Morgunblaðið - 10.03.1944, Síða 1
31. árgangur.
55. tbl. — Föstudagur 10. marz 1944
Isafoldarprentsmiðja h.f.
msassa a
ELISABETH prinsessa og ríkiserfingi Breta ver.ður 18 ára
21. apríl n.k. og verður þá fullveðja. Um þessar mundir er
mikið rætt meðal manna í Bretlandi um rjettindi hennar. og
nafnbætur í þessu sambandi. Falli faðir hennar frá, getur
hún tekið við ríkiserfðum án þess að hafa ríkisstjóra er hún
er orðin 18 ára. Þó fullveðja alduriim sje raunverulega 21
samkvæmt br.eskum lögum. — Nýlega bar þingflokkur Wales-
manna fram þá tillögu í þinginu, að Elisabeth yrði veitt
nafnbótin „prinsessa af Wales“, en áður en tillagan kom
til atkvæða lýsti George konungur því yfir, að hann hefði
ekki í hyggju að fá ríkiserfingjanum nýjar nafnbætur.. —.
Á myndinni hjer að ofan eru bresku konungsdætumar, Elisa-
beth. sitjandi, og systir hennar hennar Margaret Rose.
^ússar fá ekki ítölsk
herskip að svo
stöddu
— segir Ch urchill
Barist í úthverfum Tarnopol
Rússar sækia einniq
fram fyrir vestan
Krivoi-Rog
Finnar
hafa sent
ússwm
svar
London í gærkveldi.
FREGNIR frá Stokkhólmi
herma, að Finpar hafi nú s?nt
Rússum svar við friðartilboð-
inu, en ekkert er kunnugt um
það, hvernig svar þetta er.
Þá er sagt, að FinnarT hafi
áour verið búnir að semja ann-
að svar. og sent það til Stokk-
hólms, til þess að bera það und
ir Svía, en þeir hafi aftur kom
ist. að því hjá Rússum, að það
( væri ekki fullnægjandi í neinu
tilliti og ráð^agt Finnum að
semja annað svar, sem svo
finska þingið hafi samþykt og
sje nú komið af stað til Moskva.
Ekki hefir fengist staðfest-
ing á, að þetta hafi farið þann-
ig fram. — Reuter.
London í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunbl.
frá Reuter.
CHURCIiILL, forsætis-
ráðherra, sagði á þingi í
dag, að þótt komið hefði til
mála að auka flotastyrk
Rússa með einhverjum ráð-
um, þá hefði það aldrei far-
ið lengra en til íhugunar, að
Rússar fengju þriðja hluta
ítalska flotans. eins og
Roosevelt sagði íyrir nokkru
í viðtali við blaðarnenn, að
komið gæti til mála.
Churchill sagði, að best
væri að ítölsku herskipin
hjeldu áfram að gegna þeim
hernaðarstörfum, sem þau
hefðu nú að gegna og væru
hinar ítölsku áhafnir skip-
anna á þeim.
Ennfremur sagði íorsætis
ráðherrann, að yfirleitt væri
rjettast, að ákveða ekkert
Um öriög flota sigraðra ríkja
fvr en að styrjöldinni, —
bæði í Evrópu og Asíu. —
væri lokið, þar sem mikill
vandi væri að taka ákvarð-
anir um þessi mál.
AtvinHiileysi í Bret-
landi.
LONDON: — Breska blaðið
,,The Daily Telegraph“ segir
frá því, að samkvæmt opinber-
um skýrslum hafi þann 17. jan.
síðastliðinn verið 76.674 at-
vinnulausir menn í Bretlandi.
Er það 17.029 mönnum færra
en á sama tíma síðasta ár.
London í gærkvöldi. — Einkasktyti til Morg-
unblaðsins frá Reuter.
TVÆR dagskipanir hafa verið gefnar út í Moskva í
dag, um sóknir Rússa á tvennum svæðum Austurvíg-
stöðvanna, og loks segir í hinni venjulegu tilkynningu
herstjórnarinnar, sem út var gefin síðar, að barist sje nú
af ákafa í úthverfum borgarinnar Tarnopol, sem stendur
við þýðingarmiklu Odessa-Lwow járnbraut.
Fyrri dagsskipanin skýrði frá nýrri sókn Rússa í Dniep
erbugnum, þar sem rússneskir herir hefðu sótt drjúgum
frarn vestur frá Krivoi-Rog, en í hinni síðari er sagt frá
töku bæjarins Staro-Konstantinovo á Tarnopolsvæðinu.
Sönglög eftir Mozart
fundin.
LONDON: — Þýska frjetta-
stofan segir, að nýlega hafi
fundist í Vínarborg þrjú áður
ókunn sönglög eftir Mozart. —
Ekki er getið hvar þau fund-
ust, en tekið fram að nótna-
safnari einn hafi koxnist yfir
þau.
Brefar hafa fengið
ship að vesfan
London í gærkveldi.
KNOX flotamálaráðh. Banda-
ríkjanna ljet svo um mælt í
dag, að Bandaríkjamenn hafi
látið Breta hafa 1400 kaupskip
síðan þeir fóru að aðstoða þá í
því efni, en þeir hefðu fengið
mikla hjálp í staðinn. — T. d.
sagði Knox, að Bandaríkjamenn
hefðu lengi starfrækt heila
flotastöð á Bretlandseyjum og
ekki þurft að kosta eyri til.
— Reuter.
Fjórha dagárásin á
Berlín á sex dögum
John Amery til
Noregs.
LONDON: — Fregnir hafa
borist um það, að John Amery,
sonur Amery Indlandsmálaráð
herra, — en hann hefir lengi
taiað í þýska útvarpið, — sje
nú kominn til Noregs og eigi
að ferðast þar um og halda fyr
irlestra um Bretlánd og stríðið.
London í gærkveldi.
I DAG um miðjan dag var
fjórða árásin á einum sex dög-
um gerð á Beriín. Var skýjað
loft og vörpuðu flugvjelarnar
sprengjum sínum niður um
skýjaþykni. Sárfáar þýskar or-
ustuflugvjelar sáust. — Sjö
sprengjuflugvjelar og ein or-
ustuflugvjel týndust.
I tilkynningu ameríska flug-
hersins í Bretlandi segir á
þessa leið um árásina:
„Miklir flokkar flugvirkja
og Liberatorflugvjela; gerðu
enn eina árás á skotmörk í
Berlín í dag. Einn hópurinn
rjeðist á iðnstöð í Mið-Þýska-
landi“.
„Þetta var í fjórða skifti, sem
árás var gerð á Berlín á sex
dögum. Fjölmargar orustuflug
vjelar fylgdu sprengjuflugvjel
unum. Voru þær af ýmsum
gerðum og flugu þeim bæði
amerískir og breskir flugmenn,
ennfremur flugmenn annara
bandamanna. — Enginn flug-
mannanna hefir tilkynt neina
mótspyrnu af flugvjelum óvin-
anna“.
„Sprengjum var varpað gegn
um skýjaþykni, og miðað með
vísindalegum tækjum. Foringj-
ar fáeinna sprengjuflugvjel-
anna hafa tilkynt smáskærur
við óvinaflugvjelar. Enginn
flugmaður hefir tilkynt að hafa
skotið niður þýska flugvjel í
þessum leiðangri. Alls mistum
vjer sjö sprengjuflugvjelar og
eina orustuflugvjel“.
Flugmenn sögðu frjettaritara
vorum, er hann kom til flug-
stöðvar þeirra, að þykk ský
hafi verið alt upp í 22.000 feta
hæð. Loftvarnaskothríð var
ógurlega hörð. „Loftvarnakúl-
urnar sprungu svo þjett, að
maður hefði getað stokkið frá
einu reykskýinu til annars“,
sagði einn flugmannanna.
Hin venjulega herstjórn-
artilkynning segir í upphafi
frá því, að hersveitir Zuk-
ovs marskálks hafi brotist
inn í úthverfi Tamopol og
sje nú barist þar af mikilli
hörku. Einnig er sagt, að
Rússar hafi aftur tekið upp
sókn vestur og suðvestur af
Kasatin og tekið þar all-
marga bæi.
Krivoi-Rog svæðið.
Þjóðverjar hafa nokkra
undanfarna daga rætt í til-
kynningum sínum um stór-
feld áhlaup fyrir sunnan og
suðv. Krivoi-Rog, þar sem
Rússar hafi ruðst yfir ána
Ingolets. Þessu sama segja
Rússar svo frá í dagskipan
Stalins í dag og auk þess, að
sóknin sje þarna háð á um
160 km breiðri víglínu og
hafi þegar verið sótt fram
frá 64—28 km í fjögra daga
sókn og f jöldi þorpa og bæja
tekinn.
Tarnopol - ví gstöðvarnar.
I síðari dagskipaninni er
skýrt frá framsókn Zukovs
og töku bæjarins Staro-Kon
stantinovo, enn fremur er
sagt að harðir bardagar sjeu
háðir við Prokurovo, en þar
hafa varnir Þjóðverja verið
harðastar undanfarna daga.
Þjóðverjar segja einnig frá
hörðum bardögum á þessu
svæði í dae og kveða Rússa
hafa mist þar 42 skriðdreka
í gær, en Rússar segja tjón
Þjóðverja í gær vera 87
skriðdreka og 56 flugvjelar.
Norðurvígstöðvar.
Þar geta Rússar ekki um
orustur í gær, en Þjóðverjar,
segja að víða hafi komið til
snarpra viðureiena, einkum
milli fljótanna Pripet og
Beresina, og einnig nærri
Nevel og Pskov
Ekki er nú getið um bar-
daga við Narva.