Morgunblaðið - 15.12.1943, Blaðsíða 1
30. árgangur
284. tbl. — Miðvikudag'ur 15. desember 1943
Isafoldarprentsmiðja h.f.
VAXANDI HÆTTA FYRIR ÞÝSKA HERIMM
í S.-RIÍSSLANDI
Fundurinn í Teheran
mun stytia stríðið
LONDON í gær.
ANTHONY EDEN, utanrík-
ismálaráðherra gaf breska þing
inu skýrslu um fundahöldin í
Kairo og Theheran, á fundi í
dag. Eden sagði meðal annars,
að fundur þeirra Roosevelts,
Churchills og Stalins í Theher-
an myndi stytta stríðið. Þar
hefði verið ákveðið hvar og
hvenær ráðist yrði á Þjóðverja
til að sigra þá.
Eden mintist á Japana og
sagði, að Bretar yrðu að berj-
ast við þá þar til yfir lyki, hve
hörð og erfið og löng sú barátta
yrði. Ræðumaður sagðist hafa
verið viss um það, er hann fór
til Moskva í haust, að gott sam
komulag myndi nást og sam-
vinna milli Bretlands, Banda-
ríkjanna og Rússlands. Hann
sagðist vera enn vissari um
þetta nú. Þessar þjóðir myndu
vinna saman til að tryggja frið
inn.
• Eden mintist á baráttu Jugo-
slafa. Hann kvað föðurlandsvin
ina undir stjórn Titos hershöfð
ingja njóta stuðnings bresícu
stjórnarinnar. Þar hefði hún
sinn hernaðarlega fulltrúa, sem
er 32 ára þingmaður frá Lan-
caster. Jugoslafar munu sjálfir
kjósa sjer þá stjórn, sem þeir
vilja hafa eftir styrjÖldina. Föð
urlandsvinirnir, sem nú berjast
gegn Þjóðverjum, líta ekki á sig
sem . ríkisstjórn og hafa ekki
beðið um viðurkenningu frá
Bretum á stjórn sinni.
■ Eden mintist einnig á Grikki
og sagðist vona, að gríska þjóð-
in myndi sameinast gegn Þjóð-
verjum.
Utanríkismálaráðherrann bar
þinginu kveðju frá Churchill,
sem hann sagði að væri enn
utanlands til að vinna að nauð-
synlegum málum, „við góða
heilsu og vongóður“, eins og
Eden komst að orði.
Tveir pillar slela
hjóbörðum
Á SUNNUDAGSNOTT s.L,
brutust tveir piltar, annar 19,
en hinn 20 ára, inn í vöru-
geymslu, sem Eggert Kristjáns-
son og Co. hafa 1 Fischerssundi
og stálu þar 6 hjólbörðum,
sumum nýjum, en öðrum not-
uðum. Þegar lögreglan náði í
piltana, voru þeir búnir að selja
tvo hjólbarðana fyrir 600 kr.
Voru þetta stórir hjólbarðar á
„felgum”.
Hina fjóra hjólbarðana höfðu
piltarnir falið bak við skúr, sem
stendur skámt frá Gróubæ, við
Vesturgötu.
Ulanbæjarmönnum
sagl upp í hilaveilu-.
vinnu
NÚ VINNA í HITAVEIT-
UNNI um 450 manns, 390 við
gröft, steypu og ýmsa aðra
vinnu, en um 60 vinna við teng
ingar heimæða. Öllum utanbæj
armönnum sem unnu í hitaveit
unni hefir nú verið sagt upp,
en þeir voru um 100.
Þegar flestir voru í hitaveitu
vinnu í sumar og haust, unnu
hjá Hitaveitunni um 700
manns. Fækkaði mjög í vinn-
unni um það leyti, er skólar
byrjuðu, er námsfólk fór í
skóla.
Vcrkið gengur vel.
Það fer nú að síga á seinni
hlutann með hitaveituvinnuna.
Alfreð Guðmundsson, eftirlits-
maður, skýrði blaðinu svo frá
í gærkvöldi, að hitaveitufram-
kvæmdir hefðu gengið mjög
vel undanfarna viku. — Hefir
verið lokið að miklu leyti að
steypa rennur í Þingholtunum.
Hefir verið hagstæð tíð fyrir
þessar framkvæmdir undan-
farna daga.
i^rvEUKieiUKi
o
■POLOTSK
llússla ndsví gstöð va rnar
Cherkassy fjell í gær
London í gærkvöldi. — Eiiikaskeyti tll Morg-
unblaðsins frá Reuter.
Eftir Harold King.
AÐSTAÐA þýska hersins í Suður-Rússlandi fer versnandi
með hverjum deginum sem líður. Á Kiev-vígstöðvunum hefir
gagnsókn Þjóðverja verði stöðvuð og í Dnejerbugðunni sækja
hersveitir Rússa stöðugt og örvrgglega fram. 1 dag fjell
Cherkassy og tilkynti Stalin það í sjerstakri. dagskipan, en
fall borgarinnar var endurtekið í lierstjórnartilkynningunni
í kvöld.
Tito veldur Þjóðverj-
um miklu Ijóni
LONDON í gær: — Þjóðverjar
tefla fram 6 herfylkjum í hinni
nýju sókn sinni gegn föður-
landsvinahersveitum Titos herS
höfðingja í Júgóslafíu. Sækja
Þjóðverjar að hersveitum Ti-
tos í Austur-Bosníu og í fjall-
lendi Montenegro.
Hersveitir Titos hafa haldið
stöðvum sínum og valdið Þjóð-
verjum miklu tjóni. Á einum
stað sóttu 2000 Þjóðverjar að
Júgóslöfum. Þeir hrundu á-
hlaupinu og lágu um 350 Þjóð-
verjar eftir dauðir í valnum.
Bandamenn hafa veitt hersveit
um Titos lið með því að gera
loftárásir á stöðvar Þjóðverja
á Dalmatíuströndinni.
MIKILL KOLASKORT-
UR í BANDARÍKJUN
UM
WASHINGTON í gærkveldi:
Mikill kolaskortur er nú í
Bandaríkjunum og búist við að
hann verði enn meiri á næsta
ári og dragi úr framleiðslu
Bandaríkjanna að mun. Reynt
verður að bæta úr kolaskort-
inum með auknum innflutningi
frá Evrópu. Það er talið að
Bandaríkin vanti um 25,000,000
smálestir af kolurh á næsta ári,
en það svarar til um 45 daga
kolanotkunar í landinu.
Reuter.
Áltundi herinn um-
kringir Orlona
London í gærkvöldi. Einka-
skeyti til Morgunblaðsins frá
Reuter.
Eftir David Brown.
ÁTTUNDI HERINN breski
hefir enn sótt fram á austur-
strönd Ítalíu. Hafa hersveitir
Montgomerys sótt fram á 25
km. breiðri víglínu og hafa
kanadiskar hersveitir tekið
hæðir á ströndinni, þar sem
sjest til bæjarins Ortona, sem
nú er í skotfæri. Indverskar
hersveitir hafa sótt fram fyrir
vestan Ortona og vegurinn inn
í land frá borginni, er undir
stöðugri skothríð. Þjóðv. geta
ekki notað veginn að neinu ráði
lengur.
Víða er framsóknin hæg.. Veð
ur er enn óhagstætt og vegir
allir ein aurbleyta og því erf-
itt um alla flutninga. Kessel-
ring gerir allt, sem hann getur
til að koma í veg fyrir að átt-
undi herinn sæki fram í áttina
til Pescara, en þar er strax
hægara um vik og þaðan ligg-
ur aðalvegurinn yestur til
Rómaborgar.
Á víglínu fimta hersins, hefir
verið heldur lítið um hernað-
araðgerðir undanfarna dag'a,
nema yiðureignir framvarða-
sveita.
Flugherinn veitir landhern-
um mikinn stuðning. í gær
gerðu Bandaríkjaflugvjelar á-
rásir á brýr hjá Cassino. Var
ráðist á brú hjá Ponte Corvo og
aðra hjá Casello. Það er talið,
að báðar þessar brýr sjeu nú
ónothæfar. Cassino er eitt af
þýðingarmestu virkjum Þjóð-
verja á þessum slóðum.
Mælagjald Hilaveii-
unnar
FYRIR bæjarstjórnarfundi á
morgun verður lögð fram breyt
ingartillaga við gjaldskrá Hita-
veitunnar, en það er viðbótar-
grein um leigu fyrir vatns-
mæla. Er lagt til að gjald fyr-
ir mæla verði kr. 3,00 á mánuði
fyrir mæla allt að .% tommur
og kr. 10.00 fyrir 1 tommu
mæla og þar yfir.
Hitaveitan leggur til mæl-
ana og annast viðhald þeirra.
Rannsókn mjólkur-
málanna
Á KVÖLDFUNDI í Nd. í gær
fór loks fram atkvæðagreiðsla
um þingsályktunartillögu Gunn
ars Thoroddsen um rannsókn-
arnefnd mjólkurmála.
Samþykt var með 16:15 atkv.
breytingartill. frá minnihluta
landbúnaðarnefndar (Bj. Ásg.
og Jóns á Reynistað). Hefir sú
tillaga áður verið birt hjer í
blaðinu. Þannig breytt var til-
lagan samþykt og afgreidd sem
ályktun Nd.
Verð bóka lækkar
um 20 prósent
ÚTSÖLUVERÐ allra inn-
lendra bóka,, sem gefnar hafa
verið út eftir 1. okt. 1942, lækk
ar um 20% frá og með deginum
í dag að telja. Er birt til-
kynning um þetta frá verð-
lagsstjóra hjer í blaðinu í dag.
Verðlagsstjóri getur þó breytt
verðinu, ef útgefandi sannar
fyrir honum, að tap verði á út-
gáfunni.
Bókaútgefendum er eftirleið-
is skylt að senda skrifstofu
verðlagsstj. nákvæma skýrslu
um útgáfukostnað sjerhverrar
bókar og stærð upplags. Þeim
er og óheimilt að ákveða út-
söluverð bóka, án samþykkis
verðlagsstjóra.
Rússneskur her er nú að-
eins um 20 km. norður af
Kirovograd. Annar stór rúss-
neskur her sækir fram frá,
Cherkassy og annarsstaðar á
200 km. breiðri víglínu sæk.ja
Rússar fram og brjótast víða
inn í varnarkefi Þ.jóðverja.
Veður hefir verið kalt undan-
farið og eftir því sem jörð
harnar í frostunum verður
auðveldara fyrir Rússa að
sækja fram, enda búa þeir sig
\tndir það.
Pyrir vestan Kiev hefir dreg.
ið úr gagnsókn Þjóðverja síð
asta sólahringinn og þeir
sæk.ja ekki á jafn breiðri víg-
]ínu og áður. Þrjá daga í i-öð
Jiafa Rússar ekki aðeins hald-
ið öRum sínum stöðvum í
gagnárásum Þjóðverja heldur
unnið nokkúð á. Þjóðverjar
hafa sent fram óþreytt lið og
hafa þar að auki víggirt
stöðvar sínar af miklu kappi
en samt sækja Rússar frarn.
Mikill skærubardagar
á Krím.
Frá Krimsskaga berast
fregnir um aukna skærubar-
daga Rússa. Rússnesku skæru
liðarnir hafa vmnið Þjóðverj-
ixm mikið tjón. Skæruliðarnir
halda til í hellum, sem eru
inargir kílometrar á lengd.
Herst j ómartilkynningin.
í herstjórnartilkynningu Rússa
er sagt frá töku Cherkassv
og enfremur, að fyrir vestan
Kremenchug hafi rússsneskar
hersveitir haidið áfram sóku
sinni og tekið nokkra bæi,
þar á meðal borgina Shaveln-
iki, Borovita, Pogoreltsy,
Mordava og Ratoshintsy. Þái
segir ennfremur að Rússar
hafi tekið nokkra staði í sókn
sinni til Kirovograd. Fyrir
sunnan Malin hafa. Rússar
tekið Radomysl. Á öðrum
vígstöðvum hafa verið um að-
gerðir framvarðasveita að
ræða. í gær (13.) segjast Rúss
ar hafa eyðilagt 24 skriðdreka,
oð 14 flugvjelar fyrir Þjóð-
verjum.