Morgunblaðið - 05.05.1944, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.05.1944, Blaðsíða 1
31. árgangur. 98. tbl. —■ Föstudagur 5. maí 1944 Isafoldarprentsmiðja h.f. Göbbels skoðar lión í Berlín GOBBELS áróðursráðherra Hitlers er hjer á myndinni um- kringdur af nasistaforingjum. Hann er að skoða uppdrátt af Ber- iín, þar sem sýnt er hvar mesta tjón hefir orðið af loftárásum handamanna á borgina. Japanar ná þýðingamtikilli járnbraul í Kína. Chunking í gœrkv. ■lapanar sœkja nú hratt fram að þéini .stöðvum, sem Kínverj ar hafa enn á sínu valdi með- fram Peiping-Hanko'w- járn- brautinni í Ilonanfylki í Mið- Ivína. Barist er af mildum móði um þessa mikilvægu hrau.t, og herstjórnartilkynn- ing 'Kínvefja hermir í kvöld, að japanskur her. sem sækir up]f með járnbrautinni . frá Suðhr-IIonan, hafi tekið l>æ- inn ’Mingkiang um 30 km. fyr- ir norðan Sinyang. og áð aðr- ir japanskir herir sem sækja í suðnr, sjeu rjett fyrir vest- an bæinn Yengcheng. Ilafa Kínvcrjar nú minna en helm- ing járnbrautarinnar á valdi sínn, og er tálið líklegt að þeir nái henni allri innan 'skamms. Markmið .Tapan er það, að tengja saman hið hernumda Norður-Kína og Mið-Kína og í öðru lagi að reyna að ein- angra 14. ameríska fiugher- inn frá stöðvum í Austur- Kína, sem hægt væri að nota til árása á Japau. Deflf unt vopna- framleiðslu Stokkhólmi. A fundi í Svíþjóð, þar sem rætt var um ýms mál að af- lokinni styrjöldinni, sagði full- trúi sænsku vopnasmiðjanna, Bofors, að verksmiðjur þessar myndu ekki láta sjer skjátlast eftir þetta stríð, eins og hið sío- asta, með því að fara að fram- leiðá allskonar aðrar vörur, en vopil og hergögn, heldur myndi Bofors halda áfram að fram- leiðá vopn og hergögn fyrir erlendan markaö. - Þéssi. yfirlýsing. fulltrúans' hafði það í för rneð sjer, að ílokksdeild Socialdemokrata í Lundi mótmælti ummælum hans kröftuglega og kvað út- flutning vopna og vígtóla frá Svíþjóð eftir stríð setja srhán- arblett á þjóðma. Bæjarsfjóm Isa- fjarðar vlll banna áfengissölu A FUNDI bæjarstjórnar ísa- fjarðar í gærkvöldi var eftir- farandi tillaga í áfengismálun- um samþykt einróma: „Bæjarstjórn ísafjarðar lítur svo á að ástand það, sem nú er ríkjandi í áfengismálunum sje í alla staði óviðeigandi og skor ar því á Alþingi og ríkisstj.órn að loka áfengisútsölunni hjer og um leið að herða eftirlitið með óléyfilegri sölu og brugg- un áfengis. Bæjarstjórnin skal leita samstarfs við bæjarstjórn Reykjavíkur, sem nýlega hef- ir samþykt samskonar áskor- un, og einnig við aðrar bæj- arstjórnir, ef þær samþykkja áskorun í sömu' átt og að fram- an er greint“. Rússar byrja loftsókn gegn Sevastopol fiarlir bardayar hálir vil Jassi bæjarstjórn Reykjavíkur í UPPHAFI bæjarstjórnar- fundar í -gær las borgarstjóri upp svohljóðandi brjef frá bæj ari'ulltrúa Árna Jónssyni frá Múla: Reykjavík, 4. maí 1944. Jeg leyfi mjer að tilkynna yður hr: borgarstjóri, að jeg, hjer með segi mig úr bæjar- stjórn Reykjavíkur og neind- um þeim, er bæjarstjórn hefir kjörið mig í. Virðingarfylst, Árni Jónsson. Er borgarstjóri hafði lesið upp brjef þetta, bar forseti það undir fundinn hvort hann væri úrsögninni samþykkur. •— Var hún samþykt með samhljóða atkvæðum. De Gaullesinnar dregnir fvrir rjefi London í gærkveldi. Parísarútvarpið tilkynti í gærkvöldi, að forsprakkar skæruliða, sem teknir hefðu verið til fanga eftir bardaga í Savoyenhjeraði. myndu verða dregnir fyrir herrjett, er Vichystjórnin lætur setja á stofn. Er talið, að þetta sje gert í hefndarskyni fyrir það, að De Gaulle hefir, eins og kunnugt er, látið draga all- marga Vichy-Frakka fyrir her rjett í Algiers og dæma þá til dauða. — Reuter. Svíar hjáipa frönskum börnum Stokkhólmi. SKÝRSLUR hafa nú verið gerðar um hjálp þá, sem sænski Rauði Krossinn hcfir látið frcnskum börnuin i tje. Bár- ust skýrslur þessar frá sænska sendiráðinu í Vichy. Allt. sem sent var til Frakklands, bæði matvæli og annað, kom þangað óskemt og hafa verið útvegaðar fyrir það ágætar geymslur í Marseilles og Lyon. Þrjú hundr uð skólabörn í Marseilles fá eina máltíð á dag, en 600 börn í Nizza fá matgjafir þrisvar í viku. London í gærkvöldi. — Einkaskeyti til Morgun- blaðsins frá Reuter. RÚSSAR segja í tilkynningu sinni í dag, að ekkert hafi markvert gerst á vígstöðvunum í Rússlandi, og Rúmeníu, og fjallar tilkynning' þeirra aðallega um loftárásir á ýmsa staði, en hinar mestu á Sevastopol, þar sem sagt er að Þjóðverjar og Rúmenar hafi orðið fyrir mjög miklu tjóni á mönnum og birgðum. — Þjóðverjar greina frá harðn- andi orustum við Jasi og hjá Serethfljóti. Sférárís á birgðastöð Þjóðverja London í gær. BRETAR sendu mikinn flug- flota í nótt sem leið, til þess að eyðileggja eins og hægt væri mikla birgðastöð Þjóðverja, er könnunarflugvjelar banaa- manna höfðu áður komið auga á. Var stöð þessi í skógi ein- um, skamt fyrir sunnan borg- ina Rheims. Voru þarna ýmsar hernaðarnauðsynjar geymdar, t. d. mikið af skriðdrekum og bifreiðum. Flugvjelar bandamanna fundu skotmarkið og gerðu á það mjög harða árás. Er búist við að tjón hafi orðið geysimikið. Sáust koma upp margir stórir eldar. Þjóðverjar vörðu þessar stöðvar af mikilli hörku og voru næturorustuflugvjelar þeirra alls staðar á sveimi. — Margar loftorustur voru háðar og geysiharðar. Eltu þýsku or- ustuflugvjelarnar flugvjelar Breta allt til Ermarsunds. Þjóð- verjar segja að einn næturflug ma'ður þeirra, Bergmann, að nafni, hafi skotið niður 6 flug- ■vjelar þessa nótt, allar fjög- urra hreyfla. Nokkrar orustu- flugvjelar Þjóðyerja voru skotnar niður. Breskar flugvjelar rjeðust á fleiri staði þessa nótt, meðal annars á Ludwigshafen. Alls komu 49 sprengjuflugvjelanna ekKi aftur. — Reuter 2,200 komnir heim Stokkhólmi. TILKYNT hefir verið hjer, að 2,200 menn af sænska þjóð- arbrotinu í Eií tlandi sjeu komn ir heim til Svíþjóðar. Alls eru 70,000 manns af sænskum ætt- um í Eistlandi. Flestir þeir, er komnir eru til Svíþjóðar, hafa flúið frá Eistlandi. [ Það var í nótt, sem leið, að mikill fjöldi rússneskra sprengjuflugvjela rjeðist að herflokkurn, birgðastöðvum og stórskotastöðvum á Sev- astopolsvæðinu, og varð af geysilegt tjón að sögn Rússa. Komu upp miklir eldar og sprengingar urðu allmiklar. Rússar kveðast hafa gert loftárásir á ýmsa aðra staði og Þjóðverjar segjast einnig gera Rússum þungar búsifj- ar í loftárásum, sem beint er gegn flutningaleiðum Rússa. Við Jassi. Þar segja Þjóðverjar frá áhlaupum Rússa, og einnig við Serethfljótið. — Segja Þjóðverjar, að árásir Rússa þarna hafi verið snarpar og vel undir búnar. Uruð bar- dagar mjög harðir og neydd ust Þjóðverjar og Rúmenar fyrst í stað til þess að hörfa, en gerðu bráðlega gagn- áhlaup og tókst að rjetta hlut sinn aftur. Þjóðverjar segja einnig frá átökum fyrir suðaustan Kowel og bardögum við skæruflokka fvrir vestan Vitebsk í illfæru skóglendi. Curtiii hrósar Bref- um London í gærkveldi. CURTIN, forsætisráðherra Ástralíu flutti ræðu hjer í Lon- don í dag og gerði að umræðu- efni afrek Breta í styrjöldinni og hældi þeim mjög.Kvað hann samveldislöndin einnig hafa stutt Breta með ráðum og dáð, t. d. heföu Ástralíumenn sent Bretum 50% af öiium skotfær- um sinum og 25% af öllum rifflum, sem til voru í Ástralíu árið 1940, er Bretar stóðu einir eftir fall Frakklands. — Sagði Curtin að Bretar hefðu sýnt mikinn hetjuskap með því, að berjast erlendis, meðan heima- landið var í hættu. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.