Morgunblaðið - 18.01.1944, Blaðsíða 12
12
Fundur
í Siúdenlðfie-
agi Reykja*
víkur
STÚDENTAFJELAG Reykja-
víkur heldur fund í Háskólan-
um annað kvöld (miðvikudag)
kl. 8V2.
Umræðuefnið verður: Stofn-
un lýðveldis á Islandi.
Málshefjandi verður formað
ur stjórnarskrárnefndar, Gísli
Sveinsson, forseti Sþ. Lvðveld-
isnefnd og utgefendum blaðs-
ins ..Varðberg" er sjerstaklega
boðið á fundinn.
Stúdentar hafa löngum látið
sjáifstæðismálið til sín taka og
jafnan. staðið fremstir í fylk-
ingu í sjálfstæðisbaráttu þjóð-
arinnar.
Atfcvæðagreiðslan
í Dagsbrún
'ALLSHERJAR atkvæða-
greiðslunni í verkamannafje-
laginu Dagsbrún var lokið s. 1.
-sunnudag:' 'En atkvæðagreiðsl-
an var um það, hvort segja
skyldi upp gildandi kaupsamn
ingi.
Alls -eru 2980 verkamenn
Tbkráðir fjelagar í Dagsbrún.
Með uppsögn voru 1308, en á
móti 188; auðir seðlar 20 og
ógildir 6. Alls voru greidd 1522
atkvæði.
Þátttakan í atkvæðagreiðsl-
unni hefir þannig verið mjög
lítil. Þrátt fyrir mikinn og ein-
hliða áróður af hálfu stjórnar
fjelagsms fjekst ekki helming-
ur fjelagsmanna til þess að
greiða atkvæði með uppsögn-
inni.
Mifcill verðpósiur
og dýrmæiar bækur
fýndist með Laxfossi
ENGU hefir verið bjargað
úr Laxfossi af þeim verðmæt-
um farþega og pósti, sem í skip
inu var.
Mikill verðpóstur var í skip
inu og þó ekki sje fyrir hendi
fullkomnár skýrslur um það
enn, er gert ráð fyrir að tugir
og jafnvel hundruð þúsunda
króna hafi verið í póstinum.
Blaðinu er kunnugt um eitt
firma, sem átti verðpóstsend-
ingu með Laxfossi, sem nam
milli 40 og 50 þúsund krónum.
Mikið af verðpóstinum hefir
sennilega verið í bankaávísun-
um og verður það tjón því að
öllum líkum bætanlegt, en enn
fremur mun hafa verið mik-
ið af peningaseðlum í póstin-
i:m, sem ekki er eins auðvelt
að bæta án þess að éinhver
biði tjón.
Það er vitað að með skip-
inu var dýrmæt bókasending
frá Olafi Jónssyni á Akureyri.
Hefir hann unnið að því að
safna sjaldgæfum bókum fyrir
safnið um landfræðileg og jarð
fræðileg efni og sendi töluvert
af slíkum bókum með farþega,
sem var á Laxfossi. Meðal þess
ara bóka voru nokkur eintök,
sem munu nú ófáanleg.
Spellvirfci í Fríhöinlnni í Kaupmannahöln
Þriðjudagur 18. janúar 1944
6 menn fara
í sjóinn
á Húsavík
Frá frjeftaritara vorum
á Húsavík.
1 GÆtt fjellu 6 menn í
sjóinn í Ifösavík, þegar litlum
bát hvolfdi í lendingu, en
björguðust allir, en stunir
voru mjög þjakaðir.
Um fimmleitið s.l. sunnu-
dag voru bátverjar á m.b.
Sporður að leggja bát sínum
á legu í Húsavík, til ]iess að
að fara í land höfðu þeir lít-
inn bát, en náttmyrkur var
og mjög mikill stormur og
dálítill sjór. Þegar þeir vont
komnir ca. 300 metra frá landi
kom ólag mikið á bátinn, svo
hann hálf fylltist. Reyndu þá
bátverjar að ausa bátinn og
róa honnm lífróður í land, en
komust ekki riema ca. 100
metra. og fcngu þá við ekkert
ráðið og báturinn eins og seig
SPELLVIRKI eru framin svo að segja daglega. Berast frcgnir af miklum skemdarverkum,
einkum á verksmiðjum, sem Þjóðverjar hafa tekið í sínar hendur. Sjaldgæft er að hægt
sje að koma ljósmyndum af spellvirkjum úr landi, en þó tekst það við og við. Hjer að of
an birtist mynd, sem amerísku frjettastofunni Associated Press hefir tckist að ná í frá
Danmörku. Var mynd þessi tekin er skipasmíðastöð Nordbjerg & Wedel í Kaupmannahöfn
brann eftir að spellvirkjar höfðu komið sprcngjum fyrir í verksmiðjunni. Fyrir stríð voru
aðallega bygðar lystisnekkjur í skipasmíðastöð þessari, sem cr í Fríhöfninni í Kaupmanna
höfn, en síðan Danmörk var hernumin, hafa Þjóðvcrjar látið byggja þar tundurskeytabáta.
Nokkrir íslendingar
uppvísir að stórfeid-
um viðskiftum við
breska setuliðsmenn
KOMIST HEFIR UPP um víðtæk og mikil viðskifti nokkurra
manna hjer í bænum við breska setuliðsmenn. Hafa Islending-
arnir keypt nýlenduvörur og áfepgi af tveimur Bretum, sem
starfa í herbirgðafyrirtækinu N. A. A. F. I.
Nemur þessi verslun tugum
þúsunda króna. Rannsóknar-
lögreglan og fulltrúar saka-
dómara hafa unnið að rannsokn
þessa máls í marga daga og
voru nokkrir af mönnunum,
sem viðriðnir voru þessa ólög-
legu verslun, settir í gæslu-
varðhald.
Málið mun nú að mestu upp-
lýst. Þeir, sem aðallega eru við
málið riðnir, eru: Gunnar Jóns
son, forstjóri Nýlenduvöruversl
unar Jes Zimsen, Þorkell Ing-
varsson, verslunarfulltrúi og
starfsmaður hans, Sigurður Þor
kelsson, og Ingólf Petersen,
eigandi Ingólfsbakarís.Viðskifti
þessi hófust snemma á s. 1. ári.
Gunnar hefir aðallega kevpt
nýienduvörur, niðursöðuvörur
o. þ. h. Nema þau viðskifti
nokkrum tugum þúsunda.
Þorkell og aðstoðarmaður
hans hafa keypt áfengi, ,,gin“
og ,,whisky“, af Bretunum. Þeir
seldu nokkuð af áfengi því,
sem þeir keyptu af setuliðs-
mönnunum til bífreiðastjóra
hjer í bænum, en þeir seldu
aftur frá sjer.
Allströng lög gilda um við-
skifti íslendinga og setuliðs-
manna.
Fimti herinn
við Rapido-ána
London í gærkveldi.
FJALL það á Ítalíuvígstöðv
unum, sem Þjóðverjar hafa
víggirt hvað ramlegast, ^til
þess að verja Cassino, er nú
í höndum fimta hersins, og
voru bardagarnir um það
feikilega harðir. Eru nú fram-
sveitir fimta hersins komnar
að Rapido-ánni, en hún rennur
mjög skamt frá Cassino, og sjá
bandamenn gjörla til borgar-
innar.
Framsveitir hafa átt í skær-
um við Adríahafsströndina, en
annars er mjög fátt um fregnir
af slóðum áttundahersins. Bú-
ist er við að nokkuð kunni að
dragast að fimti herinn geri
lokaárás að Cassino, þar sem
ifyrst þarf að komast yfir Ra-
Ingolf Petersen hefir keypt pido-ána, en hún er nú all-
nýlenduvörur. Ivatnsmikil. —Reuter.
Stúlkubarn hverf
ur ú heiman
í GÆRKVELDI týndist 4
ára stúlkubarn hjer í bænum,
og hafði það ekki fundist, er
blaðið síðast frjetti.
Stúlka þessi á heima á Bar-
ónsstíg 39. Hafði hún verið í
næsta húsi, en fór þaðan kl.
hálf átta og ætlaði þá heim, en
þegar það drógst, að hún kæmi
þangað, var farið að óttast um
hana. Lögreglunni var svo gert
aðvart um hvarf hennar kl. 10.
— Lögreglan fjekk þegar
skáta í lið með sjer og var haf-
in leit að barninu með fjöl-
mennu liði lögreglumanna og
skáta. Var leitað með kastljós-
um og vasaljósum á stóru
svæði í nánd við heimili barns
ins, en sú leit hafði ekki borið
neinn árangur, er blaðið fór í
prentun.
Stúlkubarn þetta heitir Edda
Astrid Ketilsson og er 4 V2
árs gamalt. Stúlkan var í
blárri kápu og gúmmístígvjel-
um. — Ef einhver skyldi hafa
orðið hennar var eftir kl. 7,30
í g'ærkveldi eða getur gefið ein
hverjar upplýsingar um dvai-
arstað hennar, er hann vinsam
lega beðinn að tilkynna það
lögreglunni.
bægt niður'nndir þeim, 4 bát-
verjar syntu stra.x til lands
og' höfðu sig það, en formaður
á bátnum Jón Hrólfur Sig-
[urðsson.sem cr sæmilega synt-
jur, vildi ekki yfii^efa einn
jfjelaga sinn, sem var svo að
segja ósyntur og fór fonnaður
inn því ekki frá bátnum, held
'ur hjelt sjer á sundi við hami
og' hjálpaði þeim ósynda, og
tókst þeim að hanga við liát-
, inn, þó þeir oft rnisstu af hou-
1 uni, þar til hinir fjelagar
þeirra vorú konmir til lands
‘ og gátu gert aðvart um slysið.
Vár þá settur frani annar
bátur og þeim fjelögum, sem
jframmi voru náð, eftir að þeir'
Jvoru búnir að hrekjast ca 15
mínútur.
I Flestir hofðu þeir drukkið
talsvert af sjó, en farið var
strax með þá á sjúkrahús,
og eftir að sjónum hafði verið
dælt úr þeim, hresstust ]>eir
brátt og líður nú öllum veL
Á bátnum voru aulr formanns,
.bróðiv hans, Jóhannes, Jóii
[Óskarsson, Stefán Ilermanns-
son, Árni Vigfússon og Her-
mann Sigurbjörnsson.
Litlar líkur eru taldar a
því, að þessir menn hefðu
bjargast, er þeir hefðu ekki
svo margir verið syntir.
Vinnuskylda
í kolanámum
FARIÐ er nú að æfa fyrstu
hópa ungra manna, sem með
hlutkesti hefir verið ákveðið
að vinna skuli í kolanámum í
stað þess að ganga í herinn,
Fá þessir ungu menn fjögurra
vikna æfingu áður en þeir
byrja að vinna í námunum.
Eisenhower hrósar
liði sínu
London í gærkveldi.
Eisenhower yfirhershöfðingi
ræddi við blaðamenn í fvrsta
skifti eftir að hann var skip-
aður til að stjórna innrásinni,
og sagðist hann vera hrifinn
af öllum undirbúningi undir
innrásina, sem þegar hefir
verið framkvæmdur. Sagði
hershöfðinginn, að flotinn
hefði u'nnið mikið verk, með
því að koma liði austur um haf
en flughcrinn væri alltat' að
minka viðnámsþrótt iÞjóðverja
Reuter.