Morgunblaðið - 06.07.1944, Blaðsíða 5
Fimtudagmn 6. júlí 1944
RIOEGONBL / ' I ö
5
|
I
J/
rótt
uóiöa
ía W>
orf
un
L ía ef
óiná
t*<"X":"X":"X' & » ♦ ^ <*^<">*x**:*<**:**x*<*<x*<**X"X">
S
«^4 A A 4^1 A *^t A É% I^É *^É A A A JL A A A A Æ
“♦"rVVVVTVVVVV V,,*»»VV%*%*WWWWvVv“TWt
SAMBANDSFJELÖG Í.S.Í. 170 MEÐ 20 ÞÚS. MEÐLIMl
ÁRSÞING íþróttasambands ís-
lands 1944 er fyrir skömmu um
garð gengið. Á þinginu gaf for-
seti sambandsins, Ben. G.
Waage, skýrslu um störf þess
á síðastliðnu starfsári. Verður
hjer birt nokkuð úr skýrslu
þeirri.
Skíðadagur.
í mars s.l. sendi stjórnin
brjef til allra íþróttaráða, sem
um skíðamót fjalla, tilkynti
þeim, að stjórnin hafi ákveðið
fyrir sitt leyti, að efnt yrði til
sjerstaks skíðadags, þar sem
seld yrðu merki til ágóða fyrir
síðakaup barna. Skoraði stjórn-
in á ráðin að bregðast vel við,
leita álits skólastjórna og sam-
starfs um málið. Oskaði stjórn-
in eftir að heyra álit ráðanna
á hugmynd þessari og hvað
gangi með undirbúning og fram
kvæmdir. Síðar hefir stjórnin
lagt til að fyrsti vetrardagur
yrði valinn ,sem skíðadagur i
þessu augnamiði. Það þarf ekki
að taka það fram, að ætlast er
til að börnin sjálf annist merkja
söluna en ráðin hafi aðra fram-
kvæmd í samráði samstarfi
við kennara. Sambandsstjórnin
lítur svo á, að þetta sje mál,
sem geti haft hin heillavænleg-
ustu áhrif fyrir skíðaíþróttina
í landinu í framtíðinni.
Bómaranámskeið í. S. í.
íþróttaráð Reykjavíkur gekst
fyrir dómaranámskeiði í frjáls-
um íþróttum að tilhlutun í. S.
í. Var námskeiðið fjölsótt, en
því miður komu engir á það
utan af landinu. 16 menn tóku
dómarapróf, 8 sem leikstjórar
og yfirdómarar, eða meira próf,
en 8 tóku próf í einstökum
greinum. Að afloknu námskeið
inu fengu allir dómaraskírteini
í. S. í.
Er ekki ólíklegt, að svona
námskeið þurfi að halda bráð-
lega með miklum undirbúningi
fyrir menn utan af landi, en
þar er tilfinnanleg vöntun á
dómurum. Allan kostnað við
námskeiðið greiddi í. S. í.
Slysatryggingar íþróttamanna.
Stjórnin hefir rætt nokkuð
um nauðsyn þess að slysa-
Iryggja íþróttamenn, og leitað
í því augnamiði tilboða hjá
tryggingarslofnununum hjer.—
Vonar hún að geta, áður en
langt um líður leyst þetta mál
á viðunandi hátt. Hefir stjórnin
rætt þetla á það breiðum grund
velli og að reynt verði. að
tryggja allt fólk, sem íþróttir
stundar. inni eða úti.
Bókaútgáfa og bókasjóður.
Sambandsstjórnin hefir iátið
þýða og búa undir prentun regl
ur fyrir tennis og badminton,
ásamt leiðbeiningum fyrir byrj
endur. Var þetta orðið aðkall-
andi nauðsyn. Þá munu sund-
reglur koma út (3. útg.) og
Handknattleiksreglur (3. útg.).
Ragtt hefir verið mikið um það
að gefa út Glímubókina, en ekk
ert hefir verið ákveðið að svo
stöddu.
Úr ársskýrslu (þróttasambandsins
Þá hefir stjórnin tekið þá á-
kvörðun að halda bókaútgáfu
sambandsins alveg að sjer og
hafa sjerreikning fyrir hana.
Hefir í þessu augnamiði verið
stofnaður bókaútgáfusjóður I.
S. í. og mun stofnfje hans verða
um 25 þús. krónur.
Björgunarsund.
Stjórnin hefir ákveðið að
björgunarsund verði tekið upp
sem kepnisgrein á Meistara-
móti í. S. í. í sundi. Ennfremur
hefir verið skorað á fjelögin
að hafa björgunarsund á öllum
sundmótum sínum sem keppn-
isgrein.
Stjórnin lítur svo á, að leggja
beri mikla rækt við kennslu og
nám í björgunarsundi. — Vjer
sem búum svo mikið við vötn
vötn og sæ þurfum að hafa sund
nám vort svo, að einnig sje fult
tillit tekið til þeirra sundað-
ferða, sem veita aukið lífsör-
yggi fyrir sjálfa sig og aðra.
íþróttaleikvangur
á Þingvöllum.
Stjórnin hefir nokkuð beitt
sjer fyrir því, að á Þingvöllum
yrði bygður leikvangur og
sundlaug. Það hefir þótt sjálf-
sagt að leggja það til, að sem
minst jarðrask yrði á völlun-
um eða breyting á landi. Legg-
ur því stjórnin til, að vellirnir
undan Fangbrekku verði sljett
aðir og gerðir þannig, að þar
sje hægt að gera löglega hlaupa
braut og leikvelli fyrir frjáls-
ar íþróttir og knattleiki.
Hefir stjórnin farið á Þing-
völl með íþróttafulitrúa ríkis-
ins, og hefir hann lofað að láta
mæla landið og kortleggja. Hef
ir Þingvallanefnd, sem I. S. I.
hefir staðið í brjefasambandi
við, nú með brjefi 2. maí s.l.
óskað eftir að svo yrði gert.
Þá hefir stjórnin og íþrótta-
fulltrúi ríkisins rætt nokkuð
um, að þar verði gerð opin
sundlaug, skamt frá leikvang-
inum.
íþróttakvikmyndir í. S. I.
voru sýndar víða um land og
vekja hvarvetna athygli, og lít-
ur stjórnin svo á, að auka beri
þá starfsemi eftir föngum.
Stjórnin hefir skrifað sendi-
ráðunum hjer og farið þess á
leit við þau, að fá keyptar
kenslukvikmyndir eða leigðar,
en ekki hefir enn tekist að fá
þær.
Stjórnin hefir nú falið Jóni
Kaldal að útvega sambandinu
1. fl. kenslukvikmyndir í sem
flestum íþróttum.
Telur sambandsstjórnin, að
slíkar kvikmyndir, sem sýndar
verði sem víðast, geti bætt nokk
uð þá kennaravöntun, sem nú
er.
íþróttaheimilið.
I síðustu ársskýrslu Sam-
bandsins var þess getið, að Al-
þingi hefði samþykt tillögu þess
efnis, að ríkisstjórninni sje
heimilt ,,að láta íþróttasam-
bandi Islands í tje lóð undir
Iþróttaheimili“. Um síðustu ára
mót notaði ríkisstjórnin þessa
heimild og afhenti í. S. í. lóð,
sem er við Sölvhólsgötu, 15 m.
með götu, en alls er lóðin um
390 ferm. Stjórnin hefir unnið
að þessu máli á ýmsan. hátt,
t. d. óskað eftir umsögn fjelaga
um það, hve mikið húsnæði
þau þyrftu til fundahalda
stórra og smárra«o. fl. Ennfrem
ur hefir stjórnin fengið hr.
Um skipulagíþróttavalla íReykíavík
ÍÞRÓTTAFULLTRÚI bæjar-
ins, Benedikt Jakobsson, hefir
gert ítarlega greinargerð um
skipulag íþróttavalla hjer í
bænum. Greinargerð þessi er
hin athyglisverðasta. Er þar
gert grein fyrir núverandi
skipulagi og framtíðarskipu-
lagi vallarmála, vallarþörf , og
hvernig henni verði best full-
nægt. ___
Um núverandi skipun vallar
mála segir m. a. í greinargerð-
inni:
„Fast eða ákveðið skipulag
fyrir vallarmál bæjarins hefir
í raun og veru ekki verið til í
lagalegum skilningi. Ýmsar
venjur hafa þó verið ríkjandi
og skapað hefðbundinn vana.
Allverulegur skoðanamunur
hefir ríkt meðal íþróttamanna
um Jpað, hvernig haganlegast
væri að leysa vallarmál bæj-
arins. Hin ýmsu ráð og íþrótta-
samtök hafa komið fram með
margvíslegar tillögur, áætlanir
og kröfur og tálið upp, hvað
vantar, en hins vegar ekki orð
ið sammála um leiðir, nje hvar
skuli hefjast handa. Öngþveiti
þessara mála virðist hafa náð
hámarki á undanfornum stríðs-
árum, og mun það stafa m. a.
af margvíslegum þrengingum
í vallarmálum, aukinni eftir-
spurn um æfingar og æfingar-
velli og auknum kröfum velti-
áranna um framkvæmdir.
Því meiri vinsældum sem
íþróttir hafa átt að fagna, sem
nauðsynlegur liður í uppeldis-
starfi og heilsuvernd þjóðar-
innar, því meiri kröfur gera
íþróttamenn til íþróttavalla og
alls aðbúnaðar við iðkun
íþrótta“.
Iþróttaráðunauturinn telur,
að til þess að fullnægja æfing-
arþörf knattspyrnufjelaganna
þurfi 10 æfingarvelli eða 6 til
viðbótar þeim, sem nú eru. ■—■
Telur ráðunauturinn, að ekki
verði hjá því komist að bærinn
hafi æfingarvelli til úthlutun-
ar, er fullnægt geti þörfum
íþróttafjelaganna á hverjum
tíma, en gerir þó ráð fyrir, að
íjelögin í framtíðinni fullnægi
valiarþörf sinni að mestu eða
öllu.
Þessum völlum og lóðum
leggur ráðunauturinn til, að út
hlutað verði til knattspyrnu-
æfinga:
Gamli íþróttavöllurinn á
Melunum. Verði hann stækk-
aður og æ.tlaður aðallega fyrir
eldri leikmenn. Vesturvöllur,
lóð 50x80 m., sem mætti með.
litlum tiikostnaði ryðja og
sljetta. Æfingavöllur fyrir
unglinga. Lóðin við Barnósstíg
milli Sundhallar og Egilsgötu.
Ætlaður fyrir yngri flokka.
líornlóðin við Flókagötu og
ítauðarárstíg. Má með litlum
tilkostnaði gera þar æfingar-
völl. Golfskálahæðin, sljettur
melur skamt fyrir austan Golf-
skálann. Mætti þar með litlum
tilkostnaði gera nothæfan æf-
ingarvöll fyrir fullorðna.
Vatnsmýrin. Um hana segir:
„Ennfremur vil jeg benda á,
að hægt muni að koma upp æf-
ingasvæðum í Vatnsmýrinni,
annaðhvort af hálfu bæjarins
eða úthluta landinu til fjelaga,
er þess kynnu að kjósa. íþrótta
og skemtisvæðið í Laugardal
(hefir áður verið minst á skipu
lag þess) og íþróttavöllurinn á
Melunum, sem nú er aðal-
íþróttavöllur bæjarins.
Um stefnu bæjarins í vallar-
málum segir svo í greinargerð-
inni:
„Jeg tel, að stefna bæjarins
í vallármálum eigi að vera
þessi:
1. Að aðaláhersla skuli lögð á,
að komið verði upp íþrótta-
leikvangi í Laugadal á
, næstu árum og hafist handa
um nauðsynlegan'undirbún
ing nú þegar.
2. Að íþróttavellinum á Mel-
unum verði haldið sem best
við á nsGStu árum. Hann er
sem sténdur leikvangur
Reykjavíkur.
3. Að stefnt sje að því að
koma upp ódýrum bráða-
birgðaæfingavöllum á þeim
stöðum, sem greiridir eru
hjer að framan og þeim út-
hlutáð til fjelaganna.
4. Að löndum verði úthlutað
til íþróttafjelaganna sam-
kvæmt umsókn þeirra fyrir
æfingavelli.
5. Að samþykt verði reglugerð
fyrir úthlutun slíkra svæða
og íþróttafjelögunum birt
hún til hvatningar til að
hefjast handa um vallar-
gerð“.
Hörð Bjarnason til að gera til-
lögur um, hvernig húsi á lóð-
inni yrði best fyrir komið, og
hefir hann gert bráðabirgða-
teikningu af húsinu. Þá hefir
stjórnin rætt um fjáröflunar-
leiðir til ágóða fyrir þetta
mannvirki, en til þessa þarf
mjög mikið átak, ef vel á að
fara. Stjórnin hefir heldur ekki
tekið neinar endaplegar á-
kvarðanir í þessu menningar-*
máli, enda telur hún það eitt
af verkefnum Ársþings. Þess
má einnig geta, að íþróttaheim-
ilinu hafa borist nokkur áheit
og gjafir og eru nú í sjóði 25
þús. krónur.
Fræðsluerindi í. S. í.
Sambandið hefir fengið
marga til að flytja útvarps-
þætti og erindi um íþróttamál.
Lítur stjórnin svo á, að þessi
fræðslustarfsemi sje hin nauð-
synlegasta og hana beri að efl-a
og auka. Hefir þetta mælst vel
fyrir meðal íþróttamanna og
almennings. Nokkur tregða er
þó á því að fá menn til þessa
starfs og væntir stjórnfn þess,
að geta notað þetta tækifæri,
og að ekki standi á íþróttamönn
unum sjálfum. Þeir, sem flutt
hafa erindi og íþróttaþætti,
eru:
Frímann Helgason, Þorsteinn
Bernharðsson, Sigurpáll Jóns-
son, Einar Björnsson, Sonja
Carlsson, Jens Benediktsson,
Sigurður Bjarnason, Ben. G.
Waage, um læknisskoðun á
íþróttamönnum, Ben. Jakobs-
son, um fimleika, Steinþ. Sig-
urðsson, Skíðaferðir, flutt á af-
mæli Í.S.Í., Ben. G. Waage,
Saga knattspyrnunnar á ís-
landi, Finnbogi Guðmundsson,
Handknattleikur, Þorsteinn
Einarsson, Baðstofur, Sonja
Carlsson, Fimleikar fyrir van-
heilt fólk.
Meðlimafjöldi í. S. í.
Á árinu gengu í sambandið
11 fjelög og fjelagasambönd
með rúml. 1250 meðlimum.
Sambandsfjelögin eru þá sam-
tals 175 með yfir 20 þús. fje-
lagsmenn.
'A:
Á árinu voru staðfest 18 ís-
landsmet. Var öllum methöfum
afhent metmerki sambandsins
á síðasta afmælisdegi þess, eins
og venjg hefir verið.
íþróttablaðið kom út á árinu,
12 tbl,, eins og lofað hafði ver-
ið. Á hluthafafundi var blað-
stjórnin endurkosin. Ritstjóri
blaðsins er Þorsteinn Jósefs-
son, en afgreiðslumaður ÞÓrar-
inn Magnússon, Haðarstíg 10,
Reykjavík. Blaðið h.efir fen£i5
ágætar undirtektir, en kaup-
endur þyrftu að vera fleiri.
Takmarkið er, að íþróttablað-
ið komist inn á hvert heimili í
landinu.
íþróttakennarar í. S. í. hafa
verið 12 á starfsárinu. Hafa
þeir starfað víðsvegar um land
ið og kent ýmsar íþróttagrein-
ar með ágætum árangri.