Morgunblaðið - 14.04.1944, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 14.04.1944, Qupperneq 1
Höfuðborg Krímskaga d valdi Rússa BRÓÐURSONUR ADOLFS HITLERS er genginn í ameríska flotann. Hann heitir William Patrick Hitler, 32 ára, og er sonur Alois, hálfbróður Adolfs. Frændi Hitlers kom til Ameríku 1939 og hefir ferðast um Bandarikin og flutt fyrirlestra um ástandið í Þýskalandi. — Hjer á mvndinni sjest hann vera að sverja amcríska flotanum hollustucið. 3000 flugvjelar banda- manna fóru til árása á meginlandið í gær London í gærkvöldi. — Einkaskcyti til Morg- unbla'ðsins frá Reuter. TALIÐ ER AÐ BANI)AMENN hafi alls sent um 3000 flugvjelar til árásar í björtu í dag á hernaðarstöðvar og verksmiðjur Þjóðverja í Þýskalandi og hernumdu löndunum. Var aðaláhersla lögð á að eyðileggja járnbrautarstöðvar og aörar samgönguæðar og flugvjelaverksmiðjur. Þiísundir Þjóðverja teknir hön dum í orustunum um Krím London í gærkvöldi. — Einkaskeyti til Morgun- blaðsins frá Reuter. SIMFEROPOL, höfuðborg Krímskagans, og „gimsteinn rússnesku ráðstjórnarríkjanna“, eins og Rússar kalla stundum þá borg, er á ný á valdi Rússa. Þetta var tilkynt í dag í sjerstakri dagskipan frá Stalin marskálki og fall- byssur Moskva borgar tilkyntu borgarbúum nýja sigra í kvöld. Stalin birti þrjár dagskipanir í dag og tilkynti mikla sigra í orustunum á Krím. I þeirri fyrstu var sagt frá falli Simferopol, en í hinum frá falli borganna Eupa- toria og Feodosia, sem báðar eru sagðar hafa verið mikil- væg virki í varnarkerfi Þjóðverja. Kommunisti í stjórn Badoglo! Napoli í gær. — Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. Eftir Cecil Spriggs. ÞAÐ ER NÚ mikið rætt um framtíð Badogliostjórnarinnar hjer, einkum eftir yfirlýsingu Viktors Emanúels konungs um að hann muni segja af sjer, er bandamenn hafa tekið Róma- btírg. Það, sem menn ræða mest er það, hvort Badoglio muni mynda nýja stjórn, eða taka fulltrúa frá stjórnarandstöð- urini inn í stjórn sína. 'Þýðing- armestu embættin 1 stjórninni verða embætti h^ianríkismála- ráðherra-embættið og utanrík- ismálaráðherra-embættið. Á hinum fyrrnefnda hvílir ábyrgðin á því, hvað gert verð- uc við itölsku fasistana, en á hinum síðarnefnda framkvæmd þeira loforða, að Italir taki þátt í ófriðnum með bandamönrium. Hjer ganga þær sögur, að Badoglio muni bjóða Palmiro Togiatti embætti utanríkis- málaráðherraps, en hann er kunnur kommúnistaleiðtogi. Bretar vitja ekki „iána" Hess til Washingion NEW YORK í gærkveldi: — Blaðið New York Post segir í frjettagrein í dag, að breska stjórnin hafi neitað að verða við þeim tilmælum Banda- ríkjastjórnar að „lána“ Rudolf Hess til Washington til þess að hann yrði leiddur sem vitni í máli 30 óeirðamanna, sem leidd ir verða fyrir rjett á mánudag- inn kemur. Blaðið segir, að Bandaríkja- stjórn leggi mikla áherslu á að fá sannanir fyrir starfsemi nas- ista utan Þýskalands. Reuter gat ekki fengið þessa fregn staðfesta í London í kvöld. Kolanámamenn ganga inn á 4 ára vinnufrið LONDON í gærkveldi: — Breskir kolanámuverkamenn hafa gengið inn á kauptillögur stjórnarinnar fyrir næstu fjög- ur ár. Var þetta samþykt á landsþingi kolanámuverka- manna í dag. — Reuter. Ásásirnar á Þýskaland. 500 amerískar sprengjuflug- vjelar og 750 orustuflugvjelar, sem bækistöðvar hafa í Bret- landi, fóru til árása í dag á Suður- og Vestur-Þýskaland. Voru gerðar harðar árásir á fjórar borgir og voru Augsburg og Sweinfurt á meðal þeirra. í þessum leiðöngrum kom til mikilla loftbardaga. Skutu Bandaríkjamenn niður 76 þýsk ar flugvjelar. Orustuflugvjel- arnar skutu niður 51 og sprengjuflugvjelarnar 25. I þessum árásarferðum mistu Bandaríkjamenn 36' srengju- flugvjelar og 8 orustuflugvjel- ar. Árásir á rúmenskar og ungverskar borgir. Amerískar flugvjelar, sem bækistöðvar hafa á Ítalíu, fóru 1 dag til árása á borgir í Ung- verjalandi og Rúmeníu. Voru árásir þessar harðar, en ekki hafa borist fregnir um flugvjela tjón í þessum árásum. Breskar flugvjelar fóru*til á- rása á Budapest í nótt sem leið og ollu miklu tjóni. Fyrir utan þessar aðalárásir hafa hundruð breskra flugvjela farið í dag til loftárása á sam- gönguæðar í hernumdu löndun- um. Frakklandi, Belgíu og Hol- landi. Svissiendingar skjóta niður ameríska flugvjel ZURICH í gærkveldi: — Það er opinberlega tilkynt hjer í kvöld, að margar amexáskar flugvjelar hafi lent víðsvegar í Svisslandi í dag. Þegar þetta skeyti er sent, eru enn að berast fi’egnir um ame- rískar flugvjelar, sem hafa nauðlent hingað og þangað í landinu, en als hafa borist á- byggilegar fregnir um 10 flug- vjelar, sem lent hafa. Þi-jár amerískar flugvjelar lentu heilu og höldnu á Dtiden- dorf-flugvellinum. Svissneska útvai’pið sagði frá því í kvöld samkvæmt opinber- um heimildum, að svissneskur orustuflugmaður hafi skotið niður eina ameríska flugvjel, sem neitaði að lenda, er Sviss- lendingurinn ætlaði að neyða hana til þess. Flugvjel þessi fjell í Zui’ich-vatnið. — Reuter. (Amerískar flugvjelar, sem hafa bækistöðvar á Ítalíu, fóru til árása á Ungverjaland í gær og er skýrt frá því á öðrum stað hjer í blaðinu). Tyrkir selja Þjóðverjum krém London í gærkveldi. Tyrkir hafa lengi selt Þjóð- vei’jum allmikið af ki'ómi, en að undanförnu mun þessi sala hafa minkað nokkuð, eða þar til er bandamenn hættu að láta Tyrki fá hergögn. Tók þá salan að aukast aftur og er nú orðin allmikil. Hefir sendiherra Bi’eta í Ankara verið falið að mótmæla þessai'i sölu, og leggja áhei'slu á það við tyrk- nesk yfii'völd, að bandamenn líti mjög alvax’legum augum á þessi viðskifti. —* Reuter. 20 þúsund fangar. Það vekui’ mikla athygli í íi'egmxni frá Rússlandi, að Rússar geta um að þeir hafi tekið þúsundir faiiga í bar- dögnnum á Krímskaga. Segir í herst jórnart i 1 kynningunni, að fjórði úkrainski herinn hafði í dag tekið 11,000 fanga og sjóliðahersveitir á Krínf 9,000. Ilafi þó ekki unnist tími til að telja alla fanga entx og megi búast við að talan aukist enn. - » Sókn Rússa á Krímskaga er mjög hröð ennþá. I útvarpi frá Moskva í kvöld er bent á, að Krímskaginn sje mjög attð- ugur að málmuxn og að í hafn- arborgum skagana hafi rúss- neski Svarthafsflotinn haft aðalbækistöðvar sínar. Sigr- arnir á Krím muni bæta hag Rússa mjög rnikið fjárhags- lega og beú' muni eiga sinn mikla þátt í að Rússum takist, á næstunni að ná öllu því rússneska landi, sem enn sjó á valdi Þjóðverja. Sókn frá Odessa 1 herstjórnartilkynningu Rússa í kvöld er skýrt frá því, að eftir mikla bat’daga liafi Rússar tekið borgina Ovidop fyrir vestan Odessa, sem sjo hjeraðsmiðstöð Odessahjer- aðins. Ennfremur hafa margir aðrir staðir verið teknir á þess um slóðum. í fyrradag eyðilögðu Rúss- ar 35 skriðdreka fyrir Þjóð- verjum. segir í herstjórnar- tilkynningunni og skutu niður 38 þýskar flugvjelar. Rússar hefja útvarp í Teheran. Ankara í gærkveldi: —• Fregnir frá Iran herma að Rússar hafi fengið leyfi hjá stjórnarvöldunum þar, til þess að útvarpa í klukkustund dag- lega frá útvarpsstöðinni í Te- heran. Talið er að útvarpað verði erindum um Rússland og Rússa. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.