Morgunblaðið - 25.04.1944, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 25.04.1944, Blaðsíða 12
3?riðjuda,gTxr 25. apríl 1944, tmdmeislara- , Roberf Taylor flugkennari SUNDMEISTARAMÓT ÍS- 'LANDS hófst í Sundhöllinni í gærkveldi. —- Kept var í sjö Sundgreírium. Úrslit urðu sem hjer segir: 100 m. frjáls aðferð karla: 1. Stefán Jónsson (Á) 1:06,4 mín,, j 2. Óskar Jcnsen (Á) 1:07,1 mín.,.1 3. Ari Guðmundsson (Æ) 1:07,3 min og 4. Rafn Sigurvinsson (KRj 1:09,6 mín. j ísiandsmet á Jónas líaiidórs- , son (Æ) 1:03,7 mín. 100 m. baksund karla: — 1. Guðin. Ingólfsson (ÍR) 1:21,0 min . 2, Pjetur Jónsson 1:29,6 Kiín. og 3. Leifur Eiríksson (KR) 1:32,3 mín. Isl. met á Jónas Halldórsson (Æ) 1:16,2 mín. Jónas Halldórsson hefir géfið bikar íil' kepni um í þessu suncii . Verður hann unninn- til eignar ;w^V] þrísvar sinnum í röð eða 5 sinn um alls og ennfremur ef sigur- vegari setur nýtt met. — Guðm. Ingólfsson, sem vann að þessu sinni er aðeins 14 ára. 200 m. bringusur.d karla: 1. Halidör Lárusson (Umf. Aft- urelding) 3:03,9. 2. Sigurður Jónsson (KR) 3:4,5. 3. Magn- úí; Kristjánsson (Á) 3:06,6 og 4, Hörður Jóhannesson (Æ) 3:07;3 mín. Halldór Lárusson er frá Brú- arlandi í Mosfellssveit, en hefir aðailega æft sund í Reykhoiti. Hann er 17 ára. Rjett er að taka það fram, að hann og Sig- urður Jónsson, sem hefir unn- ið þetta sund undaníarin ár, syntu ekki í sama riðli. ísl, met er 2 :55,6 sett af Sig- urði Jónssyni í fyrra. 100 m. bringusund drengja: í Marteinn KristinSson (Æ) 1:36,5. 2. Stefán Hallgrímsson- (Æ) 1:36,7 og 3. PálT Jórissori (KR) 1:34,0 mín. 100 m. bringusund kvenna: 1. Unnur Ágústsdóttir (KR) 1:41,0 mín., 2. Greta Ástráðs- dóttir (Á) 1:42,4 mín og 3. Kristín Eiríksdóttk- (Æ) 1:43,0 mír. - ísl. met er 1:33,5, sett af Þo. - björgu Guðjónsdóttur (Æ). 3x50 m. boðsund drengja: 1. sveit I. R. 1:55,5 og 2. Ægir (A-sveit) 1:56,8. — Kepni var afar hörð og skemtileg. 4x50 boðsund karla: 1. sveit Ægis 1:56,0 mín., 2. A-sveit Ármanns 1:57,4 mín. og 3. A- sveil K. R. á 2:00,0 mín. — Kepni var afar hörð og tvísýn. Mátti lengst af ekki á milli sjá. ísl. met á Ægir, 1054.7 mín. Mótið, heldur áfram annað kvöld. V'erður þá m. a. kept í 400 m, bringusundi, 400 m. frjálsri aðferð, 4x50 m, boð- sundi kvenna, 3x100 rn. boð- sundi karla. — Má þá gera ráð fyrir skemtilegri kepni. Læknaíjeiagið gefur 10 |ms. kr. til danskra flótta maiuia. I GÆR barst söfnuninni til hjálpar dönskum flóttamönnum höfðíngleg gjöf. — Voru það 10 þús krónur frá Læknafjelagi Reykjavíkur. i Hinn kunni kvikmvndaleikari Robert Taylor er nú orðinn undir- f foringi í ameríska flúghernum og flugkennari. Myndin sýnir bann (til vinstri) vera að ræða við samstarfsmann sinn einn á flugstöð í Bandarikjunum, iýtt Itraðírysti- hús á Eyrarbakka ánnað bindi ai Sögu ! íslendinga í veslur- heimi komið NYTT HRAÐFRYSTIHUS hefir verið reist austur á Eyrar bakka, og mun það sennilega geta tekið til starfa upp úr n, k. mánaðarmótum. Var unnið að því í vetur að reisa húsið, en vjelar eru frá Vjelsmiðjunni Hjeðinn hjer í Reykjavík og hefir smiðjan sjeð um alla niðursetningu þeirra. Því verki er nú senn lokið. — Mun það geta tekið tií vinslu um 20 smálestir af fiski á dag. Það er nýtt hlutafjelag — Hraðfrystistöð Eyrarbakka h. f. — sem stendur fyrir bygging- unni. — Stofnfundur þess var haldinn s. 1. sunnudag. I stjórn fjelagsins voru kosn- ir: Magnús Magnússon, útgm., Vigfús Jónsson, trjesmíðameist- ari, Gísli Jónsson, bóndi. I vara stjórn: Sigurður Kristjánsson, kaupm. og Jón Helgason, for- maður. Endurskoðendur: Sig- urður Guðmundsson og Sigurð- ur Oli Olafsson, Selfossi. Stofnfje hlutafjelagsins er yf- ir 250 þús., þar af eru um 70 þús. frá gömlum Eyrbekking- um, búsettum í Reykjavík. Hlut hafar eru 187, — Mikill áhugi manna er ríkjandi á Eyrar- bakka á hraðfrystihúsinu. ANNAÐ BINDI af Sögu Is- lendinga í Vesturheimi, eftir Þorstein Þ. Þorsteinssono og sem Þjóðræknisfjelagið fyrir vestan gefur út, er nú komið hingað til lands. Útsölu á bók- inni hjer á landi annast Bókaút-' gáfa Menningarsjóðs og Þjóð- vinafjelagsins. Hefir hið nýja bindi verið sent til áskrifenda víðsvegar um land, en því mið- ur bárust ekki fleiri eintök en svo, að ekki er víst að hægt sje að selja neitt í bókabúðum að sinni. í fyrra bindinu var sagt frá útflutningi íslendinga og „Forn öld Vestmanna“, en í öðru bindi er aðallega rakin saga íslend- inga vestan hafs á árunum 1855 —1875. Er bindinu skipt í tvö aðalkafla, fyrstu útflutningun- um til Utha, 1855 og til Brasi- líu, 1863 og síðan er skýrt frá hinum almennu vesturferðum frá 1870—1875. Bókin er prentuð á góðan pap pír og er prentun og band bók- arinnar hið vandaðasta. Vörusendingar í stað þeirra er fórust með Rafni. Þjóðverjar hættir að sýna frjettamyndir í Oslo. Frá norska blaðafulltrúanum: — FRÁ OSLO berast fregnir um, að síðasta mánuðinn hafi Þjóðverjar ekki sýnt hinar viku legu þýsku frjettakvikmyndir sínar í kvikmyndahúsunum í Osló. Almenningur lítur þannig á þetta, að það sje loftárásum bandamanna á Þýskaland að þakka, því Þjóðverjum hefir verið mjög ant urn að sýna Norð mönnum frjettakvikmyndir MORGUNBLAÐIÐ hefir snú ið sjer til Pálma Loftssonar framkvæmdastjóra og spurt hann, hverjar ráðstafanir yrðu gerðar til að koma vörum á þær hafnir, er m.b. Rafn átti að fara til. Framkvæmdastjórinn skýrði svo frá, að vörur yrðu' sendar, í stað þeirra, er fórust með bátnum. Fóru þær með Esju, sem fór hjeðan í gær, austur um land til Siglufjarð- ar. Ekki myndi þó skipið koma á allar hafnirnar, en til þeirra, er útundan yrðu, myndi Þór fara. Varðarfundur í kvöid LANDSMÁLAFJELAGIÐ VÖRÐUR heldur fund í kvöld í Sýningarskálanum. Er þetta fyrsti fundrir fjelagsins á þessu starfsári þess, eða eftir aðal- fund fjelagsins. Á fundinum í kvöld mun Jó- hann Hafstein, framkvræmda- stjóri Sjálfstæðisflokksins, flytja erindi um lýðræði, þró- un þess, form og hugsjónir. Lýð ræðið er nýtt og gamalt við- fangsefni, og enn í dag gjör- samlega í deiglunni. Það er ínik ið talað um lýðræði en minna hugsað um hvað það sje í eðli sínu og hvernig. til komið og hver framtíð þess muni vera. Eftir þennan lið dagskrár- innar talar Eyjólfur Jóhanns- son, formaður Varðar, um lýð- veldiskosningarnar, en hann er formaður Lándsnefndar lýðveld iskosninganna. Þjóðaratkv'æða- greiðslan um lýðveldisstofnun- ina og sambandsslitin ki-efst ár vekni og vakandi áhuga hvers og eins og ríður mjög á því að sjerhver fjeíagssamtök geri sitt til þess að aðstoða og' vinna að atkvæðagreiðslunni. Að lokum mun Ragnar Lár- usson ræða um fyrirhugaða fjelagssamkomu, 'er haldin verð ur næstkomandi föstudag. Fjelagsstarfsemi Varðar er nú margþætt og' öflug, Ættu fjelagarnir að sækja fundinn í kvöld vel og stundvíslega, Samsöngur Kariakórs Akureyrar Frá frjettaritara vor- um á Akureyri. KARLAKÓR AKUREYRAR hjelt samsöng í Nýja Bíó á Ak- ureyri s. 1. sunnudag, söngstjóri Áskell Snorrason. Á söngskrá voru lög, þar af 8 eftir íslenska höfunda, Björgvdn Guðmundsson, Sigfús Einarsson, Sveinbj. Sveinbjörns son og Áskel Snorrason. ■—■ Einsöngvarar kórsins eru Jó- hann Konráðsson og Sverrir Magnússon. , Tilheyrendur voru mjög margir og tóku þeir söngnum ágætlega. Voru mörg laganna endurtekin og eitt aukalag sungið. Má fullyrða, að kórinn hefir tekið miklum framförum á þessu ári. — Raddþjálfari kórsins hefir Jóhann O. Har- aldsson verið í vetur. Uppreisn í gríska KAIRO í gær: — Bæld hefir verið niður uppreisn meðal grískra hermanna og sjóliða í Egyptalandi. Á þremur grísk- um herskipum varð að nota vald til að bæla uppreisnina nið ur. Óánægja hafði risið upp milli hermannanna út af grísku ríkis- stjórninni. Heimtuðu þeir, að forystumenn föðurlandsvina í Grikklandi fengju sæti í stjórn- inni. Rússneski sendi- herrann býður ti! kvikmyndasýningar RÚSSNESKI sendiherrann hjer bauð í gærdag allmörgu fólki til að horfa á kvikmynar- sýningu í Tjarnarbíó. Var þar sýnd rússnesk kvikmynd, sem heitir ,,Vjer munum koma aft- ur“, og segir hún frá baráttu rússneskra skæruliða, sem berj- ast bak við viglínu Þjóðverja og valda þeim miklu tjóni. Er starfsemi rússneskra skæruliða vel kunn af frjettum úr styrj- öldinni austur þar. Meðal boðsgesta á þessari kvikmyndarsýningu voru ræð- ismenn erlendra ríkja hjer í bænum, Key hershöfðingi og fleiri liðsforingjar setuliðsins,. ennfrémur f jöldi bæjarbúa. „Vjer munum koma aftur15 sýnir raunverulega þætti, sem gerst hafa meðal rússneskra skæruliðá, að því er segir í for- mála fyrir myndinni, en mynd- in er þó samfeld saga um einn ákveðinn skæruliðaflokk. Koc- het skæruliðaforingi cg liðs- menn hans berjast við Þjóðverj ana og valda þeim margri skrá- veifunni. Það er engin miskun sýnd á hvorugan bóginn og’ mannslífin eru ekki talin mik- ils virði. Myndin er vel ieikin og vel tekin. Talið er á rúss-- nesku, en enskur texti er til skýringar. Þó hingað hafi borist margar átakanlegar sögur af grimd Þjóðverja og miskunnarleysi á báða bóga í þessari styrjöld, þá eiga menn bágt með að skilja að slíkt æði hafi gripið menn, eins og myndin lýsir. Þetta er sagt án þess að dregið sje í efa sann leiksgildi þess, sem kvikmynd- in lýsir. Þó grimd, hatur og tak- markalaus bardagavilji ein- kenni myndina frá upphafi til enda, eru inn á milli verulega falleg atriði, eins og t. d. söng- ur skæruliðanna og hin inni- lega fyndni hins rússneska al- þýðufólks, sem berst fyrir til- veru sinni. Mynd þessi mun síðar verða sýnd hjer fyrir almenning. Landsliðskepni í skák 5. UMFERÐ I landsliðskepn- inni í skák var tefld s. 1. sunnu- dag. Leikar fóru þannig, að Ás- mundur vann Óla, Einar vann Eggert og Magnús G. Jónsson vann Steirigrím. Biðskákirnar úr fjórðu um- ferð voru tefldar í gærkveldí. Úrslit urðu þau að Óli Valdi- marsson vann Einar Þorvalds- son og jafntefii varð milli Egg- erts Gilfers og Magnúsar G, Jónsonar. Þar með er fimm fyrstu umferðunum lokið. Viningar standa nú þannigr Árni Snævarr 3V& (2) Ásmund- ur Ásgeirsson 2Y2 (2) Magnús G. Jónsson 2Vz (1), Óli Valdi- marsson 2% (1) Eggert Gilfer 2 (2) Einar Þorvaldsson 2 (2) og Steingrímur Guðmundsson 0(2). Tölurnar í svigum merkja skákafjöldann, sem keppendurn ir eiga ótefidann. 6. umferðin verður tefld n, k. fimtudagskvöld í Kaupþings salnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.