Morgunblaðið - 20.04.1944, Page 1

Morgunblaðið - 20.04.1944, Page 1
Hitler 55 Gagnsókn Þjóðverja við Stanislavo fer harðnandi HITLER ríkiskanslari er 55 ára í dag og hermir Reuter- fregn af því tilefni, að ýmislegt verði um dýrðir í Þýskalandi. Mun Göring gefa út dagskip- an, þar sem hann þakkar Hitl- er fyrir stjórn hans í nafni þjóð arinnar, og einnig munu all- margar nýliðadeildir verða teknar í fjelagsskapinn „Hitl- ersæskuna" af þessu tilefni. — Ekki er vitað, hvort Hitler læt- ur nokkuð til sín heyra að þessu sinni. — Göbbels flytur ræðu (iÖHBELS flutti ræðu í Operumii í Berlín í kvöld í fiiefni 'af ai'mæli Hitlers og sagði, eftir því sent þýsktt, fr.iettástofan hermir, meðal ánnars: „Eoringinn er bæði' fiá sern talar fyrir þýsku þjóðina og framkvæmir vilja hennar. —- Frá fyrsta degi þessarar styr.jaldar hefir ]>að aldrei komið fyrir, að einn. einasti hermaður legði niður ropn sín og gerðist liðhlaupi við foringja sinn, og ckki hefii- heldur einn einasti verka maður lagt frá sjer verkfæri sín. Eg hefi öðlast þá hanit higju að vera nærri foringj- anum, bæði á glöðum og al- viii-u stundum, og cg hefi al- drei sjeð hann cfast eða hika. Ilann er sá af nútíma stjórn- málamöhnum, sem er einstak- ur að því leyti, að haim sjer. altaf hættuna í tírrup Ilann' jtarfnast vor nú eins mikið' og vj'er þörfnuðumst hans. Ilættur og ógnir blasa við’ honutu, en þæi’ hafa þ,jappað| oss þjettar saman í fylking- uiiiti um hann. Vjer treystiím honum og háiiti mun leiða oss til sigurs. Hann skipar — vjer hlýöunu — Iíeuter. Og þeir verjast enn í Sevastopoi London í gærkvöldi. — Einkaskeyti til Morgun- blaðsins frá Reuter. RÚSSAR skýra frá því í herstjórnartilkynningu sinni, að gagnsókn ÞjóÖverja á svæðinu fyrir austan Stanis- lavo fari stöðugt harðnandi, en segja ennfremur að þeir hafi enn hrundið flestum áhlaupunum. Þjóðverjar segjast hinsvegar hafa unnið á við Karpatafjöllin og tekið þar bæinn Nivurna, en hann stendur við fjallaræturnar, eigi allfjarri einu skarðinu í fjöllunum. — Rússar segja að Þjóðverjar beiti þarna miklum fjölda skriðdreka og fót- gönguliðs, en Þjóðverjar kveða ungverskar hersveitir sækja þarna fram með hinum þýsku. Fregnritarar segja frá því að sókn Þjóðverja sje nú hafin á því nær öllu svæð- inu milli Stanislavo og Jassi í Rúmeníu og sjeu hvar- vetna harðar orustur. Sunnar, við neðri Dniest- er, segjast Rússar hafa unnið að því að tryggja að- stöðu sína, þar sem þeir eru komnir vestur fyrir fljótið, og hafi það tekist, þrátt fyr- ir mikil gagnáhlaup þýskra og rúmenskra hersveita. — Munu Rússar vera komnir yfir fljótið eigi alllangt frá Kisinev, en það er megin- bækistöð Þjóðverja í Bessl arabíu. Ailhörð árás á London London í gærkveldi. ALLHÖRÐ loftárás var gerð á London í nótt sem leið, og einnig á ýmsa aðra staði í suð- ur- og suðausturhlutum Bret- lands. Skemdir urðu víða og manntjón nokkurt. 13 flugvjel- ar voru skotnar niður yfir Bretlandi, en ein yfir flugvelli í Frakklandi, þar sem hún var að lenda eftir árásina. — Reuter. Bænskrá iil Brefa- konungs London í gærkveldi. RÆTT VAR í breska þing- inu um ákvæði stjórnarinnar að banna verkföll. Töldu ýmsir þingmenn stjórnina ekki hafa haft heimild til þess, án þess að spyrja þingið. Urðu um þetta allmiklar umræður, og árang- urinn sá, að nokkrir þingmenn úr ýmsum flokkum tóku sig saman um að senda bænarskrá til Bretakonungs, þar sem beð- ið er um það að afnema fyrir- skipanir þessar. — Reuter. Skuiu niðursam- herja sína. Washington i gærkvöldi. HERMÁLARÁÐUNEYTIÐ til- kynti í kvöld, að ameríski flug herinn hefði mist 10 flutninga- flugvjelar og 440 menn í fall- hlífaliðsorustunum um Catania á Sikiley í fyrra, nóttina milli 13. og 14. júlí 1943. — Tjón þetta var að kenna Bretum, sem ekki vissu að vinir voru á ferð, er liðsauki var sendur þeim til brúar einnar. Bretar biðu einnig tjón, en það var minna. Orustur umhverfis Imphal London í gærkveldi. FYRIR norðaustan og suð- austan borgina Impal, höfuð- borg Manipurhjeraðs í Indlandi er nú barist af miklum ákafa. Er einkum barist af hörku um hæðir nokkrar fyrir suðaustan borgina, og eru ekki úrslit enn sýnileg i þeim viðureignum. —■ Hafa þær staðið í tvo daga. Japanar segja, að Bretar hafi sent fallhlífaherlið til Im- palsvæðisins, til þess að ljetta undir í vörn borgarinnar, og kveða þeir einnig orusturnar snarpar. Þá er barist þar sem Japanar hafa rofið vegnnn milli Kho- ima og Assam-járnbrautarinn- ar. Flugvjelar bandamanna hafa haft sig mjög í frammi og komu allar aftur. Þær grönduðu sex japönsk- um flugvjelum. — Reuter. Klutlausu hióðirnar óánægðar Sevastopol brennur. í herstjórnartilkynningu Rússa segir ennfremur, að þeir hafi getað tekið nokkr- ar stöðvar við Sevastopol, en vörn Þjóðverja sje þar mjög' hörð. Fregnir frjetta- ritara hermdu, að Rússum hafi tekist að uppræta all- mikla þýska og rúmenska liðsflokka á ströndunum nærri Balaklava. — Ekki er þetta staðfest í herstjórnar- tilkynningu Rússa, og ekk- ert gefið í skyn um það, að Þjóðverjar hafi enn gert neina meiri háttar tilraun til þess að koma liði sínu á brott af Krímskaganum. Eldar loga nú víða í Seva- síopol og sprengingar heyr- ast tíðum þaðan. Loftárás á Lvow. Margar rússneskar flug- vjelar gerðu seint í kvöld harða loftáráo á Lvow, en sú borg er aðalbækistöð sókn- arherjanna við Stanislavo. Segja Rússar að þar hafi komið upp allmiklir eldar. Báðum aðilum, ber saman um það, að á öðrum hlutum vígstöðvanna hafi ekkert markvert til tíðinda borið. Loftsóknin í allan London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. BANDAMENN hjeldu áfram loftsókn sinni allan daginn í dag og' var henni að þessu sinni aðallega beint gegn Vestur- Þýskalandi og stöðvum í Frakk landi, Hollandi og Belgiu. Mestu árásirnar voru gerðar á staði í Westfalen og voru þar að verki fjölmörg flugvirki og Liberatorflugvjelar, varðar um 750 orustuflugvjelum. Veður var gott og heiðskírt loft, en mótspyrna Þjóðverja var minni en að undanförnu, bæði af hendi orustuflugvjela og loft- varnaliðs. Fimm flugvjelar stórar fórust en tvær orustu- flugvjelar. Flugmennirnir kveð ast hafa skotið niður 21 þýska orustuflugvjel. Næiurárásir. Breski flugherinn hefir sjaldan eða aldrei sent eins margar flugvjelar til árása og hjelt áfram gærdag I í nótt sem leið, en að þessu sinni fóru þær ekki til Þýska- j lands, heldur beindu árásum sínum að ýmsum stöðum í Frakklandi, einkum þó að tveim járnbrautarbæjum nærri París. Hinsvegar rjeðust Mos- quitoflugvjelar, sem nú annast. allan næturhernað Breta gegn Þýskalandi, á Berlín og fleiri staði. En aðrar flugvjelar lögðu tundurduflum á siglingaleiðir Þjóðverja. Alls komu 14 flug- vjela Breta ekki aftur úr at- ’ögum þessum. Yfir Ermarsund. í svo að segja allan dag hafa flugvjelar farið yfir um Erm- arsund, til þess að gera árásir á stöðvar Þjóðverja á Calais- svæðinu. Voru þar að verki Liberatorflugvjelar, meðalstór- ar sprengjuffUgvjelar og fjöldi orustuflugvjela. Veður var gott en loftvarnarskothríð hörð. — Ein Liberatorflugvjel kom ekki aftur. Zurich í gærkveldi: SVISSNESK blöð eru gröm í garð Breta fyrir það, að þeir hafi skert athafnafrelsi er- lendra sendiherra í Bretlandi. Telja Svisslendingar þetta brot á alþjóðalögum, og segir blað- ið „Bund“, að þetta sje alger- lega andstætt þeim skoðunum, sem þeir segist berjast fyrir. — Sænsk blöð segja margt svip- að um þetta mál og hin sviss- nesku. — Reuter. Húsnæðisvandræði í Þýskaiandi I<ONDON í gærkvöldi: — Þýska frjettastofan segir í kvöld, að til þess að ráða bót á húsnæðisvandræðunum í land- inu hafi verið fyrirskipað, að innrjetta geymslur á loftum og í kjellurum til íbúðar og einn- ig að skifta stórum íbúðum nið ur í minni. Enn fremur hefir svo verið fyrirskipað, að öllum ónauðsynlegum skrifstofuher- bergjum' og iðnaðarhúsnæði skuli breytt í ibúðarhúsnæði og gert íbúðarhæft. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.