Morgunblaðið - 31.05.1944, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 31.05.1944, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ S Vliðvikudagur 31. maí 1944 • i Kappreiðar Fáks annan hvítasunnudag KAPPREIÐAR Hestamanna- Ijelagsins Fákur fóru fram á Skeiðvellinum við Elliðaár, 2. hvítasunnudag. Kept var í fimm flokkum, 5 hestar í hverjum flokki, skeiði og slökki og loks til úr.slita. Skeiðhcstar, 1. flokkur. Hlaupabraut þeirra var 250 metrar. Flokksverðlaun voru veitt. Fyrstu 135 kr. Önnur 55 kr. og metlaun 800 krónur. — Mettími er 24.2 sek., eiga það tveir hestar: Sjúss, eigandi Ferdinand Hansen, var það sett á-rið 1928, en árið 1934 rann Fluga, eign Þorgeirs Jónssonár frá Vai'madal skeiðið á sama tíma. Fyrstur varð Randver, Jóns Jónssonar frá Varmadal, rann hann skeiðið á 24,8 sek., annar _Þokki, Friðriks Hansen, Lög- bergi, Gullbrs. á 26 sek., þriðji Valur, Eyjójfur Gíslason, Rv. Randver vann nú Daníelsbikar til eignar, en hann hlýtur sá hestur sem fyrstu verðlaun fær á kappreiðum, þó aðeins, að hann hafi unnið spretlfærið á 25 sek. eða skemri tíma. Rand- ver hefir unnið bikarinn þrisv- ar í röð. Valur, Eyjólfs Gísla- sonar hjer í bæ, var þriðji, er hann lalinn ljómandi skeið- heslsefni, en ekki nógu þjálf- aður. Stökkhestar 1. Kept í%tveim fl. Hlaupabraut 300 m. Þrenn verðlaun voru veitt: Fyrstu 70 kr. Önnur 40 kr. Metverðlaun 375 kr. Sleipnir Þórðar Kristj- ánssonar Rvk., setti met 6. júní 1938. Rann hann skeiðið á 22,2 sek. — Fyrstur var Kolbakur, 24.7 sek. Eigandi Rósmundur Eyjólfsson, Gufunesi, Kjósar- sýslu.Annar Hornfjörð, eigandi Agnar Sigurðss'on Rvk. á 25.2 sek. og þriðji Gustúr á 25.4 sek. Eigandi hans er Eyjólfur Gísla- son, Rv. 2. flokkur. Sama hlaupabraut. Fyrslur Hörður á 24,2 sek. Eigandi Hörður Sigurjónsson. A*nnar Goði á 24.5 sek. Eigandi Teilur Eyjólfsson, Eyrarbakka, Þriðji Eiðfaxi, Bergs Magnús- sonar Rvk. á 25.5 sek. Stökkhestar 2. Hlaupabraut 350 m., þrenn verðlaun. Fyrstu 135 kr. Önn- 'ur 55 kr. og metlaun 500 kr. Metið er 25.6 sek. setl af Drotn- ingu Þorgeirs Jónssonar, Gufu- resi, 6. júní 1938. — Fyrstur iörður á 26.6 sek. Eigandi Finn ! ogi Einarsson, Melum á Kjal- ; rnesi. Annar Stígandi 27,2 sek. igandi Ólafur Þórarinsson, vk. Þriðji Víkingur Björns njarnasonar, Hafnarfirði. 2. flokkur. Sama hlaupa'braut. Þá verður fyrstur Gáski á 28 sek. Eigandi hans er Ólafur Þórarinsson. Annar Bessi 28.2.. Eigandi Halldór Einarsson, Set bergi. Þriðji Borgfirðingur á 29.6. Eigandi Úlfar Bergsson, Rvk. — í þessum flokki eru efni í alveg sjerstaklega góða hlaupahesta, en aldur þeirra er frá 5 upp í 8 vetra. T. d. Gáski aðeins 5 vetra. Loks fór fram úrslitasprell- ur skeiðhesta. Þrír hestar keptu Valur, Randver og Þokki. — Fyrstur varð Randver á 25 sek. Annar Þokki. Valur hljóp upp. í úrslitaspretti stökkhesta 1. keptu 6 hestar. Varð fyrstur Kolbakur á 23.9 sek. Annar Goði á 24.1 sek. og þriðji Eið- faxi á 24,1 sek . í úrslitaspretti stökkhesta 2. Fyrstur varð Hörður á 26.4 sek. Annar Stígandi á 27.4 sek. og þriðji Víkingur á 27.6 sek. Sú nýjung hefir verið tekin upp að veita knöpum sjerstök verðlaun fyrir góða reið- mensku. Voru veitt þrenn verð laun. Fyrstu hlaut Hjalti Sig- fússon. Önnur Ingjaldur ísaks- son, Fífuhvammi og þriðju Guð mundur Jónsson úr Skagafirði. Eins og að undanförnu starf- aði veðbanki. Gaf bankinn mest íjórfalt. Mikill fjöldi fólks var og voru nokkur brögð að því að fólk fór yfir girðingar og skurði til að sleppa við að greiða inn- gangseyri 3 kr., sem ekki þyk- ir mikill peningur nú á dögum. Farþegabíll brennur í Borgarfirði ÞAÐ vildi til á þjóðveginum í BorgarfirSi s.l. laugardag. að áætlunarbíll frá Stykkishólmi sem var á leið vestur, fullur af farþegum, brann til kaldra kola á örskammri stundu. Allir far- þegar sem í bílnum voru, 22 að tölu, björguðust ómeiddir úr bílnum og allur farangur þeirra að undanskildum einum kassa, bjargaðisl einnig. Bíllinn var á leið frá Akra- nesi vestur á Snæfellsnes. — Slysið vildi til kl. um 6,30 á laugardagskvöld á þjóðvegin- um skamt frá Brennistöðum, sem eru um 11 km fyrir ofan Borgarnés. Ekki er fullkunn- ugt með hvaða hætti eldurinn kom upp í bílnum. — Bíllinn hafði stöðvast, sennilega Sök- um bensínstíflú. Fór bílsljór- inn út úr til að athuga bilunina. Er hann ætlaði að setja bílinn í gang aftur gekk það treglega og alt í einu hrópaði fólkið, er sat í aftasta sæti upp, að kvikn- að væri í bílnum. Þustu þá allir farþegar út, hver sem betur gat og einn farþega, unglingspiltur, stytti sjer leið í gegnum glugga á bílnum. Reynt var að kæfa eldinn með því að bera á hann teppi, sem vætt voru í , skurði, sem var við veginn,' en eldurinn magnaðist bráll það mikið, að ekki var viðlit að slökkva hann. Brann bíllinn þarna á skömm- um iíma. Eigandi bílsíns var Bifreiða- stöð Slykkishólms. Hafa 'eig- endur orðið fyrir miklu tjóni, því bíllinn var vátrygður fyrir einar 12,000 krónur, en farþega bílar, sem þessi var, munu vart fást fyrir minna en 100,000 kr. með því verðlagi, sem nú er. Söngmó! Heklu: Fimm sam- söngvar Frá frjettaritara vorum á Akureyri. HEKLA, samband norðlenskra karlakóra, hjelt fimm sam- söngva hjer á Akureyri annan hvítasunnudag. Hefir nafna kóra og söngstjóra áður verið getið hjer í blaðinu og vísast til þess. í Nýja Bíó voru haldnir tveir samsöngvar og var húsið troð- fult í bæði skiftin. í samkomuhúsi bæjarins voru og tveir samsöngvar. en aðsókn var þar lakari. Um kl. 6 e. h. mættu kórarn- ir í Akureyrarkirkju. Söng hver kór eitt lag, en síðan allir sam- an 8 lög, og stjórnaði hver söng stjóri einu lagi. Var svo margt manna saman komið í kirkjunni sem rúm var fyrir. Síðast sungu kórarnir úti á Ráðhústorgi og safnaðist þar saman mikill mannfjöldi, enda var veður hið besta. Var söng kóranna alls staðar ágætlega tekið. Meðal viðfangs efnanna voru lög eftir þektustu íslensk tónskáld, og nokkra at- hygli vakti það, að þarna voru sungin ný lög eftir ekki færri en 8 nýja höfunda, sem lítt eða ekki eru þektir hjer áður. Að lokum var haldið kveðju- samsæti í samkomuhúsi bæjar- ins. Höfðu kórarnir á staðnum, Geysir og Karlakór Akureyrar, boðið aðkomumönnunurn til kvöldverðar. Var mikið sungið og margar ræður fluttar. Hekla færði öllum söngstjór- unum að gjöf pappírshnífa úr hreindýrahorni, útskorna, sem lítinn þakklætisvott fyrir mik- ið starf, sem þeir vinna hver á sínum stað. Páll H. Jónsson mintist Magnúsar Einarssonar og færði minningarsjóði hans að gjöf peninga frá Karlakór Reyk- dæla. Stjórn Heklu skipa: Her- mann Stefánsson, formaður, Gísli Konráðsson, Akureyri, síra Friðrik A. Friðriksson, Húsavík, Ragnar Jónsson, Sauðárkróki og Jpn Björnsson, Hávsteinsstöðum, meðstjórn- endur. Útsvörin á ísafirði Frá frjettaritara vorum ÚTSVARSSKRÁ ísafjarðar hefir verið lögð fram. Gjald- éndur eru 1020. Heildarupp- hæðin er kr. 1.314.500. Hæstu utsvör bera: Kaupfjel. ísafj. 47 þús. kr., Björgvin h.f. 21 þús., Bökun- arfjelag ísfirðinga 14.7 þús., Guðm. Pjetursson kaupm. 10 þús., Helgi Guðojartsson 11 þús., Huginn h.f. 12 þús., ís- húsfjelag ísafjarðar h.f. 25 þús., Jóhann Eyfirðingur 25 þús., Marselíus Bernharðsson, Skipa smíðastöð h.f. 24.6 4>ús., Olíu- versl. íslands 15.4 þús., Sam- vinnufjelagið 19 þús., Shell h.f. 15.4 þús., Smjörlíkisgerð ísafj. 20 þús., Soffía Jóhannesdóttir 11.5 þús., Tryggvi Jóakimsson 15.8 þús., Valur h.f. 10 þús., Vjelsmiðjan Þór h.f. 12.1 þús., Jónas Tómasson 15.5 þús. Dómaranámskeíð í frjálsum íþrótfum FYRIR NOKKRU fór fram afhending prófskírteina fyrir þá dómara, sem lokið höfðu prófi, að afloknu dómaranám- skeiði því í frjálsum iþróttum, sem íþróttaráð Reykjavíkur hjelt í þessum mánuði í sam- ráði við í. S. í. Forseti í. S. í., Ben. G. Waage, afhenti skírteinin, en ræður fluttu við þetta tækifæri, auk forsetans, Þorst. Einarsson íþróttafulltrúi, Erlendur Pjet- ursson, form. K. R. og Krist- ján L. Gestsson, gjaldkeri I. S. í. Báru fæður þeirra þess vitni, að mikill vorhugur ríkir nú hjá frjálsíþróttamönnum og líklegt, að þetta fyrsta dómaranámskeið í frjálsum íþróttum sje aðeins upphaf stærri framkvæmda á sviði frjálsra íþrótta. Að ræðuhöldunum loknum sýndi Þorsteinn Einarsson tvær ágætar kenslukvikmyndir í frjálsum íþróttum. Alls gengu 16 undir próf, en einn þeirra á þó enn eftir að Ijúka verklega prófinu, svo 15 luku prófinu að fullu og sfóð- ust það. En lágmarkseinkunn er nokkuð há, eða 7.00 stig. 8 nemendur stóðust auk þess meira prófið, þ. e. a. s. fengu yfir 8.50 stig í fullnaðareink- unn og sömuleiðís ýfir 8.50 stig í hverri íþróttagrein, en þá teljast þeir hæfir til að stjórna kepni og vera yfirdómarar. Þrír fengu ágætiseinkunn, voru það þeir Jóhann Bern- hard (9.35), Skúli Guðmunds- son (9.20) og Sig. S. Ólafsson (9.05). Það hefir lengi staðið til, að slíkt námskeið eins og þetta yrði haldið, en ekki orðið af framkvæmdum fyrr en nú. Má þó með symi segja, að þörfin hafi verið orðin nokkuð brýn, þar sem leikreglurnar eru altaf að taka ýmsum smábreyting- um. sem hver einasti dómari verður að kunna skil á, til þess að geta talist starfi sínu vax- inn. Þetta námskeið fór fram í Háskólanum, utan 2 skifti, er haldnar voru verklegar æfing- ar á íþróttavellinum. Kennar- ar^voru: Benedikt Jakobsson íþróttaráðunautur, Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi, Ólaf- ur Sveinsson prentari og Stein- dór Björnsson frá Gröf, en prófdómari í verkl. prófinu var auk þess Þórarinn Magnússon skósm. I ráði er að halda annað námskeið eða próf á næstunni fyrir þá, sem gátu ekki tekið þátt í þessu námskeiði, því takmarkið er, að allir, sem fengnir eru til að vera dómar- ar eftirleiðis, geti sýnt skír- teini, er sanni hæfni þeirra til starfsins. Þess má geta, að þrír af full- trúum Iþróttaráðsins voru nem endur á þessu fyrsta námskeiði og fengu sín skírteini að af- lokiiu prófi. íþróttaráð Reykjavíkur er nú skipað þessum mönnum: Sig. S. Ólafsson, form., Jóh. Bernhard, varaform., Guðm. Sigurjónsson, gjaldk., Sigur- páll Jónsson, ritari og Guðm. Sveinsson, _fundarritari. Sjómannadags- háfíðahöldin í Hafnarfirði Skipastjóra- og stýrimanna- fjelagið Kári og Sjómannafje- lag Hafnarfjarðar gangast í sameiningu fyrir hátíðahöltí- unum í Hafnarfirði á sjómanna daginn n.k. sunnudag. Gengið verður undir fánum fjelaganna í skrúðgöngunni í Reykjavík. Um kvöldið verða skemtanir á tveim stöðum, Hótel Birninum og Góðtempl- arahúsinu. Hófið að Hótel Birninum hefst með befðhaldi kl. 19.35. Til skemtunar verður: Ræða, sem Kristján Eyfjörð flytur, ■— Einsöngur, sjera Garðar Þor- steinsson. Þá verour hlýtt á ávarp ríkisst jóra, sem hann flytur i úívarpssal. Siðan flytur Jóhann Tómásson skipstjóri minni kvenna. Þá verður leik- inn leikþáttur, og að lokum syngur „Litli kórinn“-, undir stjórn Sigurjóns Arnlaugsson- ar. Á milli atriðanna verður fjöldasöngur. Staðið verður upp frá borðum um.kl. 22 og síðan stiginn tíans. I Góðíemplarahúsinu verður dansleikur og hefst hann kl. 22. Sjómannadagsblaðið og merki sjómannadagsins verða seld á götum bæjarins. HúsmæSraskólinn á Sfaóarfelli HÚSMÆÐRASKÓLANUM á Staðarfelli var slitið sunnudag- inn 14. maí með handavinnu- sýningu og skemtun nemenda. Þrjátiu nemendur tóku próf. Á sýningunní voru 840 munii', þar af 150 kjólar, dragtir og kápur, 64 veggteppi, ofin og saumuð, 13 ofnar bekkábreið- ur, 24 útskornar billur, stórar og smáar, einnig voru munir, unnir úr leðri, t. d. bókakápur, myndaalbúm 0. fl. Sýningin. var mjög fjölsótt og þótti með afbrigðum falleg og mikil. Fröken Ingi’björg Jóhanns- dóttir hefir verið forstöðukona skólans undanfarin 7 ár, en hefir nú sagt upp stöðunni. Hún hafði sjálf alla bóklega kenslu undir höndum. Þegar hún tók við skólanum, hafði hann ekki starfað áríð áður, vegna þess, hve fáar umsóknir höfðu bor- ist, en hún hefir með dugnaði sínum og óvenju miklum kenn- arahæfileikum áunnið skólan- um svo mikið traust og virð- ingu, að nú liggfa fyrir umsókn ir svo margar, að hann er full- skipaður til nokkurra ára. Fröken Björg Jóhannesdótt- ir, sem hefir kent bæði fata- saum og, útsaum, er nú einnig að hverfa frá skólanum. Hún er mjög fjölhæf og ágætis kennari í sinni kenslugrein. Skólanum er mjög mikil eftirsjá í þessum tveim ágætis konum. Aðrir kennarar skólans eru: frú Margrjet Gísladóttir vc.in- aðarkennari, fröken Guðrún Jensdóttir matreiðslukennari og fröken Jónína y Baldvins- dóttir útskurðarkennari. Ailar eru þær prýðisvel starfi sínu vaxnar og mjög fjölhæfar. S. K. t

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.