Morgunblaðið - 22.03.1944, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 22.03.1944, Qupperneq 1
31. árgangur. 64. tbl. — Miðvikudagur 22. mars 1944. Isafoldarprentsmiðja h.f. ...............L..,,.,,,,. i■ ■ Mesta gos V esuvius í 70 ár London í gærkveldi., MESTA GOS, sem komið hefir úr eldfjallinu kunna, Vesúvíusi, í 70 ár, stendur nú yfir, og véllur óhemju hraun- íeðja upp úr gígnum og niður hliðár fjallsins. Hafa tvö þorp þegar verið yfirgefin, San Se- bastio og Massa de Suma. — Hraunflóðið er talið vera 30 feta'þykt og fer um 12 fet ■é minútu hverri. Þorpið San Sebastio er aðeins um rúnra 6 km. frá Napoli og eru menn all uggandi um á- standið. Síðdegis í dag byrjaði nýr þáttur í gosinu, og óhemju reykský stigu upp úr gíg fjalls- ins. Hylur nú svæla og reykur alla Napoliborg og flóann fyr- ir utan. Corcolaþorpið. og sveit in umhverfis hafa nú verið yf- irgefin, en þau eru nokkru fyr- ir norðan San Sebastio, sem hraunflóðið hefir nú algerlega eyðilagt. — Reuter. „Finnar verða að laka afleiðlngun- um" - sega Rússar London í gærkveldi. 1; T A NR ÍKISMÁLARÁÐU- NIíYTi Rússa og frjettastof- an rússneska gáfu iit í dag yfirlýsingu viðvikjandi því, að Finnar hafa hafnað frið- arskilmálum Rússa. Segir í yf irlýsingunni, að fyrsta svar Finna hafi verið þannig, að þeini hafi virst erfitt að taka skilmálunum án þess að rætt væri um þá áður. Svör- uðu Riissar ])essfi þannig, að þetta væru bestu skilmálar, sem Rússar gætu boöið upp á. og yrði að ganga að þeim, eins og þeir lægju fyrir án umræðna, ef vopnalilje ætti að takast. Var nú Finnum gefinn frestur til svars, en að honum útrunnum höfnuðu Finnar skilmálunum. Segir að iokum í yfirlýsingu Rússa, að h’innar verði nú aö taka afeiðingum gerða sinna. Reuter. Mikilvæg ráðstefna Washington í gærkveldi. Fregnritarar hafa komist á snoðir um það, að æðstu for- ingjar hers og flota og allir ráð herrar Bandar. sátu í dag ráð- stefnu með Cordell Hull, utan- ríkisráðherra. Ráðstefnan átti að vera leynileg, og hefir því ekki spurst, hvað rætt hafi ver ið. — Reuter'. STÓRORUSTUR BVRJAÐ- m VESTAM DIMIESTER í PóiEandi sækja Riíssar fram STÓRORUSTUR ERU NÚ BYRJAÐAR fyrir vestan Dniesterfljótið, þar sem Þjóðverjar draga lið saman, til þess að stemma stigu fyrir framsókn Rússa, sjerstaklega, til þess að koma í veg fyrir að Rússar nái borginni Balti og ógni þar með járnbrautarsamgöngum þýsku herjanna fyrir norðan og sunnan þetta svæði. Einnig gera Þjóðverj- ar harðar árásir á brýr Rússa yfir Dniester, og allt bendir til þess, að Koniev marskálkur reyni frekar að ná meira svæði við fljótið á sitt vald, en að sækja langt fram nú þegar. smiojur Lancastersprengjuflugvjelar breska flughersins rjeðust í nótt sem leið á mikla sprengi- efnaverksmiðju franska, skamt frá Bordeaux. Var varpað sprengjum á verksmiðjubygg- ihgar og skotfærageymslur, og sprakk ein þeii’ra að minsta kosti í loft upp. Allar flugvjel- arnar komu aftur, enda varð ekki vart þýskra orustuflug- vjela. —- Reuter. Á Póllandsvígstöðvunum hafa Rússar enn sótt fram, og tekið þar, að því er her- stjórnartilkvnning þeirra segir, noþkur þorp í sókn- inni til Lwov. Enn fremur haýa Rússar fram í suður og suðaustur frá Vinnitza og tekið þar tvær járnbrautar- stöðvar og nokkur þorp. — í framsókninni suður og vestur af Smerinka, tóku Rússar einnig tvo allstóra bæi og nokkur þorp í við- bót. Baráttan við Dniester og Nikopol. Forvígi Rússa vestan Dniester vaxa hægt og hægt, þrátt fyrir loftárásir og gagnáhlaup. Hafa Rúm- enar einnig tekið þátt í þess- um bardögum, en hersveitir þeirra eru sagðar hafa farið allmiklar hrakfarir, og ver- ið tvístrað að mestu. — Við Nikopol hafa Þjóðverjar gert atlögur að stórskotaliði Rússa, sem skýtur á skip Þjóðverja, sem revna að komast úr höfninni. Iíorthy flotaforingi, sem sjest hjer á myndinni með fjölskyldu Frásögn Þjóðverja. Dietmar hersöfðingi ræddi um ástandið á Austurvíg- Framhald á 2. síðu. sinni, hefir alllengi verið einvaldur í Ungverjalandi, en nú segja fregnir, að Þjóðverjar hafi tekið öll völd í landinu. — Ungi mað- urinn við hlið Horthys á myndinni, sonur hans Stephan Horthy, er nú fallinn. Fjell hann í loftorustu yfir Austurvígstöðvunum. Finnar hafa hafnað friðarskilmálum Rússa Einkaskeyti til Morgbl. frá Reuter. FINSKA STJÓRNIN hefir nú tilkynt opinberlega að hafnað hafi verið friðarskilmálum Rússa, og gefið út skýringar á málum þessum og gangi þeirra yfirleitt. Rekja Finnar forsögu málanna og greina síðan frá or sökum þess, að skilmálunum hafi verið hafnað. Finnar segja, að aldrei hafi verið ljóst, hvernig túlkuð myndu einstök atriði samninga þessara, eoa hvernig Rússar framkvæmdu þá, ef skilmálun- um yrði tekið. — Síðan segir að Finnar hafi ekki getað tekið slíkum skilmálum, sem verið hafi þess eðlis, að ekki hafi verið öryggi fyrir þjóðina í þeim. Síðan segir í tilkynningunni, að leitast hafi verið við að fá slakað á skilmálunum, en Rúss ar svöruðu því til, að skilmál- arnir væru þannig, að ekki væri hægt að draga úr þeim, nje milda þá neinu leyti. Yrðu Finnar því að taka skilmáluh- um og hætta að berjast. Þá segir tilkynningin, að eft- ir slíkt svar hafi alls ekki verið mögulegt fyrir Finna að taka skilmálunum, og hafi Rússum nú verið tilkynt það. Er svo bætt við, að Finnar vonist samt eftir að komið verði á friðsam- legri sambúð við Rússa. Fregnritarar herma, að það muni aðallega hafa verið á- kvæðið um að taka skilmálun- um umræðulaust, sem varð þess valdandi að Finnar höfn- uðu því. ‘ Fallhlífa- lið tók Budapest Stokkhólmi í gærkveldi. FERÐAMAÐUR, sem kominn er hingað til Stokkhólms frá Ungverjalandi, segir, að her- nám borgarinnar af Þjóðverj- um hafi byrjað á sunnudaginn var. Settu Þjóðverjar niður fallhlífalið við helstu flugvelli og aðra mikilvægustu staði. -— Sagði maður þessi, að Ungverj- ar hefðu sumsstaðar veitt við- nám, en ekki hefði verið um neina skipulagða mótspyrnu að ræða neinsstaðar. Fáar aðrar fregnir hafa enn borist um hernám Ungverja- lands, og hefir talsmaður þýska utanríkisráðuneytisins verið að þessu spurður. Kvað hann ekk ert opinberlega myndi vérða tilkynt um þetta að svo stöddu. Lausafregnir herma, að Horthy ríkisstjóri Ungverja og yfirmaður ungverska herfor- ingjaráðsins, sjeu nú kyrsettir í Þýskalandi. Ekki hefir það verið staðfest. Stjórnmálafregnritarar álíta, að Þjóðverjar hafi hernumið Ungverjaland af tveim ástæð- um: 1) til að tryggja birgða- flutning til herjanna austar, og 2) til að hindra ágengni Ung- verja í garð Rúmena. Tvísýnl um úrslít í Cassino London í gærkveldi. BARDAGAR fara ekki neitt minkandi í Cassino og er enn mjög tvísýnt nm úrslitin. Ilafa Þjóðverjar fengið hðs- auka, og gera herflokkar úr vjelaherfylkjum þeirra —■ (Panzergrenadierff) nú árás- ir ásamt fallhlífahermönmun. Bandamenn eiga örðugt um. vik að því leyti, að þeir geta ekki farið á snið við Þjóð- verja og verða að ganga beint framan að þeim, en það verð nr æði kostnaðarsamt. Ilefir her handamana líka lítið svæði til hreifinga þarna og‘ á mestu af því eru rústir, þar sem ekki verður komið við vjelahergögnum. Þjóð- verjar skjóta ofau, úr hæð- unum af 'fallhyssum og vjel- byssum og uppi í hæðunum sumstaðar eru sveitir bandam. einangraðar, svo varpa verð- ur til þeirra birgðum úr fall hlífum.Hafði ein sveitin þann- ig ekki fengið neinar birgðir í 48 klukkustundir. Bandamenn hafa náð nokkru nxeira af rústum horg- arinnar á sitt vald og tóku þeir þar 200 fanga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.