Morgunblaðið - 02.02.1944, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 02.02.1944, Blaðsíða 12
12 Vígstöðvamar á lialiu. Staðir þeír, þar sem nu eru haroasur öaraagar, eru eKKí langt tra nsenum Velletrí, sem sjest hjer á kortinu, en hann stendur undir Aíbanihæðunum. Þá má glögt sjá á kortinu járnbraut- arlínurnar og veginn frá Kóm til Napoli, sem liggja suðvestan Albanihæðanna. Rússar sækja að landa- mærum Eistlands Kingisepp fallin Guðmundur Ágústs- son vann skjaldar- glímu Ármanns SKJALDAGLÍMA Ármanns var háð í gærkveldi. — Guð- mundur Ágústsson (Á) bar þar glæsilegan sigur úr býtum. Lagði hann alla keppinauta sína og hlaut þar með 12 vinn- inga. Næstur honum að vinn- ingatölu kom Guðmundur Guð- mundsson, (Umf. Trausti), hlaut hann 10 vinninga. Þriðji var Rögnvaldur Gunnlaugsson (KR) með 9 vininga. Þá komu Kristinn Sigurjónsson (KR) og Ólafur Sveinsson (KR) með 8 vinninga. 7 vininga hlutu Andrjes Guðnason (Á), Sigurð ur Hallbjörnsson (Á) og Sveinn Guðmundsson (Á). Þrenn verðlaun voru veitt fyrir fegurðarglímu. Hlaut Guðmundur Ágústsson þar 1. verðlaun, 2. verlaun hlaut Guðmundiri' Guðmundsson og 3. verðlaun Rögnvaldur Gunn- íaugsson. Þátttakendur í glímunni voru upphaflega 16, en tveir þeirra meiddust og einn, Kristmundur Sigurðsson (KR), hætti vegna lasleika. Foseti í. S. í.. Ben. G. Waage, afhenti verðlaunin og fiutti glímumönnunum þakkir. Yfir Ivær milj. manna í fiugher Bandaríkjanna FORT WORTH. — Hingað til heíir æfingastjórn flughers Bandaríkjanna ekkert látið upp opinberlega um, hve margir sjeu í flugher Bandaríkjanna. I þessari tilkynningu, sem er sú fyrsta, er borist hefir frá hermálaráðuneytinu, síðan 7. desember 1941, segir að í flug- her Bandaríkjanna sjeu nú yf- ir 2.300.00 manns, (liðsforingj- ar og óbreyttir). I skýrslunni segir, að þar af sjeu 100:799 stjórnendur fíugvjela, 20.086 sprengjustjór- ar, 18.805 stýrimenn, 107.218 vjelbyssuskyttur og 55.891 vjelamenn, er starfi við eftirlit og viðhald fiugvjelanna. Þessi fjöldi hefir útskrifast frá ein- hverjum hinna fjölmörgu flug- og vjelfræðiskólum á tíma- bilinu 1. janúar 1939 til 26. nóvember 1943. Ennfremur segir í skyrslunni, að á 11 mánuðum, eða frá 1. janúar 1943 til 30. nóvember 1943, hafi aðeins eitt banaslys komið fyrir á hverjum 250.600 f iugklukkustundum flugskóla- nemanda. Talan* sem gefin er upp um vielfræðinga, nær aðeins vfir þá, sem hafa lokið undirstöðu- i:enslu, en nær ekki yfir alla vjelfræðinga flughersins og gefur heldur ekki góða nug- mynd um hina auknu vjelfræði kenslu. Giraud hershöfðingi er nýkom- ir.n úr eftirlitsferð frá frönsku hersveitunum, sem berjast á Italíu. Hrósar hann þessum her sveitum mjög, og segir, að „þær sjeu skipaðar hetjum, frá æðstu mönnum íil hinna lægstu a5 tign. — Reuter. London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. I dagskipan, sem Stalin gaf út í dag, var sagt, að rússnesk- ar hersveitir, sem komust yfir fljótið Luga, hafi með áhlaupi tekið bæinn Kingisepp, sem barist hefir verið um af mikilli hörku undanfarna daga, en bærinn er vestan Lugafljóts- ins. Sækja nú rússnesku her- irnir vestur frá borg þessari, og eiga vart meira en tæpa 14 km. eftir til landamæra Eist- lands, þar sem þeir eru komn- ir næst þeim. Um alt svæðið fyrir sunnan Leningrad standa harðir bar- dagar, og segjast Rússar hafa unnið allvíða á, en Þjóðverjar viðurkenna að þeir hafi sums- staðar orðið að láta nokkuð undan síga. Segja Rússar þarna barist í skógum, þar sem Þjóð- verjar hafi sumsstaðar reist sjer rammger virki, sjerstak- lega fyrir vestan Novgorod, og hafi ýms virkja þessara, og innig nokkur þorp, verið teKin í dag. Fyrir vestan Novo Sokolniki segjast Rússar hafa haldið á- fram að sækja á, og hafi þar tekist að ná nokkrum vel víg- girtum þorpum. Þjóðverjar greina, auk norð- urvígstöðvanna frá miklum bardögum á ýmsum svæðum sunnar, og segja að Rússar geri áhlaup bæði við Nikopol ig fyrir suðvestan Dnieprope- trowsk. Kveðast Þjóðverjar hafa getað hrundið áhlaupum Rússa á þessum slóðum og eyðilagt fyrir þeim 95 skrið- |dreka þar í gær. Við Pogrebitze, þar sem Þjóðverjar kveða gagnáhlaup sín hafa borið mikinn ^rangur, og segjast þeir nú vera að hreinsa til á landssvæði, sem þeir hafi náð, og getað tekið þar nokkur hundruð Rússa til fanga. Þá segja Þjóðverjar frá á- rásum Rússa fyrir norðan Ne- vel, og segjast eiga'' þar í all- erfiðri varnarbaráttu. Rússar tilkynna í dag, að þeir hafi grandað 74 þýskum skrið- drekum í gær og skotið niður 19 þýskar flugvjelar. 9 stúdentar Ijúka em- bættisprófi EMBÆTTISPRÓF við Há- skóla íslands fóru fram í jan- úarmánuði s. 1. og luku 9 stúd- entar prófi. í guðfræði: Sigmar Torfason, 2. eink. betri, 120 stig. Yngvi Þórir Árnason, l.»eink., 127 stig. í læknisfræði: Elías Eyvinds- son, 1. eink., 157 stig. í lögfræði: Ásberg Sigurðs- son, 1. eink., 197% stig, Guðni Guðnason 1. eink., 180 stig, Hallgrímur Dalberg, 1. eink., 201 stig, Sigurður Hafstað 1. eink., 1791-j og Sigurhjörtur Pjetursson 2. eink. betri, 176 stig. Kandidatsprófi í viðskifta- fræðum lauk Önundur Ásgeirs- son, 1. eink. 283% stig. Afengissalan tvöfaldaðist eftir ályktun bæjarstjórnar SVO SEM kunnugt er sam- þykti bæjarstjórn Reykjavík- ur s. 1. fimtudag (með 8:2 atkv.),- þá áskorun til ríkis- stjórnarinnar, að loka nú þeg- ar allri áfengissölu í Reykja- vík. Þessi samþykt hefir haft þær verkanir, að salan hjá Áfengis- verslun ríkisins hefir tvöfald- ast. Eru gárungarnir nú farnir að segja, að einhver maður, velviljaður fjármálaráðherra, hafi komið þessari áskorun á framfæri í bæjarstjórn til þess að auka -tekjur ríkissjóðsins. Slunginn kaupsýslumaður hef- ir margskonar aðferðir til þess að koma út vöru sinni. Skipum sökl á Adriahafi London í gærkveldi. Floti og flugher banda- manna gerir stöðugar árásir á skip Þ.jóðverja á Adriahafi, og hefii' mörgum þeirra ver- ið sökt. Sjðast í gær tókst að sökkva olíuskipi af meðal- stærð, en einnig var stór skonnorta eyðilögð. Reuter. Miðvikudag'ur 2. febrúar 1944 Reimleikar í líkbíl BLAÐIÐ hefir frjett um ein- kennilegan atburð, er gerðist hjer í bænum fyrir stuttu síð- an. Maður nokkur ætlaði að kvöldlagi með bifreið sína á bílaverkstæði. Maður þessi hef ir greiðan aðgang að verkstæði þessu. Er maðurinn kom að verkstæðinu, fór hann fyrst inn um dyr, sem eingöngu eru ætl- aðar mönnum, til að opna dyrn ar, er bifreiðum er ekið um. Tekur hann Ijós, er hann ætl- aði að nota til að lýsa sjer leið um verkstæðið, að rofa fyrir ljósin. Þegar maðurinn kemur inn á verkstæðið, verður hann þess var, að vjel einhverrar bifreiðarinnar er í gangi. Hjelt maðurinn í fyrstu að þetta myndi stafa af athugunarleysi þeirra, er þama gengu síðast um. Þar sem hann verður ekki var við að nokkur lifandi sála er þar inni, lætur hann ljósið falla á bifreið þá, er var í gangi, en um leið og ljósið fellur á bifreiðina, sem var líkbíll, deyr ljós það, er maðurinn hjeft á x hendinni og um leið er eins og alt ætli um koll að keyra, því líkur var gauragangurinn. Mað urinn gat þó komist að slökkv- aranum, en um leið og hann. kveikti, datt alt aftur í dúna logn. Aðeins iveir pósi- pokar úr Laxioss hafa fundist TVEIR póstpokar komu upp úr lest m. s. Laxfoss í fyrradag. — Var verið að setja tunnur í lest skipsins, er pokarnir flptu upp. Pokarnir voru tveir, og voru í öðrum þeirra tveir bögglar, en í hinum nokkur sendibrjef, auk þriggja ábyrgð- arbrjefa. Ekki mun verðmæti póstsins vera mikið. Pósturinn var frá Akureyri og Sauðárkróki. Ekki hefír enn tekist að hafa upp á aðalpóstinum, en vonast er til að hann muni koma i leitr- irnar, ef takast skyldi að rjetta skipið. M i k i ð mannljón í Berlín Sænska blaðið „Uppsala Tidningen" birtir fregn frá Bern, þess efnis, að um 6000 manns hafi farist í Berlín í á- rásinni s. 1. iaugardagskvöld. Einnig hermdi þessi fregn, að 3000 manns hefðu farist í Frankfurt í árás amerískra flugvjela á þá borg og 50.000 manns orðið húsnæðislaus þar. Reuterfregn í gærkveldi seg- ir, að mikið tjón hafi í síðustu árásum oi'ðið í eftirfarandi hlutum Berlínar: Schonburg, Charlottenburg og Neukölln. Einn ferðamaður segir að óg- urlegir eldar hafi komið upp í Neukölln og hafi þeir breiðst út þvert yfir borgina, alt til Lichtenberg og Frederichs- haun. Einnig urðu stórbrunar í Moabit. —

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.