Morgunblaðið - 06.05.1944, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.05.1944, Blaðsíða 1
31. árgangux. 99. tbl. — Laugardagur 6. maí 1944 ísafoldarprentsmiSja h.f. SKEYTI FMÉ KBISTJÆNI KONUNGI X. MEITAR AÐ VIÐURKEIMIMA LVÐVELDI8- 8T0FMI1M MEDAM MIJVERAMDI Á8TAMD ER Orðsending konungs breytir engu Gandhi sleppf Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. SEINT í gærkvöldi var tílkynt í London af hálfu Indlandsstjórnar, að hún hefði ákveðið að sleppa Gandhi úh haldi, án þess að honum sjeu nokkur skilyrði sett. Þessi ákvörðun hefir aðeins verið tekin vegna heilsufars Gandhi og verður hann látinn laus nú þegar. ar. Eregnin um þetta hefir vakið óhemju athygli og mikinn fögnuð - víða, t. d. í Bandaríkjunum. viðtöl við Björn EINS og kunnugt er, fór Björn Björnsson blaðamaður fyrjr nokkru til Stokkhólms og tók þar við starfi sem frjetta- ritari ameríska útyarpsfjelags- ins.N.B.C. — Stokkhólmsfregn irnar herma, að öll sænsku blöðin hafi birt viðtal við Björn, er hann kom til Stokk- hólms til þess að taka við hinu stai'fi sínu. Sameiglnleg yfirlýsing stjórnmóla gr@tar lokkanna og ríkisstjórnar SÍÐASTLIÐINN FIMTUÐAG barst forsætisráðherra landsins ske.yti frá sendiráði íslands í Kaupmannahöfn, sem hafði að fl.ytja orðsendingu frá Kristjáni konung’i tíunda. I orðsendingunni segist konungur ala þá von, að ákvarðanirnar um stofnun lýðveldis á Islandi „verði ekki látnar komast í framkvæmd á meðan bæði ísland og Danmörk eru hernumin af útlendum veldum“. Ennfremur segir í orðsendingunni, að konungur geti „ekki á meðan núverandi ástand varir viðurkent þá breytingu á stjórnarforminu“, sem Alþingi og ríkis- stjórn hafa ákveðið. Ríkisstjórnin tilkvnti.strax förmönnum flokkanna þenna boðskap konungs. — Þeir ræddu svo málið í gær við þá alþingismenn, sem tií náðist. Eftir þær við- ræður gaf ríkisstjórnin og flokkarnir út sameiginlega yfirlýsingu, svohljóðandi: Vatnsskorhir F f London í gærkveidi. Vatnsskortuv mikill er nú lijer í borginni, svo slíkt hefir varla þekkst áður. Svo lítið vatji er í Thamesá, að aldrei hefir það verið ni-inná á þess- um tíma ái\s í manna minnum. Ifafa stjóruarvöldin skorað ;i almenniug að gæta ýtrasta sparnaðár' í vatnsnotkun. — Kr talið að vatnsmagnið sje um hundrað miljónum gallóna .minna en venjulega. Reuter. Yflrlýsing ríkisstjórnar og flokkanna: Vegna frjéttarinnár um boðskap konungs, isstjórn' óg stjórnmálafipkkarnir yfir þessu: lýsa rík- Illviðri stöðva loftsóknina London í gærkveldi. OFSAVEÐUR gerði yfir Do- versuiidi síðari hluta dags í dag, og stöðvaði það loftsókn bandamanna, eftir að hún' hafði verið allhörð allt frá morgni. — Rjeðust sprengjuflugvjelar bandamanna þá á ýmsa staði í Frakklandi og Belgíu, aðallega þó járnbrautir. Voru samtals gei’ðar fimm árásir, hin harð- asta á stað nokkui'n fyrir sunn an Lille i Belgíu. Þá árás gerðu amerískar sprengjuflugvjelar af stærstu gerð. •— Síðar fóru minni flugvjelar til árása á staði í Norður-Frakklandi. All- að flugvjelarnar kornu aftur. — Engir loftbardagar urðu. Arás á Budapcst og Rúmeníu. I nótt sem leið var gerð árás á höfuðborg Ungverialands, Budapest. — Þá árás frömdu breskar sprengjuflugvjelar frá stöðvum við Miðjarðarhaf. — Vörpuðu þær einkum spi'engj- um á jái’nbrautarstöðvar. I dag gerðu ámerískar sprengjuflugvjelar svo árásir á nokkra staði í Rúmeníu, meðal anpars á Ploefeti, einkum járn- brautarstöðvar þar nærri. — Segja Þjóðverjar að loftorustur hafi orðið harðar. Yfir Buda- pest voru einnig þýskar orust- ur á ferli í fyrsta skifti. 'Það er rjettur íslensku þjóðarinnar sjálfrar og hennar einnar að taka ákvarð- anir um stjórnarform sitt. Alþingi og ríkisstjórn hafa lagt til við þjóðina, að hún ákveði, að ísland verði gert að lýð- veidi, svo sem hugur íslendinga hefur um langan aldur staðið til. Ríkisstjórn og stjórnmálaflokkarnir eru sammála um, að freguin um boðskap konungs geti engu breytt um afstöðu þeirra til stofnunar lýðveldis á íslandi og skorar á landsmenn alla að greiða atkvæði um lýðveldisstjórn- arskrána svo að eigi verði villst um vilja íslendinga. Orðsending konungs: Orðsending sú, sem barst konungi var send blöðunum í gær (5. maí), svohljóðandi: í gær, 4. maí, barst forsætisráðherra símskeyti • frá sendiráði íslands í Kaupmannahöfn um hendur sendi- ráðsins í Stokkhólmi; með orðsendingu frá H. H. Kristjáni konungi X., er hljóðar svo í íslenskri þýðingu: ,,í tilefni af þeim tilkynningum, sem komið hafa frá Islandi um ályktanir Alþingis og ríkisstjórnarinnar við- víkjandi breytingu á stjórnarforminu, óskum Vjer að eft- irfarandi boðskapur sje birtur ríkisstjórn íslands og þjóð. Alla stjórnartíð Vora hefur það stöðugt verið viðleitni Vor að efla velgengni hinnar íslensku þjóðar, og á þess- um árum, þegar stvrjaldarviðburðifnir hafa svo djúp- tæk áhrif á líf'þjóðanna, höfum Vjer reynt að fylgjast með þróuninni á íslandi og nákvæmlega íhugað afstöðu Vora til íslensku þjóðarinnar um leið og Vjer jafnframt höfum einnig haft fyrir augum það, sem mætti verða til hagsmuna fvrir ríkið, sem norrænt ríki. Þeim næmleika Framh. á 2. síðu sprengja stiflugarð London í gærkveldi. Frá aðalbækistöðvnm banda manná á Italíu berst fregn. })css efnis, að breskar steypi- flugvjelar hafi eyðilagt mik- inn stíflugarð, hinn svonefnda Peseara-garð á Suður-Ítalíu, um 20 km. fyrir suð-vetan Chiete-ána. Garður þessi er eigi all- fjarri vígstöðvum áttunda hers ins breska. Það voru Kytty- hawk- og Mustang-flugvjélar, sem rjeðust á stíflugarðinn, og sáust koma í hann mikil sköi'ð er frá var hvorfið, flóði vatnið í áttina til Pescara. Engin flugvjel týndist. Pes- eara er sem kunnugt er, hafn- arborg á Adríahafsströndinni. Reuter. Lofforustur yfir Sevastopol FREGNIR frá Rússlandi herma, að miklar loftorustur hafi staðið yfir Sevastopolsvæð inu að undanförnu. Segja báð- ir aðilar frá miklu flugvjela- tjóni hins. Rússar segjast hafa sökkt fimm þýskum skipum nærri Sevastopol, en Þjóðverj- ar skýra einkum frá loftbar- dögum .yfir vígstöðvunum, og kveðast hafa getað sótt nokkuð fram á Stanislavo svæðinu. — Rússar segja engar breytingar á vígstöðvunum. , —Reuter. Verslunarréðið styður fýðveldis- sfofnunina VERSLUNARRÁÐ ÍSLANDS lýsir yfir eindregnum stuðningi við stofnun lýðveldis á íslandi og heitir á kaupsýslumenn utn land alt að vinna af fremsta megni að framgangi málsins við atkvæðagreiðsluna 20.—23. ipaí.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.