Morgunblaðið - 06.11.1941, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐID
Fimtudagur 6. nóv. 1941.
Rússar segja að Þjóðverjar sjeu
byrjaðir nýja sókn við Moskva
Þjóðverjar búast
við skjótum
árangri á Krím
LOSZOVSKY, fulltrúi rússnesku stjórnarinnar,
skýrði frá því í Kuibishev í gær, að síðustu tvo
sólarhringana hefði staðið yfir ný sókn Þjóð-
verja á Moskva-vígstöðvunum, en að árásum Þjóðverja
hefði alstaðar verið hrundið. Hann sagði, að bardagarnir
hefðu verið harðastir fyrir sunnan Moskva hjá Tula, en að'
einnig hefði verið ákaft barist hjá Mozhaisk, Volokolamsk
og Kalinin fyrir vestan og norðvestan borgina.
Loszovsky sagði að Þjóðverjar hefðu safnað nýju
varaliði úr hernumdu löndunum áður en þeir hófu þessa
sókn.
Rússneska herstjórnín gat ekki sjerstaklega um bardaga á
Moskvavígstöðvunum í tilkynningu sinni í nótt, heldur skýrði
hún frá hörðum bardögum á allri víglínunni.
Það er nú meir en vika síðan þýska herstjórnin mintist síð-
ast á hernaðaraðgerðir á landi á Moskvavígstöðvunum og í' her-
stjórnartilkynningunni í gær var aðeins getið um loftherna^ar-
aðgerðir þar.
Auk loftárása á Moskva skýrði herstjórnin frá harðri loft-
árás á iðnaðarborgina Gorki. Gorki er um 500 km. fyrir austan
Moskva.
Að öðru leyti skýrir herstjórnin aðallega frá bardögum
á Krímskaga.
Á suðausturströnd Krímskag-
ans er fjallgarður, sem hækkar
upp í 1500 metra, og segjast
Þjóðverjar vera komnir yfir
þenna fjallgarð, Jailafjallgarð-
inn, á einum stað, til Svartahafs
strandar.
í þýskum fregnum er talað
um að sókn þýsku herjanna sje
svo hröð, að búast megi fljót-
lega yið góðum árangri. — Er
alitið, að með þessu sje átt við,
að Þjóðverjar geri ráð fyrir að
taka eða króa inni innan skams
annað hvort Sebastopol eða
Kerch, eða báðar þessar borgir.
Blaðið „Rauða stjarnan“
skýrði á hinn bóginn frá því í
gær, að dregið hefði úr sókn
Þjóðverja. síðasta sólarhringinn.
Blaðið viðurkönnir þó að horf-
urnar sjeu ískyggilegar.
Getur blaðið um harða bar-
daga víð Simferopol, höfuð-
borg ska.gans, þar sem Þjóð-
verjár eru sagðir vera að reyna
að komast til strandar.En þýska
herstjórnín tilkynti á sunn-udag-
inn að Þjóðverjar hefðu tekið
Simferopol.
„Rauða stjarnan“ segir að
rússneski herinn hafi hörfað
skipulega í nýja varnarlínu, og
að Þjóðverjar hafi gert ítrek-
aðar tilraunr til að brjótast í
gegn um hana, en árangurs-
laust.
SVARTAHAFS-
FLOTINN
Hermálafrjettaritari Reuters
gerði að umtalsefni í gær að-
stöðu rússneska Svartahafsflot-
ans, ef Þjóðverjar taka Krím-
FRAMH. Jk 8JÖTTU SÍÐU
Loflsókn
Breta
London, miðvikud.
f tilkynningu breska flug-
* málaráðuneytisins í kvöld
segir: „Orustuflugvjelar okkar
hjeldu áfram 1 dag árásar
fiugferðum sínuni yfir Norður-
Frakklandi. Skotfærageymsla
var sprengd í loft upp og árásir
voru einnig gerðar á vöruflutn-
ingalestir, herbíla, bátahöfn og
fallbyssuvirki.
Einnar flugvjelar er saknað“
I fyrrinótt fóru breskar flug-
vjelar í leiðangur til Ruhr og
Rínarhjeraðanna og gerðu auk
þess árás á Ostende og Dunker-
que.
íslendingurinn undir-
foringi f breska
ffughernum
IVJ orska útvarpið í Londort
skýrir frá því, að fslend-
ingurinn, „sonur bóksala í
Reykjavík", sem fór fyrsta
árásarleiðangur sinn á mánu-
öaginn, hafi verið hækkaður í
tign og gerður undirforingi
(sergent).
„Mlkilvæo"
ræða Roosevelts
I kvðld
Tk/| eðal starfsmanna Roose-
*■ •*• velts í Hvíta húsinu var í
gær látið í veðrj vaka, að ræða
sú, sem forsetinn ætlar 'að
flytja í kvöld sje „mikilvæg".
Roosevelt ávarpar alþjóða-
verkamálaráðstefnuna og hefst
ræðan kl. 7 eftir ísl. tíma.
Búist er við að jæðan standi
yfir í 20 mínútur.
Þýskir kðfbðtar
við Nýfundne-
land
TORONTO í gær —: Flota-
málaráðherra Kanada, Mac-
Donald skýrði frá því í dag, að
þýskir kafbátar hefðu sig í
frammi „undan ströndum Ný-i
fundnalands, í Iandsýn“.
Ráðherrann var beðinn að
gera nánari grein fyrir þessu og
sagði hann þá:
„Kafbátarnir eru svo nærri
Nýfundnalandsströndum, að
þeir sjá til lands. -— Auðvitað
höldum við uppi árásum á þá,
hvar sem við verðum þeirra
varir. Hið sama gera könnunar-
flugvjelar flughersins og strand
varnaliðsins.
Venjulega verðum við varir
við þá í hlustunartækjunum, og
gerum þá árásir á þá með djúp-
sprengjum. Flugvjelarnar sjá
þá og ráðast á þá með sprengj-
um“.
„Náin samvinna er milli flot-
ans og flughersins".
í Halifax í Nova Scotia, hafa
þessar upplýsingar ráðherrans
engum komið á óvart (segir í
Réútersfrjett). Er þess minst, að
hópur skipbrotsmanna, sem
kom til Halifax fyrir nokkrum
vikum, var af skipi, sem talið
var að sökt hefði verið við Ný-
fundnaland.
Þess er einnig minst, að í síð-
ustu styrjöld sáust kafbátar við
ýms tækifæri í aðeins 40—50
km. fjarlægð frá sjálfri Hali-
fax og þeir'voru margir, sem
hjeldu því fram um þær mundir
að þeir hefðu sjeð til kafbáta
frá ströndinni.
Er talið að þýskir kafbátar
liggi í leyni við ýmsar helstu
hafnirnar á austurströnd Ame-
ríku til þess að tilkynna, þégar
stórír skipaflotar láta úr höfn.
Sendiboði Japana til
Washington til „að
bjarga ástandinu"
„Bandaríkjastjórn hefir
ekki boðið honum
í éí
SÚ ÁKVÖRÐUN Japana að senda diplomatiskan
ráðgjafa, Kurushu, til Washington, til þess að
aðstoða japanska sendiherrann þar, Nomura,
við samningana við Bandaríkjastjórn, hefir vakið feikna
athygli víða um heim. Ráðgjafinn lagði af stað frá Tokio
í gær áleiðis til Hong Kong, en þar hafði brottför ame-
rísku Kyrrahafsflugvjelarinnar verið frestað, á meðan
beðið var eftir ráðgjafanum.
í japönskum blöðum er talað um þessa sendiför sem „síð-
ustu tilraun Japana til þess að bjarga hinu „mjög alvarleg^
ástandi“ í Austur-Asíu. Minnir förin í þessu tilliti á Berchtes-
gaden-ferðalag Mr. Chamberlains haustið 1988.
Útvarpsstöðin
í Moskva hæfð?
ýskar flugvjelar gerðu Loft-
•*• árás á Moskva í birtu í
fyrradag.
* Hvar sprengjurnar komu nið-
ur má e. t. v. marka af fregn
í'rá Svíþjóð, sem hermir, að ut-
varpið i Moskva hafi skyndi-
lega hætt útsendingum í fyrra-
dag, en nokkru síðar hafi út-
varpið í Tiflis í Georgíu byfjað
útsendingar á öldulengd Moskva
útvarpsins (samkv. Columbia-
Broadcasting' Company í New-
York).
Tyrknesku skipi sökt
í Bosporus
I fregn frá Ankara í gærkvöldi
* var skýrt frá því, að óþektur
kafbátur hefði stöðvað tyrkneskt
vjelskip 145 smálesta, í Bosporus-
sundi og skipað áhöfn skipsins að
fara í bátana, en síðan sökt skip-
inu.
ÞaS verðnr ráðið af fregninnij
að þetta hafi gerst í tyrkneskri
landhelgi.
ÞREM SKIPUM
SÖKT.
Breska flotamálaráðuneytið til-
kynti í gær, að þrern óvina
skipum hefði verið sökt i Mið-
jarðarhafi, tvö þeirra 4 þús. smá-
lestir, en eitt 1500 smálestir.
Kurushu er reyndur dipio-
mat, hefir gegnt sendiherra-
störfum í Bandaríkjunum og í
Evrópu, m. a. í Berlín um eitt
skeið.
í Washíngton var látin í ljós su
skoðun í gær, í sambandi við sendiför
Kurushus, að horfurnar í Austur-Asíu
væru svo alvarlegar, að því minna,
sem um þær væri talað, þeim mun
betra.
Cordell Hull gerði það þó Ijóst, á
fundi sínum með blaðamönnum í gær
(ségix-! í Reutersfregn) að japanski
ráðgjafinjx kemur ekki til Bandaríkj-
anna í boði Bandaríkjastjórnar,......
Hull sagði, að Bandaríkiri hefðu
engin ’ afskifti af sendiför Kurushus
önnur en þau, að greiða götu hans.
Hull bætti því við, að japanska stjórn-
ir,., hefði tilkynt utanríkismálaráðu-..
neytinu að erindrekinn myndi hafa
samvinnu við Nomura, um samtöliix,
serri ætttí ájer stað í Wáshingtori.
l>að hefir vákið riokkra athygli að
Tokioblaðið „Japans Times and Ad-
vertiser", sem stundum hefir verið
kallað málpípa japanska utanríkis-
málaráðuneytisins, fylgdi Kurushus
úr hlaði, með því að telja upp þær
kröfur, sem Japanar gera á hendur
Bandaríkjastjórn til þess að „bjarga
ástandinu“. „ v
Það er þó ekki alveg víst að blaðið
túlki nákvæmjega skoðun japönsku
stjórnarinnar, eri kröfurnar. er bláð-
ið getur um, eru þeásár: Bandaríkiti
hætti að veita Chiang Kai Shek að-
toð, Japanar fái óbundnar hendtir í
Kína, hagsmunir Japana í AusturAsíu
verði viðurkendir, Bandaríkin. hætti
vígbúnaðarráðtöfunum, sem miða að
einangi-un Japana í Austur-Asíu og
inneignir Japana í Bandaríkjunum
verði látnar lausar".
Stjórnmálafrjettaritari Reuters Ijet
í Ijós þá skoðun í gær, að örðugt væri
að sjá nokkra von til samkomulags
milli Japana og Bandaríkjanna á þess-■"
úm grundvelli, því að í því fælist að ’
ABCD ríkin yrðu að snúa algerlega
baki við þeirri stefnu, sem þau hafa
fylgt fram til þessa.
Þessvegna er hugsanlegt að „Japari
Tiems“ hafi með túlkun sinni á kröf-
um Japana, aðeins verið að prófa sig
áfram um það, hverjar undirtektirnar
yrðu.