Morgunblaðið - 18.03.1944, Blaðsíða 2
s
MORGUNBLAÐIÐ
Laugurdag'ur 18. mars 1944*
Islensk born hjalpa bágstöddum jafnöldrum
Fjársöfnun skólabarna
SAMBANÐ ÍSL. BAKNAKENNARA hcfir mi tckist á
hendur að hafa forystu í hjálparstarfsemi vegna bágstaddra
barna í ófriðarlöndum og þó einkum á Norðurlöndum. Níu
manna nefnd hefirrhaft undirbúning þessara mála með hönd-
um, og mun hún uenda ávarp þar að lútandi inn á hveyt heim-
ili, eftir því sem við verður komið.
Undirbúningsneíndin hefir
skipað þriggja manna fram-
kvæmdanefnd. í henni eiga
sæti Ingimar Jöhannesson,
Arngr. Kristjánsson og Jónas B.
Jónsson. Skýrðu þeir blaða
í'iönnum frá þessari fyrirhug-
uðu söfnun og fyrirkomulagi
hennar.
Skólabörn á Akureyri undir
forystu skólastjóra og kennara,
hafa þegar hafist handa um
fjársöfnun og orðið vel ágengt.
Hafa þegar safnað um 6 þús. kr.
S. í B. hefir nú tekið forustu
þessara mála meðal allra ís-
lesiskra barna, í sínar hendur.
Safnað verður bæði fje og fatn
aði, og fer söfnunin fram á
þann hátt, að böminsjálf leggja
fram af spariskildingum sínum,
eftir því sem efni leyfa, og
safna fje og fjármunum meðal
tfrænda, og vina. Eiunig búa
þau til ýmsa muni ýmist heima
eða í skólanum, sem annaðhvort
verða seldir eða renna í fata-
söfnunina.
Einnig verður tekið á móti
Joforðum um mánaðarlegan
styrk til ákveðinna barna.í Nor-
egi. Þeim styrk er hægt að koma
áleiðis strax fyrir væntanlega
ndlligöngu sænskrar hjálpar-
starfsemi. Er það gert með sam-
þykki þýskra yfirvalda, en
bundið því skilyrði, að styrk-
urinn sje veittur ákveðnu
ttorsku barni og sje ekki hærri
en 30 krónur á mánuði. Svíar
í Noregi útvega nöfn slíkra
fósturbarna.
Því fje, sem safnast, verður
að nokkru leyti varið til kaupa
á vörum, er hentugar þykja (t.
C lýsi og barnafatnaði),
og þær síðan sendar börnum í
nágrannalöndum, eftir því sem
leiðír opnast. Miklar líkur eru
til þess, að hægt verði að senda
vörur til Noregs í næsta mán-
uði með aðstoð ísienskra og
sænskra yfirvalda.
Forstöðumenn, barnaskólanna
sjá um söfnun, hver í sínu skóla
hverfi, en framkvæmdanefnd
S. í. B. hefir yfirumsjón og
annast úthlutun. Fræðslumála-
skrifstofan verður miðstöð söfn
unarinnar. (
Það eru aðallega íslensku
börnin, sem eiga með söfnun
þessari, að hjálpa jafnöldrum
sínum í öðrum löndum, sem
bágt eiga. En það er einróma
álit barnakennara, að börnin í
skólunum hafi aldrei haft eins
mikið fje með höndum og ein-
mitt nú. I ávarpbframkvæmda-
nefndarínnar segir m. a.:
„Vjer Islendingar munum
yíirleitt sammála um, að for-
sjónin hafi sýnt-oss.og börnum
vorum undursamlega mildi á
undanförnum stríðsárum, enda
þótt gnýr hins mikla hildarleiks
híjómi stöðugt í eyrum vorum.
.Foreldrar í ófriðarlönöum
hafa hinsvegar horft á börn sín
«ærð, hungruð og klæðlítil án
þess að geta úr bætt. Hörmuleg-
ast er þó hlutskipti þeirra
barna. er svipt hafa verið ást-
vinum sínum og eru því ein-
mana og alslaus.
Þessar andstæður liggja til
grundvallar þeirri hjálparvið-
leitni, sem íslensk skólabörn
hefja nú um land alt, til styrkt-
ar bágstöddum börnum í ófrið-
arlöndunum og þá einkum á
Norðurlöndum.
Þetta starf íslenskra skóla-
barna, með drengilegri hjálp
foreldra, kennara og annara
góðra vina, — verður alt í
senn: þakkarfórn fyrir auð-
sýnda mildi forsjónarinnar á
þessum neyðartímum, — upp-
eldisstarf, er eykur þroska þátt-
takenda, hjálpsemi þeirra, fórn
arlund og samúð, — kærleiks-
starf, er græðir sár, seður hung-
ur og kveikir að nýju trú og
von í döprum hugum sorg-
mæddra og þjáðra barna“.
I Svíþjóð er starfsemi til
hjálpar norskum börnum mjög
mikil. Hafa Svíar sent þeim m.
a. ýmsa matvöru í stórum stíl,
haft með höndum matgjafir,
sett á stofn sjúkrahús og heilsu-
hæli.
Pucheu fær ekki
m ðfryjð
London í gærkveldi.
Frá Algiers berast J>au tíð-
indi, að aukarjettur hafi í dag
tcgið fyrir áfrýjunarmál
Pueheus, fyrnun innanfíkis-
ráðherra Vichystjórnarinnar,
og hafnað beiðni hans um á-
frýun. Hafði rjettur þessi okki
vald til þcss að dæma í málinu
að nýju, aðeins að láta taka
það upp aftur, en það vildi
rjettur þessi ekki. Er nú ekki
önnur von fyrir Puöh.eu, en
sú, að De Gattlle náði hann.
Er sagt að Pucheu hafi þeg-
ar ritað De Gnullc eiilkabrjef.'
— Reuter.
Sænsk-finska fjelagið
fjölmeni.
Stokkhólmi: — Sænsk-
finska fjelagið er mjög fjöl-
ment. Það hjelt nýlega árshátíð
sína að Grand Hotel í Stokk-
hólmi. Þar hjelt Ernst von Born
barón, aðalræðuna, og sagði að
Finnar berðust sem fyrr fyrir
rjettindum sínum. Meðal hinna
fjölmörgu gesta voru hershöfð-
ingjarnir von der Laken og
Líndström og Bagge, menta-
málaráðherra Svía.
Eggert Claessen
Einar Ásmundsson
hæstarjettarmálaflutningsmenii,
— Allskonar lögfrœðistörf —
Oddfellowhúaið, — Sími 1171.
Nýlokið er smíði á húsi sem
fjelag Vörubílaeigenda hefir átt
í smíðum við Vgsturgötu í
Hafnarfirði.
í húsi þessu verður opnuð í
dag vörubílastöð, og í sambandi
við hana verður rekin bensin-
og smurningsolíusala.
Vörubílastöðin mun hafa til
umráða 50—60 vörubíla og
verður símanúmcr hennar 9325.
Á slíkri afgreiðslu hefir ver-
ið mikil þörf í Hafnarfirði og
hefir fjelag vörubílaeigenda
auðvitað fundið greinilegast
hve þessi þörf var brýn.
Því var það að á síðastliðnu
sumri var hafist handa með
stofnun stöðvarinnar, en þar
sem húsnæði var eigi fáanlegt,
rjeðist fjelagið í að byggja hús
fyrir þessa starfsemi sína.
. Húsið stendur, eins og áður
er sagt, við Vesturgötu, beint
>upp af hafskipabryggjunni. Er
það að flatarmáli 6x8,5 metrar.
í húsinu er afgreiðslusalur og
skrifstofa, og þar að auki fund-
arsalur, þar sem fjelagið mun í
framtíðinni halda fundi sína,
en undanfarið hefir það mjög
háð starfsemi fjelagsins hve
erfitt hefir verið að fá húsnæði
til fundahalda.
Stjórn fjelags vörubílaeig-
enda skipa þessir menn:
Þórður B. Þórðarson, formað-
ur. Kristján Steingrímsson, rit-
ari. Bergur Bjarnason, gjald-
keri. Grímur Kr. Andrjesson,
varaformaður. Jóhann Magn-
ússon, meðstjórnandi.
Með opnun vörubílastöðvar
fjel. vörubílaeigenda er hafin
starfræksla sem bætir úr að-
kallandi þörf og er ekki að efa
að Hafnfirðingar og aðrir munu
meta að verðleikum þetta mynd
arlega framtak hafnfirskra
vörubílstjóra.
Norskir presfar
vigðir i Svipjoo
Frá norska blaðafulltrúan-
um: — Frá Stokkhólmi er
símað, að helgiathöfn, einstök
í sinni röð, sje ákveðinn þann
19. þ. m. í Strángnás Dóm-
kirkju. Þar vígir sænski bisk-
upinn Aulén 4 norska guðfræð-
inga, eftir norska helgisiðakerf
inu. Þessir fjórir ungu prestar
eiga að starfa meðal norskra
flóttamanna í Svíþjóð. Um
morguninn verður altarisganga
en síðan hámessa í dómkirkj-
unni og prjedikar þar einn af
hinum ungu prestum, en síðan
framkvæmir Aulén biskup vígsl
una, en viðstaddir verða full-
trúar Norðmanna í Svíþjóð, t.
d. sendiherrann, Jens Bull.
Vígsluvottar verða fjórir
sænskir prestar og leiðtogi hins
kristilega danska starfs í Sví-
þjóð, einnig tveir guðfræðikenn
arar og þrír norskir prestar,
sem eru komnir til Sví-
þjóðar. Þetta er í fyrsta skipti,
sem erlendir prestar eru vígðir
opinberlega í Svíþjóð.
Ávarp til íslensku
þjóðarinnar varð-
andi lýðveldis- og
skilnaðarmálið
STJÓRNIR landssambanda ungra Framsóknarmanna, ungra
Jafnaðarmanna, ungra Sósíalista og ungra Sjálfstæðismanna,
stjórn Ungmennafjelags íslands og stjórn Stúdentafjelags
Reykjavíkur hafa átt viðræður um sameiginlega afstöðu allra
þessara aðila til lýðveldis- og skilnaðarmálsins.
Á sameiginlegum fundi stjórna fyrgreindra fjelagasambanda
og samtaka, er haldinn var í Reykjavík þann 16. mars 1944,
var í einum rómi samþykt eftirfarandi álitsgjörð og ávarp til
íslenskrar æsku og almennings í landinu:
Fundurinn lýsir ánægju sinni yfir því, að Alþingi skuli ein-
róma haía samþykt lýðveldisstjórnarskrá íslands og þings-
ályktun um niðurfellingu dansk-íslensku sambandslagasátt-
málans.
Fundurinn heitir á íslenska æsku og alla þjóðina að fylkja
liði við þjóðaratkvæðagreiðslu þá, er fram verður látin fara
um bæði málin, og staðfesta einum rómi þá stefnu, er Alþingi
hefir markað í þessum málum og er í beinu framhaldi af bar-
áttu og athöfnum þjóðarinnar í sjálfstæðismálum hennar.
Sjerstaklega heitir fundurinn á einstök fjelög og meðlimi
greindra fjelagssamtaka að láta einskis ófi'eistað til þess að
vinna sem best að undirbúningi þjóðaratkvæðagreiðslunnar og
stuðla með hverju móti öðru að því, að fram komi sem sterkust
heild þjóðarinnar og glæstur áhugi.
Fundurinn lýsir yfir þeim vilja sínum, að saman megi fara
sambandsslitin og stofnun lýðveldisins að atkvæðagreiðslunni
lokinni, og að stofnun lýðveldisins megi verða með þeim hætti
og með þeim blæ, er sje virðingu þjóðarinnar samboðinn.
Ofangreind fjelagasamtök vilja ennfremur heita á alla með-
limi sína svo og allan almenning í landinu, að vinna að því, að
stofnun hins nýja lýðveldis megi verða Islendingum til meiri
giftu og auka þjóðlega einingu og farsæld landsmanna.
Að lokum lætur fundurinn í ljós þá ósk sína, að allir lands-
menn sameinist um varðveislu þjóðlegra verðmæta um leið og
fundurinn minnir á, að frelsi og sjálfstæði landsins eru grund-
vallarskilyrði fyrir menningarlífi með þjóðinni.
F.h. stjórnar Sambands ungra Framsóknarmanna,
Þórarinn Þórarinsson, formaður.
F.h. stjórnar Sambands ungra Jafnaðarmanna,
Friðfinnur Ólafsson, forseti.
F.h. stjórnar Sambands ungra Sjálfstæðismanna,
Jóhann Hafstein, formaður.
F.h. stjórnar Stúdentafjelags Reykjavíkur,
Eiríkur Pálsson, formaður.
F.h. stjórnar Ungmennafjelags íslands,
Gísli Andrjesson, vara-sambandsstjóri.
F.h. stjórnar Æskulýðsfylkingarinnar, Samb. ungra Sósíalista,
Snorri Jónsson, forseti.
Móðgaði mynd af
Hitler.
Stokkhólmi: — Sænskur sjó-
maður hefir verið dæmdur í
þriggja mánaða fangelsi í
Þýskalandi, fyrir að hafa við-
haft móðgandi athugasemdir
um mynd af Hitler, sem hjekk
á vegg í kaffihúsi, þar sem
hann var staddur. Var maður
þessi nýsloppinn úr fangelsi,
eftir að hafa verið þar í þrjá
mánuði fyrir að fara í land af
skipi sínu án landgönguleyfis.
Best að
auglýsa í
Morgunblaðinu
Svíar í Helsinki bíða
tjón.
Stokkhólmi: — Sænska ut-
anríkismálaráðuneytið hefir til-
kynt, að í loftárásum Rússa á
Helsinki að undanförnu, hafi
bústaður flugmálafulltrúans við
sænsku sendisveitina eyðilagst,
og ennfremur bústaðir fleiri
starfsmanna sendisveitarinnar,
Sendiráðsbygginguna sjálfa
sakaði ekki, og enginn af starfs
mönnunum hlaut meiðsli.
Mac Arthur fær orðu.
London: — Bretakonungur
hefir sæmt Mac Arthur hers-
höfðingja stórkrossi Bath-orð-
unnar, en það er ein æðsta orða
Breta. Ennfremur voru Mae
Arthur færðar miklar þakkir
Bretakonungs fyrir ágæta
frammistöðu í Austurvegi.
— Reuter. j