og Thor Lauge (í
þýðingu eftir Sigurð Jónsson frá
Brixn), Raddir, Ritsjá o. fl.
Útvarpið í dag:
14.00 Messa í Dómkirkjunni (sjera
Jakob Jónsson). Sálmar: 303,
235, 105/358, 26.
15.30—16.30 Miðdegistþnleikar
(plötur): Ýms lög.
10.30 Hljómplötur: Slavnesk rap-
- sódía eftir Dvorák.
20.20 Hljómplötur: Katólsk tón-
list.
20.30 Erindi: Ogmundur biskup,
d. 13. júlí 1541 (Magnús Jóns-
son prófessor).
21.00 Einleikur á píanó: Sónata
eftir Skúla Halldórsson (höf-
undurinn leikur).
21.20 ,,Systra-tríóið“ syngur
(Bjámheiður, Guðrúix og
Margrjet Ingimundardætur).
21.35 Hljómplötur: Lýrisk svíta
eftir Grieg.
Útvarpið á morgun:
12.00—13.00 Hádegisútvarp.
15.30 .Miðdegisútvarp.
10.30 Hljómplötur: Tónverk eftir
Ravel.
20.30 Erindi: Roosevelt Banda-
ríkjaforseti (Vilhjálmxxr Þór
bankastjói'i).
20.55 Hljómplötur: Forleikirnir
eftir Liszt.
21.00 Erindi: Bastillu-daguririn í
París 1030 (Jón úr Vör).
21.30 Hljómplötur: Frönsk tónlist.
S. K.T. Pansleikig
í kvöld í G. T.-húsinu kl. 10. Eldri og yngri dansarnir.
Hljómsveit S. G. T. Áskriftarlisti liggur frammi frá kl. 4.
Sími 3355. Pantaðir aðgöngumiðar sækist fyiár kl. 8.
HITS OF THE MOMENT
A6H0ST0FAGHANCE. HOTFEET
LADY OF MYSTERY — LOVE NEVER GROWS — MEXICAN
SWING — YOU, YOU, DARLING — DAYBREAK EXPRESS
— OLD — THE DAY WE MEET AGAIN — GONGA BRAVA
— A Nightingal sang in Berkeleysoure. — Bassin the Boss.
12th Street Rag — I want you to night — When day is done
og fl. af nýjustu Jazzlögum. — STRAUSS — WALDTEUFEL
— KALMAN LEHAR, vinsælustu valsar og óperettulög. —
„NITOUSHE“ — REGIMENTAL MARCHES. — Mikið úrval
af harmonikuplötum — HAWAIN- og GUITAR-plötur. —
KLASSISKAR plötur í stóru úrvali. — Nálar allar tegundir.
Hlfóðf œrahúsið
2-3 herbcrgi
óskast fyrir hárgreiðslustofu, strax eða 1. október.
SIGRÚN EINARSDÓTTIR.
Sími 5053.
Tilkynning.
Að gefnu tilefni, er því hjer með lýst yfir af hálfu
undirritaðra, að Eggert Gíslason, Hverfisgötu 39, rekur
ekki Hárgreiðslustofuna Centrum, Þingholtsstræti 1.
Reykjavík, 12. júlí 1941.
Dagbjört Finnbogadóttir. Hlíf Imrarinsdóttir.
Breska hersljórxiin
á íslandi tilkynnir:
að allar kröfur á herstjórnina, sem stofnaðar eru fyrir 1.
juní 1941, verði að sendast: Heirings Office, Laugaveg 16,
Reykjavík, fyrir lok júlímánaðar 1941.
... - •« . -
■imi 1380. __ LITLA BILSTOÐIN Er nokkuð *tór,
UPPHITAÐIR BÍLAR.
BEST AÐ AUGLYSA I MORGUNBLAÐINU.
Jarðarför ekkjtmnar
STEINUNNAR FINNSDÓTTUR,
sem andaðist á Elliheimilinu, 5. júlí, fer fram frá Dómkirkjunni,
mánndaginn 14. júlí
Börn hinnar látnu.
JarSarför fósturföður okkar,
GUÐMUNDAR HANNESSONAR,
fer fram frá Fríkirkjunni þriðjudaginn 15. þ. m. og hefst með
húskveðju frá heimili hins látna, Hverfisgötu 89, kl. 1 e. h.
Jarðað verður í Fossvogskirkjugarði.
Bjarnína Snæbjörnsdóttir. Karl Einarsson.