Morgunblaðið - 02.04.1944, Blaðsíða 1
31. árgangur.
74. tbl. — Sunnudagur 2. apríl 1944.
Isafoldarprentsmiðja h.f.
£r Paaiíkivi
9 MOll
New York í gærkveldi.
Óstaðfestar fregnir herma að
Paasikivi sje staddur í Moskva
og hafi símað heim til Helsinki,
að Rússar hafi slakað á frið-
arskilmálunum eftir tveggja
daga viðræður, en fregnirnar
,um þetta berast frá Stokk-
.'hólmi í kvöld. Fregnin bætir
-við, að skilmálar Rússa sjeu
■nú aðgengilegir í mörgum þýð-
•ingarmiklum atriðum.
Bandamenn byrja
áhlaup fyrir austan
(assino
London í gærkveldi.
Bandamenn byrjuðu óvænt
.áhlaup á stöðvar Þjóðverja um
miðbik Ítalíuvígstöðvanna,
nokkru fyrir austan- Cassino,
og tókst að sækja þar fram um
hálfan annan kílómeter og ná
hæð einni allhárri á sit vald.
Óljóst er hvort bardagar halda
áfram á þessum slóðum eða
.ekki, en í Cassino er enn sama
þófið og halda báðir aðilar uppi
mikilli stórskotahíö. Þar hefir
aðstaðan ekkert breyst.
Við Anzio var hrundið smá-
vægilegu áhlaupi Þjóðverja, og
allmikið skotið af fallbyssum
að vanda. Amerísk herskip
skutu og á stöðvar Þjóðverja.
Á vígstöðvum áttunda hersins
hefir óvenju miklð veriö um
að vera í dag og í gær. Bar
mest á stórskotahríð og njósna-
ferðum Þjóðverja. — Reuter.
Stói brani
o
Um það leyti, sem blaðið var
að fara í prentun í nótt, kom
frjett frá Akureyri um að hús-
ið Túngata 2 væri í ljósum loga.
Menn væntu þess, að takast
mætti að hefta frekari út-
breiðslu eldsins. En hús, er
væru í hættu talin, voru m. a.
ibúðarhús frá Guðrúnar Ólafs-
son og hús BifreiðastöSvar Ak-
ureyri.
Svíar heimsækja fanga
Japana.
Stokkhólmi: — Sænskur full-
trúi K. F. U. M., Hugo Cederl
gren að nafni, hefir fengið leyfi
japanskra yfirvalda til þess að
fimm menn frá K. F. U. M.,
megi heimsækja ameríska fangá
sem Japanar hafa í haldi á
Filipseyjum. Þeir, sem fara til
að heimsækja fangana, eru alt
sænskir trúboðar, sem starfað
hafa í Austurálfu.
Rússar beina nú sókn Birser
• • jc 1 látinn iaus
að Odessa
smni
rsh
Dregur úr hraða
hennar annarstaðar
London í gærkvöldi. — Einkasktyti til Morg-
miblaðsins frá Reuter.
FRAMSÓKN RÚSSA beinist nú einkum í áttina til
Odessa, hinnar miklu hafnarborgar við Svartahafið, og
muriu þær af sveitum Malinovskis hershöfðingja, sem
næst eru komnar borginni, vera um rúma 70 km. frá
henni og Jara þær að sögn fregnritara allhratt yfir. —
Annarsstaðar á vígstöðvunum hafa ekki orðið nærri eins
miklar breytingar og undanfarna daga, og hefir enginn
stærri bær verið tekinn, að því er herstjórnartilkynningin
frá Moskva segir í kvöld. Þá er ekki minst á frekari fram-
sókn í átt til Karpatafjalla, og engin staðfesting hefir
fengist á fregnum um rússneska fallhlífahermenn í
Rúmeníu.
Frá norska
blaðafulltrúanum.
Hinn heimsfrægi skíðamaður
Birger Ruud, sem tekinn var
höndum í fyravetur af Þjóð-
verjum vegna þess að hann
hafði tekið þátt í „ólöglegu“
skíðamóti, hefir nú verið látinn
laus. Var honum slept í síðast-
liðnum mánuði.
Tyrkir hafa staðið af sjer
enn sem komið er allar öldur
styrjaldarinnar og virðast á-
kveðnir í að vera hlutlausir.
Þetta eru leiðíogar. þeirra,
Ineu forseti og Memencioglu
utanríkismálaráðherra.
fefefi&r siyrkir
Islendinga i
Blaðinu hefir borist eft-
irfarandi frá upplýsinga-
skrifstofu stúdenta:
SAMKVÆMT ilkynningu frá
utanríkismálaráðuneytinu hef-
ir Gunnar Frederiksen, Melbu,
Noregi, eigandi Krossanes-
verksmiðjumar, gefið kr.
(norskar) 2000,00 til styrktar
Islendingum i Noregi.
Þetta er þriðja árið sem G.
Frederiksen gefur peninga íil
styrktar íslendingum í Noiægi,
sömu upphæð í hvert skifti,
alls kr. 6000,00, sem verið hef-
ir mikil hjálp mörgum íslend-
ingum, sem í Noregi dveljast.
Vilhj. Finsen, sendifulltrúi
Islands í Stokkhóimi, sjer um
úthlutun fjárins í samráði við
Guðna Benediktsson, formann
íslendingafjelagsins í Osló.
Á Svartahafsströndum
sækja Rússar fram í átt-
ina til Odessa og lengra inni
í land.i í áttina til Tiraspol,
en þýsku og rúmensku her-
irnir á þessum slóðum hörfa
undan og virðist yfirleitt
ekki vera um mikla bardaga
að ræða þarna. Þjóðverjar
eru sagðir skilja eftir all-
mikið af hergögnum sums-
staðar, og verið getur að
þeim veitist erfitt að koma
her sínum vestur um árnar
Dniester og Pruth.
Hjá Kamenetsk
segir herstjórnartilkvnn-
ing Rússa heri Zukovs vera
að hreinsa til og hafa tekið
bæinn Podhjache á Tarno-
polsvæðinu og nokkur önn-
ur þorp þar í grendinni. Eru
nú framsveitir Zukovs sagð-
ar mitt milli Tarnopol og
Stanislavo, en Podhjache er
um 50 km. norðaustur af
Stanislavo en tæpa 40 km.
suðvestur af Tarnopol.
Við rætur Karpatafjall-
anna vinna sveitir Zukovs
að því að tryggja aðstöðu
sína, og milli fljótanna Dni-
ester og Pruth eiga herir
Konievs í hörðum bardög-
um við óþrevtt lið Þjóð-
verja og Rúmena, sem gerir
iðulega gagnáhlaup. Segj-
ast Þjóðverjar beita flug-
hernum mjög á þessum slóð
um.
Dönsk herskip skemd.
Frá norska blaðafulltrúan-
dm: — Danska frjettastofan í
Stokkhólmi fyrir þær fregnir,
að tvö herskip Dana, Niels Juel
og Peder Schram, sem sagt er
að Þjóðverjar hafi flutt til Kiel,
hafi þar orðið fyrir breskum
sprengjum og hafi Niels Juel
sokkið, en Peder Schram
skemst.
Dagárás á Suður-
Þýskaland
London í gærkveldi.
Liberatorflugvjelar, amerísk
ar, varðar Thunderbolt- og
Mustangflugvjelum, gerðu í
dag árásir á staði í Suður- og
Mið-Þýskalandi. Yeður var all
illt og lentu flugvjelarnar í
hríð, en snjór var allmikill á
jörðu í Þýskalandi. Illa sást
árangurinn af árásunum. Þýsk
ar orustuflugvj elar voi'u fáar
á sveimi, en loftvarnaskothríð
hörð. Nokkrar spreng^ur fjellu
á svissneska bæinn Schaffhaus-
en, en hann er rjett við landa-
mæri Þýskalands. Er búist við
að Bandaríkjastjórn muni biðja
Svisslendinga afsökunar á
þessu.
Wingafe ferst
í flugslysi
London i gærkveldi.
Hinn frægi breski frumskóga
hershöfðingi. Wingate, sem
stjórnaði her þeim, er fyrir
nokkru var látinn síga til jarð-
ar í fallhlífum inni í Mið-
Burma, og sem áður stjórnaði
njósnarsveitum, er fóru langt á
bak við víglínur Japana, er lát-
inn. Fórst hann í flugslysi í
Burma þann 24. f. m., er hann
var á eftirlitsferð. Er álitið að
flugvjelin, sem hann var i, hafi
rekist á fjallshlíð. Allir, sem í
henni voru, biðu bana. Önnur
flugvjel, sem var að leita henn-
ar/hrapaði einnig til jarðar.
Wingate var tvímælalaust
snjallasti frumskógahershöfð-
ingi Breta, einkennilegur maður
og einrænn. Gerðu menn sjer
miklar vonir um árangur af
herför liðs þess, er hann stýrði
nú síðast. — Reuter.
Útvarpsstjóri Breta
segir af sjer.
LONDON í gærkveldi: —•
Robert Foot, forstjóri breska
útvarpsins, hefir sagt af sjer.
Hann gerði það, til þess að taka
við öðru starfi. Eftirmaður hans
verður núverandi frjettastjóri
útvarpsins, Heyley. — Reuter.
Japanor sækja að
borginni Impnl
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til MorgunblaSsins
frá Reuter.
Fregnir frá Nýjudehli herma,
að bardagar fari stöðugt harðn
andi fyrir norðan og norðaust-
an Impal, þar sem Japanar
sækja enn fram, og eru þeir
nú varla meira en um 30 km.
frá borginni,. þar sem þeir eru
komnir næst henni. Enn eru
þeir þarna inni í frumskógun-
um, en meðan svo er, er ekki
hægt að nota flugher gegn þeim
með jafn miklum árangri og er
þeir koma á Impalsljettuna.
Það er í þrem fylkingum, sem
Japanar sækja inn í Manipur-
hjeraði, og að því er fregnir frá
vígstöðvunum herma, hefir nú
tekist að stöðva eina af fylk-
ingum þessum, en hinar sækja
enn fram. — Japanar segja að
hersveitir Burmabúa taki þátt
í sókninni með þeim og hinum
indversku sveitum.
Á Arakanvígstöðvunum eru
bardagar harðir og hafa Jap-
anar verið ■ hraktir ,þar afturá-
bak á nokkrum stöðum, og eins
nærri Hukondalnum, þar sem
hersveitir Stillwells berjast
gegn hinum japönsku sveitum.
Þar hafa Kínverskir herflokk-
ar hrakið Japana úr fjallaskarði
einu. — Reuter.