Morgunblaðið - 18.01.1944, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLADIÐ
Þriðjudagur 18. janúar 1944;
Hax Pemberton-slysið:
„Vjer þökkum
unnin afrek“
Ávarp iorsela Sþ.á Alþingi í gær.
Á fundi í Sameinuðu
Alþingi í gær ávarpaði
forseti, Gísli Sveinsson,
þingheim svohljóðandi:
Háttvirtir alþingismenn!
ÁÐUR en Alþingi gengur til
, starfa í deildum á þessum degi,
Jjykir mjer hlýða að minnast
hjer í sameinuðu þingi hins
ógurlega sjóslyss, sem nú er
bert að orðið hefir; við að tog-
arinn Max Pemberton hefir
farist með allri áhöfn, 29
manns, að líkindum nálægt
Snæfellsnesi.
Á þessu' nýbyrjaða ári hefir
margt það gerst í heiminum,
sem sársauka veldur mönnum
og seint bætanlegum missi.
Vjer íslendingar höfum eigi
farið varhluta af voveiflegum
Slysum, er sumpart hafa bein-
línis verið af völdum hins æð-
isgengna ófriðarbáls, er enn
geisar, en sumpart að sjálf-
sögðu því óviðkomandi. Verð-
mætir farkostir og fiskiskip
hafa sokkið í sjó, en framar
öllu dýrmæt mannslíf farið for
görðum, og er þar með ærið
skarð höggvið í afkomumögu-
leika hinnar litlu og fámennu
íslensku þjóðar. Þótt eigi verði
sagt eða sannað, að hið síðasta
þungbæra sjóslys, er orðið hef-
ir hjer við land síðustu daga,
er b. v. Max Pemberton fórst,
• standi í nokkru sambandi. við
styrjöldina, þá er þetta þó allt
skylt, ógnir og eyðing, sem eigi
virðist verða við ráðið. Ber oss
að taka því öllu með þeirri ró-
semi hugans, er einkenna á
góða menn og staðfasta, þjóð,
sem eigi lætur bugast, en held
vir áfram göngu sinni og gagn-
legum störfum, í fullu
trausti til handleiðslu hinnar
eilífu forsjónar alls mannkyns.
Minnumst þess, að á öllum
öldum hefir íslensk byggð ver-
ið undirorpin áföilum og ís-
lenskur sær hættulegur þeim,
er hann hafa stundað. En hvort
um sig ber þó í skauti gróður
og aflaföng, til vöggugjafar
börnum þessa lands. Af því
öllu hefir þjóðinni átt að hlotn
ast þrek og þor og þrautseigja,
en einnig örlög um dýrar fórn-
ir, „Stríðsmenn hafsins“, sjó-
mennirnir, hafa verið þar í
fararbroddi. Og alt, sem þurft
hefir til fullnægingar lögmáli
lífsins í þessu landi, hefir ís-
lenska þjóðin staðist fram á
Jvennan dag, og eiga þar einn-
ig þakkir skildar hinar hug-
prúðu hetjur heimilanna. Svo
mun og enn vera um ókominn
aldur, ef enginn æðrast, þótt á
dynji stormar og hregg. Upp-
birta fylgir öllum jeljum og
skin skúrum.
Nú á hjer margt um sárt að
binda vegna þessara síðustu
slysfara, eins og oft áður og
ætíð, er slíkt ber að höndum.
Því að missirinn er stórkostleg
ur. Hann er næsta tilfinnan-
legur þjóð vorri allri, sem þarf
á að halda öllu sínu, er til nyt-
semdar og vegs horfir, ekki
síst dugandi mönnum og gegn-
um, í hvaða stjett sem eru. En
sjer í lagi er missirinn mikill í
hinni ötulu sjómannastjett vorri
er segja sá um hvorttveggja, að
getið hafi sjer glæsilegan orð-
stír með öllum, er til þekkja
og bærir eru um að dæma, og
eins, að hún hefir unnið og
vinnur dyggilega, í erfiðri og
hættulegri stöðu, að- þeim lífs-
nauðsynlegu störfum fyrir
þjóðarheildina, sem óneitan-
lega færa einna áhrifamesta
björg í bú, eins og nú er hátt-
að. En mestur er þó missirinn
og sárastur söknuðurinn
,,heima“, þar sem eru aðstand-
endur og ástvinir, og eru orð
vart nægjanleg til huggunar
þeim.
Vjer þökkum fyrir unn-
in afrek hinna ötulu sona þjóð
arinnar, sem nú eru fallnir í
val með sviplegum hætti.
Vjer skulum láta gott for-
dæmi þeirra verða oss til örv-
unar á braut frama og starfs.
Vjer biðjum Guð almáttug-
an um styrk oss öllum til
handa.
Hann blessi minningu hinna
látnu. og líkni þeim, sem
syrgja.
Jeg bið þingheim að rísa úr
sætum.
— Rússland
Framh. af 1. síðu.
frægu borg Novgorod, og mun
þessi sókn þeirra vera ný-
þyrjuð. 1 Póllandi hafa þeir
tekið hæinn Tuchin á Rovnos-
svæðinu, og sótt þar nokkuð
fram.
Þá er greint frá bardögum
við Novo-Sokolniki, þar sem
Rússar segjast hafa náð nokkr
um þorpum. — Á öði’um
svæðum Austurvígstöðvanna
er-aðeins geti'ð um framvarða-
skærur og stórskotahhríð.
Baráffan í iugoslaviu
London í gærkveldi.
NOKKRIR jugoslafneskir liðs-
foringjar, sem liggja sárir í
sjúkrahúsum í Cairo, hafa rætt
við blaðamenn um stríðið í
Júgoslavíu, og segja það hafa
staðið síðan seint á árinu 1941,
og hafi baráttan oft verið
mjög hörð. Eitt sinn var megin
her Titos innikróaður í Svart-
fjallalandi, en tókst að ryðja
sjer braut út úr herkvínni,
eftir að hafa mist 5000 menn
fallna. Tito sjálfur særðist í
þessum viðureignum, en mest
af vjelbyssum og fallbyssum
varð að grafa í jörð.
Gjöf KveldúJfs
Framh. af bls. 1.
ingu dvalarheimilisins verði
gefin þessi heiti:
Skallagrímur, Þórólfur, Eg-
ill Skallagrímsson, Snorri goði,
Snorri Sturluson, ' Arinbjörn
hersir, Gulltoppur, Gyllir,
Hekla, Borg, Mjölnir, Huginn,
Muninn, og að sjómenn sem
starfað hafa hjá oss, njóti for-
gangsrjettar til dvalar í þeim,
að öðru jöfnu.
Ef ætlað er, að andvirði
hvers herbergis sje kr. 10,000,-
00, skal verja þeim kr. 20,000,-
00, sem umfram eru upp í
kostnað við kaup á innan-
stokksmunum í herbergin, í
samráði við oss“.
Sigurjón A. Ólafsson þakk-
aði f. h. nefndarinnar með
stuttu ávarpi, þar sem hann
gat þess, að það væri alkunn-
ugt, hve rausnarlega þeir
Thorsbræður gæfu, en samt
sem áður hefði sjer komið
svona há fjegjöf á óvart, og
væri þetta stærsta gjöf, setn
dvalarheimilinu hefði borist frá
einu fyrirtæki, þó margir aðr-
ir hefðu gefið stórhöfðinglegar
gjafir.
★
Blaðið hefir snúið sjer til
Björns Ólafs, varðandi söfnun-
ina og skýrði hann sVo frá, að
með þessari stórmyndarlegu
gjöf Kveldúlfs væri söfnunin
komin upp í ca. 610 þúsund
.krónur.
Varðandi stað fyrir hið fyr-
irhugaða heimili, hefðu nefnd-
armenn mikinn hug á að fá
Laugarnes, þar sem spítalinn
stóð, en um endanlega lausn
þess máls er þó ekki hægt að
segja að sinni.
Greinin
í Pravda
Framh. af bls. 1.
ið, hafa reynt að koma slík-
um sögum áleiðis til blaða
sinna, en ekki komið þeim
gegnum ritskoðunina, sem
meðal annars hefir það hlut
verk, að varna því að óstað-
festur orðrómur komist á
kreik.
Sveinsstykki blaðamanns?
Þetta skeyti frá Cairo virð
ist vera sveinsstykki ein-
hvers blaðamanns, jafnvel
fyrta tilraun hans til frjetta
flutnings, og virðist honum
hafa gengið vel gegnum rit-
skoðunina. Hjer í Moskva
höfum við verið að reyna að
komast eftir því, hverjir
væru þeir menn breskir,
sem væru að ræða við Ribb
entrop, en ekki höfum vjer
fengið neitt svar við því“
— Bradley
Framh. af 1. síðu.
hinni fyrirhuguðu innrás á
meginland Evrópu, undir yf-
irstjórn Eiscnhowers.
Omar Bradley er 50 ára að
aldri. ITann stjórnaði annarri
h erfylkingu Bandaríkjam anna
í Tunis, og einnig á Sikiley
og gat sjcr besta orð fyrir
frækilega herstjórn og franv
göngu. — Reuter.
RíkisstjórafrÚLn
sextug
Ríkisstjórafrúin, Georgia Björnsson, á sextugsafmæli í dag.
Hún er dönsk að ætt, fædd í.Hobro á Jótlandi, dóttir H.jH.
Hansen justitsráðs og lyfsala, er var gagnmerkur maður á sinni
tíð og naut mikils trausts meðal samborgara sinna.
Frú Georgía ólst upp í ^foreldrahúsum. En hún var 17
ára, er hún kom hingað til íslands í fyrsta sinn. Kom hún þá í
heimsókn til systur sinnar, sem gift var Lund apótekara í
'gamla Reykjavíkur Apóteki. Hún kunni fljótt vel við
sig hjer í Reykjavík, rjett eins og hún hefði hugboð um, að
hún ætti eftir að dvelja hjer langdvölum. j
Árið 1968 giftist hún Sveini Björnssyni, er þá var málaflutnings-
maður hjer í Reykjavík. Heimili þeirra hjóna var hjer í
Reykjavík í rúml. 10 ár. En eftir 1918, er sendiherraembættið
var stofnað í Höfn, fluttu þau þangað, og voru þar lengst af
búsett, fram til þess að Danmörk var hernumin.
Á fyrstu árum frú Georgíu hjer í Reykjavík aflaði hún sjer
vinsælda og álits sem góð og myndarleg húsmóðir. En mejra
reyndi á þetta, er hún kom til Hafnar sem fyrsta sendiherrafrú,
Islendinga. Þar var hún við hlið manns síns, hin gestrisna,
höfðinglega húsmóðir, jafn alúðleg við tigna erlenda gesti, sem
Islendinga, er hjálparþurfi leituðu til sendiherrans. Hún er
alúðleg og glaðleg húsmóðir, við heimilisfólk sitt og gesti, og
lætur sjer mjög ant um að rækja sem best hina vandasömu
húsmóðurstöðu á æðsta heimili landsins.
Varðarfundurinn í kvöld
Heiðraði Varðarfjelagi og aðrir Sjálfsæðismenn, konur og
karlar!
í KVÖLD kl. 8,30 heldur Landsmálafjelagið Vörður fund í
Listamannaskálanum. Dagskrá fundarins er: Lýðveldismálið og
stjórnarskráin.
Frummælendur á fundinum
verða:
Gísli Sveinsson, form. sam.
al.
Bjarni Benediktsson borgar-
stjóri.
Ólafur Thors, form. Sjálf-
stæðisflokksins.
Að loknum framsöguræðum
verða frjálsar umræður, eins
og venja er til á Varðarfund-
um.
Eins og kunnugt er, liggur
nú fyrir Alþingi að stíga loka-
skrefið í sjálfstæðisbaráttu ís-
lensku þjóðarinnar.
Það finst mörgum raunalegt,
að nú þegar íslenska þjóðin er
að „koma heim“ eftir margra
alda hrakninga, lengst af sem
ófrjálsir utangarðsmenn í sínu
eigin landi, skuli lítilfjörleg
gjörningaþoka hafa gjört
nokkra menn — þó vonandi
sjeu þeir ekki margir — átta-
vilta í túnfætinum, svo að þeir
virðast ætla að verða viðskila
við meginfy^kingu íslensku
þjóðarinnar, í hinni langþráðu
..sigurgöngu, inn á hið stjórnar-
farslega íslenska heimili.
Varðarfjelagar! Oft er þörf
en nú er nauðsyn, að standa
vel á verði fyrir hinum ís-
lenska málstað.
Konur sem karlar! Mætið öll
á fundi Varðarfjelagsins í
kvöld og takið Sjálfstæðisfóllc
með yður.
Virðingarfylst.
f.h. stjórnar Landsmálafje-
lagsins Varðar
Eyjólfur Jóhannson. |
Skærur á Korsíku '
ÞÝSKA frjettastofan segir £
kvöld, að skærur sjeu nú háð-
ar víðsvegar um Korsíku, og
sjeu það eyjaskeggjar, sem
byrjað hafi skæruhernað á
hendur liðsmönnum De* *Gaules