Morgunblaðið - 07.12.1943, Side 1

Morgunblaðið - 07.12.1943, Side 1
INNRÁSARDA Á RÁÐSTI VAR AKVEÐINM I í TEHERAN Hörð gagn sókn Þjóð- verja við Cherkassi London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunblaösins frá Reuter. í herstjórnartilkynningú Rússa í kvöld, er sagt að Þjóð- verjar hafi beint ógurlegum gagnáhlaupum að stöðvum Rússa við Cherkassi, en þar hafa Rússar nokkurn brúar- sporð fyrir vestan Dnieper. — Rússar segjast hafa hrundið öll um áhlaupum þessum, en Þjóð verjar segja aftur á móti að þeir hafi getað umkringt og upp rætt nokkur lið fyrir Rússum á þessum slóðum. Er sagt að S. S.-sveitin ,,Viking“ hafi gengið sjerlega vel fram. Rússar halda áfram sókn sinni fyrir norðan og austan Slobin, en virðast lítt hafa kom i§t þar áfram að undanförnu. Aftur á móti hefir þeim gengið Framh. á 2. siðu. yÚW.'ií. 4>i :-i Churchill. Churchill fær sverð. LONDON í gærkveldi: — Konungurinn í Saudi Arabíu hefir sent Churchill í afmælis- gjöf forkunarfagurt bjúgsverð, allt sett gimsteinum. Færðu synir konungs frú Churchill sverið, en hún þakkaði fyrir hönd manns síns. — Reuter. nærri íslandi London í gærkveldi. Breska flotamálaráðuneytið hefir tilkynnt, að nýlega hafi þrem þýskum kafbátum verið sökkt nokkru fyrir sunnan ís- land, og þrír aðrir eyðilagðir nokkru sunnar á Atlantshafinu. Var kafbátum þessum að því er virðist, öllum sökkt af flugvjel- um, beeði breskum og amerísk- um, sem höfðu bækistöðvar á íslandi og í Norður-írlandi. Stalin. Grikkir fá herskip. LONDON í gærkveldi: — Breska flotastjórnin hefir af- hent grísku stjórninni fimm hérskip, einn tundurspilli og fjórar hersnekkjur. Hafa skipin öll verið skýrð grískum nöfn- um og hafa grískar áhafnir. — Reuter. Sókn bondamanna á Ítalía gengur hægt London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. Bæði fimti og áttundi her- inn halda enn áfram sókn sinni í mjög hörðum bardögum, en sóknin gengur afar hægt, vegna þess að veður eru afleit og vörn Þjóðverja mjög hörð allsstaðar. Fimti herinn hefir tekið þýð- ingarmiklar hæðir nærri borg- inni Mignano, sem mest hefir verið barist við að undanförnu. Barist er í dag af miklum móði um tvær aðrar hæðir nokkru vestar. Þjóðverjar hafa gert hörð gagnáhlaup og verjast vjel byssuskyttur víða uppi í hæðún um, og er erfitt að þeim að sækja. Attundi herinn er kominn að Moro-ánni, sem er um 16 km. fyrir norðan Sangro. A þessi er ekki nærri eins ill yfirferðar og Sagro-áin, en sem stendur er flóð í henni og hún ill viður- eignar vegna hinna miklu rign- ‘inga. Þjóðverjar hafa sprengt í loft upp brýr á á þessari og veg ir að henni eru mjög vondir. Markmið áþtunda hersins mun vera Pescara, hafnarborg á Adriahafsströndinni, og er hún um 18 km. fyrir noi'ðan Moro- ána. — Veður var illt til flug- ferða í gær og voru aðeins smærri flugvjelar á ferli. Árás hafin á MarshaH- eyjar Washington í gærkveldi. Tilkynnt hefir verið opinber- lega að Bandaríkjaherinn hafi nú hafist handa um töku Mars- hall-eyja af Japönum, og hafi Bandaríkjahersveitir nú gengið þar á land. — Fór her þessi í land af herskipum og voru flug vjelar honum til verndar af flug vjelaskipi. Ekki hafa nánari fregnir borist af þessari árás enn. — Reuter. Finska stjómin LONDON í gærkveldi: — Seint í kvöld berast þær fregn- j ir, að finska stjórnin hafi lagt ; fram mótmæli við þýsku stjórn ina fyrir hönd finskra stúdenta . út af stúdentahandtökunum í Noregi. 1 Mikil gremja hefir ríkt í Finn Jlandi út af stúdentahandtökun- i um — Reuter. Someiginleg yfirlýs- ing hinna þriggja þjóðaleiðtoga London í gærkvöldi. blaðsins frá Reuter. Einkaskeyti til Morgun- í dag var opinber gerð sameiginleg yfirlýsing þeirra Roosevelts, Churchiils og Stalins, sem undirrituð var á ráðstefnu þeirra í Teheran, er henni var að ljúka, nánar tiltekið þann 1. des. s.l. Var í yfirlýsingu þessari sagt, að ákveðið hefði verið hvenær innrásin á meginland Evrópu að vestan skyldi hafin. Ráðstefnan stóð alls í fjóra daga. Yfirlýsingin hófst á því, að tekið var fram, að hinir þrír leiðtogar hefðu hittst til þess að vinna að sameigin- legum málum, og væru þeir ákveðnir í því að vinna saman í stríði og friði. ____________________________ Því næst var látið svo um mælt: „Vjer höfum komist að algjöru samkomulagi um tilhögun og tíma, þegar hern aður verður hafinn gegn Þjóðverjum úr austri, vestri og suðri“. Og var einnig sagt að loftárásirnar á Þýskaland myndu verða jafnharðar og áður. í yfirlýsingunni er og sagt að samvinna hinna þriggja stórvelda, sem að henni standa, muni verða til þess að eftir stríðið komist á rjett látur og varanlegur friður, sem haldast muni um æfi- skeið margra kynslóða. Hin þrjú veldi vilja, er sagt enn- fremur, vinna með hvaða þjóð sem sýni einlægan frið- arvilja. Ennfremur var svo til orða tekið, ,,að ekkert afl í heimi gæti komið í veg fyr ir eyðingu þýska hersins, þýsku kafbátanna og hern- aðarsmiðjanna, og mvndu árásirnar gegn öllu þessu fara vaxandi“. „Hinn ágæti skilningur, sem fram hefir komið á ráðstefnu þessari, er trygging fyrir því, að sigurinn vinnist”, segir einn ig í yfirlýsingunni, og vjer munum fá varnalegan frið. Var friðinum lýst sem „friði, sem leiða mun í ljós góðvild alls fjölda þjóða heimsins, og sem koma mun í veg fyrir styrjald- ir í tíð margra kynslóða. Þá var sagt að leitað yrði eftir sam- vinnu allra þjöða, stórra og smárra, „til þess að afnema harðstjórn, þrældóm, kúgun og umburðarleysi”. Kaupmanna- höfn sekfuð um 2 milj. London í gærkveldi. Fregnir frá Stokkhólmi í dag herma, að Þjóðverjar hafi sekt- að Kaupmannahafnarborg um tvær miljónir danskra króna, vegna þess að þýskur hermaður var skotinn til bana á götu í Kaupmannahöfn í gær. Einnig hafa Þjóðverjar tilkynnt, að spellvirkjum verði hjer eftir refsað með lífláti í Danmörku. Spéllvirki hafa verið framin bæði í Kaupmannahöfn og Ar- ósum. — Reuter. Aukaskamtur aí kaffi SKÖMTUN ARSKRIFSTOF A ríkisins hefir ákveðið að úthlut að verði aukaskammti af kaffi nú fyrir jólin. Nemur skamtur inn 300 gr. af óbrendu kaffi og 250 gr. af brendu kaffi, þ. e. einn pakki. Aukaskammtinn geta menn fengið með því að framvísa stofnauka þeim sem fylgir nú- gildandi skömmtunarseðlum, þegar það hefir verið auglýst, og verður það sennilega 8. þ. mán. Sigtr. Klemenzson skýrði blað inu svo frá í gær, að auka- skammti þessum væri úthlutað með sjerstöku tilliti til þess, hve illa hefir gengið að fá kaffi bæti. Tilhögun ráðstcfnunnar. Ráðstefnan var háð í rúss- neska sendiherrabústaðnum í Teheran, og þar dvaldi Roose- velt sem gestur Stalins, en Framh. á 2. síðu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.