Morgunblaðið - 23.02.1944, Síða 1
LOFTÁRÁS Á STOkkHÓLM í GÆRKVELDI
Búist við
nýrri
sókn
Þjóðverja
hjá Anzio
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
Eftir David Browm.
ÞA« ER BÚIST við að Al-
bert Kessélring marskálkur
numi brátt gera þriðju tilraun
1 il að fleygja bandamönnum
í .sjóinii af landgöngusvæði
])eirva við Anzio. Onnur til—
raun hans hefir þegar mishepn
ast og hefir verið lítið um
bardaga á landgöngusvæðinu
í tvo sólahringa. Aðstoðaher-
foringi hans, August von
Maekensen hefir enn á að
ski])a ■! herfylkjum af 9 í til-
töjulega vel baráttuhæfum og
er búist. við að hann sje nii að
endiu'ski])uleggja lið sitt. Það
er talið, að þriðja áhlaup
Þjóðverja kunni að verða enn-
þá hatramara en tvö hin fyrri.
Mistur hamlar hern-
aðaraðgerðum.
Það er ilt að fylgjast með
liðsflutningi Þjóðverja á víg-
stoðvunum vegna misturs og
slæmt skygni hefir hindrað
fluglið bandamanna í að láta
til sín taka að nokkru ráði. í
staðbundunum bardögum hjá
('arroceto í gærdag gekk á
ýmsu, en engin venjuleg breyt
ing var á vígstöðunni.
Barist um livert her-
bergi í Cassino.
I Oassino er enn alt við það
saina. Ilersveitir Clarks hers-
höfðingja verða að berjast um
hvert herbergi í hverri éinustu
byggingu, sem þeir taka í bor-
inni. Þjóðverjutn hefir til
þessa tekist að halda stöðv-
um sínnm í fjöllunum handan
Liri-árinnar.
Snjókoma á vígstöðv-
um 8. hersins.
Neðarlega við Gargiliano-
fljót hafa. breskar liersveitir
átt í höggi við Þjóðverja, en á
vígst.öðvum fimta hersins er
alt hulið mistri og hefir því
lítið kveðið að bardögum.
A vígstöðvum 8. hersins á
austurströndinni er enn alt
þakið snjó. Tveinmr áhlaup-
um Þjóðverja á stöðvar Ind-
verja hjá Orsogna var hrund-
ið, l’ólverjar, sem með S. hern-
um berjast hafa drepið nokkra
]>ýska liermenn í framvai'ða-
skárum.
Stríðsyfiiii! (hurchiils
WINSTON CHURCHILL forsætisráðherra flutti ræðu
í neðri málstofu breska þingsins í gærmorgun og ræddi
um ófriðinn og ófriðarhorfur. Stóð ræða hans í 1
klukkustund og 15 mínútur. Kom Churchill víða við
í ræðu sinni. Er skýrt frá því helsta, sem hann sagði
á bls.2. — Myndin hjer að ofan er síðasta ljósmynd-
in. sem hingað hefir borist. Tekin af forsætisráðherr-
anum er hann var að ná sjer eftir veikindin í vetur.
Ókunnugt um þjóð-
erni flugvjelanna
London í gærkvöldi. — Einkaskvyti tH Merg-
unblaðsins frá Reuter.
NOKKRAR ERLENDAR FLUGVJELAR birtost yfir
Stokkhólmi í kvöld og vörpuðu niður sprengjum á borg-
ina. Ekki er kunnugt enn að manntjón hafi orðið, en
nokkrar skemmdir urðu á mannvirkjum, cinkum veit-
ingastað einum.
Ennfremur var varpað niður sprengjum á Haiamarby,
sem er skammt frá Uppsala.
Þjóðverjar flytja her-
lið frá TSoregi
ÓSTAÐFESTAR fregnir, en sem eru frá heimildum í Nöregi sem
til þessa hafa reynst ábyggilegar, herma, að Þjóðverjar hafi flutt
nærri heilt herfylki frá Noregi nýlega.
í sömu fregn er sagt frá því, ■ Þá segir samkvæmt sömu
að hermenn þessir hafi verið heimildum, að járnbrautarlest-
fluttir til Frakklands, Hollands, ir fullar af hermönnum frá
Belgíu og Danmerkur, þar sem Þrándheimi og bæjum í Norð-
innrásarhætta er talin einna ur Noregi hafi komið til Oslo
mest.
i undanfavna daga. — Reuter.
Hættumerki um að loftárás
væri yfirvofandi voru gefin í
Stokkhólmi og skotið var á
flugvjelarnar úr loftvarnabyss
um. Sagt er, að ein flugvjelin
hafi fallið logandi til jarðar.
Ekki hafa enn borist nákvæm-
ar fregnir af árásinni ennþá.
Loftvarnanefnd Stokkhólms-
borgar hefir aðeins sagt, að
nokki-ar flugvjelar, sem ekki
sje vitað nein deili á, hafi flog-
ð inn yfir sjálfa borgina og
varpað niður tveimur sprengj-
um. Þremur sprengjum var
varpað niður á Hammarby, en
ekki er vitað um tjón þar.
Þetta er í fyrsta sinni, sem
sprengjum hefir verið varpað
á Stokkhólm, en það hefír kom
ið fyrir, að sprengjum hefír ver
ið varpað á sænskt land og
sænskar borgir áður.
Rússar gera loftárás á Abo
Stokkhólmi í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðsins.
FREGNIR FRÁ HELSINGFORS í kvöld herma, að
rússneskar flugvjelar hafi gert loftárás á Ábo í Finnlandi
og valdið þar miklu tjóni.
Loftárás þessi var gerð skömmu áður en loftárásin á
Stokkhólm og Hammarby.
Ábo er hjer um bil beint vestur af Stokkhólmi, hand-
an Evstrasalts og eru rúmlega 166 mílur á milli borg-
anna í beinni fluglínu.
Stúlkan komin fram Kona Gandhis látin
STULKAN, er ekki hafði
komið heim til sín í einn sól-
arhring, Hulda F. Söebeck, til
heimilis í sumarbústað við
Kópavogshæli, kom heim til
sín í fyrrakvöld um kl. 7.
Hafði stúlkan verið hjá vin-
konu sinni.'Lögreglunni var til
kynt hvarf hennar, en ekki að
hún væri komin heim aftur,
RVSSAB TAKA KRIVOI-ROG
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
STALIN marskálkur tilkynti
í sjerstakri dagskipan í dag, að
Rússar hefðu tekið borgina
Krivoi Rog' í Dnjeperbugðunni.
Var þetta síðasta stórborgin í
höndum Þjóðverja á þessum
slóðum. Bardagar voru afar
harðir um borgina, enda höfðu
Þjóðverjar víggírt hana vel og
var barist um hvert hús í borg-
inni.
Skömmu áður en Stalin birti
dagskipanina um töku borgar-
innar, voru Þjóðverjar búnir að
tilkynna, að þeir hefðu hörfað
úr borginni. í Moskva var 1 dag
mikið um fögnuð í tilefni af
þessum sigri og sigurskothríð-
in með mesta móti.
Frá bardögum á öðrum víg-
stöðvum segir í herstjórnartil-
kvnningu Rússa í kvöld, að fyr
ir sunnan og suðvestan Luga
hafi rússneski herinn haldið á-
‘fram sókn sinni og náð á sitt
vald nokkrum borgum og bæj-
um, þar á meðal stað einum,
16 km. fyrir norðaustan Strugi
Krasnye. Fyrir sunnan og suð-
vestan Ilmenvatn var sókninni
haldið áfram og voru herteknir
rúmlega 200 staðir, þar á með-
al Mikhaylovskoye, sem er 16
km. fyrir austan Dno.
Fyrir vestan og suðvestan
Kholm segjast Rússar hafa náð
á sitt vald rúmlega 100 þorp-
um.
Kona Gandhis.
New Delhi í gær: — Kona
Gandhis ljest í dag í Poona,
þar sem hún hefir verið í haldi
með manni sínum Mahatma
Gandhi. Hún var 74 ára. Bana-
mein hennar var hjartabilun.
Kona Gandhis hefir verið
lasin síðan um áramót.
— Reuter.