Morgunblaðið - 29.01.1944, Síða 12

Morgunblaðið - 29.01.1944, Síða 12
12 Aukin virðing æsku- lýðsins fyrir íslenska fánanum Frá afmælishófi í. S. í. í ÞRÓTTASA M1 i.WI) IS LANDS átti o2 ára afmæli í ppi'. Þaó var stofnað 28. jan. 1 í) 12.— Það cr venja Í.S.Í. að halda upp á afmæli sitt á hverju ári, og- er j)á pi. a. |>eim, sem sett hafa Islandsmet árið áður, afhent ínetpening- a r í]>rótt,asamband.sins. A afrnælisfundi, sem stjórn Í.S.f. hjelt í gær, vai' eftirfar- audi tillag'n samþykt: ,,Afm a'þisfund ur I þrót t asa m bands Islands, haldinn 28. jan. 1944 í Reykjavík, sani- þykkir að skora á <">H sam- .bandsfjelög f.S.Í. að auka og effa virðingu æskulýðsins fyrir íslenska fánanum með því að bafa hann \ið lnin á ölluin hátíðisdögum sínum, íþrótta- i'iótum og fjelagsfundum". • Afmælishóf fþróttasamlrands •sins var haldið í Oddfellow- húsinu (uppi) í gærkveldi. h’yrst var sameiginleg kaffi- drvkkja, en forseti J.S.f., I>en. (i. W;|;*setti hófið með stuttu ávarpi. — Þá afhenti forsetinn Islandsmethöfum frá siðasta ái-i metpeninga Sam- bandsins, en á árinu voru sett Í8 ný íslandsmet. Af einstak- •lingmn setti Gunnar Huseby (KR) fJest met, eða 4 aJls. Metpeningur úr eir er veitt- <tr fyrir 1—2 met, úr silfri fyrir 9>—5 met, úr siJfri gull- roðuðu fyrir 5—10 met og úr gulli fyrir 10 mct og þar yfir. Knnfremur. afh. for.seti Í.S.I. Kristjáni Ó Skagfjörð gull- beiðursmerki Sambandsins, er harin var sæmdur á 60 ára afmæli hans 11. okt. s.l. Auk l>en. (I. Waage hjeldu •ríeður Erfendur Ó. Pjetursson, form. K lí. og Kristján Ó. Ska gfjörð. Þá sýndi Kjartan Ó. P.jarna son iþróttakvikmýndir, sem •fiann hefir tekið í eðlilegum iitum, en það eru 10 ár síðan, bann fór að taka íþrótta- kvikmyndir f. l.S.l. •—■- Næst skemtu tveir methafanna, Bryn (olfur Ingólfsson og Skúli Guðmundsson, með söng og hljóðfæraslaétti. Að Jokum voru sungin nokkur ættjarðar- >ög. Hófið fór í alla staði nijög virðulega fram. Yeggirnir voru skreyttir íslenska fánanum, í.ina ÍSÍ. og upphieyptri vegg mynd af Jóni Sigurðssyni, sem ebm velunnari Sambandsins !: i f því í tilefni afmælisins. Seafire-orusfuflugvjel r - mm. SEAFIRE- orustuflugvjelin, sem sjest hjer á myndinni að oían vera að lenda á þilfari flugvjelaskips, er afbrigði af hinni þektu Spitfire-orustuflugvjelategund, og svo útbiíin, að hún getur lent á flugvjelaskipum. Hafa nú þvínær öll ílugvjelaskip Breta Seafire-flugvjelar með- ferðis, og eru þær sagðar hafa dugað mjög vel í loftorustunum yfir Salernosvæðinu. Rússar taka Lyuban, sækja fram til Chudovo Sókn í Nýju-Guineu. London í gærkveldi. ÞÆR FREGNIR berast frá vígslóðunum í Nýju-Guineu, að Ástralíumenn hafi sótt hrað ar fram I Ramaudalnum en að undanförnu. Ennfremur hefir Éandaríkjamönnum á Nýja- Eretlandi tekist að vinna bug á mótspyrnu Japana, er vörð- ust í mjög ramgervu virki við Borgen-flóa á Nýja-Bretlandi. • — Loftárásir hafa enn verið gerðar á stöðvar Japana á Marshalleyjum og voru í loftov ustum yfir eyjunum skotnar niður 17 japanskar flugvjelar. London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. í DAGSKIPAN, er Stal- in gaf út í dag, var tilkvnt, að hersveitir Rússa á Vol- kovsvæðinu, suðaustur af Leningrad, hefðu tekið járnbrautarbæinn Lvuban á Moskva-Leningrad járn- brautinni, og ennfremur er sagt, að þeir sæki fram til síðustu stöðvarinnar á þess- ari braut, sem enn er í bönd um Þjóðverja, en það er bærinn Chudovo, alllangt fyrir suðaustan Lyuban, en sá bær er um 27 km suð- austur af Leningrad. Or- ustur eru einnig harðar á stöðvum þeim, er her Gov- oroffs sækir fram og nálg- ast landamæri Eistlands. í herstjórnartilkynningu Rússa er getið lítið um við- ureignir annarsstaðar á víg- stöðvum, en um þær eru Þjóðverjar fjölyrtari, segja nú, að Rússar hafi, auk á- hlaupa sinna við Kerch, einnig byrjað árásir í stór- um stíl á Perekopeiðinu í því skyni að sækja þaðan inn á Krímskagann. Einnig greina Þjóðverjar frá árás- um Rússa við Cherkassi, og milli ánna Pripet og Bere- sina. Sjálfir segjast Þjóðverjar halda áfram áhlaupum við Pogrebitz á Vinnitzasvæð- inu og víðar um þær slóðir og hafa unnið allmikið land svæði þar aftur úr greipum Rússa. Loks segjast Þjóð- verjar hafa grandað 234 skriðdrekum fyrir Rússum í gær. Dagskipan Stalins um töku Lvuban fylgdi eins og áður mikil skothríð í Moskva, og var tekið fram í dagskipaninni, að her Þjóðverja í Chudovo, ætfi sjer vart undankomu auðið. Katin-deilan enn. Rússar og Þjóðverjar eru nú aftur farnir að deila um morðin á hinum pólsku liðs- foringjum, sem fundust grafnir í Katinskóginum nærri Smolensk, segjast Rússar hafa rannsakað grafir þessar og komist að raun um, að allir sem í þeim voru, hafi verið myrtir árið 1941. Þjóðverjar svara því til, að Rússar hafi ekki þorað að hafa nein hlutlaus vitni viðstödd þessa rann- sókn og sjeu allar fregnir þeirra henni varðandi upp- spuni einn, gerður til þess að minka hatur PólVerja í garð Rússa vegna þessara hryðjuverka. Ms. Hólmsberg rekst á hafnar- garðinn Ms. HOLMSIIERG sigldi á Jiafnargarðirm. í gærmorgtm er skipið var á leið út um hafnarmynnið. Sltipið var á leið til Akraness, að sækja mjólk og farþega, er það rakst hægramegin á garðinn, á svo nefndan Háttarísgarð. Skipið skemdist allmikið, brotnaði stefni þess. Elcki kom þó leki að skipinu, cu hætt var við að senda skipið upp cftir. Klukkan 1 í gærdag var björgunarskútan Sæbjörg feng in í ferðina, eti'í dag kl. 2 fer Þór til Akrancss. * Iiolmsberg hefir verið í ferð um milli A kraness og Reykja- víkur, síðan Laxfoss strand- aði á dögunum. Gera má ráð fyrir að viðgerð á m.s. Holmsberg Ia ki nokkurn tíma og horfir heldur illa við um að útvega skip til þessara ferða, sagði framkvæmdarstj. Skipaútgerðarinnar, blaðinu í gær. Verkföll í Manchester. London í gærkveldi —: 8000 kolanámumenn eru nú í verk- falli í Manchesterhjeraði og lít ur ekki vel út með samkomu- lag. Ennfremur eru 2000 manns í verkfalli í flugvjelasmiðju einni í Miðlöndum í Englandi og hafa þeir verið það í ali- langan tíma. — Reuter. Engin mjólk kom til bæj- arins í gær EXGIN MJÓLK kom til Mjólkursöhmnar í gær. Austur yfir fjall er ófært, og skipið seni fara átti til Akraness for- fallaðist, en, Hæbjörg var þá fengin til að fara, og var von á skipinu um miðnætti í nótt, sagði forstjófi Samsölunnar biaðinu í gærkveldi. Mun því verða mjög lítið um mjólk í bænum í dag. Tveir Keflvík- ingar ráðasf á bílsljóra TVEIR Keflvíkingar rjeðust á bifreiðarstjóra í gærkvöldi fyrir utan kaffistofuna Laug- arskáli við Sundlaugarveg. Tildrög málsins eru þau, að bifreiðarstjórinn Jens Arnason, til heimilis á Spítalastíg 6, stóð fyrir utan bifreið sína, er þar bar að tvo menn töluvert drukkna. Rjeðust þeir á Jens og greiddu honum mörg högg í andlitið og hlaut hann af því meiðsli, en gat komist upp í bifreið sína og ekið á brott. — Lögreglan kom að vörmu spori og tók sökudólg- ana fasta. — Jens er maður nokkuð við aldur, og er þétta önnur árásin, er hann verður fyrir á þessum vetri. I fyrra skiftið voru það amerískir hermenn. Laugardagur 29. janúar 1944 Djúpavík var útsvarsskyld í Reykjavík HÆSTIRJBTTUR kvað í gær upp dóm í málinu Djúpavík h.f. gegn borgarstjóra Reykja- víkur f.h. bæjarsjóðs. Eru máiavextir þeir, að nið- urjöfnunarnefncL Reykjavíkur gerði h.f. Djúpavík að greiða 50 þús. kr. útsvar á árinu 1941. Djúpavík h.f. neitaði að greiða útsvarið, taldi sjer ekki skylt að grei^a það, þar sem heim- ilsfang fjelagsins væri norður á StrÖndum. Var þá krafist lög taks á útsvarinu og úrskurð- aði fógeti, að það skyldi fram fara. Þeim úrskurði áfrýjaði Djúpavík h.f. Hæstirjettur staðfesti úr- skurð fógeta, með eftirfarandi forsendum: „Djúpavík h.f. hefir rekið síldarverksm. á Djúpavík frá því á árinu 1935, og er verk- smiðjustjöri fjelagsins búsett- ur þar. Tveir stjórnarmenn fjelags þessa eru búsettir í Reykjavík, og er annar þeirra aðalfyrirsvarsmaður þess og jafnframt framkvæmdarstjóri h.f. Alliance, en þriðji stjórn- armaðurinn er búsettur í Hafn arfirði. Greint hlutafjelag hefir á leigu 2 herbergl í húseign h.f, Alliance við Tryggvagötu í Reykjavík og notar þau her- bergi einkum 5—6 mánuði á ári, -en að öðru leyti hefir h.f. Alliance afnot þeirra. Viðskifta mannabækur bv. Ránar, sem er togari h.f. Djúþavíkur, eru að öllu skráðar í Reykjavik, enda hefir togarinn nánast samband við Reykjavík utan síldartíðar. Aðrar bækur fje- lagsins eru skráðar á Djúpavík á sumrin, en fluttar til Reykja- víkur á haustin, og þar er geng ið frá heildarreikningum fje- lagsins, Sölu á afurðum fje- lagsins er stjórnað frá Reykja- vík, og þar er innheimt and- virði þeirra fyrir atbeina Lands bankans. Ljóst er af því, sem að fram- an er lýst, að yfirstjórn og fyr irsvar fjelagsins er í Reykja- vík svo og bókhald og sjóð- meðferð að miklu leyti. Verður því að telja heimasetur fjelags ins í Reykjavlk, þó að það sje ekki skrásett þar. Ber þess- vegna að staðfesta fógetaúr- skurðinn að niðurstöðu til. Eftir þessum úrslitum þykir rjett að áfrýjandi greiði máls- kostnað fyrir hæstarjetti, og ákveðst hann kr. 3000.00.” Fjallið verður fært í dag EF VEÐUR spillisi ekki, ætti að takast að opna leið- ina austur yfir fjall í dag, sagði vegamálastjóri blaðinu í gærkveldi. — Unnið hefir verið frá leiðarcndum og hef- ir tekist, að opna leiðina upp að Skíðaskála, og gera má ráð fyrir að takast megi að opna leiðina, að skálanum að austan í dag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.