Morgunblaðið - 13.05.1944, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 13.05.1944, Blaðsíða 5
 Laugardagur 13. maí 1944. MORGUNBLAÐIÐ 5 ÁVARP EYJÓLFS JÓHANNSSONAR FORMANNS LÝOVELDISNEFNDARINNAR Hvað er að frjetta af þjóð- aratkvæðagreiðslunni? Þessi spurning er margend- urtekin daglega, af hinum mörgu áhugasömu landsmönn- um fjær og nær. Jeg get ekki notað þessar fáu mínútur, sem jeg hefi hjer til umráða, til frjettaflutnings, þó vil jeg geta þess, að alls hafa kosið, af þeim er dvelja fjar- vistum frá heimilum sínum um 1700 manns. En að 16 dögum liðnum verða ykkur sagðar örlagaríkar frjeltir. Úr því fáið þið að heyra úr- slit þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Úrslit, sem segja, ekki aðeins ykkur kæru landar, heldur öll- um umheiminum, hvort hjer norður í Atlahtshafi býr þjóð sem er þess verðug að setjast á bekk meðal frjálsra og full- valda þjóða. Mjer er þó óhætt að fullyrða að útlitið er mjög gott. Jeg get hiklaust sagt, að jeg hefi ekkert starf unnið um dag ana, sem er jafn ánægjulegt, og að vinna að fyrirgreiðslu lýðveldiskosninganna. Verða var við þann eldlega áhuga, sem fram kemur í símtölum hjeraðsnefndarmanna og ann- ara, er hafa fyrirgreiðslu fyrir þessu máli. Aðaláhyggjur sumra eru í því fólgnar, að svo geti farið að ekki náist í hvert einasta atkvæði sem til er í hjeraðinu. því takmark þessara manna er 100% kosning. Lægsta takmark sem jeg hefi heyrt menn setja sjer er 95 af hundraði. | Fólksbifreið j 3 til sölu og sýnis á Óðins- 1 3 torgi kl. 3—4 og 7—8 í dag I rnmnimmwamiiimmir.niniinniiiniiiniiiiiiiinm 1 I | Starfstúlkur | g óskast. es = 1 i Fjelagsheimili V. K. Vonarstræti 4. £ | uiiniiiiiiinimimiiiiíiim'j'muiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiii Bjartsýni! -r- segja einhverj- ir, það má vel vera, en hvert kemst sá, sem ekki er bjart- sýnn. Forustumenn í fæðingarhjer- aði Jóns Sigurðssonar hafa op- inberlega skorað á hjeraðsbúa að fylkja 100% á kjöi’slað. — Þetta er djarflega og drengi- lega mælt, og hvaða minnis- varða væri hægt að reisa verð- ugri okkar miklu frelsishetju. Það er vitanlegt, að í mörg- um tilfeilum er 100% þáttaka óhugsandi m. a. vegna fjarvista margra landsmanna erlendis, í þeim löndum er ekki næst sam- band við nú. En takmarkið 95% þátttaka ætti engu hjeraði að vera um megn að uppfylla. Það hafa komið fram uppá- stungur til Landsnefndarinnar, að veita viðeigandi verðlaun því hjeraði, er skilaði hlutfalls- lega hæstri tölu greiddra at- kvæða. , Okkar gamla sjálfstæðishetja Sigurður Eggerz hefir slungið upp á því, að láta listamenn gera táknrænt málverk af þess um merkasta viðburði í sögu þjóðarinnar, þar sem m. a. yrði sýnd á táknrænan hátt, útkoma þjóðaratkvæðagreiðslunnar í einstökum hjeruðum. Varð- veita síðan þennan minjagrip í Atþingishúsinu. Landsnefndin telur slíkar framkvæmdir ekki vera í sín- urrt verkahring. En hjer verður sjálfsagt verk efni að vinna fyrir fræðimenn í framtíðinni. Kjörskrárnar koma til með að tala sínu máli, því þær verða að sjálfsögðu geymdar sem sögulegt plagg fyrir aldna og óborna. , Úr þeim verður sjálfsagt af einhverjum saminn listi yfir þá, sem ekki hafa greilt at- kvæði. Er ekki ólíklegt, að fræði- menn hefðu gaman af að flokka þennan lisla, til að sjá hvernig hann skiflist milli kvenna og karla, á hvaða aldursstigi þetta fólk er, og í hvaða hlutföllum það tilheyrir hinum ýmsu stjett um þjóðfjelagsins. Væri því æskilegt að kjörstjórnir til- greindu i athugasemdadálki hverjir það eru, sem af óvið- ráðanlegum ástæðum ekki geta kosið, eru t. d. erlendis, eða hverjar aði’ar sem ástæðurnar kunna að vera. En alt þetta er landsnefnd- inni að sjálfsögðu óviðkomandi. Hýn hvorki getur nje vill haít afskifti eða áhrif í þessu efni. En það má sjerhverjum' vera ljóst, að beslu verðlaunin. sem nokkur gelur fengið, er góð sam viska, um að hafa gerl skyldu sína. Á spjöldum sögunnar. verður skráð útkoman á öllu landjnu, í hverju hjernði. í liverri sveif. sjerhvei’s einstaklings og ef til vill hverrar stjettar. En nú er ekki tími til slíkra boilalegginga, við skulum láta framlíðina um það. Nú ei’u að- eins sextán dagar til stefnu, — að þeim liðnum er um seinan að sýna áhuga. Islendingar! Kastið öllum veraldlegum áhyggjum til hlið- ar þessa daga, öðrum en þeim, að vinna að fyrirgreiðslu þjóð- ax-atkvæðagreiðslunnar, á hvern hátt sem hver og einn best get- ixr. Aldrei hefir nokkur ísleml- ingur fengið vald yfir jafn þjóð helgu máli og þú íslenski kjós- andi hefir þessa xlaga. Hvernig ætlar þú að fara með þetta vald? í fyrsta lagi að koma á kjör- stað og greiða atkvæði með nið- urfelling dansk-íslenska Sam- bandslagasáttmálans, og lýð- veldisstjói’narskrá íslands. — Koma og setja kross fyrir fram an bæði jáin á kjörseðlinum. En auk þess verður hver og einn, sem hefir til þess nokkra möguleika, að leggja fram starfskrafta sína, við hvert það starf sem vinna þarf. Þú, sem býrð fjai’vistum frá heimili þínu, og þú sem ert á förum, og verður ekki heima kjördagana. Eruð þið búnir að kjósa? Ef ekki, þá má ekki draga það lengur. Ef aðstoðar þarf með, verður hún fúslega í tje látin, af næstu hjeraðsnefnd eða fulltrúum lýðveldiskosn- inganna. SJÓMENN! Þið, sem eruð öðrum fremur fjai*vistum frxi heimilnm ykkar, dragið ekki að greiða atkvæði nú þegar. Þó þið ætlið að verða kómnir heim fyrir kjördag, getur margt tafið sjófarandann, enda skaðlaust að greiða atkvæði strax. Það væri sorglegt, ef þið, ís- lensku hrafnistumenn, yrðuð fjölmennir á þeim lista, sem ef til vill verður síðar meir gerð- ur yfir þá, sem ,,gleymdu“ að greiða atkvæði. Viku fyrir kjördag byrjar atkvæðagreiðsla í heimahúsum fyrir þá, er sakir sjúkleika, elli hrörnunar eða heimilisanna, geta ekki sótt kjörfund. Það er mjög áríðandi að þetta starf fari fram á skipulegan hátt. Hreppsljórar eða aðrir kjör- stjórár, sem þessar kosningar annast, þurfa að hafa kynt sjer fyrir fram, hverjir það sjeu, sem æskja þess að mega nota þann rjett, og fara svo boð- leið milli bæja þessa fólks. Þar sem um stærri sveitir er að ræða, eða mikla heimaatkvæða greiðslu, er nauðsynlegt að fá löggiltan mann, hreppstjóra, til aðstoðar við heimakosning- arnar, Slíkar löggildingar verða veitlar af sýslumönnum. Þá or ekki síður þörf ó þess- um undirbúningi i bæjum og kaupstöðum.^ Ef utanhjeraðsmaður dvelur á sjúkrahúsi eða á heimili utan siixnar kjördeildar, má hann samkvæmt úrskurði dómsmála ráðherra greiða þar atkvæði mi þegar, samanber rjett lil heima kjörs, ennfremur að veita megi aðstoð svo sem á kjörstað væri, ef þörf krefur. , Þetta eru viðkomandi kjör- stjórar og hjeraðsnefndir beðn- ar að athuga nú þegai’, sje ein- hver í vafa, ber honum að snúa sjer til Dómsmálaráðuneytis- ins og fá frekari upplýsingar. Það verður mikil þörf fyrir bifreiðar kosningadagana. — Landsnefndin heitir á bifreiða- eigendur að sýna þann þegn- skap að lána bifreiðar sínar, helst endurgjaldslaust. Þar sem takmarkaður bensínskamtur gerir mörgum erfitt að sinna þessari málaleitan, hefir Lands nefndin trygt þeim bifreiða- eigendum, sem vilja vinna fyr- ir atkvæðagreiðsluna i þegn- skaparvinnu, hæfilegan auka- skamt af bensíni. Bifreiðaeigendur! Snúið yður til hjei’aðsnefndanna og til- kynnið þeim, helst sem fyrst, að bifreið vðar sje reiðubúin til afnota fyrir Lýðveldiskosn- ingarnar. EiW er það, senx Landsnefnd- in vilí leggja á ríka áherslu. Það er, að allir, sem mögulega geta því við komið, kjósi strax fyrsta daginn, sem hinar al- mennu kosningar hefjast, en það er Iaugardaginn 20. þ. m. Það hefir ómetanlega þýð- i ingu fyrif kosningarárangur- inn, að sem fæst nöfn verði eftir ómerkt á kjörskránni að kveldi hins fyrsta kjördags. Munið því að kjósa strax laugardaginn 20. þ. m. Munið ennfremur, að stofnun lýðveld- is verður að fylgja niðurfelling sambandslaganna. ,,Munið því að setja kross fyrir framan BÆÐI JÁIN á kjörseðlmum". Fyi’ir nokkrum dögum barst þjóðinni kveðja frá Kristjáni konungi, þar sem hann mólmæl ir lýðveldisslofnun á íslandi, eins og nú standa sakir. Það vekur stórkostlega furðu alþjóðar, að þessi skilaboð skuli koma nú á 11. stundu. eflir að þjóðaratkvæðagreiðslan er haf in og löngu eftir að konungi var kunnugt um, hvernig þessi mál stóðu. Það er- að vísu ekki nýtt í sögunni, að slík skilaboð sjeu send, er líkt slendur á. Við höf- um nærtækasta dæmið frá 1905, er Nórðmenn vildu skilja við Svia og stofnsetja frjálst og fullveðja ríki. Þá komu líka skilaboð frá valinkunnum kon- ungi Svía, þar sem hann mót- mælti þessum aðgerðum Norð- manna. , Við vitum hvernig Norðmenn brugðust þá við. Þeir samþyktu nær einróma með þjóðarat- kvæðagreiðslu, að fara sínu fram og lxlutu fyrir fulla virð- ingu og viðurkenningu um- heims og ekki síst Svía. Nú síanúa þessi tnál hjer á Isiandi þannig, að hvorki konungur, ríkisstjórn, nje Alþingi hafa vald til að skipa þessum málum úr þeim farvegi, sem þau nú eru í. Nú ern úrslitin í höndum ís- Iensku þjóðarinnar. Islenski kjósandi, hver <>g einn, og við allir i sameiningu, nú em úrslitin um frelsi þjóð- arinnar komin í okkar hendur. Sýnum á kjördegi að víð sjeum þeinx vanda vaxin. Góðir fslendíngar! Láfum frjettirnar 24. þ. m. verða frjettir frá samhuga þjóð, sem með framkomu sin.xi hefir skapað.sjer rjett til sætis íneðal bestu þjóða. (Ofanritað ávarp var flutt í útvarpinu, sunnudaginn 30. apríl). niiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiimiiiiiiiiiiuiiiiiiiiimiim | Húsnæði | j| Mig vantar 3—4 herbergja 3 = íbúð, 14. maí eða síðar. — jf g Þrent í'ullorðið í heimili. j| H Fyrirframgreiðsla 10—20 3 3 þúsund. — Tilboð merkt 3 s „Þrent fullorðið — 255“, 3 3 sendist aígreiðslu blaðsins 3 = fyrir þriðjudagskvöld. 3 imiiinMmimMiiiiiiiiiitiimiimmiiiiiiniiuuuiiiimuu Augun jeg hvili T" ,|6 | f með gleraugum | l/ll || T ijniiiiiiiuiuiimiiiiiiiniiiiiiHHiiiuiiHniiimmiHiiiiiiii = vantar á pi-jónastofu, helst a H vana prjónaskap. Uppl. i B Dynjanda h. f. Hverfisgötu 42. | iiiiiiimiuiiiiimiiiiiimiiuiiiiiiimimmiiiimiiiiiiiiiiii Mikið úrval af: Pergament skernium Nýkomið: Leslampar Borðlampar Skermabúðin Laugaveg 15» <$*$'$><$<$>&$><$*$*&&$x&W&$«$<$*$<$*$»$*$><$>&&®<$*$>®<$<$>®<$><$>&&$*$«$«$><$»$x&$<$<fr $$*$*$>$»$><$*$»$><$»$*$>&$>Q>$^>$>&$x$><$*$><$»$x$><$><$»$><$><$x$><$><$><$><$«$<$>&$><$&§*§><&&$x§4 s Tækifærisgjafir Ýmsar fallegar gerðir af siyttum nýkomnar- Versl. Rín Njátsgötu 23. <$>

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.