Morgunblaðið - 07.03.1944, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 07.03.1944, Qupperneq 5
I^riðjudagur 7. mars 1944 MORGUNBLAÐIÐ MINIMIIMG SKIPVERJANNA ER FÓRUST AF V.B. ÓÐNI OG ÆGI Minningarathöfn í Útskálakirkju í dag M.b. Óðinn. Faðir minn, Guðmundur Þórð arson, Gerðum, var alla sípa starfsæfi útgerðarmaður, og á tímabili var hann formaður á róðrarskipi, eins og þá tíðkaðist að nota til fiskveiða við Faxa- flóa. Hann eignaðist 'fjölda skipa áf ýmsum stærðum, róðr- arbáta, frá tveggjamannaförum upp í teinæringa, vjelbáta af ýmsum stærðum, og hlut í fyrsta togaranum, sem var gerður út í eign Islandinga. All ar þessar fleytur hafa farist eða glatast á einhvern hátt. En slík gæfa fylgdi honum og skipum hans, að aldrei fórst maður með þeim. Þannig hafði einnig verið um útgerð okkar bræðra og fjelaga okkar, þar til 12. febrúar síðastliðinn. Það var því þungbært fyrir móður mína og okkur systkinin, er vjelbáturinn Óðinn G.K. 22 hvarf með allri áhöfn, 5 mönn- um, og sama dag hvolfdi v.b. Ægir G.K. 8, og einn maður fórst, en hinir 4 björguðust á næstum yfirnáttúrlegan hátt. Þessir menn fórust með v. b. Óðinn: Geirmundur Þorbergsson, skipstjóri, Bræðraborg, Garði, 33 ára að aldri. Foreldrar hans eru Þorbergur Guðmundsson, skipstjóri, og kona hans Ingi- björg Guðmundsdóttir, Bræðra borg, Garði. Hann var giftur eftirlifandi konu sinni Valgerði Ingimundardóttir frá Garðstöð- um, Garði, og átti með henni 3 dætur, sem allar eru á lífi. Þorsteinn Pálsson, vjelstjóri, Sandgerði, 34 ára að aldri. Læt- ur eftir sig Guðrúnu Benedikts- dóttur og 4 börn. Foreldrar hans eru Páll Sigurðsson og kona hans Margrjet Grímsdótt- ir, Norðfirði. Þórður Óskarsson, Gerðum, 19 ára, ógiftur. Foreldrar hans eru Margrjet Bjarnadóttir, Gerðum, og Óskar Þórðarson. Tómas Ámason, Flateyjardal, Flatey, 29 ára að aldri, ógiftur. Foreldrar hans eru Árni Tóm- asson, Knararbergi, Flatey, og kona hans Jóhanna Jónsdóttir. Sigurður Jónasson, Súðavík, 21 árs að aldri, ógiftur. Foreldr- ar hans eru Jónas Sigurðsson, og kona hans Karitas Kristjáns- dóttir, Súðavík. Af v. b. Ægir G. K. 8 fórst: Sigurður Björnsson, Geir- landi, Miðnesi, 26 ára að aldri. Var giftur eftirlifandi konu sinni, Rósu Magnúsdóttir og áttu þau 3 börn, sem öll eru á lífi. Foreldrar hans eru Björn Tómas Árnason. Sigurðsspn, skipstjóri á Siglu- firði og kona hans, Eiríksína Ásgrímsdóttir. Sex vaskir menn á besta aldri hafa farist. Sex mæður og sex feður hafa mist syni sína. Þrjár konur hafa mist eiginmann sinn, og 10 börn á unga aldri eru föðurlaus. Fiskveiðamar eru langsam- lega þýðingarmesti atvinnuveg- ur þjóðarinnar, og má segja að eítir því hvernig þær ganga, fari um hag allrar þjóðarinnar á hverjum tíma. Stóran meiri- hluta af því, er við þurfum að nota til þess að lifa góðu menn- ingarlífi, verðum við að flytja inn frá öðrum þjóðum og mest- an hluta þess, er við flytjum inn, kaupum við fyrir andvirði þess, er fiskveiðarnar gefa okk- ur. Það er naumast hægt að hugsa sjer hvílík neyðarkjör íslenska þjóðin yrði að búa við, ef ekki væru stundaðar fisk- veiðar. Þegar þess er gætt að aðeins 6000 menn stunda fisk- veiðar, sjest hversu mjög ís- lenska þjóðin er í þakkarskuld við þessa tiltölulega fáu menn, sem vinna þessi þýðingarmestu, og um leið erfiðustu og hættu- legustu, störf fyrir hana. Jeg held að ekkert sje eins þroskandi eins . og það að fara til sjós á unga aldri. Menn kynnast þá strax lífsbaráttunni, eins og hún er hörðust, þeir fá margvísleg erfið viðfangsefni að leysa og verða að leysa þau sjálfir. Þeir læra að ger.t kröf- ur til sjálfs sín fyrst og fremst, og vaxa að kröftum og þori. manndóm og visku, við það að leysa hin margvíslegu viðfangs efni, sem sjómannslífið kallar fram. Jeg hefi lítið hugsað um tilveruna, en jeg gæti ímyndað mjer, að þessir menn verði, fyrr en aðrir, færir um að taka að sjer þýðingarmikil störf á öðru tilverustigi. Þessir menn, sem hjer eru kvaddir, skipuðu sjer, strax, þegar þeir fóru að starfa, í fylk- ingu þeirra, sem hjer hefir verið líst, þeir tóku til starfa þar sem þörfin var mest fyrir þjóðina, þar sem starfið var mest og erfiðast, og þar sem vosbúð og hættur voru mestar. Þórður Óskarsson. Fyrir þetta starf fórnuðu þeir kröftum sínum og starfsþoli, og síðan lífinu sjálfu. Fyrir þetta er öll þjóðin í þakkarskuld við þá. Jeg færi ykkur þakkir móð- ur minnar og systkina, og við kveðjum ykkur með virðingu, Jeg vil fyrir hönd móður minnar og systkina, votta eig- inkonum og börnum, foreldrum og systkinum, svo og öðrum að- standendum og vinum hinna látnu, okkar innilegustu samúð. Reykjavík, 5. marz 1944. Finnbogi Guðmundsson. Gcirmundur Þorbergsson skipstjóri. Þorsteinn Pálsson, vjelstjóri. Geirmundur Þorbergsson HANN var fæddur 9. 10. 1910 að Meðalfelli í Kjós. Hann var sonur Þorbergs Guðmundsson- ar skipstjóra, Bræðraborg, og konu hans Ingibjargar Guð- mundsdóttur, bæði ættuð úr Kjós. Um 15 ára að áldri fór Geir- mundur að vinna við sjómensku — var þá fyrst landmaður við bát í Sandgerði, hjá föður sín- um. Það mundi mörgum full- þroskuðum og vönum sjó- manni finnast erfitt að vinna þau störf, sem landmenn í Sandgerði urðu að leysa af hendi. Þá var aflanum ekið upp í handkerrum, uppþvott- arsjónum ausið með fötum, salt ið borið á bakinu úr salthúsinu og beitt bjóðin varð að bera langar leiðir að íshúsi og frá. Þá var ekki farið að nota bíla og einu ökutækin voru hand- kerrur og sporbrautarvágnar á óryggjunni. Aflinn varð oft mikill og varð. að salta hann allan og varð mikil vúnna við umsöltun og fleira ef hlje varð á róðrum. Jeg býst við að flest um 15 ára unglingum finnist þetta allerfitt nú. En þannig fjekk Guðmundur að kynnast lífsbaráttunni, eins og hún er hörðust, þegar á unga aldri. — Þannig var það einnig um Atla bróður hans og Þorstein fóst- urbróður, að þeir fóru á svip- uðum aldri til Sandgerðis, og Sigurður Jónasson. unnu við bátinn hjá Þorbergi. Það er ekki hægt að hugsa sjer betri skóla fyrir skipstjóraefni, enda urðu allir þessir menn dugandi skipstjórar. Þorbergur Guðmundsson var skipstjóri fyrír föður rninn fyrst með Trausta, síðan Viggó eina vertíð, og síðan Óðinn. — Þar sem Geirmundur var með honum á öllum þessum bátum, fyrst í landi og síðar á sjónum, má segja að hann hafi verið á útveg foreldra minna alla sína starfsæfi, eða allan tímann að undanteknu*einu ári, er hann var skipstjóri með vb Hákon Evjólfsson, Garði. Þegar Þorbergur hætti skip- stjórn á vb. Óðinn 1939 vegna þess. að hann tók við eigin bát, þótti það sjálísögð ráðstöfun að Geirmundur tæki við vb Óðinn eftir föður sinn, og hefir hann verið skipstjóri með hann síð- an og fórst með honum þ. 12. febrúar s.l. Geirmundur ljet sjer mjög ant um hag útgerðarinnar, hugs aði um bát og veiðarfæri, eins og hann ætti það sjálfur, t. d. vann hann sjálfur við vjel báts ins s.l. haust, til þess að fylgj- ast sem best með því, að hún yrði sett í sem best lag undir vertíðina, enda var báturinn í eins góðu lagi og hægt var unt útbúnað allan. Enda hafði Geir mundur lært af föður sínum Þorbergi, sem alla tíð var fyr- ii-mynd annara um útbúnað á bát og veiðarfærum og meðferð alla á útveginum. Var Geir- mundur föður sínum mjög lík- ur um það. Geirmundur helgaði alla krafta sína því viðfangsefni, er hann gerði að lífsstarfi sínu, sjó menskunni, og var fáskiftinn um önnur mál. Hann var hrein lyndur og einarður, einbeittur og ákveðinn, myndaði sjer sín- ar eigin skoðanum á málunum, en ljet ekki aðra hafa áhrif á sig. Hann kyntist snemma al- varlegum viðfangsefnum með erfiðu starfi og tók þeim með festu og þrautsegju, en hann hafði einnig góðan skilnin á því sem skoplegt var og skemtilegt og gat skemt sjer vel í vinahóp. Við söknum hans, samferða- mennirnir, en mest er hans sakr.að af ágætri eiginkonu hans, Valgerði Ingimundardótt- ur frá Garosstöðum, Garði, for eldrum hans og litlu dætrunum þremur. Jeg kveð þig með þökk fvrir störf þín og alla viðkynningu. Reykjavík 5. mars 1943. Finnbogi Guðniundsson. Sigurður Björnsson, skipv. af m.b. Ægi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.