Morgunblaðið - 03.06.1944, Qupperneq 1
Amenskar flugvjelar fó bækistöðvar í Rússlundi
„Menningunni er hætta búin
af hatursáróðri stríðsins"
Segir Páfi og skorar á
aðila að hlífa Róm
PÁFI FLUTTI RÆDU I DAG fyrir kardínálaráðinu og
sagði, að liatur ]>að, senv skapast het'ð ia£ þessari styrjöld
og sem óþekkt væri í sögu heimsins, væri gýfurleg hætta
fyrir alla menningu ájörðunni. — Páfi beindi oorðum sínum
einnig til hernaðaraðila og kvað þann sem eyddi Rómaborg
ekki að eins drýgja ógurlegan glæp gegn jarðnesku, heldur
óg guölegu rjettlæti.
_ Páfinn kvaðst vona, að æði
hernaðarins væri þó ekki enn
orðið svo mikið að engum
dytti í hug, að láta rjettlætið
ríkja, fremur en „hernaðar-
nauðvsyn“. Ilann kvað raddir
þær, sem lirópuðu á hefnd
og hatur, vera orðnar svo há-
værar, að þær væru að kæfa
ajla skynsemi, og mannúðar-
leysi hernaðarins ynni frekar
e.n nokkuð annað að því að
lengja stríðið, þar seni svo
yæri kpmið, að hver sú þjóð,
sem sigruð yrði, vissi að það
væri sama og tortíming og'
berðist því í örvæntingu fyrir
lífi sínu. — Óttann verður
að afnema og' gefa öllum von
um sanngirni og rjettlæti,
sagði Páfi.
Páfi kvað það einnig svo
komið, að það væri valdið
eitt, sein alstaðar ríkti, en
hvergi rjettlætið, og kvað það
vera enn meiri hættu menn-
ingunni í framtíðinni, ef sig-
urvegarnir í styrjöldinni fram
fylgdu friðnum með vopna-
váldi' einu, án allrar sann-
girni og miskunnar, segðu hin
um sigruðu fyrir um alt.með
Ijyssustingina sem bakhjarl.
. „Uað er hryggilegt' ‘, sagði
Páfinn, „að borgin eilífa skuli
ekki hafa losnað við hörm-
ungar stríðsnis, og hinar skelfi
iegu aðferðir, sem beitt er í
nútímahernaði. En jeg vona,,
að mennirnir geri sig ekki
seka um eyðileggingu hennar.
Slíkt væri blettur, sem yrði
aldrei þveginn af mannkyn-
inu“.
Loftárásir á Danmörku.
Mosquitoflugvjelar frá Bret-
landi gerðu árásir á ýmsa staði
í Danmörku í nótt sem leið. —-
Ekki er kunnugt, hvaða staðir
urðu fyrir árásunum. — Aðr-
ar breskar sprengjuflugvjelar
rjeðust á staði í Frakklandi.
Þjóðverjar vinna á
við Jassy
London í gærkveldi:
. Ilerstjórnartilkynning Iiússa
í kvöld er svdhljóðandi: „Þann
annan júní hrundu hersveitir
vorar. fyrir norðyestan og
norðan .Tassy árásum óvinanna
sem gerðar voru með miklum
liðsafia skriðdreka tfg fót-
gönguliðs".
„Á sumum stöðum bardaga-
svæðisins tókst óvinunum með
miklum fórnum að rjúfa smá-
skörð í varnarkerfi vort, að-
allcga fyrir norðvestan borg-
ina; en að norðan vár ölltun
áblaupum hruudið, en þau
voru af skriðdrekaliði og fót-
gönguliði“.
„Þegar er um þacTvitað, að
25 þýskir skriðdrekar hafi
verið eyðilagðir í bai’dögunum
í dag, en alls voru 27 eyði-
iagðir á öllum vígstöðvunum.
Annarstaðar hafa engar breýt-
•ingar orðið."
Þjóðverjar segja í dag, að
Rússar hafi nú hafið gagn-
áhlaup við Jassy, en kveðast
hafa hrundið þeim öllum.
Miklir löftbardagar eru sagðir
hafa vérið yfir vígstöðvunum
og segjast Þjóðverjar hafa
beitt 1000 flugvjelum á Jassý-
svæðinu.
— Réuter.
Liðsauki til Biak.
Bandaríkjamenn flytja nú
sem óðast liðsauka til Biak-
eyjar við Nýju-Guineu, og hef-
ir ekki orðið vart við það, að
Japanar reyndu að hindra
þetta. Ekki hefir enn komið til
nýrra bardaga á eynni, en bú-
ist er við, að Bandaríkjamenn
hefji sókn, þegar er þeir hafa
fengið meira lið. — Reuter.
□-----------------□
Ífalía
Velletri og
Valmontone
falla
London í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunbl
frá Reuter.
BANDAMENN hafa í dag
náð á sitt vald tveim helstu
varnarstöðvum Þjóðverja á
Ítalíu, Velletri og Valmont-
one, en um báðar þær borg-
ir hafði verið barist lengi
og heiftarlega. Það voru
Bandaríkjamenn, sem tóku
Velietri og sjá þeir nú vel
til Rómaborgar. — Bretar
tóku Valmontone, en í för
með þeim var ein af fræg-
ustu skriðdrekasveitum
Bandaríkjamanna, er barð-
ist í Tunis og á Sikiley. —
Franskar hersveitir tóku
bæinn Ferrentino.
Varnir Þjóðverja eru
stöðugt jafnharðar og hefir
bandamönnum lítið orðið
ágengt annars staðar á víg-
stöðvunum. Beita Þjóðverj-
ar til varnar öllu því liði,
sem þeir hafa og færa jafn
vel nýtt lið til vígstöðvanna,
en bandamenn sækja á af
óhemju ákafa, að því er
fregnritarar herma í dag.
□-----:-----------□
Japanar sækja að
(hangsha
London í gærkveldi:
JAPANAR nálgast nú
Changsha, höfuðborg Ilunan-
fylkis í Kína og eru fremstu
sveitir þeirra um 60 km. frá
borginni, að því er tilkynnt
er í Chugking í dag. Japanar
eru komnir yfir Milo ána fyrir
■austan Canton-IIankow-j árn-
brautina. Þá hafa Japanar
rejTit að koma liði yfir Tung-
kingvatnið fyrir norðan Chang
sha, en það mishepnaðist.
— Reuter.
FINSKA herstjórnin hefir
bannað öll ferðalög til Álands-
eyja. Ekki hafa verið gefnar
neinar skýringar á banni þessu,
en talið er, að njósnarahætta
hafi valdið.
Þær fyrstu lentu þar
í gær
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
Eftir Harold King.
Amerískar sprengju- og orustuflugvjelar lenlu í dag á flug-
velli í Rússlandi, sem þeim hafði verið búinn, eftir að hafa gert
árásir á staði í Rúmeníu. Rússneskar flugvjelar mættu þeim
yfir landamærum Rússlands og fylgdu þeim til bækistöðvanna.
Á flugvöllunum höfðu amerískir og rússneskir hermenn unn-
ið nótt og dag í nokkra mánuði, til þess að fullgera þá. Hjeldu
þeir veitslu, áður en þeir fóru að byrgja hinar nýkomnu flug-
vjelar að sprengjum og skotfærum í aðra árásarferð og að henni
lokinni lenda flugvjelarnar í Ítalíu eða Bretlandi.
Það hefir lengi verið í undirbúningi að amerískar flugvjelar
fengju bækistöðvar í Rússlandi, en yfirumsjón hafa þeir haft
með undirbúningnum, Poul Cullen og Elliott Roosevelt flugfor-
ingjar. Margir háttsettir amerískir fli^gforingjar hafa að und-
anförnu verið í Rússlandi.
Þjóðverjar toka aðal-
stöðvar Titos
Hann og Randolph (hurchill
sluppu nauðulega
London í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
fi'á Reuter.
TITO marskálkur slapp
nauðulega upp í fjöll, ásamt
Randolph Churchill og fleiri
liðsforingjum, þegar þýskir
fallhlífahermenn og herlið,
sem flutt var í svifflugum
tók aðalbækistöðvar hans í
Bosníu þann 25. maí s.l. að
því er Associated Press-
fregn frá Bari hermir, en
hún var send þaðan 29. f. m.
Flestir' af liðsforingjum
Breta, Rússa og Bandaríkja-
manna, sem voru hjá Tito,
sluppu einnig, en nokkurir
voru handteknir. — Einnig
handtóku Þjóðverjar þarna
frjettaritara vorn, John Tal-
bot og tvo blaðaljósmynd-
ara, anrf&n frá ameríska
tímaritinu ,,Time“. Árásin
kom gersamlega á óvænt.
Skotfæíalest springur.
London í gærkveldi: — Mikið
tjón og stórslys varð á stað ein-
um í Suður-Englandi í dag, er
kviknaði r í járnbrautarlest,
hlaðinni skotfærum, og sprakk
hún í loft • upp skömmu síðar.
— Varð sprengingin svo mik-
il, að þök fuku af húsum þeim,
er næst stóðu. Enn er ekkf vit-
að með vissu um manntjón.
— Reuter.
Rouen stendur
í björlu báli
Stokkhóími í gærkveldi.
ÞÝSKA frjettastofan segir
frá því í dag, að borgin Rouen
í Frakklandi standi í ljósum
logum eftir loftárás banda-
manna. Var stormur á, þegar
árásin var gerð, og breiddust
eldarnir af sprengjunum ó-
hemju hratt út, svo ekki var
nokkur leið að ráða við þá. —
Brunnu öll helstu hús í bæn-
um, en ekki var talið vonlaust,
að takast mætti að bjarga
nokkru af úthverfum borgar-
innar. Meðal þeirra bygginga,
sem brunnið hafa til ösku, er
hin fræga dómkirkja borgar- %
innar. — Reuter.
Skipaíjén í maí
London í gærkveldi: — Þjóð-
verjar hafa birt skýrslu sina
yfir skipatjón það, er þeir kveð
ast hafa unnið bandamönpum
í maímánuði, og segjast hafa
sökt alls 24 flutningaskipum
þeirra, samt. 131 þús. smál., en
laskað 23, samt. 169 þús. smál.
Þá kveðast þeir hafa sökt 17
tundurspillum og öðrum varð-
skipum, tveim kafbátum. 8
hraðbátum, en laskað mörg
önnur herskip. — Reuter.