Morgunblaðið - 09.01.1944, Side 1
31. árgangur.
6. tbl. — Sunnudagur 9. janúar 1944.
Isafoldarprentsmiðja h.f.
SkHnaðaranáliS á Hlþingi:
Ríkisstjórnin ber fram lýðveldisfrum-
varp milliþinganefndarinnar
Alþingi
sett d
morgun
ALÞINGI verður sett á
morgim. Ilefst sú athöfn að
venju með guðsþjonustu í
Dómkirkjunni. Herra biskup-
inn, Sigurgéir Sigurðsson,
prjedikar.
Ekki or blaðinu kunnugt,
hvórt utanbæjarþingmenn eru
allir komnir til bæjarins. Senni
lega ern einhverjir ókomnir
og verða þá frestað forseta-
kosningum. ' •
Fimfi herini
ir fra
HERSVEITIR fimta hersins
berjast nú í þorpinu Guifsto,
sem er rjett fyrir norðan San
Vittore. Þjóðverjar náðu aftur
þorpinu Monteraimo, sem er
þarna nokkru fyrir norðaustan.
Fimti herinn sækir víða fram
á hinni 16 km. löngu víglínu,
sumsstaðar alt að hálfum þriðja
kílómeter á síðasta sólarhring.
Þá hefir herinn tekið fjall
eitt 4000 feta hátt.
Sveitir úr hernum eru komn-
ar að fjallinu Monte Porchia,
þrem km. suðaustur af San Vitt
ore, sem þurfti að taka, til þess
að ná valdi á veginum austur
til Cassino.
Attundi herinn hratt snarpri
næturárás Þjóðverja fyrir vest-
an Creccio, en sá bær er um
10 km frá Ortona, inni í landi
og um hálfan annan kílómeter
frá þjóðvegi þeim, sem mest
hefir verið barist um á þessum
slóðum. — Reuter.
Ráðist á flugvjela-
smiðjur
Ameríkst flugvirki frá
Norðvestur-Afríku fóru í gær
og' gerðu atlögu að flugvjela-
verksmið.ju einni í bænum
Maribor í Norður-Jugoslafíu.
Er þetta í fyrsta skifti, sem
árás er gerð á verksmiðju
þessa. — Aðrar flugvjelar
rjeðust á Fiume við Adriahaf-
ið. og orustuflugvjelar gerðu
atl'ögitr að birgðalestum að
baki víglínu Þjóðverja á
Italíuvígstöðvunuin. Banda-
nieun mistu 4 flugvjelar í þess
um ferðum. — Reuter.
Innrás á Suðurhafsey
Iljer eru herir Bandaríkjamanna að flytja birgðir á land,
eftir að innrás hefir verið gerð á eina af eyjum Suðurhafs-
ins. í baksýn sjest fram stafn stórs japansks flutningaskips,
sem rent var á land, eftir að flugvjelar höfðu skemt það með
spi’engjum.
Barist á götun-
um í Kirovograd
London í gærkveldi.
í tilkynningu þýsku herstjórn
arinnar í dag segir, að bardag-
ar sjeu nú háðir á götunum í
Kirovograd, en er síðast frjett-
ist af þessum vigstöðvum, var
ljóst, að Rússar höfðu því nær
umkringt borgina. Frégnir frá
Moskva í dag herma, að barist
sje um hvert hús í borginni af
mikilli hörku. \
Rússar virðast hafa mjög öfl
ugan her á þessum slóðum, ef
ráða skal af því, að fyrir ör-
fáum dögum voru Þjóðverjar í
harðvítugri sókn á þessu svæði
en eru nú komnir í algera vörn.
Svo virðist, sem Rússar hafi
komið hraðsveitum fyrir norð-
an borgina, og að suðvestan
líka og ætlað að aka hana í
tangarsókn. Þjóðverjar segjast
hafa orðið fyrri til þar og tek-
ist að mola hægri arm tang-
arinnar. Lítur þá út fyrir að
Rússar hafi tekið það ráð að
gera atlögu beint að borginni.
I Austur-Póllandi segja
fregnritarar að Rússar sæki
hægt fram og nálgist borgina
Sarny. Ekki er getið um stór-
bardaga á þeim,slóðum, en Þjóð
verjar segja fráakaflega harðri
varnarbaráttu við Berdichev
| og er að sögn þeirra skrið-
drekatjón Rússa gífurlegt.
Á Nevelvígstöðvunum er
ekkert sjerstakt um að vera,
og er sókn Rússa þar nú mjög
hæg.Annarstaðar er aðeins um
staðbundnar viðureignir að
ræða, og hafa bardagar farið
harðnandi á Krímskaga'að und
anförnu. —-Reuter
Islendingar
í þýska
hernum
í GÆR flutti þýska útvarp-
ið þætti, þar sem fram komu
sjálfboðaliðar úr þýska hern-
um, sem eru frá ýmsum lönd-
um, og sögðu eitthvað af
reynslu sinni í styrjöldinni. —
Meðal annars var þar Frakki
einn, sem sagðist hafa kynst
bæði íslenskum og dönskum
sjálfboðaliðum í þýska hernum
og er þjóðir voru taldar, stm
ættu sjálfboðaliða með Þióð-
verjum, voru íslendingar íald
ir með.
Samtal við formann
lýðveldisnefndar,
Gísla Sveinsson alþm.
LÝÐVELDISNEFNDIN — ollefu manna — þ. e. fulltrúa
þriggja stærstu flokka Alþingis og ríkisstjórnarinnar, hefir
setið að störfum undanfarna daga.
Blaðið hefir átt tal við formann nefndarinnar, Gísla Sveins-
son alþm. og spurt hann meðal annars um, hverja tilhögun
nefndin hefði hugsað sjer á flutningi lýðveldismálsins á Al-
þingi, er nú kemur saman. Fórust G. Sv. svo orð:
-□
JKorgtmtM
í DAG er Morgunblaðið48
síður. Varð að ganga frá
blaðinu mikið fyr en
venjulega í gærdag, vegna
árshátíðar starfsfólks ísa-
foldarprentsmiðju, er hald
in var í g'ærkvöldi.
Lesbók er ekki borin með
blaðinu í dag. Næsta Les-
bók kemur með blaðinu n.
k. sunnudag'.
□-
-□
Jón Þorsfeinsson
skáknieisfari
Norðlendinga
Frá frjetaritara vorum
á Akureyri.
JON Þorsteinsson er orðinn
skákmeistari Norðlendinga í
þriðja sinn. Skákþing Norð-
lendinga fór fram hjer dag-
ana 27. des. 1943 til 7. jan. þ.
á. að Hótel Norðurland. Teflt
var í tveim fJ.okkum. — í efra
flokknum voru meistaraflokks
og fyrsta flokks menn, 10 alls.
Af þeim varð hlutskarpastur
skákmeistari Norðurlands, Jón
Þorsteinsson, Akureyri, hlaut
8 vinninga, vann 7 skákir og
gerði tvær jafntefli. Önnur
verðlaun hlaut Hjálmar Theó-
dórsson Húsavík, 6V2 vinning,
þriðju verðlaun Jóhann Snorra
son, Ak., 6 vinninga. Fjórði
varð Júlíus Bogason, Ak. 5%
vinning. Fimti Steinþór Helga
son. Ak. 5V£ v. Sjötti Stein-
grímur Bernharðsson, 4V2 v.
Sjöundi Guðm. Eiðsson 3% v.
í öðrum flokki keptu fimm
menn.
— Lýðveldisnefndin starfar
fyrir þingflokkana, sem bund-
ist hafa samtökum um fram-
gang málsins og ríkisstjórnina
að undirbúningi að meðferð
skilnaðarmálsins innan þings
og utan, og stendur í sam-
bandi við aðra áhrifaaðila í
landinu um að skapa sem
mesta einingu og sem best
samstarf um afgreiðslu máls-
ins, enda orkar það ekki tví-
mælis, að öll sundrung er hjer
óhæfa.
Þegar í þingbyrjun verður
lýðveldisfrumvarp milliþinga-
nefndarinnar í stjórnarskrár-
málinu.lagt fyrir þingið, ó-
breytt eins og nefndin skilaði
því, og með greinargerð henn-
ar, en ríkisstjómin mun bera
það fram eftir eigin ósk.
Verður það lagt fram fyrir
neðri deild Alþingis. 1 sam-
einuðu Alþingi verður svo
flutt tillaga stjórnarskrár-
nefndar um sjálfan skilnaðinn
o. s. frv. En eins og kunnugt
er, voru fulltrúar allra þing-
flokka í nefndinni sammála
um frumvarpið 0g tilloguna,
sem sje um stofnun lýðveldis-
ins eigi síðar en 17. júní 1944,
en smávegis ágreiningur um
fyrirkomulagsatriði skyldi
geymast, þangað til Alþingi
tæki málið í sínar hendur.
Verður nu einnig svo, alt slíkt
bíðui' meðferðar hjá þing-
nefndum. Um málið sjálft er
allur þorri Alþingis og ríkis-
stjórnin samhuga. Og meira
að segja standa vonir og ósk-
ir allra góðra Islendinga til
þess, að allir þingmemi geti
einnig komið sjer saman á'
sínum tíma. Um þjóðina í heild
er ekki að efast.
Það er rjett að taka það
fram, úr því að um ]>etta er
Framh. á 8. síðu.