Morgunblaðið - 28.03.1944, Page 1
31. árgangur.
69. tbl. — Þriðjudagnr 28. mars 1944.
Isafoldarprentsmiðja ki,
Engar breskar far
þegalestir í förum
BARIST I ÚTHVERFUM NIKOLAJEV
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
írá Reuter.
Eftir Stanley Burch.
' Alíar járnbrautarlestir í Bret
landi, sem flytja farþega,
kunna að verða „teknar úr um-
ferð'.‘ af járnbrautum Bretlands
á hverju augnabliki, meðan ver
ið er að ljúka við undirbúning-
inn að innrásinni. Myndi þetta
hafa það í för með sjer, að borg
araf landsins yrðu að gera svo
vel að sitja þar sem þeir væru
komnir. Hefir þegar verið til-
kynt,. að vegna hermanna- og
hergagnaflutninga geti svo far-
ið, að stöðvaðar verði án frek-
ari viðvörunar allar fólksflutn-
ingalestir landsíns, en fáir eru
þó í Bretlandi, sem gera sjer
grein fyrir því, að þetta þýðir
sama og allir fólksflutningar í
landinu stöðvist. — Reuter.
Margar Surturhalseyjar eru mjög fjöllóttar og eldbrunnar
og góðar liafnir víða. Hjer sjest flugvjelaskip á fcrð við fjallaey
eina, en flugvjel er að hefja sig til njósnaflugs.
Reynt að umkringja
miðhluta Manipur
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
Miklir bardagar eru enn háð-
ir í Manipurhjeraðinu og á
landamærum Burma þar nærri
ög sækja japanskar sveitir í
vesturátt fyrir norðan hina
mikilvægu bækistöð Impal, og
er álitið að þeir ætli með þessu
að reyna að umkringja miðhluta
Manipurfylkis. —
Þá er barist af mikilli hörku
fyrir norðaustan Impal, í skóg-
klæddum hæðum og mjög erf-
itt um hernað. Eru skógarnir
svo þjettir, að ilt er að vita,
Hvar óvinir eru fyrir hverju
sinni. Bretar hafa notað þarna
Hurricaneflugvjelar til njósna
og þykja þær gefast vonum
betur.
Suður á Maju-fjallgarðinum
óg alt suður að Arakanvígstöðv
unum eru einnig háðir miklir
bardagar og hefir Bretum þar
tekist að ná nokkrum stöðvum
af Japönum og valda þeim
nokkru manntjóni. Minstir hafa
bardagar verið á Arakansvæð-
inu, en þar hafa breskar flug-
Vjelar unnið Japönum ærið
tjón.
Norður í nyrðri hluta lands-
ins eigast amerískar og japansk
ar sveitir við á Huon-svæðinu,
einkum þó í dölum, sem út úr
Huandalnum liggja. — Segir í
síðustu tilkynningu frá Still-
well hershöfðingja, að bardaga
þessa megi kalla allskæða.
— Reuter.
RÚSSNESKUR SENI)I-
HERRA FER HEIM
J,1r.iettst Jiefir lijer frá vel.
kunuugum mönnum, að sendi-
kerra liússa í Búlgaríu,
Jjavrentieliev, sje á leiðhmi
keir.i til Moskva.
Stórskolaor-
usla í Cassino
London í gærkveldi.
Orustan um Cassino er nú
mest farinn að verða stórskota
liðsviðureign, og hafa fótgöngu
liðsbardagarnir þvínær legið
niðri í gæi' og dag, og reyna
bandamenn að eyðileggja fall-
byssustöðvar Þjóðverja uppi í
hæðunum og ennfreífiur hafa
þeir gert ítrekaðar tilraunir til
þess að bjarga liðsflokki þeim,
sem innikróaður er uppi í must
erishæðinni, en það hefir ekki
tekist og hafa Þjóðverjar beint
að honum fallbyssuskothríð og
loftárásum.
Snjókoma hefir aftur orðið
og eru margir vegir ófærir
vegna þessa, þannig að ilt er
um aðflutninga alla. Annars-
staðar á vígstöðvunum hefir
ekkert merkilegt skeð. — Flug-
vjelar bandamanna hafa ráðist
á marga staði víða um Norður-
Italíu. — Reuter.
Bardagar
í JugoslaSiu
Barist oi* nú af mikilli hörku
í Jugoslafiu, einkum þó í
Slovcniu, ekki fjarri landa-
jnærum Ungverjalands, þar
sem sveitir Titos hafa lent í
snörpum viðureignum við,
(Þjóðverja. Hafa þær i-ofið
járnhraut eina ura þessar slóð-
ir á þrem stöðum.
í dag' eru liðin þrji'i ár síði
an stjórnarbylting varð í
Jugoslat'iu, og landið Jenti í
styrjöld við Þjóðverja og
voru Jugoslafar svo sem kunu
ugt er g.jörsigraðir á stuttum;
tíma. —Reuter.
Patlon frá her-
jljérn
London í gærkveldi.
FRÁ AÐAL8T()ÐVUM
bandamanna á Ítalíu berast
þær fregnir, að Patton hers-
höl'ðinja. yfirmanni 7. hers
Bandaríkjanna hafi vei'ið
vikið frá stjórn hersins og
í stað hans hafi tekið við
henni Alexander Paeth. jr.
hex'shöfðingi. Það var Patch,
sem stýrði sveitum úr land-
her Bandai-íkjanna í bardög-
um á Ouadalacanar forðum.
Patton fæi' stjórn annars hers.
, Reuter.
Fyrsta árásín á Essen
i
i álta mánuði
London í gærkveldi.
Bi-eski sprengjuflugvjelaflot-
inn heimsótti Essen í nótt sem
leið, eftir að borgin, þar sem
hinar miklu Kruppsverksmiðj-
ur eru, hafoi fengið að vera í
fi'iði í átta mánuði fyrir loft-
árásum bandamanna, en fyrir
skmestu munu könnunarflug-
vjelar hafa komist að því, að
gert haf'ði verið við skemdir á
einhverju af verksmiðjunum og
var þessi árás því gerð.
Flugveður var hið versta og
lentu flugvjelarnar í snörpum
stormi og hagljeljum, en skýja-
þykni huldi árásarsvæðið. Loft
varnaskothríð var ekki mikil,
og fórust aðeins 9 af flugvjel-
um Breta. Orustuflugvjelar sá-
ust varla. Aðrar breskar flug-
vjelar rjeðust á staði í Belgíu
og á Hannover. Sumar lögðu
tundurduflum í sjó. — Lítið var
um þýskar flugvjelar yfir Bret-
landi þessa nótt. — Reuter.
Kamenets-Podolsk fallin
og her Konievs við Pruth
London í gærkvöldi. — Einkaskoyti til Morg-
unblaðsixis frá Reuter.
TILKYNT ER í herstjórnartilkynningu Rússa í kvöld, að
hersveitir Merekovskis sjeu komnar inh í úthverfi hafn-
arborgarinnar Nikolajev við Svartahaf og geysi þar
grimmir bardagar. Þá var dagskipan gefin út nokkru
áður af Stalin og þar sagt frá því, að hersveitir Zukovs
hefðu tekið bæinn Kamenets-Podolslr, sem var mesta
varnarstöð Þjóðverja fyrir vestan Proskurov. Er borgin
sögð tekin eftir harða bardaga.
Dagárásum
beinf gegn
Frakklandi
i
London í gærkveldi.
Flugher Bandaríkjanianna í
Bretlandi beindi árásum sín-
,um gegn flugvöllum og öðr-
úm bælxistöðvum Þjóðverja í
Pi'akklandi í dag, einkum þó
flugvöllum í miðju Frakk-'
landi. Muiiu sprengjuflug-
vjelarnar alls hafa verið lum
500 að tölu og voru það bæði
fiugvirki og Liberatorflug-
vjelar en um 750 onistuflug-
vjelar fylgdu flugflota þess-
um. Ekki er taíið að mót-
spyrna Þjóðverja í lofti hafi
verið nema lítil, en ekki hafa
enn fengist nákvæmar fregn-
ir um þetta. — Marauderflug-
vjelar rjeðust á Calaissvæðið
og komu allar aftur.
Seint í kvöld var tilkynnt.
að ráðist liefði verið á 9 flug-
velli, aðallega á ströndum
Frakklands, og munu sumir
þeirra vera liækistöðvar fvi-ir
þýskar l an gf erðaf lugv j el ar.
Mótspyrna í lofti var lítil. Sex
sprengjuflugvjelar o^' 15 or-
ustuvjelar komu ekki aftur.
—Reuter.
Nýi Garður fær enn
herbergi að gjöf
Frá stjórn Stúdentagarð-
i anna hefir blaðinu boristí
, NtJA STÚDENTAGARÐ-
INUM hefir enn borist vegleg
gjöf. Eru það kr. 10.000 —•
tíu þúsuiid krónur — frá
Barðastrandasýslu. Ilefir sýslu
nefudin jafnframt óskað eftir
því, að einu lierbergi í Stúd-
entagarðinuiu verði gefið
nafnið Barðstrendingabúð, og
sje það ætlaÖ til íb.úðar stúd-
.eútum ui' Barðastrandarsýslu.
Herir Konievs eru komnir
að Pruthfljótinu á nokkru
svæði og eru nú að stækka
það, með sókn suður og norð
ur með ánni. Pruthfljótið,
sem nú skilur rússneska her
inn frá Rúmenskri grund. er
allstraumhart og í miklum
vexti. Þar sem herir Koni-
evs eru komnir að þvi, renn
ur það í dal, og eru vestan
dalsins alt að 700 feta háar
og brattar hæðir.
Bardagarnir
á Tarnopolsvæðinu.
Ennfremur segir herstjórn
artilkynningin rússneska frá
áframhaldandi orustum á
Tarnopolsvæðinu, þai' sem
tekin hafi verið allmörg
þorp auk hinnar fymefndu
borgar, Kamenets-Podolsk.
Hafa hersveitir Rússa einn-
ið komist yfir Dniester á
þessum slóðum og sækja suð
ur með fljótinu að vestan
og austan, með það fyrir
augum að ná saman við her
Konievs og króa inni þær
þýsku hersveitir, sem enn
eru fyrir austan fljótið.
Milli fljótanna Dniester
og Pruth kveðast Rússar
hafa tekið allmörg þorp á
því landssvæði, sem áður
var rússneska Moldavia,
flest þeirra á Cernowitz-
svæðinu, en sú borg er enn
í höndum Þjóðverja.
Við Nikolajev.
Frá bardögunum við Niko
lajev segist Rússum á þessa
leið: „í áttina til Nikolajev
sóttu heisveibir vorar fram
og náðu nokkrum þorpum,
og er eitt þeirra 4 km. norð-
ur af borginni.
í úthverfum Nikolajev að
austan eiga hersveitir vorar
í götubardögum við óvin-
ina“.
Annarsstaðar á vígstöðv-
unum kveða Rússar ekkert
um að vera, en Þjóðverjar
segjast hafa hrakið rússnesk
ar hersveitir af höndum sjer
við Kovel i Póllandi og einn
ig norðar, við Vitebsk.