Morgunblaðið - 08.06.1944, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagrur 8. júní 1944.1
irciitsttMtoMfe
Utg.: H.f. Árvakur, Reykjavík
Frámkv.stj.: Sigfús Jónsson
Ritstjórar:
Jón Kjartansson,
Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson
Auglýsingar: Árni Óla
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla,
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald: kr. 7.00 á mánuði innanlands,
kr. 10.00 utanlands
í lausasölu 40 aura eintakið, 50 aura með Lesbók.
Gróði þjóðarinnar
EINN hluthafanna í Eimskipafjelagi íslands, Sigurjón
Jónsson, fyrrum bankastjóri, benti rjettilega á það á
aðalfundi fjelagsins á dögunum, að hin góða afkoma
fjelagsins væri fyrst og fremst gróði þjóðarinnar í heild.
Hitt væri með öllu rangt, að vera með ásakanir í garð
hlutháfa í sambandi við þenna gróða. Hluthafar hefðu
aldrei gert tilkall til gróðans, enda sýndi það sig best á
því, að hluthafar fengju ekki nema 1%% í vexti af hluta-
fje sínu og enginn farið fram á meira. Þegar Eimskipa-
fjelagið var stofnað, fyrir 30 árum, og almenningur
keypti hlutabrjef í því skyni, var hugsjónin ekki sú, að
safna auði, heldur að hrinda af stað þjóðþrifafyrirtæki.
Nákvæmlega sama væri sjónarmið hluthafanna í dag.
★
Ekki er minsti vafi á því, að Sigurjón Jónsson mælti
þessi orð fyrir munn allra hluthafa Eimskipafjelagsins.
Þess vegna er það furðulegt, að Eimskipafjelagið skuli
sæta harkalegri árás nú, vegna óvænts happs sem fje-
lagið varð fyrir s. 1. ár, og fjelaginu borið á brýn, að það
sje okurstofnun, sem níðist á almenningi. Slíkt eru ómak-
leg ummæli.
Vafalaust eru allir landsmenn sammála um, að það sje
ekki aðeins æskilegt, heldur brýn napðsyn, að vöruskipa-
floti landsins verði stóraukinn á næstu árum. Spurningin
er þá sú,'með hverjum hætti skipaflotinn verði aukinn.
Vitanlega er það fásinna, sem fram kemur í opinberri
skýrslu, sem Viðskiftaráð hefir sent frá sjer, að engin
ástæða sje til að örvænta um aukningu skipaflotans
„meðan þjóðin á stórkostlegár inneignir í erlendum gjald-
eyri“. Viðskiftaráði ætti að vera ljóst, að þetta fje verður
ekki notað til skipabygginga, nema því aðeins, að þeir
sem fjeð eiga vilji nota það í þessu skyni.
★
Það eru göt á
'Atlandshafs-
veggnum
Einkaskeyti til Morgunbt
frá Reuter.
ÞAÐ ER LANGT frá því að
hinn svonefndi „Allanlshafs-
veggur“, sem Þjóðverjar hafa
gumað svo mikið af, sje heill.
Það er nú hægt að skýra frá
því, að Þjóðverja skorti efni,
einkum stál, til að geta bygt
samfelt kerfi varnarvirkja með
fram allri Atlantshafsströnd
Vestur-Evrópu. Þjóðverjar gátu
ekki víggirt vel nema þá staði
eina, sem þeir töldu líklegasta
að bandamenn myndu sækja
að.
Varúðarráðstöfun.
Ein af varúðarráðstöfunum
Þjóðverja við strendur Frakk-
lands var sú, að setja niður stál
stöpla í fjöruborðinu. Ætluðust
Þjóðverjar til þess, að þegár
bandamenn sigldu innrásar-
prömmum sínum að ströndinni,
rækjust skipin á stálstólpa
þessa og þeir rifu botna skip-
anna. En bandamenn vissu af
þessum varnarráðstöfunum. —
Höfðu flugvjelar þeirra tekið
myndir af þeim úr lofti úr mjög
lítilli hæð. Sjerstakar sveitir í
verkfræðingadeildum banda-
manna fengu það hlutverk, að
vinna bug á þessum stólpum,
og það tókst.
Þjóðverjar höfðu gert ráð fyr
ir, að bandamenn myndu leggja
til landgöngu um háflæði og
sett stöplana niður samkvæmt
því, en bandamenn lögðu til
atlögu þegar rjett var nýbyrjað
að falla að og reyndist þá auð-
velt að vinna bug á stálstólpa-
kerfi Þjóðverja.
Ef sú stefna á að vera ráðandi hjer á landi, að útiloka
með öllu þann aðilja, Eimskipafjelag íslands, sem annast
hefir siglingarnar til þessa, að safna fje til aukningar
skipastólsins, þá verður það ekki þetta fjelag, sem tekst
að uppfylla þá þjóðarkröfu, að landsmenn geti einir og
sjálfir sjeð um sig á þessu sviði. Aðrir verða þá að taka
við.
En eru miklar líkur til þess, að menn verði ásælnir í að
leggja fram fje til skipakaupa, þegar þeir verða þess
vísari, að hluthafarnir í Eimskip fá aðeins skammir og
vanþakklæti fyrir þær fórnir, sem þeir hafa int af hendi?
Þessir menn hafa aldrei haft hagnað í huga fyrir sjálfa
sig. Hafi fjelaginu áskotnast gróði, hefir sú eina hugsjón
ráðið meðal hluthafanna, að nota hann í þágu alþjóðar —
til aukningar skipastólsins.
★
Ekki er minsti vafi á, að það er þjóðinni ómetanlegt
happ, að einmitt þessi hugsjón skyldi hafa vakað fyrir
stofnendum Eimskipafjelagsins og ráðið þar alla tíð.
Þess vegna vmna þeir menn í óþökk þjóðarinnar, sem
sí og æ eru að ala á tortrygni í garð Eimskipafjelagsins,
m. a. með því, að ætla hluthöfum illar hvatir um gróða-
söfnun og því um líkt. Hinn óvænti og mikli gróði Eim-
skips s. 1. ár er alls ekki hluthafagróði í venjulegri merk-
ingu, heldur gróði þjóðarinnar í heild, eins og Sigurjón
Jónsson tók rjettilega fram á síðasta aðalfundi fjelags-
ins.
Af því sem hjer hefir verið sagt, ætti mönnum að vera
það ljóst, að ef rjettmætt þykir að hið opinbera fram-
kvæmi einskonar refsiaðgerðir gegn Eimskipafjelaginu,
eins og virðist vaka fyrir Viðskiftaráði, þá bitnar sú ráð-
stöfun ekki á hluthöfunum, heldur á þjóðinni allri. Ef
Viðskiftaráð t. d. kappkostar að setja farmgjöld Eimskips
svo lág, að fullvíst sje að verulegur gróði s. 1. árs fari í
taprekstúr, verður afleiðingin sú, að um aukningu skipa-
flotans verður alls ekki að ræða.
Þetta yrði gróði fyrir erlend siglingafjelög, en tap fyrir
íslensku þjóðina.
Sterk varnarvirki.
En Þjóðverjar hafa þó mjög
öflug og sterk varnarvirki á
Frakklandsströndum. Fallbyss-
ur og steinsteypuvirki ásamt
skriðdrekavarnarvirki miklu.
En Þjóðverja hefir skort stál,
vinnuafl og tíma til að geta
lokið við varnarvirkjabeltið
meðfram allri ströndinni og
mótspyrna sú, sem þeir veittu,
er bandamenn gengu á land á
Frakklandsströndum, var miklu
minni en búist hafði verið við.
Nýtt biað af
Veiðimanninum
VEIÐIMAÐURINN, málgagn
lax- og silungsveiðimanna, nr.
5, er nýkominn í bókabúðir. ■—
Efni blaðsíns er að þessu sinni
sem hjer segir:
Veiðið drengilega, eftir Pálma
Hannesson rektor; Miðfjarðar-
á, eftir Magnús F. Jónsson frá
Torfastöðum; Geisli, saga um
Iax, eftir Björn Blöndal frá
Stafholtsey; Nokkur orð um
laxveiði á íslandi fyrir nær 200
árum; Veiðifjelagið Stöngin;
minningarorð um Ásgrím Sig-
fússon framkvæmdarstjóra og
Gunnlaug Einarsson lækni, og
ýmislegt fleira. — Frágangur
blaðsins er vandaður og það er
skreytt mörgum myndum. —
Ritstjóri er Jakob Hafstein lög-
. íræðingur.
Þjóðminjasafns-
byggingin.
ÞAÐ VAR góð hugmynd, sem
kom fram fyrir nokkru, að bygð
yrði þjóðminjasafnsbygging til
minningar um lýðveldisstofnun-
ina. Öllu glæsilegra minnismerki
væri ekki hægt að gefa þjóðinni
til minningar um hin miklu tíma-
mót í sögu hennar. Brátt kemur
Alþingi íslendinga saman til að
ákveða stofndag lýðveldisins.
Líklegt, að mörg mál liggi fyrir
þinginu, sem afgreiða þarf fyrir
lýðveldishátíðina og ]>á má þetta
mál ekki gleymast.
í greinum, sem birtust fyrir
nokkru í öllum blöðum bæjar-
ins var því lýst, hve gersamlega
þjóðminjasöfn okkar hafa verið
vanrækt í því tiiliti, að þau hafa
ekki átt þak yfir höfuðið og sí-
felt verið á hrakhólum frá því
fyrsti vísirinn að þeim varð til,
fyrir rúmlega 80 árum. En nú er
tækifæri til að bæta fyrir van-
rækslu undanfarinna ára og
tryggja, að þjóðminjasöfnin fái
veglega byggingu, sem sæmir svo
veglegri menningarstofnun.
•
Kórónan hverfur.
ÁÐUR HEFIR verið bent á
það hjer í dálkunum, að þegar
lýðveldið verði stofnað, verði
kórónur allar að hverfa úr
skjaldarmerkjum, innsiglum, ein
kennisbúningahnöppum embætt-
ismanna o. s. frv. Víða eru kór-
ónumerki, t. d. á Alþingishúsinu,
Dómkirkjunni og sjálfsagt ann-
arsstaðar. En eitthvað verður að
koma í staðinn fyrir kórónumerk-
ið, þó ekki hafi heyrst, að það
hafi verið ákveðið. Gerðar hafa
verið tillögur um, að fálkamerki
yrði tekið upp í stað kórónunn-
ar og trúi jeg, að sú hugmynd
muni fá góðan byr. Fleira og
fleira kemur til greina, sem
breyta þarf, þegar lýðveldið
verður stofnað. Hvað Verður t.
d. um Fálkaorðuna? Verði hún
áfram virðulegasta tignarmerki
íslands, þarf að breyta henni.
Ekki getur hún lengur verið með
konungs kórónu. Smámyntin ís-
lenska er með kórónumerki. O-
líklegt er, að hægt verði að fá
slegna nýja mynt fyr en að stríðs
lokum. Ennfrerour verður að
breyta skjöldum á ræðismanna-
skrifstofum okkar erlendis og
sendisveitaskrifstofum. Alt eru
þetta smáatriði í sjálfu sjer, en
þurfa hinsvegar að gerast og því
fyrr, sem því er af lokið, því
betra.
_ Heiðursmerki.
ALLLANGT er liðið, síðan jeg
hefi minst á eitt af áhugamálum
okkar hjer í dálkunum, en les-
endur mína rekur ef til vill minni
til, að í fyrra mintist jeg nokkr-
um sinnum á, að þörf væri á því,
að til væri heiðursmerki eða
heiðurspeningur, sem íslenskum
borgurum væri veittur fyrir
framúrskarandi afrek á ýmsum
sviðum, en sem þó væri þéss
eðlis, að ekki þætti við eiga, að
sæma viðkomandi riddaraorðu.
Nokkrar umræður urðu um þetta
mál og man jeg ekki betur en
að það kæmi fram, að einhvers-
staðar væri heimild fyrir ríkis-
stjórnina að koma á fót slíkri
heiður smerk j aveitingu.
Nú virðist vera tilvalið tæki-
færi að láta verða úr því að koma
á slíkum heiðursmerkjaveiting-
um, er lýðveldið verður stofnað.
•
Góð bók.
FYRIR NOKKRU kom út í ís-
lenskri þýðingu bók, sem allir
íslendingar hefðu gott af að
kynna sjer, en það er „Noregur
undir oki nasismans“, eftir
Worm-Múller prófessor, sem
hjer dvaldi um árið. Jeg skál
játa, að fyrst er jeg heyrði bók-
ar þessarar getið, datt mjer í
hug, að varla gæti verið um
neitt nýtt að ræða í þessari bók,
þar sem þegar væri búið að segja
alt, sem hægt væri um innrás
Þjóðverja í Ndreg og ok nasism-
ans þar í landi.
En jeg verð að segja, eins og
fleiri, sem þessa bók hafa lesið,
að jeg gat ekki lagt hana frá
mjer fyrr en jeg var búinn að
lesa hana spjaldanna á milli. Nú
þykist jeg hafa fylgst jafn vel
með frjettum undanfarin ár og
hver annar og hefi enda haft
tækifæri til að fylgjast betur
með en allflestir. En það er eíns
og nýr heimur opnaðist fyrir
mjer, hvað snerti sögu Noregs
og framkomu Þjóðverja í her-
numdu löndunum, við að lesa
bók Worm-Múllers prófessors.
Mjer er því hiklaust óhætt að
ráðleggja mönnum að lesa þessa
nýju bók. Mjer finst hún eigi
sjerstakt erindi til allra, sém
viljá kynna sjer ástandið eins og
það er. Höfundur bókarinnar er
vísindamaður og enginn, sem
þekkir hann, mun láta sjer detta
í hug, að hann skýri ekki rjett
og satt frá, og eftir því, sem hann
veit sannast og rjettast. Hitt er
á almanna vitorði, að fáir menn
hafa fylgst betur með því, sem
gerst hefir í Noregi undanfarin
4 ár, en Worm Múller prófessor.
Spánverjar búast
við flótiamanna-
straumi
MADRID í gær: — Það er
sagt, að spænska stjórnin hafi
þegar gerst ýmsar ráðstafanir
vegna þess, að búist er við mikl
um flóttamannastraumi til Spán
ar vegna innrásar bandamanna
í Frakkland.
Gerðar verða ráðstafanir til
að útvega fólki húsnæði og mat
væli og ekki er talið ólíklegt,
að Spánverjar muni reyna að
senda eitthvað af matvælum til
Frakklands, ef ástandið verður
slæmt í landinu, til þess að
draga úr hörmungum óbreyttra
borgara. — Reuter.
Porlúgalar hætta
wolframsölu
fil Þjóðverja
LONDON í gær: Eden utan-
íkismálaráðherra skýrði breska
þinginu frá því í dag, að Portu
galar hefðu ákveðið að hætta
að senda wolfram til Þýska-
lands, en það hráófni er nauð-
synlegt fyrir Þjóðverja, ef þeir
eiga að geta haldið uppi her-
gagnaframleiðslu sinni að
nokkru ráði,
Forsætisráðherra Portugal
ljet svo ummælt í sambandi við
þessa ákvörðun að portugalska
stjórnin hefir tekið þessa á-
kvörðun til þess, að stytta ófrið
inn. — Reuter.