Morgunblaðið - 22.01.1944, Síða 1
31. árgangnr.
15. tbl. — Laug'ardagnr 22. janúar 1944
' ----——————————— —-
IsafoldarprentsmiSja k.f.
IMÝ 8ÓKN RIJSSA S.A. AF LENINGRAD
LOFTSÓKNIN FRÁ BRETLANDI HAFIIVI Á NV
Bardagar hefj-
ast a ný í Hvíta-
Rússlandi
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
STALIN MARSKÁLKUR gaf
í dag út enn eina dagskipan til
að tilkynna að rússneski her-
inn hefði hafið nýja sókn. Er
þetta þriðji dagurinn í röð, sem
hann gefur út dagskipan. Sókn
in nýja, sem sagt er frá í dag-
skipaninni er suðvestur af
Leningrad. Hafa Rússar þar
tekið borgina Mga, sem er um
42 km. suðvestur af Leningrad
og fyrir sunnan Ladogavatn.
Mga er ekki eitt af aðalvirkj-
um Þjóðverja, en borgin er
þýðingarmikil samgönguæð og
liggja um borgina járnbrautar-
línur úr mörgum áttum. Er það
skoðun herfræðinga, að Rússar
ætli sjer að ná á sitt vald öll-
um samgönguæðum Þjóðverja
á norðurvígstöðvunum.
Hinar sóknirnar ganga vel.
Hinar tvær sóknir Rússa frá
Leningrad ganga vel. Halda
Rússar aíram að ná á sitt vald
ýmsum borgum og bæjum og
hafa tekið um 40 í sókninni suð
vestur af Leningrad. í sókh
sinni.hjá Novgorord telja Rúss-
ar sjer einnig nýja sigra. Rúss-
ar segjast hafa eyðilega 51
skriðdreka fyrir Þjóðverjum í
bardögum í gær, en ekki er
m,inst á flugvjelatjón og er þess
getið til að ekki hafi verið neitt
flugveður.
Á vígstöðvunum í Hvíta-
Rússlandi eru bardagar byrjað-
ir á ný, en þeir hafa legið niðri
nokkra daga. Þjóðverjar hafa
eytt miklum mannafla í gagn-
áhlaup, sem þó hafa ekki bor-
ið neinn árangur.
Rússar segja, að hersveitum
Þjóðverja, sem innikróaðir
voru eftir töku Novgorord, hafi
verið gjöreytt.
Peterliof í rústum.
Þegar Rússar tóku borgina
Peterhof á dögunum, stóð þar
ekki steinn yfir steini. Pjetur
mikli ljet reisa þessa borg við
Finnlandsflóa og var hún lengi
í tísku hjá rússneska aðlinum,
og ferðamenn hvaðanæfa úr
heiminum ferðuðust til borgar-
innar til að sjá þau listaverk,
er þar voru geymd.
Þjóðverjar höfðu eyðilagt
Framhald á bls. 12
ftalir vinna fyrir bandantenn
ÞETTA ERU ítalskir hcrnienn, sem vinna að vegarlagningu
fyrir bandamenn í Ítalíu. Þeir eru undir stjórn verkfræðinga-
deildar ameríska hersins.
□-
-□
Þýskar útvarpsstöðvar
þögðu í gærkveldi.
Ítalía:
//'
þjóðverjar hörfa til
.Adotfs Hitlers
varnarlínu"
Lonðon i gærkvöldL — Eínkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
FRJETTARITARAR á Ítalíu síina, að þýski herinn, sem
varist hefir við Garigliano-ána, hörfi nú til nýrrar varnar
línu, sem þeir nefna ..Adolf Ilitler“-línuna. Eru þessar varn
arstöðvar um 10 km. fyrir norðan núverandi vígstöðvar hjá
Garigliano.
LONDON í nótt: All-
margar þýskar útvarps-
stöðvar, þar á meðal Ber-
lín, hættu útsendingu í
gærkveldi og höfðu ekki
hafið útsendingar á ný á
miðnætti.
Þegar þýskar útvarps-
stöðvar hætta útsendingu,
þýðir það venjulega, að
flugvjelar bandamanna eru
á ferðinni yfir Þýskalandi.
Reuter.
□---------------------□
Edda, ekkja
Ciano, komin
til Sviss
Það var opinberlega tilkynt
í Bern í gær, að Edda, ekkja
Ciano greifa, dóttir Mussolini,
hefði komið til Sviss þann 9.
jan. s. I. eða tveim dögum áður
en maður hennar var tekinn af
lífi. Voru með henni börn henn
ar þrjú, og segir tilkynningin,
að þau hafi öll laumast yfir
landamærin að næturþeli. Sviss
nesk yfirvöld hafa lájtið setja
ekkjuna og börn hennar í
stranga gæslu.
Þá er einnig tilkynnt af
svissneskum yfirvöldum, að
Dino Alfieri, fyrrverandi út-
breiðslumálaráðherra Musso-
linis, hafi laumast inn yfir
svissnesku landamærin fyrir
nokkru, veikur og illa til reika.
Var hann fluttur í sjúkrahús,
en er nú á batavegi. Hann er
einn þeirra manna, sem dæmd-
ur var til dauða í Verona, um
leið og þeir Ciano og De Bono,
Eítir töku Minturno hefir
verið mikið barist í úthverf-
um Castelfronte, sem er rúm-
lega 3 kílómetra frá Garigli-
ano-ánni. Ennfremur hefir
mikið verið barist Vent.os-
svæðinu í hlíðum Cosina-fjalls.
Herskip taka þátt í sókninni.
Ilresk herskip hafa veitt
landher Breta og Bandaríkja-
manna aðstoð í sókn þeirra
norður með ströndinni og liafa
herskip skotið á stöðvar Þjóð
verja.
Fluglið Bandamanna hefir
einnig haft sig allmjög í
■frammi og gert loítárásir á
stöðvar Þjóðyerja, Þar á með-
al fluarvelli við Rómaborg.
flugvjelar skofnar niður yfir
Brellandseyjum
Á MIÐNÆTTI f NÓTT var opinberlega tilkynnt í London,
að 8 þýskar flugvjelar hafi verið skotnar niður yfir Bretlandi
í árásum þýskraflugvjela á England í kvöld.
Virðist þetta benda til að
Þjóðverjar hafi sent fleiri
flugvjelar, en þeir eru vanir
til árása á Bretland. Er orðið
æði langt síðan að svo marg-
ar þýskar flugvjelar hafa ver-
ið skotnar niður yfir Bret-
landsey.jum á einu kvöldi.
Kkki lágu fyrir hjer í Lon-
don neinar frekari upplýsing-
ar um árásir Þjóðverjaj
Japanar efla
flugherinn
HERNAÐARSJERFRÆÐ-
INGAR á Kyrrahafssvæðinu
álíta, að Japanar sjeu nú að
efla flugher sinn á þeim slóð-
um. Draga þeir þessa ályktun
af því, að Japanar hafa verið
djarfari og harðskeyttari í loft
orustum upp á síðkastið.
2300 smálesta
sprengja á Berlín
í fyrrinótt
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
LOFTSÓKNIN FRÁ BRET-
LANDI á borgir á meginland-
inu hófust aftur í gærkveldi,
eftir nokkuð hlje, með því að
breskar Lancaster og Halifax-
sprengjuflugvjelar gerðu hörð-
ustu árásina sem til þessa hefir
verið gerð á höfuðborg Þýska-
lands. Var varpað niður sprengj
um, sem samtals vógu rúmlega
2300 smálestir á hálfri klukku-
stund. Stóð árásin yfir frá
klukkan um 7,30—8 um kvöld-
ið.
Miklir eldar kviknuðu víðs-
vegar í borginni og þar urðu
ógurlegar sprengingar. Þetta
er 11. stórárásin, sem banda-
menn gera á Berlín á 12 vikum
og eftir fyrri árásir bar hlut-
lausum frjettariturum saman
um, að borgin væri akaflega
illa
Mosquito-flugvjelar fóru til
árása á staði í Vestur-Þýska-
landi í fyrrinótt og breskar
ilugvjelar lögðu tundurrufl á
siglingaleiðum Þjóðverja.
„Lofttundurdufl“.
Als mistu Bretar 35 flugvjel-
ar í árásunum á Þýskaland í
fyrrinótt. Flugmenn, sem árás-
ina gerðu á Berlín segja, að
næturorustuflugvjelar Þjóð-
verja hafi komið seint á vett-
vang, en þær reyndu að leggja
„lofttundurdufl“ fyrir bresku
flugvjelarnar er þær voru á
heimleið. Skothríð úr loftvarna
byssum var heldur ekki mikil
yfir Berlín.
Dagárásir í gær.
I dag (föstudag) fór mikill
fjöldi sprengju- og orustuflug-
vjela til árása á staði í Frakk-
landi og Belgíu. Flugvjelar
Bandaríkjamanna tóku þátt í
þessum dagárásum, bæði flug-
virki og Liberator-flugvjelar,
sem varðar voru orustuflug-
vjelum. Ráðist var á staði hjá
Calais og víðar á Norður-Frakk
landi. Fullkomnar fregnir eru
ekki fyrir hendi um loftárás-
ir í björtu í dag, en vitað er um
eina flugsveit, sem kom öll
heim til stöðva sinnar úr árása-
leiðangrinum. Skotnar voru
niður 19, flugvjelar fyrir Þjóð-
verjum í dagárásunum, Banda-
menn mistu 11 vjelar.