Morgunblaðið - 08.01.1944, Blaðsíða 1
31. árgangur.
5. tbl. — Laugardagur 8. janúar 1944
Isafoldarprentsmiðja h.f.
RIJSSAR LIVikRINGJA KIROVOGRAD
Bandamenn hafa
ekki yert inn-
rás í Júgoslafiu
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
ÞRÁLÁTAR FREGNIR, sem
áttu upptök sín í Stokkhólmi,
' hafa gengið í dag, um að banda
’ menn hafi sett lið á land á Dal-
' matiuströndum og þar með
hafið innrás í Jugóslafíu. Á-
byrgur talsmaður herstjórnar-
innar í London hefir mótmælt
þessum fregnum. Hann sagði
við blaðamenn:
„Bandamenn hafa ekki sett
lið á land í Júgóslafíu”.
Stokkhólmsfregnirnar.
Það var sænska blaðið „Stock
holmstidningen”, sem birti þá
fregn, að bandamenn hefðu
. gert innrás á Balkanskaga. Var
fregnin komin til blaðsins frá
Zagreb, höfuðborg Króatíu og
fylgdi það fregninni, að her-
sveitir bandamanna ættu í bar
dögum við'hersveitir Þjóðverja
' víðsvegar á Adriahafsströnd
‘ Júgóslafíu.
Fyr höfðu borist fregnir frá
Zagreb, sem hermdu, að mikill
innrásarótti hefði gripið íbúa
borgarinnar. Gengu sögur um
það í borginni, að hersveitir úr
7. her Bandaríkjamanna og 1.
'her Breta hefðu gert innrásina
á Balkanskaga.
Mac Arthur væntan-
legur til Ameríku
WASHINGTON í gær: —
Blaðið Indianapolis Star skýr
ir frá því, að Mac Arthur hers-
höfðingi, yfirmaður banda-
manna í Suðvestur-Kyrrahafi,
sje væntanlegur til Washing-
ton í marsmánuði.
Það er ekki vitað, hvort Mac
Arthur, sem nú er 64 ára, ætl-
ar sýer að segja af sjer embætti
og' taka forystu þeirra, sem
'vilja að hann bjóði sig fram
í forsetakosningunum að hausti.
—Reuter.
Amerísk flugvjel neydd
til að lenda í Sviss
Zurizh í gærkveldi. — Flug-
vjelar, sem ekki var vitað hverr
ar þjóðar voru, hafa í dag flog
•ið yfir Svissland í stórum hóp-
um.
Svissneskar orustuflugvjelar
rákust á eina erlenda flugvjel
-og neyddu hana til að lenda
innah landamæra Svisslands.
Þctta reyndist vera amerísk
hernaðarflugvjel. — Reuter.
Stalin oct (hurchitl á gönguíerð
Þessi ljósmynd var tekin meðan á Teheran-ráðstefnunni
stóð. Á myndinni sjest Stalin í hinum nýja marskálksbún-
ingi sínum. Maðurinn á ameríska herforingjabúningnum er
Henry H. Arnold, yfirmaður herráðs Bandaríkjahersins, en
Churchill, forsætisráðherra, í einkennisbúningi flugsveitarfor-
ingja, snýr baki að ljósmyndaranum. Myndin var tekin er
þeir Churchill og Stalin fengu sjer gönguferð milli funda
í Teheran.
Loftsóknin gegn Evrópuvirkinu:
Mikil loftárás á
SV-Þýskaland í björtu
London í gærkvöldi. — Einkaskeyti til Morg-
unblaðsins frá Reuter.
LOFTSÓKN bandamanna gegn „Evrópuvirki” Hitlers heldur
áfram dag og nótt. I dag fóru amerísk flugvirki og Liberator-
flugvjelar til árása á Suðvestur-Þýskaland, en orustuflugvjelar
og orustusprengjuflugvjelar hjeldu áfram árásum sínum á hern-
aðarstaði í Norður-Frakklandi.
Þriggja daga sókri
færir Rússum
stórsigur
London í gærkvöldi. — Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
RÚSSAR hófu nýja sókn s. 1. miðvikudag í áttina til
hinnar mikilvægu borgar Kirovograd, sem er fyrir vest-
an Kremenchug-vígstöðvarnar við Dnieper. Hafa Rússar
sótt fram á 90 km. breiðu svæði á þessum nýju vígstöðv-
um og sótt fram alt að 40 km. og tekið 120 borgir og bæi í
sókn sinni. Hafa Rússar algjörlega umkringt Kirovograd.
Orustuflugvjelar fylgdu
sprengjuflugv^llunum til Suð-
vestur-Þýskalands. Til nokk-
urra átaka kom, því Þjóðverjar
sendu sveitir orustuflugvjela á
móti árásarflugliðinu. Skutu
bandamenn niður 42 þýskar or
ustuflugvjelar. Sjálfir mistu
bandamenn 12 sprengjuflug-
vjelar og 7 orustuflugvjelar.
Ekki hafa verið birtar frjett-
ir um, á hvaða borgir í Þýska-
landi árásirnar voru gerðar, en
fregnir frá Svisslandi, sem
skýra frá því að stórir hópar
erlendra flugvjela hafi flogið
inn yfir svissnesku lanlamær-
in, benda til þess, að banda-
menn hafi gert árásir á borgir
nálægt landamærum Sviss-
lands og Þýskalands.
Loftsókn gegn
Frakklandi.
Frá því snemma í morgun og
þar til undir myrkur í kvöld
Framh. á 2. síðu.
Breytingar á tyrk-
nesku stjórninni
í vændum
STOKKHÓLMI í gærkveldi:
Fregnir hafa borist hingað frá
Ankara þess efnis, að mikil-
vægar breytingar sjeu í vænd-
um á tyrknesku stjórninni. Seg
ir samkvæmt þessum heimild-
um, „að háttsettur tyrkneskur
embættismaður innan stjórn-
arinnar muni láta af embætti,
en við embætti hans eigi að
taka sendiherra Tyrkja í Lond
on”.
Það fylgir þessari fregn, „að
þegar þessi breyting hafi ver-
ið gerð, muni Tyrkir veita
bandamönnum enn meira lið
en þeir hafa gert. hingað til.
—Reuter.
~—)íouítu f'rjetth':
San Vittore
fallin
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðskis
frá Reuter.
FREGNIR frá frjettariturum,
sem eru með 5. hernum og sem
sendar eru seinast í kvöld,
herma , að hið ramgerða virki
Þjóðverja San Vittore sje fall-
ið. Er þar með fallið síðasta og
öflugasta virki Þjóðverja, sem
varði leiðina til Cassino og veg-
arins til Rómaborgar.
Þjóðverjar börðust hatram-
lega og urðu Bandaríkjamenn,
sem tóku borgina að berjast um
hvert einasta hús. Hver einasti
þýskur hermaður í liði því, sem
borgina varði var feldur, eða
tekin til fanga. Frjettaritari,
sem kom til borgarinnar í
morgun segir frá því, að á ein-
um stað hafi um 200 Þjóðverj-
ar reynt að flýja til fjalla frá
borginni. Þeir voru allir strá-
feldir, hver einasti maður.
Stjórnarbreylingar
í Vichy
London ’í gærkveldi.
í Vichy voru í gær tilkyntar
eftirfarandi breytingar á stjórn
inni: Paul Marion, útbreiðslu-
og upplýsingaráðherra verður
aðstoðarmaður Lavals, en við
embætti hans tekur fyrverandi
þingmaður, Philippe Henriot,
sem er frægur rithöfundur og
útvarpsfyrirlesari. FjármáLa-
og viðskiftamálaráðherrann,
Pierre Sathala, verður land-
búnaðarráðherra í stað Bonna-
foux, sem hefir sagt af sjer.
Ekki er enn fullráðið, hver tek
ur við fjármálunum. — Reuter.
Er þetta af hernaðarsjer-
fræðingum talinn einn hinn
mikilvægasti sigur, sem
Rússar hafa unnið í vetrar-
herferð sinni. í þriggja daga
sókn hafa þeir eytt þremur
þýskum herfylkjum, þar af
einu skriðdrekaherfylki og
einu vjelaherfylki. Þjóðverj
ar biðu mikið manntjón og
hergagna í sókn Rússa.
Sóknin inn í Pólland.
Ukrainuhersveitir Rvissa,
sem sækja frá Korosten inn
í Pólland, hafa einnig sótt
hratt fram í dag. Hersveit-
irnar eru nú komnar um 45
km. inn fyrir landamæri
Póllands og bendir ekkert
til að farið sje að draga úr
sókninni, því Rússar hafa
sótt fram í 20—25 km. —•
Ukrainuhersveitirnar eru
komnar rúmlega 100 km.
vestur fvrir Berdichev.
Leið Þjóðverja til Odessa
Hersveitir Rússa, sem
í hættu.
sækja inn í Pólland eru nú
eina 50 km. frá veginum,
sem Þjóðverjar hafa frá
Odessa til Þýskalands. Nái
Rússar þessum vegi á sitt
vald, er allur her Þjóðverja
þar fyrir austan í mikilli
hættu og er talið af hern-
aðarsjerfræðingum, að nái
Rússar þessum vegi á sitt
vald, þá sje aðstaða Þjóð-
verja í Suðaustur-Evrópu
vonlaus.
í sókn Ukrainuhersins
í Póllandi í dag hafa Rússar
náð á sitt vald 70 bæjum og
þorpum og eru 30 staðir
nefndir með nafni í her-
stjórnartilkynningu Rússa í
kvöld.
Á Eystrasalts-
vígstöðvunum.
Á Eystrasaltsvígstöðvun-
um er framsókn Rússa hæg-
ari heldur en hún hefir ver-
ið undanfarið og er aðeins
getið um viðureignir fram-
varðasveita á þeim slóðum
í dag.
Framh. á 2. aíða.