Morgunblaðið - 18.05.1944, Side 1
31. árgangur.
109. tbl — Fimtudagur 18. maí 1944
líafoldarprentsmiðja h.f.
El
hefii
míim
HÁLFA MILJÓN
TBL I
Fralkkar segfa allan
herinn hafa dvaiið við
skip sín á viky
Alhygiisvsrð ummæli Pðrísarúfvarpsins
London í gærkvöldi. — Einkaskeyti til Morg-
unblaðsins frá Reuter.
JEAN HAROLD PÁQUIS, hernaðarsjerfræðingur Par-
ísarútvarpsins, sagði í erindi í útvarpið í kvöld; þar sem
hann ræddi um innrásina:
„Fregnir frá hlutiausum löndum hafa leitt í ljós í dag,
að Eisenhower hershöfðingi hafi nú 50 herfylki (rúmlega
400.000 manns) og 80.000 fallhlífachermenn í Suður-Eng-
landi, reiðubúin til innrásar. Skip þau, sem flytja eiga
mannfjölda þenna yfir Ermarsund, eru af öllum möguleg-
um tegundum, flutningaskip, innrásarskip, togarar, fiski-
skútur, vjelbátar og liggur nú öll þessi skipamergð í höfn-
um Suður-Englands, sjerstaklega í Bristol og höfnum þar
í grend, en ekki er enn vitað, hvar herskipaflotar banda-
manna halda sig“.
„Innrásarherir bandamanna hafa nú verið við þá staði,
þar sem þeir eiga að stíga -á skip, í heila viku, • og allt
bendir til þess að innrásin verði hafin fyrr en búist er
við“.
,,Það er ómögulegt að
segja nákvæmlega fyrir um
þann tíma, er innrásin hefst,
en varnarherir Þjóðverja
eru fullkomlega reiðubúnir
til að taka á móti, svo Eis-
enhower mun ekki koma að
Rommel óvörum. —- Og á
meðan geisa ógurlegar or-
ustur í Ítalíu. Lítur út fyrir
að þær verði úrslitadrjúgar
í stvrjöldinni“.
Þýskar fregnir herma, að
Rommel sje nú að athuga
virlcin á Atlantshafsströnd-
um og sje vel ánægður. Þá
segja Þjóðverjar, að virkin
sjeu svo sterkbygð, að þau
saki lítt eða ekki, þótt
sprengjur komi beint á þau,
eins og hafi sýnt sig í loft-
árásum undanfarnar vikur.
Bevan læiur undan
London í gærkveldi.
Aneurin Bevan, hinn upp-
reistargjann þingm. breska
\'erkamannaf]okk,sins, hefir nú
lát-ið undan og ritað flokks-
stjórninni brjef, þar sem hann
lofar að hlýðnast skipunum
liennar í framtíðinni. Ilafði
stjórn flokksins gefið honurn
viku frest, til þess að lofa
þessu skriflega, eða verða
rekinn úr flokktnun að örð-
uin kosti. Brjef Bevans Barst
í dag. — Reuter.
(Fregn í blaðinu í gær uyi
það, að það væri Ernest Bevin
verkamálaráðherra, sem ætti
í deilum við flokk sinn, var
á misskilningi bygð).
London í gærkveldi.
í DAG hafa flugvjelar banda
manna ekki farið til árása á
meginland Evrópu, vegna þess,
að veður hefir verið mjög ilt,
norðaustan stormur og sjó-
gangur á Ermarsundi og skygni
mjög vont.
í nótt sem leið voru gerðar
nokkrar smáárásir á ýmsa staði
í Þýskalandi. Engar þýskar
flugvjelar voru yfir Bretlandi.
— Reuter.
Flugvirki hrapar
í Genlofte
í ÚTVARPI á íslensku frá
Berlín í gærkveldi var frá því
skýrt, að nýlega hefði amerískt
flugvirki, fullhlaðið sprengj-
um, hrapað til jarðar í danska
bænum Gentofte, sem, eins og
kunnugt er, er ein af útborgum
Kaupmannahafnar. Sprungu
allar sprengjur f.lugvjelarinn-
ar^ er hún kom niður, og varð
mjög mikið tjón á húsum og
mönnum, að því er fregn þessi
hermdi.
Frakkar nálgast Ádolf Hitler virkin
SuSurhlufi Gusiav-virkjenna í hönd-
um bandamanna.
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
HERIR BANDAMANNA hafa nú rofið og tekið suð-
urhluta Gustaf-virkjasvæðisins, og sækja fram þaðan á-
leiðis að næstu varnarstöðvum Þjóðverja, Adolf Hitler-
virkjunum á þessum slóðum og eru fremstu sveitir banda
manna um 10 km frá þeim. Allur norðurhluti Gustaf-
virkjanna er enn á valdi Þjóðverja og órofinn, einnig
Cassino og næstu stöðvar við þann bæ. Orustur eru harð-
astar í Liri-dalnum. Bandamenn hafa víkkað forvígi sitt
við Rapido.
London í gærkveldi.
FUNDI FORSÆTISRÁÐ -
HERRA þresku samveldisland-
anna lauk hjer í kvöld og flutti
Churchill ræðu við það tæki-
færi. Mælti hann á þessa leið:
„Vjer vitum ekki, hve langt
stríðið verður. Vjer vitum
ekki, hve lengi oss verður neit-
að um sigurinn, eða hvaða
þrengingar Vjer verðum að
biðja þjóðir vorar að leggja á
sig, en eitt erum við algjörlega
vissir um, að þær geta staðist
allar eldraunir, sem fyrir þær
kunna að koma, hve langvinn-
ar og þungbærar, sem þær
kunna að verða, og eftir að þær
eru um garð gengnar munum
við viðhalda sambandi þjóða
vorra og að vjer munum eiga
mikinn skerf í því að leiða þjóð
irnar út úr því myrkri þján-
inga, sem þær ráfa nú í, eins
mikinn eins og vjer höfum átt
í þeirri baráttu, sem nú hefir
bráðum verið háð í fimm ár“.
Hinir forsætisráðherrarnir
fluttu einnig ræður, sem mest
fjölluðu um eflingu og sam-
heldni breska heimsveldisins.
— Reuter.
Breskar flolaflug-
vjelar ráðasl á
stöðvar í Noregi
London í gærkveldi.
BRESKA flotamálaráðuneyt-
ið tilkynti í dag, að breskar
flugvjelar af flugvjelaskipum,
sem varin voru af herskipum
breska heimaflotans, hefðu í
dag gert árásir á skip Þjóð-
verja við Noregsstrendur og
olíugeymslur og aðrar stöðvar
á lahdi um 160 km. fyrir norð-
an Bergen.
Þetta voru Hellcat og Wild-
cat flugvjelar og löskuðu þær
tvö meðalstór skip og e. t. v.
fleiri. Einnig tvo vopnaða tog-
ara. Skotnar voru niður,9 þýsk
ar flugvjelar, en Bretar mistu
5. — Einnig var ráðist á olíu-
geyma og lýsisverksmiðjur. —
Foringi leiðangursins var á
beitiskipinu Royalist. — Ekk-
ert bresku herskipanna sakaði.
Þjóðverjar
búast við
sókn við
Anzio
London í gærkveldi.
ÞÝSKIR herfræðingar láta í'
ljós þá skoðun í útvarpi í
kvöld, að bráðlega megi búast
við mikilli sókn af her banda-
manna á landgöngusvæðinu
við Anzio. Segja þeir heri
bandamanna þar hafa haldið
uppi ógurlegri fallbyssuskot-
hríð í nokkra daga, og margt
annað bendi til þess, að sókn
þaðan„sje í aðsigi. — Reuter.
Rússlandsfari svifl-
ur enibætti
Spi'ingfield, Massachusetts
í gærkveldi.
FYRIR nokkru fór kaþólski
presturinn Orlemanski, sem
hjer er starfandi, til Moskva og
var þar um tíma. Er hann kom
aftur, var honum vikið úr
starfi af kaþólska biskupnum
hjer. Orlemanski, sem nú er
veikur, hefir ritað biskupnum
og lofað að skifta sjer ekki
framar af málefnum, sem ekki
geti samræmst reglum og kenn
ingum kaþólsku kirkjunnar. —
Fregnin er sögð hafa vakið
mikla athygli í Moskva, og tal-
ið, að atburður þessi muni ekki
bæta samkomulag rómversk-
kaþólsku kirkjunnar og Sovjet
ríkjanna. — Reuter.
Fyrir norðan Cassino hafa
engar breytingar orðið, og eru
varnir Þjóðverja þar órofnar
með öllu. — Áttundi herinn á
örðugt um framsókn, en hefir
þó fært út forvígi sitt þannig,
að það er nú um 5 km á breidd
og eru stöðugt meiri hergögn
færð yfir ána.
Þeir, sem komnir eru næst
Hitlervirkjunum, eru Frakkar,
en amerískar hersveitir eru um
16 km frá þeim. Þjóðverjar
verjast af miklum móði í öll-
um Gustaf-virkjunum frá Cass
ino til vesturstrandarinnar.
I Liridalnum hafa Banda-
menn haldi uppi ákafri stór-
skotahríð, og síðan háð harð-
ar orustur í návígi. Hafa Þjóð
verjar fengið liðsauka á þess-
ar slóðir og verjast af mestu
hörku. Segja Þjóðverjar að
orusturnar á Ítalíu nú, sjeu
líkastar hinum mikln varnar-
orustum í fyrri heimsstyrjöld.
Fregnritarar segja, að hröð
sókn sje ekki möguleg, jafn-
vel þótt Glistafvirkin hafi ver-
ið rofin, vegna landlags og
flutningserfiðleika. Flugvjelar
Bandamanna hafa aðstoðað
landherinn mikið í dag. Þjóð-
verjar verja af mikilli hörku
veg einn. sem harist hefir ver-
ið um í allan dag.
LcílGrusliii ylír
Danmörku í gær
London í gærkveldi.
NOKKRAR Mustang orustu-
flugvjelar fóru í árásarleiðang
ur til Danmerkur í dag og
lentu þar í loftorustum. Skutu
þær niður 7 þýskar flugvjelar,
en tvær Mustang-flugvjelanna
komu ekki aftur. Mustangflug-
vjelar hafa ekki sprengjur
meðferðis. — Reuter.