Morgunblaðið - 04.02.1944, Page 12

Morgunblaðið - 04.02.1944, Page 12
12 Minningar' athöfnin í Dómkirkj' unni í gær MINNINGARATHÖFN um skipshöfnina á b. v. „Max Pemberton“ fór fram í Dóm- kirkjunni í gær. Hófst athöfnin með því, að Páll Isólfsson Ijek á orgelið sorgarmars eftir Hartmann. næst las sjera Bjarni Jónsson dómkirkjuprestur, kafla úr ritningunni, fyrir altarinu. Þá söng dómkirkjukórinn salminn A hendur fel þú honum. Síðan flutti Bjarni Jónsson miningarræðuna. Var ræða hans alt í senn þróttmikil, snild arlega samin _og hjartnæm. I lok ræðunnar las hann upp nöfn þeirra sem fórust með skip inu, en kirkjusöfnuðurinn reis úr sætum, til lotningar við hina látnu. Að lokinni miningarræðunni Ijek Þórarinn Guðmundsson einleik á fiðlu, Litanei, eftir Schubert. Þá söng Kristján Kristjánsson einsöng, sálminn Lýs milda Ijós. Þá söng dómkirkjukórinn sálminn Mitt höfuð. guð jeg hneigi, en að því loknu tónaði sjera Bjarni fyrir altari og lýsti blessun yfir söfnuðinum. Að lokum var sunginn Vor guð er borg á bjargi traust. Kirkjan var þjettskipuð. Nánustu aðstandendur hinna látnu sátu niðri í kirkjunni. Viðstaddir við athöfnina voru m. a. ríkisstjóri, forseti Sam- einaðs Alþingis og forsetar beggja deilda, borgarstjóri, for- seti bæjarstjórnar, forsætisráð- , herra, fjármálaráðherra og at- vinnumálaráðherra, biskup, sendiherrar Bandaríkjanna, Breta, Frakka, Norðmanna, Svía, Dana; forseti Fiskifjelags- ins og allir fulltrúar á Fiski- þínginu, formenn og stjórnir hinna ýmsu stjettarfjelaga sjó- manna, skólastjóri Stýrimanna- skólans, kennarar og nemend- ur, stjórn og fjelagar Fjelags ísl. botnvörpuskipaeigenda o. f.l Fulltrúar sjettafjelaga sjó- manna stóðu heiðursvörð und- ir fánum fjelaganna í kórdyr- um, en fremst til beggja hliða var ísl. fáninn. Nemendur Stýrimannaskólans skipuðu sjer í raðir í ganginum, beggja meginn við bekkina. Minningarathöfnin var öll hin virðulegasta og lýsti djúpri hluttekningu og sorg viðstaddra yfir hinum mikla missi, ekki aðeins nánustu ástvina heldur einnig þjóðarinnar allrar. StlovðmtliUtttö Rjetl áður en Hótel íslend hrundi til grunna Þessi mynd af aðalbyggingu Hótel íslands var tekin skömmu áður en byggingin hrundi. Myndin er tekin frá Aðalstræíi. (Ljósm. Óskar Gíslason). Rússar segjasf innikróa IH þýsk herfylki Þjóhverjar körfa frá Rovno og Lutzk Iláðist á London í gærkveldi. London í gærkveldi. Hættumerki voru gefin hjer í kvöld og allsnörp skothríð heyrðist, einkum frá svæðinu við Thamesá. Ekki stóð árásin lengi, og eru ekki enn fyrir hendi fregnir um tjón. ; — Reuter. London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. Dagskipan, gefin út af Stalin í dag, skýrir frá því, að fyrir nokkru síðan hafi her Vatutins hafið sókn til suðvesturs frá Byelaya Tserkov, en her Konievs til norðvesturs frá Kirovograd, og hafi nú herir þessir náð saman, með þeim af- leiðingum, að alt það þýska lið, sem. sje á svæðinu milli Dnieperfljóts og borgarinnar Shpola, þar sem herirnir náðu saman, sje nú innikróað. Segj- ast Rússar hafa tekið fjölda bæja og þorpa í sókn þessari, þar á meðal járnbrautarbæinn Smyela, en Þjóðverjar til- kynntu fyrir nokkuð löngu, að þeir hefðu hörfað þaðan. Tíu herfylki. Rússar segja að 10 þýsk her- fylki sjeu innikróuð, 9 fót- gönguliðsherfylki og eitt skrið- drekafylki. .Ætti þetta að vera um 100.000 manns. Svæðið, sem liðið er sagt á, er um 80 km. á breidd, næstum hringmynd- að. Þjóðverjar hafa ekki lengi minst á bardaga á þessum slóð- um, fyrr en í dag, að þeir greina frá nokkrum orustum um þess- ar slóðir. Alitið er, að herir Rússa, er saman náðu, hafi um 24 km. breitt svæði á valdi sínu, vestast, þar sem þeir sameinuðust. Rovno yfirgefin. Þjóðverjar tilkynntu í dag, að þeir hefðu yfirgefið bæinn Rovno í Póllandi og einnig bæ- inn Lutzk, sem er um 64 km. vestar, eftir harða bardaga. Ekkert hafa Rússar sagt um sókn af þeirra hálfu á þessum slóðum um alllangan tíma. Með töku Lutzk eru Rússar að- eins tæpa 100 km. frá Curzon- línunni svonefndu, sem rætt hefir verið mikið um að und- anförnu. Sóknin til Narva. Rússar halda einnig áfram sókn sinni til bæjarins Narva við landamæri Eistlands, þar sem Karl 12. Svíakonungur vann forðum frægasta sigur sinn á Rússum. Herma sumar fregnir, að Rússar sjeu komnir í úthverfi borgar þessarar, og ennfremur nálgast framsveitir þeirra nú peipuvatníð, sem er fyrir sunnan Narva. — Þá sækja Rússar fram milli Nov- gorod og Leningrad og hörfa Þjóðverjar þar jafnt og þjett undan. Molofoff æfSar efsa Föstudag;ur 4. febrúar 1944 Magnús Sigurðsson bankasfjóri fcominn heim Viðskiffasamning- arnir að hefjast MAGNÚS SIGURÐSSON bankastjóri, sem var fulltrúi Islands á ráðstefnu Hjálpar- og endurreisnarstofnunar hinna sameinuðu þjóða, sem haldin var í Atlantic City, er kominn heim, ásamt Sveinbirni Finns- syni, sem var aðstoðarmaður Magnúsar á ráðstefnunni. Þeir komu heim í gær, flug- leiðis frá Bretlandi. Með sömu ferð komu fulltrúar stjórnar Breta og Bandaríkjanna, sem eiga að semja um kaup ís- lenskra afurða. Fulltrúar Breta eru þeir Mr. Fs. Anderson for- stjóri og G. C. Wilson; og full- trúar Bandaríkjanna þeir Rh. Fiedler og Henry H. Prentin. Munu þeir nú strax hefja samninga við fulltrúa Islands (samninganefnd utanríkisvið- skipta) um kaup ísleriskra af- urða. Morgunblaðið átti í gær stutt viðtaT við Magnús Sigurðsson bankastjóra og spurði hann tíð- inda af ferðinni, en hann hefir haft langa útivist. Magnús kvaðst ekkert geta sagt að svo stöddu, en ferðin hefði verið löng og oft all-erfið. Þjóðleikhúsið rpi SAMKVÆMT upplýsíngum frá breska sendiherrapum hef- ir, vegna vetrarhörku, gengið seinna en ætlað var, að byggja skúra þá, sem ætlaðir voru fyr- ir vörur, sem geymdar voru í Þjóðleikhúslnu, en fyrir góða samvinnu amerísku herstjórn- arinnar hefir breski flotafor- inginn nú engu að síður getað byrjað á að rýma Þjóðleikhús- ið, og er ráð fyrir því gert, að ef engin óvænt óhöpp koma fyrir, verði rýmingu þess lokið og það afhent til baka í- lok febrúarmánaðar. (Samkv. til- kynningu frá utanríkismála- ráðuneytinu). i London. — í ræðu sinni á fundi hins æðsta ráðs Sovjet- ríkjanna, sagði Molotoff meðal annars: ,,Alt kapp verður nú að. leggja á það að frelsa Eist- land, Lettland og Lithaugaland, Moldaviu og finsku Kareliu. Óvinir Sovjetríkjanna þurfá ekki að efast um það, að árang- ur slíkra aðgerða verður til þess að auka frekar veldi ríkis vors“. Síðan vjek Molotoff að utan- ríkismálum og mælti á þessa leið: ,,Sá tími er nú löngu. lið- inn, er þjóðir reyndu að láta sem Sovjetríkin væru ekki til. Nú eru erlend ríki áköf í það, að koma á vinsamlegu sam- bandi við ríki vort“. Því næst sagði Molotoff, að sambandið við Sovjetrússland væri til hinnar mestu bless- unar fyrir allar frelsiselskandi þjóðir, blessunar, sem erfitt væri að gera nógu mikið úr. . .“ Tveir ungiings- piltar dæmdir SAKADÓMARI kvað í fyrra dag upp dóm yfir tveimur ung lingum, sem brutust fyrir nokkru inn í húsið nr. 2 við Lækjargötu. — Piltarnir voru handsamaðir áður en þeir náðu að hafa nokkuð' á burt með sjer. Annar pilturinn hlaut 6 mán- aða fangelsi, en hann hafði nokkrum • dögum áður verið dæmdur í 12 mánaða fangelsi skilorðsbundið fyrir ýmsa þjófnaði. — Hinn fjekk 30 daga fangelsi skilorðsbundið. Leki kemur að b.v. Helgafelli I FYRRAKVÖLD koiu botnvörpunguririn IlelgafeÍL til Reykjavílíur, nokkuð bisk- l)akl)orðssíðu skipsins, skipið var í veiðiför. Morgunblaðið hefir snúið s.jer til skipstjórans, Þórðar I IjörleifSsonar, og sagist hon- um svo frá: „Skipið hafði verið til at- hugunar í Slippnlim, áður en }>að fór í þessa ferð og ekki fundist neitt athugavert yið ]>að. í*að var annan hvorli daginn 18. eða 19 jan. — Þeg' ar athugun þcssari var lokið var skipinu lagt utan á annað’ skip frá bryggju, en utan á IlelgafelJi lágu 9 skip. Meðan skipið lá þarna gerði vonsktt veður og slógust skipin sam- an. J Nú var farið af stað og ekki ! ert sjerstakt bar til tí'ðinda, uns véiðiförinni var að verða lokið og búið að brenria nær öllu úi- kolaboxunum. Urðum við ]>á varir við að 5 bönd í bakborðssíðu skipsins, vorui brestin og að dáltill leki var kominn að skipinu, leki um jnagla. Er hjer var kornið var skipið statt undan Snæfells-' jiesi, ákvað .jeg ]>á að halda, skyldi til Reykjavíkur. Si Igd- um við með hægri ferð, svo að ekki skyldu fleiri naglar losna og vorum við nærri 10 .tíma á lc3ðmni“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.