Morgunblaðið - 12.04.1944, Síða 1

Morgunblaðið - 12.04.1944, Síða 1
31. árgangur. 78. tbl. — Miðvikudagur 12. apríl 1944. Isafoldarprentsmiðja hJ. MIKIL RÁÐSTEFNA HJÁ HITLER Þjóðverjar eru að missa Krímskaga En þeir björguðu liði sínu við Skala - ÚT VORU GEFNAR af Stalin í dag, hvorki meira nje minna en tvær dagskipanir varðandi sóknina á Krim- 'skaga, sem gengur ákaflega hratt. Hafa Rússar þegar tekið borgina Kerch og sótt vestur á bóginn frá henni, um 30 km. Þá hafa þeir brotist inn yfir Perekopeiðið og ! tekið þar allmargar varnarstöðvar. Annar rússneskur her, sem komst yfir lónin austan Perekopeiðis, hefir tek ið mikilvægustu járnbrautarstöð skagans, Djankoi. I herstjórnartilkynningu Rússa er sagt, að Þjóðverj- um hafi eftir harða bardaga tekist að rjúfa hringinn um hinar innikróuðu hersveitir sínar við Skala fyrir suðaust an Tarnopol og leysa þær þar með úr umsátinni. .Bærinn Djankoi á Krim- skaga er mikilvægur vegna þess, að um hann liggja að- aljárnbrautir skagans, bæði brautin til Feodosia og Sevastopol. Virðist svo, sem varnir Þjóðverja gegn land gönguliðinu, sem komst yfir lónin norðan skagans, hafi ekki verið sterkar. Suður við Svartahafið, vestan Odessa, halda Rúss- ar áfram að veita Þjóðverj- um eftirför, en í Odessa sjálfri geysa miklir eldar. Unnu Þjóðverjar mikið tjón áhöfninni. í herstjórnartilkynningu Rússa segir, að herir Koni- ■evs sjeu komnir yfir ána Seret í Rúmeníu á nokkr- um kafla og sæki þar fram í hröðum bardögum, en Þjóðverjar viðurkenna að Rússum hafi nokkuð tekist að sækja fram þarna., — Þjóðverjar höfðu áður til- kynt* að þeir hefðu komist til hjálpar hinu innikróaða liði sínu fyrir suðaustan Tarnopol, en Rússar viður- kenna þetta í kvöld. — Norðar, í Tarnopol, er ekk- ert lát á orustum, en þar fyrir norð-vestan virðast Þjóðverjar vera í gagnsókn og segjast hafa tekið aftur nókkurt landsvæði af Rúss- um. Mapús Kjærnesied skipsfjóri láiinn MAGNÚS KJÆRNESTED, skipstjóri á Skeljungi, andað- ist.í Landakotsspítala síðast lið- inn ' laugardagsmorgun, 53 ára að aldri. Magnús var karlmenni hið mesta, ágætur skipstjóri og' vel látinn af öll- um, sem honum kyntust. Giraud sviftur hersijórn LONDÖN : — Eitt af fyrstu vérkum hinnar lögðu frönsku nefndar“ í AÍgiers var það, að svifta Giraud hershöfðingja yfirstjórn franska hersins, en hana hefir Giraud haft sem kunnugt er, síðan hann og Dc Gaullo tóku að starfa saman í Algiers. Tekur De Gaulle sjálfur við yfirstjórn hersins.. Giraud var boðin staða, sem „eftirlitsmaður“ en það, er raunverulega aðeins nafn- liót, og neitaði Giraud að. |)yggja þetta, ]>ótt De Gaulle ritaði houum brjef Suðm-hluti Rússneskvígstöðvanna framboði Washington: — Wendell endurskjpu- Willkie hefir lýst því yfir opin- ..Þjóðfrejlsis- berlega, að hann muni ekki verða í kjöri við forsetakosn- ingar þær, sem fara í hönd í Bandaríkjunum. Ekki er vitað, hver verður í framboði af hálfu Republikaflokksins. —Verkföllum afljett. London í gærkveldi: -— Námu mannaverkfall það, sem staðið hefir að undanförnu í Yorkhire- hjeraði í Bretlandi, virðist vera leyst í bráð. Eru flestir námu- manna komnir til vinnu. Haf narf ja rðarkau p- sfaður gefur S.Í.B.S. 25 þús. krónur BÆJARSTJÓRN Ilafna r- f.jarðarkaupstaðar samþykti á, fundi sínum 4. þ. m. að gefa Yinnuhæli Sainbands ísl. berklasjúklinga 25 þús. kr. Er ])essi gjöf, sem er. nim- lega 6 krónur á hveru íbúa, bæjarins, hin veglegasta og gott fordæmi, því vitað er að allir kaupstaðir þessa lands verða árlega fyrir skakkaföll- um af völdum berklaveikinn- innar. — Vonandi sína aðrir bæir máli þessu skilning Laval, llusso- lini. Qusling ofl í Berchtesgaden Zúrich' í gærkveldi. —• Einkaskeyti til Morgun- blaðsins frá Reuter. Mussolini er farinn til Berchtesgaden til fundar við Hitler, að því er blaðið ,,Bund“ segir og hefir það fregnina frá ítölsku landa- mærunum. Bætir blaðið við, að þar sje að hefjast ráð- stefna mikil, þar sem við- staddir verði auk Hitlers og Mussolini, þeir Antonescu, leiðtogi Rúmena, Sztojay, forsætisráðherra Ungverja, Laval, forsætisráðherra Vic hystjórnarinnar, Quisling og Pavelitch, leiðtogi Króata dr. Hacha frá Bæheimi og sendiherra Japana í Berlín. Ekki hafði blaðið neitt fregn að af umræðuefni fundar- ins, en fregnin um hann vek ur afar mikla athygli. — Reuter. Stöðug loítsókn dag og nótt Aðalárásin var gerð á Ghent í Belgíu og Tours í Frakk- landi og auk þess var ráðist á fjölda stöðva, einkum þeirra járnbrauta er liggja að Erm- arsundsströndum. Þykir Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. Bandamenn hjcldu uppi loftsökn sinni í alla nótt sem leið og mikinn hluta dags í dag. Eisenhower hershöfðingí var viðstaddur, er nokkrir flugmenn lögðu í árásarleið- angur frá Bretlandi, og ávarp- aði hann þá á þessa leið: „Bráðlega munuð þið fljúga hvíldárlaust myrkranna á' milli, sumir einnig að nætur- lagi. Það getur verið að þið! fáið engan tíma til þess að! borða eða hvílast, eins og þiði eru vanir, en sigurinn er fyr- ir öllu“. Næturárásunum var að þcssu siuní beint gegn sam-, . , göuguleiðum í Belgíu og! Jt U,n’ Frakklandi og sendu Bretar Yfir Þýskalandi í dag. þangað 900 stórar' sprengju- flugvjelar í nótt sem leið. „Bráðum fljúgið þið myrkranna á milli án hvíldar", segir Eisenhower Þjóðverjar sSýfla Guarigiiano London í gærkveldi. Það hefir borið til tíðinda á *bassinovígstöðvunum, að vatn- ið í Guarigliano-ánni hefir sig- ið um fimm fet á einum sólar- hring og er enn að minka. Er haldið að þetta sje verk Þjóð- verja, sem stýfli ána, en ætli síðan að hleypa henni á aftur þannig, að flóðið geri usla í stöðvum bandamanna, sem liggja nærri ánni. — Lítt hefir verið um fallbyssuskothríð í rústum Cassino, og á Anzio- svæðinu var smávægilegu á- hlaupi hrundið. — Reuter. væru háðar yfir Mið- og' Norður-Þýskalandi. Síðar til- kyntu Bandaríkjamenn, að, um 900 flugvirki og Libera- torflugvjelar hafi farið í leið- angur þenna, varðar jafnmörgf frjettariturum þetta benda til um orustuflugvjelum. Ekki þess að innrásin nálgist nú óðum. — 1 dag var svo aftur ráðist á svipaða staði, eink- um þó Charleroi í Belgíu. —,■ Bretar mistu 22 flugvjelar í nótt sem leið, en Þjóðverjar beittu allmörgum prustuflug- t dag snemma tilkyntu Þjóð verjar að harðar loftorustur hafa borist nákvæmar fregnir af árásunum, en ]>ó er vitað að veður var gott. cn mótspyrna liörð. Ráðist var á flugvjela- smiðjur í Oschersleben og Bernberg, en þar eru Junk- ers-flugvjelar smíðaðar. Flug- menn sögðu Þjóðverja hafa. heitt mörgum orustuflugvjel- um, og loftvarnaskothríð hefði verið hörð. Japanar enn í sókn við impal Mountbatten lávarður til- kynnir, að Jnpanar sjeu enri í sókn að Impal, og barist sje nærri Khoima, en Japanar til- kyntu í dag, að þeir hefðu tek- ið þann bæ. Eru skæruliðar Japanar all-ágengir uppi í hæð- unum fyrir norð-austan Impal og leitast við að st.öðva sam- göngur Breta þarna enn frekar en orðið er. Sitja þeir fyrir flutningalestum Breta í frum- skógunum við vegina og skjóta á þær, er þær koma að. Veldur þetta Bretum allmiklum erfið- leikum. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.