Morgunblaðið - 09.06.1944, Blaðsíða 4
<Í»S>Í'4>-.Í>
4
MORGUNBLAÖIÐ
Föstudagur 9. júní 1944.
frá láttúrulækninya-
fjelagi Islands
NÁTTÚRULÆKNINGAFJE-
LAGIÐ er orðið Reykvíkingum
að nokkru kunnugt, enda þótt
framkvæmdir þess sjeu enn
ekki miklar, sem varla er til
vonar, svo ungt sem fjelagið er
og lenti strax nýstofnað í öðr-
ugleikum slríðsáranna. — En
margt hefir það þó á stefnuskrá
sinni, og eitt atriði hennar er
þegar komið til framkvæmda.
Lækningastofa í anda og stefnu
N.l.-fjelagsins er nú starfrækt
hjer í bænum. Jónas læknir
Kristjánsson, forseti fjelagsins,
hinn margreyndi og góði lækn-
ir hefir, þrátt fyrir marghátt-
aða örðugleika komið á fót
þessari lækningastofu, og rekur
hana. Læknastofan er fjölsótt
og margir munu telja sig hafa
sótt þangað heilsubót.'Þá hefir
N.l.-fjelagið ákveðið að stofna
til malsölu, sem að líkindum
tekur til starfa næstu daga.
Síðsist nefni jeg það, sem hjer
skal aðallega um rætt, og það
er heilsuhæli N.l.-fjelagsins.
sem ákveðið liefir verið að
koma upp — helst 1 nágrenní
Reykjavíkur.
Á s.l. ári var kosin nefnd
innan fjelagsins, sem standa
skyldi fyrir fjársöfnun til hæl-
isins. Var þá gengið um bæinn
með fjársöfnunarlista. Fjöldi
manna tók þessari málaleitan
mjög vel, og lögðu fram fje til
þessa þarfa fyrirtækis. Álitleg
upphæð safnaðist að vísu við
þessa fyrstu tílraun, en nefnd-
inni er þó fullljóst að betur
má ef duga skal.
Hjer skal í örfáum dráttum
greint frá tilgangi heilsuhælis-
ins. Þeim íil glöggvunar, sem
gleymst hefir ávarp um þetta
mál frá í fyrra var-: Heilsuhæl-
inu er ætlað að taka á móti
sjúkum mönnum og þreyttum.
Þar eiga þeir að geta átt kost
á lækningum með einföldum
aðferðum, leiðbeiningum um
heilnæma lifnaðarhætti og
heilsuvernd. Áhersla verður
lögð á Ijós-, loft- og vatnsböð.
Útiloft og útiverur og einfalt
og holt mataræði.
Vil jeg leyfa mjer í þessu
sambandi að minna á orð hins
gagnmerka manns og læknis
Guðmundar Thoroddsen, sem
hann viðhafði í samtali við Jón-
as læknir Kristjánsson. G. Th.
sagði, að hann teldi byggingu
náttúrulækningahælis hina
mestu nauðsyn fyrir land vort
og þjóð, eins og nú væri mál-
um komið.
A. sunnudaginn kemur 11. 6.
hefir verið ákveðið að selja
merki fjelagsins og skal allur
ágóðinn af sölunni renna í
heilsuhælissjóð.
Enn heitum vjer á alla góða
Reykvíkinga að bregðast vel
við þessari málaleitun. Það er
að vísu svo að Reykvíkingar
gætu verið orðnir langþreytlir
á sífeldum betlurum, er kveðja
hjá þeim dyra seint og snemma.
En þessu er þó ekki þannig
farið. Reykvíkingar eru ekki
uppgefnir á því, að rjetta fram
gjafmilda hönd þegar beðið er
um fje til þarflegra fram-
kvæmda. Það sýnir reynsla
síðustu ára og síðustu daga. •—
Þetta er ekki skjall, ekki óverð
ugt hrós, síður en svo. Það
vita allir um þann fjölda fyr-
irtækja og mannúðarmála, sem
Reykvíkingar og aðrir íslend-
ingar hafa styrkt með frjálsum
samskotum.
Það er svo óumræðanlega
margt, sem gera þarf til hags-
bóta fyrir þessa þjóð. En ekki
skyldi það lasta, þó vjer sjeum
nú skygnari á þarfir og fram-
tíðar örðugleika þjóðar vorrar,
þegar bjarmi fullveldisins
breiðist yfir þjóðlífið og vekur
mönnum djarfar vonir í brjósli,
stórhug til framkvæmda og
þakklæti í huga fyrir allt það,
sem unnist hefir. Það heyrist
stundum um það rætt, að ís-
lendingar kunni ekki með fje
að fara. Það kann að vera, að
sumir menn sói fje sínu með
óhófsömum lifnaðarháttum. En
þá er þess að minnast, að miklir
peningar eru íslendingum flest
um óvenjulegur hlutur, að hafa
handa á milli. — Því ekki að
undra, þó þeim fatist forsjá.
En hverjír verða þá taldir
kunna að fara með. peninga?
Eru það þeir, sem safna þeim
í sjóði. Eða eru það þeir s^m
ætíð rjetta gjöfuls hönd lil
góðra málefna. Þeim mönnum
er það ljóst, að „gulið er valt“,
þar til það hefir verið lagt i
framkvæmdir og fyrirtæki, sem
verða mega öldnum og óborn-
um til heilla og hagsældar.
Það eru vinsamleg tilmæli
vor lil foreldra í bænum, að
þau lofi börnum sínum að selja
merki heilsuhælis N.l.-fjelags-
ins á sunnudaginn. Hvetji þau
til þess að leggja með því sinn
skerf fram til stuðnings þessa
athyglisverða menningarmáls.
F. h. fjársöfnunarnefndar,
G. Þ. Björnsdóttir.
[Dagstofuskápur
úr eik, eikarborð með tvöfaldri plötu, klæða-
skápur úr birki og 2 bólstraðir armstólar er
til sölu af sjerstökum ástæðum.
'Hjálmar Þorsteinsson & Co.
Klapparstíg 28. — Sími 1956.
•••••••••••••••••••••
I
Sexlug:
Guðbjörg Ámadótlir
FRÚ Guðbjörg Árnadóttir,
Bergstaðastræti 48 A, verður 60
ára í dag. Hún er fædd 9. júní
1884 á Eyrarbakka, bjuggu þau
foreldrar hennar, faðir hennar
af kunnri bændaætt þar austur,
en móðir af prestaætt hjá Skaft
fellinum (sr. Bergi).
Ung að aldri flultist hún
austur á land og var lengi á
Egilsstöðum hjá Jóni stórbónda
Bergssyni, frænda sínum.
Síðan fluttist hún suður og
bjó hjer með manni sínum, Vig
fúsi Grænlandsfara Sigurðssy*ni
og annaðist heimili sitt með
rögg og rausn, voru þó börnin
mörg og því oft við erfiðleika
að stríðá. Á meðal barna þeirra
er Tómast Vigfússon, trjesmíða
meistari og Ólafur vjelsmíða-
meistari.
Síðustu ár hefir Guðbjörg
unnið að ýmsum fjelagsmálum,
en þó fyrst og fremst öllum fje-
lögum fyrir Templararegluna.
Er hún þar vinsæl og viður-
kend fyrir dugnað sinn og fórrr
fýsi, enn eru þeir því eflaust
marglr sem sendi henni hlýjar
óskir í dag á afmæli hennar,
þakka henni fyrir starf hennar
á liðnum árum og óska að hún
njóti starfskrafta og starfsgleð-
innar sem lengst. x-(-o.
Það er vegna þess að þessi
fæða er svo holl, og örðugt
mun að fá aðra kornvöru
sem byggir jafn vel upp
líkamann. Og það er áreið-
anlegt að engin kornvara
hefir jafn gott bragð nje
jafn góðan keim eins og
3-mínútna hafraflögurnar.
3-minute
OAT FLAKES
... !■ ■■■mi iiwTwnrnTT.wwimwi
Augun jeg hvíli T p
með gleraugum | ý|| || |
BEST AÐ AUGLVSA I
MORGUNBLAÐINU.
Minningarorð:
Fiú Þorbjörg Mötter
í hásumarsól, þegar dagurinn
er íengstur, leit hún fyrst dags
ins ljós. Á fögru vorkvöldi, mitt
í gleðinni, leið hún frá okkur.
Þessi einkenni bar hún í sjer.
Hún var gleðinnar og Ijóssins
barn, annir dagsins voru lang-
ar og hún hvarf ekki frá þeim
fyr en hún hafði fullnað dags-
verkið.
Frú Þorbjörg Möller andað-
ist snögglega að kvöldi 29. { m.
eftir að hafa þann dag tekið
þátt í fögnuði með foreldrum
sinum, meðal barna'sinna, og
annara ástvina. Hún kendi þess
meins fyrir fáum mánuðum, er
dró hana til dauða, enda þótt
svo virtist, sem hún hefði feng-
ið fulla bót á því. í dag verður
hún jarðsungin.
Þorbjörg var fædd að Glaum
bæ í Skagafirði 24. júní 1884.
Foreldrar hennar eru fyrrum
sóknarprestur sjera Pálmi Þór-
oddsson og kona hans Anna H.
Jónsdóttir í Hofsós, og var hún
elsl af 11 börnum þeirra.
Þorbjörg ólst upp hjá afa sín-
um, sjera Jóni prófasti Halls-
syni, fyrst í Glaumbæ og síðan
á Sauðárkrók. Naut hún hins
mesta ástríkis á heimili hans
og hlaut hið besta uppeldi.
Vorið 1906, giftist hún Jó-
hanni G. Möller kaupmanni frá
Blönduósi, og settust að á
Hvammstanga, en eftir nokkur
ár fluttu þau til Sauðárkróks
og dvöldust þar upp frá því. —
Eignuðust þau 11 börn, sem öll
eru á lífi, og stundar yngsti
sonurinn háskólanám. Um rúm
20 ár naut hún samvisla við
sinn glæsilega og elskulega eig
inmann. í desember 1926 syrti
skyndilega að, er hún misti
mann sinn og stóð ein uppi með
allan barnahópinn. Og ef iil
vill hefir hún aldrei sýnt það
betur en þá, hve mikið var í
hana spunnið, er hún tók ein
við uppeldi barna sinna og
fluttist hingað sumarið 1927. —
En það var eins og ekkert væri
henni um megn. Hún láuk
þessu ællunarverki sínu með
prýði, og svo má segja, að er
hún andaðist, hafi hún getað
litið yfii* fullkomnað ævistarf.
En það liggur í augum uppi,
hvílíkt átak þetta hefir verið.
Hún lók líka daginn snemma
og hvikaði aldrei frá settu
marki: Að varðveita og íryggja
framtíð barna sinna. Þó dags-
verkið væri mikið og göfugt,
sá það lítt á henni. Hún hafði
hlotið þá veglegu vöggugjöf,
að geta altaf glaðst og tekið
þátt í gleði annara. Hún bar í
sjer svo mikið táp og fjör, að
hún virtist leikandi fá því fram
gengt, er flestum öðrum hefði
þótt sjer oívaxið.
Stundin var komin. Lífsstarf-
inu var komið svo langt, að hún
gat horfið frá því. Eftir hverju
var þá að bíöa? Var þá ekki
sjálfsagt að flýta för, eins og
endranær, til ástvinar síns, sem
beið hennar fyrir handan hafið.
Við drúpum höfði við burt-
för þína. En í vorblænum minn
umst við þíry og finnum nálægð
þína. Hann ílytur okkur trú
þína á lífið og gleðiboðskapinn
um óendanlegan kærleika
Guðs.
St. Gunnlaugsson.
Ferðir til þingvalla
þjóðhátíðardagana
VERÐA ÞANNIG:
Frá Reykjavík: 16. júní kl. 9, 13, 17 og 21.
— — 17. — — 7,30 og 10,30.
18. — — 13, 17 og kl/21.
Frá Þingvöllum: 17. — — 18, 22 og kl 1 um nóttina
Farseðlar verða seldir í Iðnskólanum frá 10.
* til 14, júní daglega kl. 10—12 og 13—19, á kr.
40,00 sætið báðar leiðir. Lagt verður af stað
frá Fríkirkjuvegi. Farseðlarnir gilda aðeins
fyrir þá ferð, sem *þeir hljóða á.
Nauðsynlegt er, að almenningur sýni lip-
urð við fermingu bifreiðanna. Að hópar, sem
ekki komast í sömu bifreið skifti sjer, og
sömuleiðis, að fólk hafi farseðla sína við
hendina og afhendi þá bifreiðastjóra viðkom-
andi bifreiðar.
Þjóðhátíðarnefndin.
!
<1
<§►
I
I
f
<$>
é
AUGLÝSING ER GULLS iGILDí