Morgunblaðið - 14.01.1944, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 14. janúar 1944.
Fímm mínútna
krossgáta
Lárjett: 1 faðir — 6 ekkert
undanskilið — 8 reyk — 10
hlýt — 11 erindisleysa — 12
samtenging — 13 ullarhnoðrar
■— 14 á litinn — 16 fávís.
Lóðrjett: 2 tveir eins — 3
huglaus — 4 danskt blað — 5
skottið — 7 öldugangur — 9
matbý — 10 veikluleg — 14
fangamark — 15 sama og 13 lá-
rjett.
LO.G.T.
Skemtanir
verða haldnar á sunnudaginn
kemur fyrir allar barnastúk-
urnar í þinghá Reykjavíkur í
GT-húsinu.
Fyrir böm innan 10 ára kl.
1,30 e. hád.
Til skemtunar verður:
1. Ávarp: Ingimar Jóhannsson
2. Söngur: 2 barnastúkukórar.
3j Ilans.
Fyrir böm eldri en 10 ára
kl. 3,30. e. hád.
Til skemtunar 'verður:
3. Ávarp: Árni Óla.
2. Söngur: 2 barnastúkukórar.
3. Dans.
Aðgöngumiðar fyrir skuld-
lausa fjelaga seldir á kr. 1.00
í GT-húsinu á föstudag kl. 4
—6 e. h. og á laugardag kl
30,30—-12 f. h. Aðeins barna
stúkufjelagar fá aðgang.
. Gæslumenn.
Fjelagslíf
. JÓLATRJES-
SKEMTUN fjelags-
ins verður á morgim
kl. 4 í Iðnó. Til skemtunar m.
a. jólasveinar og Tarzan. Síð-
asta tækifæri til að ná í að-
göngumiða er í dag kl. 4—7 á
afgreiðslu Sameinaða Tryggva
götu.
Æfingar í kvöld.
1 Miðbæjarskólanum kl. 7^4
Fimleikar kvenna 3. fl. Kl.
814 Ilandbolti kvenna. Kl. 9%
Frjáls-íþróttir.
Stjórn K. R.
ÍKlÐADEILDIN
Skíðaferðir verða að
Kolviðarhóli laugar-
dagskvöld kl. 8 og
sunnudaginn kl. 9 f.
h. Farið frá Varðarhúsinu.
Farseðlar fyrir laugardags-
ferðina, verða seldir í Í.R#-
húsinu við Túngötu, á föstu-
dagskvöld kl. 8—30. Þeir,
sem ætla að gista á Hólnum,
þurfa að panta gistingu á
sama stað.
Farseðlar fyrir sunnudags-
ferðina, verða seldir í Versl.
Pfaff, Skólavörðustíg, á laug-
ardag frá 12—3.
Kaup-Sala
HÁFJALLASÓL
eða pera í háfjallasól óskast
keypt eða leigð. Sími 4680 eða
3326.
MINNINGARSPJÖLD
Barnaspítalasjóðs Hrings
ins fást í versl. frú Ágústu
JSvendsen.
Tapað
TAPAST HEFIR
„Parker“ sjálfblekjungur með
gullhettu síðastl. sunnudags-
kvöld frá Víðimel 47, um
Hofsvallagötu, Túngötu, Að-
alstræti að Bifreiðastöð Stein
dórs. Skilist á Barónsstíg 49
kjallaranum, gegn háum fund-
arlaunum.
Húsnæði
UNG KONA
óskar eftir herbergi gegn hús-
hjálp. Tilboð merkt „Sjer
herbergi", sendist Morgun-
blaðiuu fyrir laugardagskvöld,
ÁRMENNINGAR!
Iþróttaæfingar í í-
þróttahúsinu í kvöld
verða þannig:
I minnisalnum:
Kl. 7—8 Öldungar, fimleikar.
8—9 Handknattl. kvenná.
— 9—10 Frjálsar iþróttir og
skíðaleikfimi.
í stóra salnum:
Kl. 8—9 I. fl. karla, fimleikar
—9—30 II. fl. karla, —
Stjórn Ármanns.
ÁRMENNINGAR!
Skíðaferðir í .Jósefsdal um
næstu helgi: Vegtia margra
áskorana verður ferð kl. 2 á
laugardag, ennfremur k], 8 og
á sunnudagsmorgun kl. 9.
Farið frá íþróttahúsinu, far-
miðar seldir í Sportverslun
Hellars til kl. 4 á laugardag.
Munið, að fundur skíða-
deildarinnar er í Baðstofu
Iðnaðarmanna í kvöld kl. 8.
ol^aaLóL
GUÐSPEKISFJELAGIÐ
Reykjavíkurstúkan hefir fund
í kvöld kl. 8,30. Kristmundur
Þorleífsson talar. Gestir vel-
komnir.
Vinna
Útvarpsviðgerðarstofa
mín er nú á Klapparstíg
16 (sími 2799). — Ottó B.
Arnar, útvarpsvirkjameist-
ari.
14. dagur ársins.
Árdegisflæði kl. 7.45.
Síðdegisflæði kl. 20.03.
Næturlæknir er í læknavarð-
stöðinni, sími 5030.
I. O. O. F. 1 = 125114814 =
E. I.
Halla Matthíasdóttir, Krosseyr-
arveg 11, Hafnarfirði, verður 80
ára á morgun (laugardag).
Jónas Þorsteinsson, Ránargötu
5 A verður 55 ára í dag.
Silfurbrúðkaup eiga í dag frú
Vigdís Helgadóttir og Jón Þor
varðarson, Meðalholti, Flóa.
Hjúskapur. í dag verða gefin
saman í hjónaband af sr. Garð-
ari Svavarssyni ungfrú Dóra J.
Halldórsdóttir, Blómvallagötu 10
og Bragi Brynjólfsson klæðskera
meistari, Hverfisgötu 117. Heim
ili ungu hjónanna verður á
Blómvallagötu 10.
Hjúskapur. Gefin voru saman
í hjónaband 8. þ. m. Andrjes
Andrjesson klæðskerameistari,
Laugaveg 3 og Ingibjörg Stef-
ánsdóttir, Stakkahlíð, Loðmund-
arfirði.
Hjúskapur. Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína ungfrú Guð-
rún Guðmundsdóttir, Freyju-
götu 25 og Jón Arnórsson sjó-
maður, Öldugötu 3, Hafnarfirði.
Hjónaefni. Á gamlárskvöld op-
inberuðu trúlofun sína ungfrú
Anna Petersen, Vesturgötu 61 og
Peter Ingebrechtsen.
Hjónaefni. Nýlega opinberað
trúlofun sína ungfrú Ólöf Ólafs-
dóttir frá Syðravelli í Gaulverja-
bæjarhreppi og Kristmundur
Sigfússon, Eyrarbakka.
Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði
boðuðu til fundar á mánudag-
inn var til þess að ræða um
fjárhagsáætlun bæjarins, en það
fórst fyrir vegna veðurs. — Nú
verður þessi fundur haldinn í
kvöld í húsi Sjálfstæðisfjelag-
anna.
Leikfjelag Reykjavíkur sýnir
Vopn guðanna kl. 8 í kvöld. Að-
göngumiðasalan er opin frá kl.
2 í dag.
Ungir Sjálfstæðismenn. Mætið
á fundi Heimdallar í Kaupþings-
salnum í kvöld kl. 814.
ÚTVARPIÐ í DAG:
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
20.00 Frjettir.
20.30 Útvarpssagan: „Bör Börs-
son“ eftir Johan Falkberget, II.
(Helgi HjÖrvar).
21.00 Strokkvartett útvarpsins:
Kvartett, Op. 18, nr. 7, eftir
Beethoven.
21.15 Fræðsluerindi Í.S.Í.: Um
fimleika (Benedikt Jakobsson
íþróttaráðunautur).
21.35 Spurningar og svör um is-
lenskt mál (Björn Sigfússon).
21.55 Frjettir.
22.00 Symfóníutónleikar (plöt-
ur); a) Pianókonsert eftir
Rachmaninoff. b) Dauðraeyjan
eftir sama höfund.
húsráðendur
Get tekið að mjer jpiálningar
og hreingerningar.
Sófus málari. Sími 5635.
Fæði
FAST FÆRI.
Matsöjubúðin. Sími 2556.
Bifreið rennur fram
af bryggju
1 GÆRDAG rann mannlaus
bifreið út af Verbúðabryggj-
unni.
Þetta var uni klukkan tvö,
að bifreið frá II.f. Shell kom
fullhlaðin með tunnur niður
á bryggjuna í skip er þar lá.
Ilafði bifreiðastjórinn far-
ið út úr bifreiðinni, en skyndi
lega rann bifreiðin af sfað og
rann fram af bryggjunni.
Blaðinu er ekki kunnugt,
hvort tekist hefir að ná bif-
roiðinni upp.
Hugheilar þakkir til yðar allra, sem sýnduð mjer
vinarhug á 80 ára afmæli mínu 3. þ. mán. með blóm-
um, gjöfum og skeytum. Guð blessi yður öll.
Þórdís Steinsdóttir, Hafnarfirði.
^♦XMX4*H**HM!HH**M**X“W‘I*fV*’I*‘I«X**XMX4*H*‘X**X**W**IM!”tnH**:,*:**!*'X*')
Þess skal getið, sem gert er.
Við undirrituð getum ekki látið hjá líða, að
votta hinum mörgu vinum okkar hugheilar þakkir
fyrir margvíslega hjálp og ógleymanlega vinsemd,
sem þeir hafa látið okkur í tje, sjerstaklega á undan-
fömum þrem árum, í veikindum og fjárhagslegri
þröng okkar.
Við nefnum engin nöfn, en við biðjum kærleik-
ans'guð, að launa þeim öllum kærleiksverkin gagn-
vart okkur, bæði fyr 0g síðar. Fórnarlund þeirra og
drengskapur hefir verið ljós á vegum okkar fram á
þennan dag og við trúum því, að guð láti það lundar-
far, sem þeir hafa sýnt okkur, lýsa þeim öllum til
gæfu og gengis, gleði og friðar, bæði í þessum heimi
og öðrum. — Guð blessi alt þeirra líf og starf.
Hafnarfirði, 8. janúar 1944.
Margrjet 0g Davíð Eyrbekk.
Hótel Goðafoss
á Akureyri er til sölu. Allar
nánari upplýsingar
Jón Sveinsson
Akureyri.
Staddur á Hótel Yík.
AUGLÝSING ER GULLS ÍGILDI
Maðurinn minn
JÓN STEFÁNSSON
frá Blönduholti í Kjós, andaðist í gær að heimili sínu
Bergþórugötu 1.
Sigríður Ingimundardóttir.
Dóttir mín
MARGRJET MADSEN (f. PÁLSDÓTTIR)
frá Melshúsum,
ljest í Danmörku þann 21. ágúst s.l.
Þuríður Jónsdóttir.
Jarðarför mannsins míns ,
MAGNÚSAR MAGNÚSSONAR
umsjónarmanns* fer fram frá Fríkirkjunni n. k. laug-
ardag 15. þ. m. ug hefst að heimili hans Frakkastíg
20 kl. 1,30 e. h.
Fyrir mína hönd 0g annara vandamanna
Guðfinna Jónsdóttir.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við and-
lát og jarðarför sonar míns og bróður okkar
ÓLAFS R. KRISTJÁNSSONAR
Kristján Sveinsson 0g, systkini.
Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu sam-
úð 0g hluttekningu við fráfall 0g jarðarför
JÓNASAR BERNHARÐSSONAR
Njálsgötu 53.
Þorvaldína Jónsdóttir, dóttir og tengdasonur.