Morgunblaðið - 05.04.1944, Qupperneq 1
31. árgangur.
76. tbl. — Miðvikudagur 5. apríl 1944
Isafoldarprentsmiðja hJf.
Biskupinri í Ameríku
Hert á loftfsókninni
á Balkanlönd
Manntjófl breska
BLAÐLESENDUR hafa haft tækifæri til að fylgjast með
ferðalagi biskupsins yfir Islandi, herra Sigurgeirs Sigurðs-
sonar. Hefir ferðalag biskups tekist mjög vel í alla staði og
honum sýndur hverskonar sómi víða í Vesturheimi. —
Biskupinn sjest hjer á myndinni með William R. Arnold
hershöfðingja, sem er yfirmaður herpresta Bandaríkjahers.
de Gaulle fœr for-
selavald
T»eir kommúnislar í sfjórn hans.
TÖLUVERÐAR BREYTINÖAR hafa verið gerðar á
})jóðt'relsisnefndinni írönsku. Stjórnin hefir verið endur-
skipulögð og de Gaulle hefir tekið við ýíirherstjórn alls
franska hersins, flotans og flughersins og hefir verið falið
sama vald og FrakklandsfQrseti hafði áður cn Frakldand fjell.
Það vekur einna mesta at- t
hygli í sambandi við endur-
skipulagnihgu Þjóðfrelsisnefnd
arinnar, að tveir kommúnistar
hafa tekið sæti í stjórninni, og
er það í fyrsta skifti, sem komm
únistar hafa fengist til að taka
að sjer ráðherrastöður í stjórn
de Gaulle. Annar kommúnist-
inn fer með innanríkismál, en
hinn verður fiugmálaráðherra.
Báðir eru þessir kommúnist-
ar kunnir fyrir leynistarfsemi
innan Frakklandi og voru báð-
ir þingmenn í franska þinginu
árið 1940.
Forsetavald de Gaulle.
A fundi Þjóðfrelsisnefndar-
innar í dag var de Gaulle falið
sama vald, sem forseti Frakk-
lands fjekk með samþykt þings
ins 3 938, en það v?M crr' m. a.
fólgið í því, að hann getur gert
ýmsar ráðstafanir á eigin spýt-
ur á ófriðartímum og í sam-
bandi við vörn landsins.
skipum sökt
Týndur söngvari finst.
Stokkhólmi: — Króatiski
óperusöngvarinn frægi, Gurgja
Lepee, sem fregnir höfðu bor-
ist um, að væri týndur, kom
tSl Stokkhólms fyrir nokkru í
flugvjel frá Berlín.
Washington í gær.
FLOTAMÁLARÁÐUNEYT-
IÐ hefir birt fregnir um. að enn
hafi Bandaríkjaflotinn sökt 14
japönskum skipum á Kyrra-
hafi.
— Reuter.
rúmlega 600 þús.
LONDON í gær: — Churchill,
forsætisráðherra, skýrði
breska þinginu í dag frá mann-
tjóni Breta og bresku samveld-
islandanna frá byrjun ófriðar-
ins. Manntjónið nemur samtals
667,159 manns, þar af hafa
158,731 fallið. rúmlega 78,000
týndir, 159,000 hermenn hafa
særst og 290.000 eru stríðs-
fangar.
Um helmingur manntjónsins
kemur niður á heimaþjóðinni
bresku.
Á sjónum hefir manntjónið
verið rúmlega 30 þúsund 26
þús. sjómenn hafa farist, en
rúmlega 3 þúsund eru fangar í
óvinahöndum.
Manntjón meðal óbreyttra
borgara er tæplega 110 þúsund
frá stríðsbyrjun, þar af hafa
milli 40 og 50 þúsund manns
farist, en um 60 þúsund særst
svo að flytja hefir þurft í
sjúkrahús.
Ekki eru hjer taldir með þeir
borgarar, sem farist hafa á sjó.
Stórárásir á Budapest
og Bukarest
BANDAMENN TIAFA IIERT mjög loftsólm sína gegn
jrernaðai'stöðvum og helstu 'samgönguæðum Þjóðverja og
bandamanna þeirra á Balkanskaga síðustu dagana. Tvær
miklar árásir hafa verið gerðar á höfuðborg Ungverjalands
og Iiúmeníu, Budapest og Bukarest. Var varpað um 1000
smálestum á Budapest s.l. sólarhring'og Bukarest hefir orðið
fyrir fyrstu lofárásinni í styrjöldinni.
ísfirðingar ætla að
kaupa sjúkraflug-
vjel
Frá frjettaritara vor-
rfln á tsafirðr.
Rauðakrossdeildin hjer hef-
ir ákveðið að festa kaup á
sjúkraflugvjel. Hefir deildin
í þessu skyni sent. út ávarp til
almennings, um fjárhagslega
aðstoð, en sýslunefnd tsafjarð;
arsýSlu hefir samþykt að
legg.ja fram tíu þúsund krónur
máli jiessu til stuðnings.
Ný rússnesk saga
um samningamakk
við Þjóðverja
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
í NÝÚTKOMNU hefti af
rússneska ritinu „Stríðið og
hinar vinnandi stjettir“ skrifar
Goffman, sem er blaðamaður
við „Rauðu stjörnuna“, grein,
þar sem hann segir, að menn,
„sem sjeu fulltrúar bresk-
amerískra og þýskra auðfje-
laga“, vinni að því með mestu
leynd í Svisslandi að halda við
sambandinu milli breskra og
amerískra auðhringa annars
vegar og þýskra hinsvegar.
„Á meðan miljónir manna
um allan heim eru að hugsa
um, hvernig eigi að fara að því
að vinna á Þjóðverjum og auð-
hringum þeirra, eins fljótt og
auðið er“, segir Goffman, „eru
nokkrir auðjötnar að hugsa
um, hvernig fara eigi að því að
halda auðhringunum við og
endurreisa þá í fullu fjöri að ó-
friðnum loknum“.
Meirhluti Turnopol ú vuldi Rússu
Tilgangurinn með þessum
loftárásum er sagður vera sá
fyrst og fremst að trufla her-
gagna og birgðasendingar Þjóð
verja um þessar borgir til
herja sinna, sem verjast sókn
Rússa í Rúmeníu og við Karp-
atafjöllin. Hersveitir Rússa eru
aðeins 320 km. frá Bukarest.
Árásirnar á Budapest.
Bretar og Bandaríkjamenn
hafa skift á milli sín að gera
loftárásirnar á Budapest. Bret-
ar að næturlagi, en Bandaríkja
tnenn hafa gert loftárásir sínar
í björtu. Eldar miklir komu
upp í borginni í árásunum.
Mikill ótti hefir gripið íbú-
ana í þessari frægu borg, en
þeir voru 1.500.000 fyrir stríð.
Hefir verið ákveðið að flytja
borgarana úr borginni, eftir
því sem við verður komið, því
óttast er fleiri árásir banda-
manna á Budapest.
Amerísku flugvjelamar, sem
gerðu árásina á Budapest,
•komu í þremur flokkum og
gerðu árásir sínar á flugvjela-
verksmiðjur, stálverksmiðjur,
vopnaverksmiðjur og samgöngu
æðar.
Árásin á Bukarest.
Það voru amerískar flugvjel
ar, sem gerðu fyrstu árásinsa
á Bukarest. Voru það flugvirki
og Liberatorflugvjelar, og voru
þær varðar orustuflugvjelum.
Talið er, að mikið tjón hafi orð
ið í árásunum.
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
HERSTJÓRNARTILKYNN-
ING RÚSSA í kvöld greinir frá
því, að meiri hluti borgarinn-
ar Tarnopol, sem verið hefir
eitt aðalvirki Þjóðverja norður
af Dnjester-fljóti, sje á valdi
Rússa. Tarnopol er við aðal-
járnbrautina milli Odessa og
Lvov.
Bardagar hafa staðið yfir í
marga daga í Tarnopol, og seg-
ir í herstjórnartilkynningunni
í kvöld, að Rússar hafi felt 3000
Þjóðverja ,í götubardögum í
borginni síðustu daga. Rússar
segjast hafa tekið 300 þýska
fanga í borginni.
Rússar geta um framsókn á
ýmsum öðrum vígstöðvum. —
Fyrir vestan Dubno segjast þeir
hafa sótt fram og tekið 30 staði.
Innikróaði herinn.
Herstjórnartilkynningin seg-
ir, að Þjóðverjar, sem innikró-
aðir eru fyrir norðan Dnjester,
hafi gert margar tilraunir til
að brjótast út úr herkvínni, en
þær tilraunir hafi allar mis-
tekist. Talið er, að 15 herfylki
sjeu króuð inni þarna og eigi
litla von um undánkomu.
Segja frjettaritarar, að Rúss-
j ar hafi rekið fleyga inn í varn-
iir innikróuðu hersveitanna og
hafi tekist að skifta þeim á
nokkrum stöðum.
Dittmar vondaufur.
i Yfirlitsfyrirlestur Dittmars
hershöfðingja, sem hann hjelt
í kvöld (þriðjudag) um styrj-
öldina í Rússlandi, hefir vakið
nokkra athygli. Lýsti hann
hernaðaraðstöðunni austur þar
á svartsýnan hátt og gat ekki
gefið hlustendum sínum neinar
vonir um, að úr myndi rætast
i fyrir Þjóðverjum á næstunni.
Van Loon látinn
London: — LÁTINN er fyr-
ir nokkru hinn frægi rithöfund
ur og listamaður Hollendingur-
inn Hendrik Willem van Loon,
62 ára að aldri. Hann var borg-
ari í Bandaríkjunum. Fræg-
ustu bækur hans voru „The
Story of Mankind“, „The Home
of Mankind“ og „The Discov-
ery of America“. — Loon teikn
aði jafnan sjálfur myndir í
bækur sínar og þóttu þær frum
legar. — (van Loon átti allmikl
um vinsældum að fagna meðal
íslenskra lesenda).