Morgunblaðið - 18.12.1943, Blaðsíða 1
30. árgangur
287. tbl. — Laugardagur 18. desember 1943
IsafoIdarprentsmið}a h.f.
Ný og hörð
sókn Rússa
við Nevel
London í gærkvöldi. —
Einkaskeyti til Morbl.
frá Reuter.
ÞJÓÐVERJAR ræða mest í
tilkynningum sínum í dag um
mikla sókn Rússa, sem þeir hafi
byrjað fyrir nokkru við Nevel,
og virðist ekki annað sýnna, en
Þjóðverjar hafi orðið að hörfa
þar nokkuð undan. — Rússar
minnast ekki á þetta í tilkynn-
^rgu sinni í kvöld, en hún er
óvenju stutt. Er í henni hvergi
getið um stórbardaga, nema við
Kirovograd, þar sem Rússar
segjast hafa hrundið mögnuð-
um gagnáhlaupum Þjóðverja.
,,Annars staðar á vígstöðvun-
um", segir tilkynningin, ,,var
stórskotahríð og framvarða-
skærur”.
Hvorugur minnist einu orði
á vígstöðvarnar fyrir vestan
Kiev, og munu bardagar í stór-
um stíl vera hættir þar í bili.
Éinnig virðist vera kyrt fyrir
vestan Cherkassi og Krivoi-rog.
En orusturnar við Kirovograd
eru hinar hörðustu, og beita
Þjóðverjar þar steypiflugvjel-
um, en loftorustur eru tíðar.
Roosevell á stöðug-
um ráðstefnum
Washington í gærkv.
ROOSEVELT forseti hefir
setið á stöðugum ráðstefnum,
síðan hann kom heim, en hann
flaug vestur um haf með við-
komu í Dakar. Hefir Roosevelt
rætt við sendiherra Breta,
Tyrkja, Egypta og Rússa og
ýmsa helstu ráðgjafa sína. —
Blaðamenn segja, að Roosevelt
muni i jólaræðu sinni ræða um
ráðstefnurnar í Teheran og
Cairo. —Reuter.
Roosevelt segir frd samsæri
Smjör kemur
á markaðinn
A
I
AMERÍSKA SM.TÖRIÐ er
nii komið til landsins og var
komið í nokkrar verslanir i
gær, en í dag mun smjörið.
koma verslanir bæ.jarins. Ekki
er fullkunnugt hversu birgð-
irnar eru miklar, en forstjóri
tM j ól kursamsölunnar sa gð i'
sagði blaðinu í gærkveldi að'
ekki væri ástæða til að ætla að
bæjarbúar yrðu smjörlausir
um jólin, ef dreifing ]>ess
yrði jöfn.
Harðir bardagar
milli Ortona
og Orzonia
London í gærkvöldi.
MIKLIR bardagar eru nú háðir
á 15 km vígstöðvum milli bæj-
anna Ortona á Adriahafsströnd
inni og Orzonia innar í landi.
Hafa Nýsjálenskar sveitir sótt
þarna fram nokkurn spöl gegn
mótspyrnu Þjóðverja, sem beita
þarna skriðdrekum og eld-
slöngum í ákafa. Hafa Nýsjá-
lendirtgarnir komist yfir þjóð-
veginn milli bæjanna tveggja á
nokkrum stöðum, en á strönd-
inni hafa Kanadamenn unnið
nokkra landspildu. Ortona er
þó enn á valdi Þjóðverja.
Á vígstöðvum fimta hersins
hafa litlar breytingar orðið
hafa Ameríkumenn náð hæð
einni, en ítalir hafa þar verið
settir til að taka aðra. Frakkar
eru nú komnir á vígstöðvar 5.
hersins, eru það sveitir, er börð
ust í Tunis. —Reuter.
Sóknin á Nýja Bret-
landi gengur vel
Einkaskeyti til Morgubl.
frá Reuter.
INNRÁS bandamanna á Nýja
Bretlandi gengur að óskum, og
sækja þeir með skriðdrekaliði
inn í land frá lendingarstaðn-
um. Steypiárásir Japana hafa
ekki borið tilætlaðan árangur.
Árásin var gerð á suðvestur-
horni eyjarinnar, sem að Nýju
Guineu snýr, og er samgöngu-
leið Japana til Gasmata, ann-
arar helstu hafnaðarborgarinn-
ar á eynni, þar með rofin. Vara
lið streymir nú í land.
Lið bandamanna gekk á land
við Arava-skagann, og fór að-
allega á smáum vjelbátum, en
var varið af. flugvjelum og
mikilli skothríð herskipaflota.
Voru varnir Japana minni en
búist var við. Er talið að megin
varnir Japana sjeu innar á
eynni.
Nýja Bretland er stór eyja
og löng, og á henni tvær all-
miklar hafnarborgir, Rabaul á
norðausturhorni eyjarinnar og
Gasmata á suðvesturströndinni.
Á eynni eru frumskógar miklir
og hún ill til yfirferðar, eins og
flestar eyjar um þessar slóð-
ir, en á miðri eynni eru fjöll
mikil.
Churchill
skánar
Frú hans larin
til hans
London í gærkveldi.
TILKYNT var í London í
dag, að Churchill fo«ætisráð-
herra hjeldi áfram að skána,
og hefði lungnabólgan ekki
breiðst frekar út. Ennfremur
var tilkynt, að frú Churchill
væri lögð af stað frá London,
til þess að vera hjá manni sín-
um í veikindum hans. Lagði
frúin af stað í morgun. — Al-
menningur í Bretlandi hefir
orðið mjög kvíðinn vegna fregn
anna um veikindi Churchills.
— Reuter.
VÍ SITALAN
2 5 9
KAUPLAGSNEFND og Hag-
stofan hafa reiknað út fram-
færsluvísitöluna fyrir desem-
bermánuð og er hún 259. — Er
vísitalan þannig óbreytt frá því
er hún var í nóvembermánuði.
Norskur sendiherra
í Slokkhólmi
í FREGN frá norska blaða-
fulltrúanum segir: ,,Nú berast
fregnir um að sænska stjórnin
loksins hafi viðurkent sendi-
mann Noregs í Svíþjóð, fyrver-
andi fulltrúa í utanríkisráðu-
neytinu norska, Jens Bull, sem
sendiherra Norðmanna í Sví-
þjóð. Norska stjórnin hefir fyr-
ir löngu tilnefnt hann sem sendi
herra sinn í Svíþjóð, en hingað
til hefir sænska stjórnin að-
eins viðurkent hann sem sendi-
fulltrúa (charge d’affaires). —
Bull sendiherra er nú nýkom-
inn frá London til Stokkhólms,
en í London var hann formaður
norskrar nefndar, sem þátt tók
í ýmsum ráðstefnum, meðal
annars ráðstefnu um fiskiveið-
ar, þar sem Islendingar einnig
höfðu sendinefnd.
Sænsku blöðin láta í ljós á-
nægju yfir því, að Bull hefir
verið viðurkendur sem sendi-
herra, og taka fram, að ósk
Norðmanna um þessa viður-
kenningu hafi verið gömul, og
erfitt sje að skilja hversvegna
stjórnin hafi hikað svo lengi
með að koma með þessa viður-
kenningu, sem norska stjórnin
í London óskaði eftir”.
Átti að ráða hann,
Churchill og Stalin
af dögum i Teheran
Washington í gærkveldi. Einkaskeyti til Mbl.
frá Reuter.
ROOSEVELT FORSETI sagði frá því á blaðamannafundL
í dag, að Þjóðverjar hefðu ætlað að ráða sig af dögum í
Teheran og þá Churchill og Stalin líka, og hafi hann þess
A'egna búið í rússneska sendiherrabústaðnum í Teheran.
Roosevelt sagði, að Stalin hefði komist á snoðir um þetta
samsæri.
________________________ Ánægður með
Teheranfundinn.
Forsetinn sagði blaðamönn-
unum, að hann væri mjög á-
nægður með Teheranfundinn
og hældi þeim Churchill og
Stalin á hvert reipi. Einnig tal-
aði hann um Chiang Kai Shek
og fundahöldin í Kairo og í
því sambandi tók hann fram,
að það væri sjer ánægja, að
búið væri að afnema lög þau,
sem bönnuðu Kínverjum að
taka sjer bólfestu í Bandaríkj-
unum.
Um veikindi
Churchills.
Roosevelt mintist á veikindi
Churchills við blaðamennina
og sagði, að þó frjettirnar um
líðan Churchills væru betri nú,
en þær voru fyrst, hefði hann
miklar áhyggjur vegna veik-
inda forsætisráðherrans, þar
sem þetta væri í annað sinn
á sama árinu, sem Churchill
veiktist af lungnabólgu.
Reykjavíkurbær
greiði 180.000
krónur
Á bæjarráðsfundi í gær lá
fyi'ir fundinn niðurstöður
gerðardóms, er skipaður var
í máli Seltjarnarneshrepps og
Mosfellshrepps gegn Reykja-
víkurbæ.
Seltjarnarneshreppur taldi
sig hafa orðið fyrir skaða, er
jarðir Elliðaárs, Ilólms og til-
þeyrandi lóðir voru lagðar
undir Reykjavíkurbæ.
Niðurstaða gerðadóms í
þessu máli var sú að Reyfja-
víkurþær greiði Seltjarnarnes-
hreppi 40.000 krónur, með
6% ársvöxtum frá 1. jan.
1944.
Seltj arnarneshreppur h afð i
farið fram á miklu hærri upp-
hæð, eða um það bil 72.000 kr.
ÚrMosfellshreppi voru jarð-
irnar: Grafarholt, Gufunes,
Keldur, Eiði, Ivnútskot, Ivorp-
úífsstöðum, Lamhagi, Reyni-
vatn og jarðarhluti af Ilólms
eyði lagðar undir Reykjavík-
urbæ. Gerði Mosfellshreppur
kröfu á hendur Reykjavíkur-
bæ, er nam um það bil
420.000 krónur.
Niðurstaða gerðardóms, var
sú, að Reykjavíkurbær greiði
Mosfellsh. 140.000 krónur,
með 6% ársvöxtum frá 1. jan.
1944 að telja.
Gerðadóni skipuðu eftir-
taldir menn: Gissur Bersveins-
son, hæstarjettardóm., Þórður
Eyjólfsson hæstarjettardóm.
og Björn E. Árnason, ondur-
skoðandi.
Skotið á
Dalmatiustrendur
LONDN í gærkvöldi. — Bresk-
ir tundurspillar sigldu í nótt
sem leið upp að Dalmatíuströnd
um og skutu á ýmsar stöðvar
Þjóðverja, einnig hafnarmann-
virki.
Morgunin eftir söktu tund-
urspillarnir svo tveim smáskip-
um. ■—Reuter.
Influensa lamar
flutninga
INFLÚENSUFARALDUR sá,
sem geisar nú í Bretlandi, hef-
ir valdið miklum truflunum á
járnbrautarflutningum í land-
inu, einkum kolaflutningum.
Hafa flutningaverkamenn lagst
í hrönnum, og einnig þeir, er
aka járnbrautarlestunum. —•
Þannig lágu í einu 10% allra
fluningaverkamanna. Voru á
einum degi 75 fólksfluninga-
lestir látnar hætta akstri, vegna
þess að áhafnir þeirra varð að
nota til þess að aka vöruflutn-
ingalestum, en þó urðu þá 9
vöruflutningalestir að halda
kyrru fyiúr, vegna þess, að á-
hafnir skorti.
Kemur veikin hart niður á
mönnum, sem þreyttir eru orðn
ir af löngu erfiði. —Reuter
Finnar hrekja Rússa.
LONDON í gærlcvöldi. Þýska
frjettastofan segir, að finska
herstjórnin hafi í dag tilkynt,
að árás Rússa á Aunnuseiði hafi
farið þannig, að Finnar hafi
hrakið þá alllangt aftur á bak
með gagnárásum. Reuter.