Morgunblaðið - 02.04.1944, Síða 1

Morgunblaðið - 02.04.1944, Síða 1
31. árgangur. 74. tbl. — Sunnudagur 2. apríl 1944. Isafoldarprentsmiðja h.f. £r Paaiíkivi 9 MOll New York í gærkveldi. Óstaðfestar fregnir herma að Paasikivi sje staddur í Moskva og hafi símað heim til Helsinki, að Rússar hafi slakað á frið- arskilmálunum eftir tveggja daga viðræður, en fregnirnar ,um þetta berast frá Stokk- .'hólmi í kvöld. Fregnin bætir -við, að skilmálar Rússa sjeu ■nú aðgengilegir í mörgum þýð- •ingarmiklum atriðum. Bandamenn byrja áhlaup fyrir austan (assino London í gærkveldi. Bandamenn byrjuðu óvænt .áhlaup á stöðvar Þjóðverja um miðbik Ítalíuvígstöðvanna, nokkru fyrir austan- Cassino, og tókst að sækja þar fram um hálfan annan kílómeter og ná hæð einni allhárri á sit vald. Óljóst er hvort bardagar halda áfram á þessum slóðum eða .ekki, en í Cassino er enn sama þófið og halda báðir aðilar uppi mikilli stórskotahíö. Þar hefir aðstaðan ekkert breyst. Við Anzio var hrundið smá- vægilegu áhlaupi Þjóðverja, og allmikið skotið af fallbyssum að vanda. Amerísk herskip skutu og á stöðvar Þjóðverja. Á vígstöðvum áttunda hersins hefir óvenju miklð veriö um að vera í dag og í gær. Bar mest á stórskotahríð og njósna- ferðum Þjóðverja. — Reuter. Stói brani o Um það leyti, sem blaðið var að fara í prentun í nótt, kom frjett frá Akureyri um að hús- ið Túngata 2 væri í ljósum loga. Menn væntu þess, að takast mætti að hefta frekari út- breiðslu eldsins. En hús, er væru í hættu talin, voru m. a. ibúðarhús frá Guðrúnar Ólafs- son og hús BifreiðastöSvar Ak- ureyri. Svíar heimsækja fanga Japana. Stokkhólmi: — Sænskur full- trúi K. F. U. M., Hugo Cederl gren að nafni, hefir fengið leyfi japanskra yfirvalda til þess að fimm menn frá K. F. U. M., megi heimsækja ameríska fangá sem Japanar hafa í haldi á Filipseyjum. Þeir, sem fara til að heimsækja fangana, eru alt sænskir trúboðar, sem starfað hafa í Austurálfu. Rússar beina nú sókn Birser • • jc 1 látinn iaus að Odessa smni rsh Dregur úr hraða hennar annarstaðar London í gærkvöldi. — Einkasktyti til Morg- miblaðsins frá Reuter. FRAMSÓKN RÚSSA beinist nú einkum í áttina til Odessa, hinnar miklu hafnarborgar við Svartahafið, og muriu þær af sveitum Malinovskis hershöfðingja, sem næst eru komnar borginni, vera um rúma 70 km. frá henni og Jara þær að sögn fregnritara allhratt yfir. — Annarsstaðar á vígstöðvunum hafa ekki orðið nærri eins miklar breytingar og undanfarna daga, og hefir enginn stærri bær verið tekinn, að því er herstjórnartilkynningin frá Moskva segir í kvöld. Þá er ekki minst á frekari fram- sókn í átt til Karpatafjalla, og engin staðfesting hefir fengist á fregnum um rússneska fallhlífahermenn í Rúmeníu. Frá norska blaðafulltrúanum. Hinn heimsfrægi skíðamaður Birger Ruud, sem tekinn var höndum í fyravetur af Þjóð- verjum vegna þess að hann hafði tekið þátt í „ólöglegu“ skíðamóti, hefir nú verið látinn laus. Var honum slept í síðast- liðnum mánuði. Tyrkir hafa staðið af sjer enn sem komið er allar öldur styrjaldarinnar og virðast á- kveðnir í að vera hlutlausir. Þetta eru leiðíogar. þeirra, Ineu forseti og Memencioglu utanríkismálaráðherra. fefefi&r siyrkir Islendinga i Blaðinu hefir borist eft- irfarandi frá upplýsinga- skrifstofu stúdenta: SAMKVÆMT ilkynningu frá utanríkismálaráðuneytinu hef- ir Gunnar Frederiksen, Melbu, Noregi, eigandi Krossanes- verksmiðjumar, gefið kr. (norskar) 2000,00 til styrktar Islendingum i Noregi. Þetta er þriðja árið sem G. Frederiksen gefur peninga íil styrktar íslendingum í Noiægi, sömu upphæð í hvert skifti, alls kr. 6000,00, sem verið hef- ir mikil hjálp mörgum íslend- ingum, sem í Noregi dveljast. Vilhj. Finsen, sendifulltrúi Islands í Stokkhóimi, sjer um úthlutun fjárins í samráði við Guðna Benediktsson, formann íslendingafjelagsins í Osló. Á Svartahafsströndum sækja Rússar fram í átt- ina til Odessa og lengra inni í land.i í áttina til Tiraspol, en þýsku og rúmensku her- irnir á þessum slóðum hörfa undan og virðist yfirleitt ekki vera um mikla bardaga að ræða þarna. Þjóðverjar eru sagðir skilja eftir all- mikið af hergögnum sums- staðar, og verið getur að þeim veitist erfitt að koma her sínum vestur um árnar Dniester og Pruth. Hjá Kamenetsk segir herstjórnartilkvnn- ing Rússa heri Zukovs vera að hreinsa til og hafa tekið bæinn Podhjache á Tarno- polsvæðinu og nokkur önn- ur þorp þar í grendinni. Eru nú framsveitir Zukovs sagð- ar mitt milli Tarnopol og Stanislavo, en Podhjache er um 50 km. norðaustur af Stanislavo en tæpa 40 km. suðvestur af Tarnopol. Við rætur Karpatafjall- anna vinna sveitir Zukovs að því að tryggja aðstöðu sína, og milli fljótanna Dni- ester og Pruth eiga herir Konievs í hörðum bardög- um við óþrevtt lið Þjóð- verja og Rúmena, sem gerir iðulega gagnáhlaup. Segj- ast Þjóðverjar beita flug- hernum mjög á þessum slóð um. Dönsk herskip skemd. Frá norska blaðafulltrúan- dm: — Danska frjettastofan í Stokkhólmi fyrir þær fregnir, að tvö herskip Dana, Niels Juel og Peder Schram, sem sagt er að Þjóðverjar hafi flutt til Kiel, hafi þar orðið fyrir breskum sprengjum og hafi Niels Juel sokkið, en Peder Schram skemst. Dagárás á Suður- Þýskaland London í gærkveldi. Liberatorflugvjelar, amerísk ar, varðar Thunderbolt- og Mustangflugvjelum, gerðu í dag árásir á staði í Suður- og Mið-Þýskalandi. Yeður var all illt og lentu flugvjelarnar í hríð, en snjór var allmikill á jörðu í Þýskalandi. Illa sást árangurinn af árásunum. Þýsk ar orustuflugvj elar voi'u fáar á sveimi, en loftvarnaskothríð hörð. Nokkrar spreng^ur fjellu á svissneska bæinn Schaffhaus- en, en hann er rjett við landa- mæri Þýskalands. Er búist við að Bandaríkjastjórn muni biðja Svisslendinga afsökunar á þessu. Wingafe ferst í flugslysi London i gærkveldi. Hinn frægi breski frumskóga hershöfðingi. Wingate, sem stjórnaði her þeim, er fyrir nokkru var látinn síga til jarð- ar í fallhlífum inni í Mið- Burma, og sem áður stjórnaði njósnarsveitum, er fóru langt á bak við víglínur Japana, er lát- inn. Fórst hann í flugslysi í Burma þann 24. f. m., er hann var á eftirlitsferð. Er álitið að flugvjelin, sem hann var i, hafi rekist á fjallshlíð. Allir, sem í henni voru, biðu bana. Önnur flugvjel, sem var að leita henn- ar/hrapaði einnig til jarðar. Wingate var tvímælalaust snjallasti frumskógahershöfð- ingi Breta, einkennilegur maður og einrænn. Gerðu menn sjer miklar vonir um árangur af herför liðs þess, er hann stýrði nú síðast. — Reuter. Útvarpsstjóri Breta segir af sjer. LONDON í gærkveldi: —• Robert Foot, forstjóri breska útvarpsins, hefir sagt af sjer. Hann gerði það, til þess að taka við öðru starfi. Eftirmaður hans verður núverandi frjettastjóri útvarpsins, Heyley. — Reuter. Japanor sækja að borginni Impnl London í gærkveldi. Einkaskeyti til MorgunblaSsins frá Reuter. Fregnir frá Nýjudehli herma, að bardagar fari stöðugt harðn andi fyrir norðan og norðaust- an Impal, þar sem Japanar sækja enn fram, og eru þeir nú varla meira en um 30 km. frá borginni,. þar sem þeir eru komnir næst henni. Enn eru þeir þarna inni í frumskógun- um, en meðan svo er, er ekki hægt að nota flugher gegn þeim með jafn miklum árangri og er þeir koma á Impalsljettuna. Það er í þrem fylkingum, sem Japanar sækja inn í Manipur- hjeraði, og að því er fregnir frá vígstöðvunum herma, hefir nú tekist að stöðva eina af fylk- ingum þessum, en hinar sækja enn fram. — Japanar segja að hersveitir Burmabúa taki þátt í sókninni með þeim og hinum indversku sveitum. Á Arakanvígstöðvunum eru bardagar harðir og hafa Jap- anar verið ■ hraktir ,þar afturá- bak á nokkrum stöðum, og eins nærri Hukondalnum, þar sem hersveitir Stillwells berjast gegn hinum japönsku sveitum. Þar hafa Kínverskir herflokk- ar hrakið Japana úr fjallaskarði einu. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.