Morgunblaðið - 05.05.1944, Page 11
Föstudagur 5. maí 1944
MORGU NBLAÐIÐ
11
Fimm mínúlna
krossgáta
3
¥
1
Lárjett: 1 fita — 6 kona — 8
ending — 10 tvíhljóði — 11 val
— 12 tveir eins — 13 einkennis-
stafir — 14 verkfæri — 16
hreinsar.
Lóðrjett: 2 fangamark — 3
snýr saman — 4 guð — 5 krefja
— 7 eyja við ísland — 9 vindur
— 10 bókstafur — 14 frumefni
•— 15 tónn.
Tapað
SJÁLFBLEKUNGITR
merktur, „Halla“, týndist í
gær í Miðbænum. Skilist til
Morgunblaðsins.
Kaup-Sala
TÚNÞÖKUR
til sölu Baugsveg 26, sími
1929.
GÓLFTEPPI
til sölu. Til sýnis á Öldugötu
47, niðri, eftir kl. 1.
2 HESTAR
til siilu. Til sýnis að Hjarð-
arhólti við Langholtsveg eftir
kl. 5.
Vandaðir
KLÆÐASKÁPAR
til sölu. — Sími 2773.
MINNIN G ARSP J ÖLD
Barnaspítalasj óðs Hrings-
ins fást í verslun frú Ágústu
Svehdsen.
MINNIN G ARSP J ÖLD
Frjálslynda safnaðarins fást-
lijá ■ prestskonu safnaðarins á,
Ivjartansgötu 4, Ástu Guð-
jónsdóttur, Suðurgötu 35, Giuð
nýju Vilhjálms, Lokastíg 7,
Maríu Maack. Þingholtstræti
25.
Vinna
HREIN GERNIN GAR
Magnús og Björgvin.
Sími 4966.
HREIN GERNIN GAR
Pantið í tíma. Guðni og
Þráinn. Sími 5571.
FERMINGARKORT
Frjálslynda safnaðarins fást
í öllum bókaverslunum.
HREINGERNINGAR
Pantið í síma 3249,
Birgir & Bachmann.
HREIN GERNIN GAR
Sími 5474.
Útvarpsviðgerðarstofa
niín er nú á Klapparstíg,
36 (sími 2799). — Ottó B.
Amar, útvarpsvirkjameistari.
a b ó L
126 dagur ársins.
Árdegisflæði kl. 4.40.
Síðdegisflæði kl. 15.57.
Ljósatími ökutækja frá kl.
22.45 til kl. 4.05.
Næturlæknir er í læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Fjelagslíf
ÉFINGAR I KVÖLD:
Austurbæjarskólanum
O. 914: Fimleikar, 1.
flokkur karla.
Á íþróttavellinum:
Kl. 8: Frjálsar íþróttir og nám
skeiðið. Kl. 714: Knattspyrna,
3. og 2. flokkur.
Á IvK-túninu:
Kl. 8: Knattspyrna 3 fl.
Knattpymumenn!
Meistaraflokkur er beðinn að
mæta hjá íþróttalækninum kl.
7—8 í kvöld.
Stjóm K.R.
VALUR
heldur fund fyrir meistarafl.,
I. fl. og II. fl. í kvöld kl. 8,30
í V.R. við Vonarstræti. Sam-
eiginleg kaffidrykkja. Þess er
fastlega vænst, að sem flestir
Vals-menn mæti.
Stjórnin.
ÁRMENNINGAR!
lJ Iþróttar/fingar fje-
lagsins í kvöld í í-
þróttahúsinu:
í minni salnum:
Kl. 7—8: Öldungar, fimleikar.
Kl. 8—9: Ilandknattl., kvenna
í Stærri- salnum:
Kl. 7—8: II. fl. kvenna, fiml.
Kl. 8—9: I. fl. karla, fimleikan
Kl. 9—10: II. fl. karla, fiml.
Á íþróttavellinum:
Frjáls-íþróttamenn, æfing verð
ur á íþróttavellinum í kvöld
frá kl. 8—10 síðd. Mætið allir.
Stjóm Ármanns.
ÁRMENNIN G AR
Skíðaferðir í Jósepsdal í dag
kl. 2 og á laugardagsköld kl.
8. Á sunnudagsmorgun kl. 9.
Farseðlar í Versl. Hellas,
Tjarnargötu 5.
Stjóm Ármanns.
H. K. R. R.
Ilraðkeppni í handknattleik
hjá 1. aldursflokki karla, fer
fram á íþróttavellinum þ. 18.
maí n.k. og liefst kl. 2 e. h.
Keppt verður í 7 manna liðum
á 40x25 m. stórum leikvelli.
Iveppnin er útsláttarkeppni,
leiktími 2x15 mín. Tilkynning-
ar um þátttökn sendist stjórn
Glímufjelagsins Ármann eigi
síðar en viku fvrir mótið.
Stjórn Ármanns.
U.M.F. Reykjavíkur
tilkynnir: Iþróttanámskeiðið
hefst í Austurbæjarskólanum
í kvöld kl. 8—9. Kendar verða
þá frjálsar íþróttir. Mánudag-
inn 8. ]). mán, kl. 8—9 byrj'ar
kensla í ísl. glímu. •
Stjórnin.
Næturvörður er í Lyfjabúð-
inni Iðunni.
Næturakstar annast Bs. Hreyf
ill, sími 1633.
I.O.O.F. = 12655814=9. II III.
Hjónaband. Á sunnudaginn
kemur þ. 7. maí, gifta þau sig í
Berkeley í Californíu, ungfrú
Helga Valtýs og Björn Thors
hagfræðistúdent.
Sr. Octavíus Þorláksson gef-
ur þau saman. Heimili þeirra
verður 2416 Hillside Avenue
Berkeley, Californiu.
Breiðfirðingafjelagið heldur
sumarfagnað sinn í Listamanna-
skálanum í kvöld kl. 9. —
Skemtiatriði verða: Upplestur,
sr. Jón Thorarensen og Lárus
Pálsson leikari, leikþáttur, söng
ur og dans. Aðgöngumiðar fást
í versluninni Grundarstíg 2,
rakarastofunni Ingólfsstræti 3 og
Hattabúð Reykjavíkur, Lauga-
vegi 10.
Hjónaband. Nýlega voru gef-
in saman í hjónaband í Vík í
Mýrdal ungfrú Svala Magnús-
dóttir og Ingólfur Sæmundsson,
bílstjóri.
Eyjólfur Jónsson, Hverfisgötu
90 er fertugur í dag. Eyjólfur var
annar þeirra manna, sem komst
af er Reykjaborg var sökt.
Sextugur er í dag Gísli Þor-
steinsson, skipstjóri, Ránargötu
29.
Haraldur Á. Sigurðsson, leik-
ari, er einn af höfundum revý-
unnar nýu, „Allt í lagi, lagsi“.
Nafn hans hafði fallið niur í
blaðinu í gærmorgun.
Aðalfundur „Fáks“ verður
haldinn í kvöld kl. 8,30 í fund-
arsal Alþýðubrauðgerðarinnar
við Vitastíg.
Fertugsafmæli átti 3. þ. m. frú
Steinunn Jóhannesdóttir, Vind-
heimum við Blesagróf.
Til hjónanna, sem brann hjá,
afh. Morgunbl.: A. G. 25 kr.,
Elsu, Anní og Bent 50 kr., Starfs-
fólk hjá Hraðfrystistöð Reykja-
víkur 520 kr., Jón, Hilmar og
Ragiihildur 50 kr., S. V. B. 5 kr.
G. J. E. 50 kr., M. H. 50 kr.
Til danskra flóttamanna: —
Mæðgur kr. 50,00, Starfsfólk
Viðskiftaráðs 257,00, E. F. H.
25,00, N. N. 25,00, Hrafn 50,00,
Jónína Sveinsdóttir 50,00, Sól-
veig Einarsdóttir og Bjarni Jóns-
son 100,00, Guðni Brynjólfsson
50,00, Starfsstúlkur í saumastofu
Henny Ottósson 200,00.
ÚTVARPIÐ í DAG:
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
18.30 íslenskukensla, 1. flokkur.
19.00 Þýskukensla, 2. flokkur.
19.25 Hljómplötur: Hafmonikul.
20.25 Útvarpssagan: „Bör Börs-
son“ eftir Johan Falkberget,
XVIII (Helgi Hjörvar).
21.00 Strokkvartett' útvarpsins:
Ýms þjóðlög útsett af Kass-
mayer.
21.15 fræðsluernidi Stórstúkunn-
ar (Sigfús Sigurhjartarson, al-
])ingismaður).
21.35 Hljómplötur: Lög eftir
Brahms og Hugo Wolf.
21.50 Frjettir.
22.00 Symfóníutónleikar (plöt-
ur): a) Fiðlukonsert í E-dúr eft
ir Bach. b) Symfónía nr. 5 eft-
ir Beethoven. c) Coriolan-for
leikurinn eftir Beethoven.
23.00 Dagskrárlok. ’
fiíkynning
GUÐSPEKIFJELAGIÐ
Enginn guðspekifjelagsfunduí
cr í kvöld, en mánudaginn 8.
Enginn guðspelrifjelagsfundur
inn.
iVjelbáturinn Árni Árnason O.K. 70
| sem liggur strandaður og sokkinn undir Krísuvíkur-
x bergi, er til sölu í því ástandi, sam hann fyrirfinnst
| þar. Tilboð sendist:
VJELBÁTAÁBYRGÐARFJELAGINU SKIPHÓLL,
SandgerðL
V
í dag og næstu daga kl. 2—3 verða keypt
Lítið notuð karlmannaföt
| Lækjargötu 8, uppi (gengið inn frá Skólabrú).
Hinn marg eftirspurði
Blómaáburður
Hyponex, kominn aftur. Laufgaðar birki-
greinar. Pottaplöntur. Afskorin blóm.
Blómabúðin Garður
Garðastræti 2. — Sími 1899.
Tökum að okkur
| y allskonar trjesmíðavinnu. Breytingar og ný-
I byggingar. Tilboð, merkt „Trjesmíði“ send-
I ist Morgunblaðinu.
(♦>
e*Sxí>3>«><$*S>«>S>«>«*$><SKÍ>^<S>S*S*M*í><^<í>3><$><S><S><$'<l*S>«*S*S>^'^^
flý' M
HjermeS tilkynnist ættþigjum oog vinum, aS
móðursystir okkar,
frú GUÐRÍÐUR JÓNSDÓTTIR SAUST
andaðist í Kaupmannahöfn þann 27. mars síðastl.
Guðrún Guðjónsdóttir, Jón Guðjónsson,
Þorbjörn Guðjónsson.
Móðir. mín,
STEINUNN JÓNSDÓTTIR,
andaðist að heinlili mínu, Tjamargötu 48, 2. þ. m.
Fyrir hönd vandamanna.
Böðvar Benediktsson.
.... MJm .UluJW—
Jarðarför
MARGRJETAR EIRÍKSDÓTTUR
frá Ölvesvatni, er andaðist 29. apríl s.l. fer fram frá
Lágafellskirkju mánudaginn 8. maí kl. 2 e. h.
Vandamenn.
Maðurinn minn, faðir okkar og tengdafaðir,
DANÍEL BJARNASON, trjesmiður,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í dag, föstu-
daginn 5. maí. Athöfnin hefst með húskveðju að heim-
ili hans, Aðalbóli við Þormóðsstaðaveg kl. 1 e. h.
Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað. Jarðað verð-
ur í Fossvogi.
Eiginkona, börn og tengdaböm.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við and-
lát og jaðarför móður okkar,
ÖNNU BIERING BERNBURG.
Böm og tengdaböm. (
i