Morgunblaðið - 09.12.1943, Blaðsíða 1
30. árgangur 279. tbl. — Fimtudagur 9. desember 1943. Isafoldarprentsmiðja h.f.
Mikill sigur« Rússa í Dnjeperbugðunni
Bandamenn tako mikilvæg tjöll
Sækja fram
á ítaliu þrátt
fyrir slæmt
veður
London í gærkveldi.
. Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
Á ÍTALÍU hefir 5. herinn
sótt fram þrátt fyrir miklar
vetrarrigningar og harða mót-
spyrnu þýsku hersveitanna. —
Hefir hann náð öruggri fótfestu
á fjallinu Camino og tekið borg
irnar Camino, Corbruzzo og
Cauno. Þjóðverjar veittu þar
mikla mótstöðu og gerðu mörg
gagnáhlaup og urðu bardagarn
ir þar mjög harðir. Á nokkrum
stöðum ljetu Þjóðverjar ekki
undan síga, fyrr en stórskotali^
bandamanna hafði gersamlega
sundrað fylkingum þeirra.
Þá hefir amerískur og bresk-
ur her náð vesturhlíðum fjalls-
ins Maggiore á sitt vald, og er
nú unnið að því að uppræta
smáskæruflokka, sem leynast
enn í fjöllunum, sem banda-
menn hafa náð á sitt vald.
Á Lorovígstöðvunum sækir
8. hermn hægt fram í áttina að
borgunum Chieti og Pescara.
Sóknarskilyrði eru þarna mjög
Framh. á 2. siðu.
Sigur Bandaríkja-
manna við
Marshall-eyjar
WASHINGTON í gærkveldi:
Flotamálaráðuneytið skýrir frá
því í kvöld, að í árás Banda-
ríkjaherskipa á Marshall-eyjar,
sem Japanar hafa ráðið yfir frá
því skömmu eftir síðustu heims
styrjöld, hafi tveimur japönsk-
um beitiskipum verið sökt og
fjórum kaupskipum. 3 skip
voru löskuð. Bandaríkjamenn
skutu niður 72 flugvjelar fyrir
Japönum og eyðilögðu márgar
sjrengjuflugvjelar af millistærð
á jörðu niðri. — ReUter.
^ ^ t
Snarpir bardagar
í Burma
London í gærkveldi.
í tilkynningu Mountbattens
hershöfðingja fyrir síðastliðna
viku, segir, að komið hafi til
snarpra bardaga á Arakanvíg-
stöðvunum í Burma, og var
víða barist í návígi. Það var
framvarðasveitum, sem lenti
saman þarna, en hvorugur hef-
ir enn byrjað sókn. — Loftsókn
bandamanna heldur hinsvegar
áfram sem áður. —• Reuter.
Pencilllnn bjargaði
henni
Læknar álíta að þessi litla stúlka,
sem á heima í New York, hefði
ekki lifað nema 5 klukkustundir,
ef ekki hefði verið reynt við hana
nýtt lyf, sem nefnist Pencillin.
En nú er húh albata orðin og er
hjer tekin mynd af henni, er liún
var að fara frá sjúkrahúsinu.
Nýtt stjórnárfrumvarp:
2% gjald af cifverði
allra innfluttra varo
15% ólag á tekju-
og eignarskatt
FRAM ER komið á Alþingi nýtt skattafrumvarþ, til fjár-
öflunar „vegna dýrtíðarráðstafana". Er hjer um tvennskonar
álögur að ræða, sbr. tvær fyrstu greinar frumvarpsins, sem
eru svohljóðandi:
1. gr.: „Til ársloka 1944 er
ríkisstjórninni heimilt að leggja
sjerstakt 2% gjald á cifverð
allrá innfluttra vara. Skal það
innheimt á sama hátt og toll-
ar“. t
2. gr.: „Á árinu 1944 er heim
ilt að innheimta tekju- og eign-
arskatt með 15% viðauka“.
í örstuttri greinargerð, sem
fylgir frumvarpinu, segir svo:
„Það er nú ljóst orðið að ekki
verður nægilegur tekjuafgang-
ur á fjárlögum næsta árs til
þess að standa straum af nauð-
synlegum ráðstöfunum vegna
dýrtíðar. Verður því ekki hjá
því komist að afla nýrra tekna
í þessu skyni“.
Þetta er öll skýringin sem
fylgir þessu nýja skattafrum-
varpi.
Framh. á 2. síðu.
Útbrotataugaveiki
í Norður-Noregi
Fregnir frá Stokkhólmi segja
að útbrota taugaveikisfaraldur
geisi nú í Kirkenes við landa-
mæri Finnlands og Noregs. Þeg
ar hefir komið í ljós, að 200 til
300 manns hafa tekið veikina.
Álitið er að smitun hafi orðið
gegnum drykkjarvatn, og er
þess vegna vonast til að takast
megi að hefta útbreiðslu veik-
innar. Læknar og hjúkrunar
konur eru komnar til Kirke-
nes, en húsnæðisskortur er mik
ill. (Frá norska blaðafulltrú-
anum).
Ingvar Guðjónsson
útgerðarm. látinn
INGVAR (ÍUÐJÖNSSON
útgerðarmaður frá Siglufirði
andaðist í gær í T.andspítal-
anum. Hann hafði gengið
undir uppskurð, en hjartabil-
un varð hónum að bana.
Þessa þjóðkunna athafna-
hianns mun verða nánar get-
ið síðar hjer í blaðinu.
Talið að
Tyrkir fari
i strioið
þá og þegar
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reutgr.
MIKLAR BOLLALEGG-
INGAR eru uni það, að Tyrk
ir fari í stríðið þá og þegar
með bandamönnum, eða }>eg-
ar bandamenn eru t.ilbúnir
að gera innrás á Balkan. In-
önu fbrseti Tyrklands er kom
inn aftur til Ankava frá
Kairo.
Sendiherra Þjóðverja í An-
kara, von Papen, hefir farið
á fund forsætisráðhérra
Tyrkja og átt við hann langt
samtals. Ilvað þeim fór á,
milli hefir ekki verið birt.
I Balkanlöndum, sem eru
með Þjóðverjum í stríðinu,
hefir Kairo-ráðstefnan vakið
óróa.
í Búlgaríu var í skvndi
kallaður saman aukafundur
í ráðuneytinu og telja marg-
ir, að þar hafi verið rætt um„
hvernig Búlgarar geti losað
sig úr bandalaginu við Þjóð-
verja.
1 Ungverjalandi befir þing-
ið verið kvatt saman til fund'
ar og mun eiga að ræða um
hið breytta viðhorf, sem skap
ast hefir við Ivairo-ráðstefn-
una.
Eden utanríkisráðherra
hefir rætt við þjóðhöfðingja
og ráðherra þeirra' Balkan-
landa, sem Þjóðverjar hafa
liertekið. Hefir Eden setið á
fundum með Georg Grikkja-
konungi og ráðherrum hans
og ennfremur hefir liann rætt
við Pjetur Júgóslafíukonung
og' hans ráðherra.
Það er alment búist við
tíðindum frá Balkanlöndum
á næstuuni vegna bins breytta
viðhorfs, sem orðið er aust-
ur þar eftir Ivairo-ráðstefn-
una.
Fjáriögin rædd
allan gærdag
ÞRlÐJU umræðu fjárlag-
anna var baldið áfram í gær.
Stóð fundur í Sþ. allan dag-
inn og fjárlögin eina málið
á dagskránni. Eftiv kvöld-
verð var fundinum haldið á-
fram og var ætlunin, að
reyna að Ijúka umræðunni.
Atkvæðagreiðsla yrði þá
sennilega á morgun.
Þjóðverjar
vinna á fyrir
vestan Kiev
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
RÚSSAR HAFA í DAG unn-
ið mikilvægan sigur í Dnieper-
bugðunni. Þeir hafa tekið hluta
af járnbrautinni milli Nikolaev
og Znamenka. Er þar með flutn
ingaleið Þjóðverja til Krivoi
Rog rofin og er mikill þýskur
her í hættu í Nnieperbugnum.
Einnig opnast nú Rússum leið
til að sækja að Krivoi Rog að
vestan, en Krivoi Rog er þýð-
ingarmikil varnarborg fyrir
Þjóðverja, sem þeir hafa lagt
mikið í sölurnar til að halda.
En Rússar hafa aftur á móti
beðið nokkurn hnekki á víg-
stöðvunum fyrir vestan Kiev.
Viðurknna þeir í herstjórnar-
tilkynningu sinni í kvöld, að
þeir hafi neyðst til að láta und-
an síga á þeim slóðum og látið
af hendi nokkur þorp.
Rússar sækja fram
vestan Chremenschug.
í rússnesku herstjórnartil-
kynningunni í kvöld er sagt að
Rússar hafi sótt fram fyrir suð-
vestan Chremenchug. Þar náðu
Rússar á sitt vald borginni Yes-
lisavetgratka, sem er aðalborg-
in í Krivpgrad-hjeraði. Þjóð-
verjar veittu varna öflugt við-
nám.
Taka Sharovka.
Rússar náðu á sitt vald járn-
brautarstöðinni Sharovka í dag,
en það er þar, sem þeir rufu
járnbrautina Milli Nikolav og
Znamenka og milli Znamenka
og Rivoi Rog.
Þá segir og í herstjórnartil-
kynningunni, að í Dnjeper-
bugðnum, fyrir suðvestan Dnej
propetrovsk hafa Rússar haldið
uppi staðbundnum árásum í dag
og náð á sitt vald nokkrum mik
ilvægum varnarstöðvum Þjóð-
verja.
Hörfa hjá Chernya.
Það var hjá Chernya, sem
Rússar neyddust til að hörfa og
láta af hendi nokkra bæi. Á
öðrum stöðum segja Rússar að
aðeins hafi verið um aðgerðir
framvarðasveita að ræða. Þeir
segjast hafa eyðilagt 96 skrið-
dreka fyrir Þjóðverjum í gær
(þriðjudag) og skotið niður 19
þýskar flugvjelar.
Hernaðarsjerfræðingar telja,
að með sókn sinni í Dnjeper-
bugðnum sjeu Rússar að reyna
að neyða Þjóðverja til að hætta
við að sækja til Kiev, því það
var lið frá Dnjeperbugðunum,
sem von Mannstein fjekk liðs-
auka til sóknár sinnar vestur
af Kiev.