Morgunblaðið - 18.04.1944, Page 1
31. árgangur.
85. tbl. — Þriðjudagur, 18. apríl 1944
Isafoldarprentsmiðja h.f.
Bretar gera dður óþekkta rdðstöfun
Banna allar dulskeytasendingar sendisveita
Aílur póstur sendi
ráða ritskoðaður
Suiaustur-Evrópa
Loftsókninni beint
gegn Suðaustur-Evrópu
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
I DAG og nótt sem leið, enn-
fremur í gær, hefir flugher
bandamanna á Italíu haldið
uppi stöðugri sókn gegn stöð-
um í Suðaustur-Evrópu, bæði
í 'Júgóslavíu, Búlgaríu, Rúm-
eníu og Ungverjalandi. Megin-
árásirnar voru gerðar á borg-
irnar Bukarest, höfuðborg Rú-
meníu, Sofia, liöfuðborg Búlg-
aríu, og einnig var ráðist á höf-
uðborg Júgóslavíu, Belgrad. —
Aðallega hafa árásir þessar ver
ið gerðar á járnbrautir og flug-
vjelasmiðjur.
Alls var ráðist á 18 staði, en
harðastar voru árásirnar á
Sofia, Bukarest og Belgrad. —
Þá var ráðist á Ploesti, Nish í
Júgóslavíu og Brno. Hinar aust
ustu af þeim stöðvum, sem á
var ráðist, voru um 200 km. frá
þeim stað, sem framsveitir
Rússa eru á, við Karpatafjöllin.
Flestar borgirnar, sem ráðist
var á, eru auk þess birgðastöðv
ar fyrir heri Þjóðverja, sem í
Rússlandi berjast, og' á þetta
einkum við um borgir Rúmeníu
og Ungverjalands. — Aðrar eru
'þannig, að þar eru flugvjela-
Iverksmiðjur þýskar, sem Þjóð-
verjar hafa nú um svo að segja
alla Suðaustur-Evrópu.
Þjóðverjar segja, að eigna-
tjón og manntjón hafi orðið
mikið í Sofia, Bukarest og Bel-
grad. Kveða þeir sig og Rú-
mena hafa grandað 17 flugvjel
um bandamanna yfir Bukarest
og Ploesti.
Sænsk blöð ræða
orðsendingar
bandamanna
Stokkhólmi: — Sænsk blöð
ræða nú mjög orðsendingar
bandamanna til stjórna hlut-
lausra ríkja um að þau hætti
viðskiftum við Þýskaland, og
segir stærsta blað Svíþjóðar,
„Dagens Nyheter" í þessu sam-
bandi, að það sje harla einkenni
legt framferði af bandamönn-
um, sem segist berjast fyrir
því, að milliríkjasamningar
sjpu haldnir og í heiðri hafðir,
að fara fram á það við þjóðir,
að þær svíki slíka samninga.
Fleiri blöð eru einnig all harð-
orð í garð bandamanna vegna
orðsendinga þessara. — Reuter.
Rólegt á Ítalíu.
London í gærkveldi: — Ekki
hefir mikið markvert borið til
tíðinda á Italíu, einungis verið
framvarðaskærur á vígstöðvum
áttunda hersins, ásamt smá-
viðureignum á landssvæði
bandamanna við Anzio. — Lítið
var um bardaga í lofti.
m
sfopol
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
FREGNRITARAR í Moskva
segja seint í kvöld, að varnir
Þjóðvex’ja við Sebastopol fari
harðnandi, enda sje erfitt um
sóknarskilyrði, þar sem Rússar
sækja fram, þar eð landslag
umhverfis borgina er mjög vel
til varnar fallið. Eru bardagar
harðir á þessum slóðum, og
kveðast Þjóðverjar hafa unnið
Rússum mikið tjón.
Rússar segja í herstjórnar-
tilkynningu sinni, að þeir hafi
haldið áfram sókninni við Se-
bastopol, þrátt fyi’ir erfið skiD
yrði, bæði vegna landslags og
harðra varna Þjóðverja. Kveða
þeir Þjóðverjá hafa komið fyr-
ir miklum virkjum í hæðum og
skóglendi á þessum slóðum.
Við Dniester segjast RúSsar
vera að tryggja aðstöðu sína,
þar sem þeir eru komnir yfir
ána, en Þjóðverjar gera sífeld
gagnáhlaup.
Annarsstaðar á vígstöðvun-
um’ seg-ja' Rússar, að' ekki hafi
verið um annað að ræða en
staðbundnar viðureignir. Var
herstjórnartilkynning Rússa ó-
venju stutt að þessu sinni.
Þjóðverjar skýra í herstjórn-
artilkynningu sinni frá hörðum
bardögum við Sebastopol og
við Dniester. Ennfremur kveð-
ast þeir hafa sótt fram fyrir
austan Stanislavo og náð eam-
bandi við leyfar setuliðsins. í
Tarnopol. Þá segjast þeir hafa
hrundið árásum Rússa á Rúm-
eníuvígstöðvunum og við Dni-
ester.
Sænska þingið á lok-
aðan fund.
Stokkhólmi í gærkveldi: Ut-
anríkismálanefnd sænska þings
ins kom saman á fund í dag, og
er talið, að rætt hafi verið um
orðsendingar Breta og Banda-
ríkjamanna viðvíkjandi við-
'skiftum við Þjóðverja. Þingið
er talið munu fjalla um þessi
mál á lokuðum fundi, sem hald
inn verður bráðlega. — Reuter.
London í gærkvöldi. — Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
BRETAR TÓKU í KVÖLD ÞAÐ SKREF, sem gersam-
lega er óþekkt í sögu utanríkismála, þeir bönnuðu öllum
senidsveitum erlendra ríkja í London að senda heim dul-
málsskeyti, og hjeðan í frá verður allur póstur frá sendi-
sveitunum og til þeirra að fara í gegnum breska ritskoð-
un um óákveðinn tíma. Undanþegnar eru þó sendisveitir
Bandaríkjanna, Samveldislandanna bresku og Rússa.
Þetta er gert í öryggisskyni vegna hinnar væntanlegu
innrásar, þannig, að ekki berist fregnir um undirbúning
hennar úr landi eftir neinum leiðum.
Þá er einnig lagt bann við því, að nokkur meðlimur
sendiráða erlendra ríkja í Bretlandi fari úr landi, nema
þeirra sendiráða, sem fyrr getur, þar sem álitið er, að
þeir gætu borið með sjer fregnir um innrásina. Er sagt
í tilkynningu bresku stjórnarinnar, um þessi mál, að ráð-
stafanir þessar, sem ekkert fordæmi eiga sjer í verldar-
sögunni, muni vernda fjölmörg mannslíf í komandi
átökum.
Mountbatten flytur
bækisföðvar stnar
London í gærkvöldi:
MOUNTBATTEN lávarður,
yfirmaður bresku herjanna í
Indlandi og Burma, hefir flutt
aðalbækistöðvar sínar frá borg
inni Nýju-Delhi í Indlandi til
eyjarinnar Ceylon við suður-
odda Indlands. Kom hann
þangað í flugvjel í morgun með
horráðsforingjum sínum og var
vel fagnað af setuliðsstjórn
eyjarinnar. — Reuter.
Óeirðir í Sidney
vegna útgátubanns
á ífAflhlAl'Slim
«ð WH^jMIWÍiaBð
London í gærkvöldi.
LÖGREGLAN HANDTÓK
nokkra menn í Sidney í dag, er
1000 háskólastúdentar mót-
mæltu pólitískri ritskoðun með
kröfugöngu. Áður hafði borgin
verið dagblaðalaus í tvo sólar-
hringa, sökum deilu, er risið
hafði milli útbreiðslumálaráðu
neytisins og formanns fjelags
blaðaútgefenda. Rjeðist formað
urinn þá á ritskoðunina og birt
ust um hana háðuleg ummæli
í blöðunum Daily Telegraph
og Morning Sun. Voru blöðin
samstundis sett undir útkomu-
bann af lögreglunni, og enn-
fremur önnur blöð í borginni,
sem ætluðu að prenta grein
blaðaútgefendasambandsins, en
það voru öll blöð borgarinnar.
Nú hefir hæstirjettur kveðið
upp þann úrskurð í málinu, að
bannið á blöðunum hafi verið
ólögmætt, en málið er ekki að
fullu útkljáð enn. Hið bannaða
blað af Sidney Sun komst í
hendur fjölda manna, því að
starfsfólk blaðsins kastaði þús-
undum eintaka af því út um
glugga ritstjórnarbyggingar-
innar. ' — Reuter.
ÞJOÐVERJAR hafa lagt
þriggja mílna breitt tundur-
duflabelti meðfram allri vest-
urströnd Jótlands
Eins og kunnugt er, hafa
símskeyti, póstur og sendi-
menn sendisveita hvar sem
er í heiminum, verið ger-
samlega friðhelgt. — Ekki
mátti hrófla við skeytum
nje brjefum, heldur varð alt
slíkt að sendast, eins og það
kom frá sendanda. — Ekki
mátti heldur rannsaka far-
angur manna, sem voru í er
indagerðum fyrir sendisveit
lands síns í framandi landi.
Bannið gekk í gildi á
miðnætti. Stjórnin gefur
meðal annars þær skýring-
ar á þessum fyrirskipunum,
þar sem rofinn er einn sá
rjettur, sem helgastur hefir
verið talinn í viðskiftum
þjóða í milli, að með þessu
skuli fyrirbygt, að nokkur
sendi fregnir af hinni vænt-
anlegu innrás, annað hvort
í hugsunarleysi eða í frjetta
skyni við sína eigin þjóð.
Póstur frá sendiráðum er
innsiglaður þar, og er inn-
siglið ekki rofið, fyrr en
póostpokarnir koma á við-
tökustaðinn. Þetta breytist
nú þannig, að pósturinn
verður rannsakaður þegar,
er hann kemur úr sendiráð-
inu og gengur gegnum
venjulega ritskoðun. Tekið
er fram, að hver einasta
fregn, sem á kreik kæmist,
gæti haft mikil áhrif á það,
hvernig innrásin tækist.
Bresk blöð hrósa yfirleitt
þessari ráðstöfun.