Morgunblaðið - 06.07.1944, Blaðsíða 11
Fimtudaginn 6. júlí 1944
M0RÖUNBLA8IÐ
11
Fimm mínútna
kross'gáta
Lárjett: 1 unghestar — 6 ás —
8 ríkjasamband 1— 10 fanga-
mark — 11 björg — 12 forskeyti
— 13 tveir eins — 14 ílát — 16
trjeð.
Lóðrjett: 2 samtenging — 3
fluglið — 4 forsetning — 5 hirta
— 7 lita — 9 vatnagróður — 10
á öngli — 14 kvað — 15 guð.
Fjelagslíf
ÆFINGAR
I KVÖLD
á Háskólatúninu:
kl. 8 Handbolti
kvenna. Á Gamla
Iþróttavellinum:
kl. 7—8 Knattspyrna 2. fl.
Stjórn K. B.__■■_______(
SKAFTFELLINGA-
FJELAGIÐ
í Reykjavík efnir til hópferð-
ar austur á Síðu, föstudag-
inn 28. þ. m. ef nóg þátttaka
fæst. — Ferðin tekur 4 daga.
—- Þátttakendur eru beðnir að
skrifa sig á lista, sem iiggur
frammi í Versluninni Vík og
Parísarbúðinni, fyrir 15. þ.m.
188. dagur ársins.
Árdegisflæði kl. 6,25.
Síðdegisflæði kl. 18.48.
Næturvörður er í Lyfjabúðinni
Iðunni.
Næturlæknir er í læknavarð-
stöðinni, sími 5030.
Næturakstur annast Litla bíla-
stöðin, sími 1380.
Forseti íslands skoðaði í gær
rússnesku ljósmyndasýninguna í
Listamannaskálanum. Sendi-
herra Rússlands, herra Krasilni-
kov, tók á móti forsetanum og
gekk með honum um sýningar-
salinn.
Hjónaband. í dag verða gefin
saman í hjónaband í kapellu Há-
skólans af sr. Friðrik Rafnar,
vígslubiskupi, ungfrú Bergljót
Haralz' og Bjarni Rafnar, stud.
med.
Hjónaband. í dag verða gefin
saman í 'hjónaband að Flateyri
af sr. Jóni Ólafssyni sóknarpresti
ungfrú Ebba Thorarensen (Ragn
ars bakara) og Ebenezer Ásgeirs
son (Guðnasonar kaupmanns).
Heimili ungu hjónanna verður
að Flateyri.
ÚTVARPIÐ í DAG:
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
19.25 Hljómplötur: Söngdansar.
19.40 Lesin dagskrá næstu viku.
20.20 Útvarpshljómsveitin (Þór-
arinn Guðmundsson stjórnar):
a) Lagaflokkur eftir Schu-
mann. b) Raddir vorsins eftir
Strauss. c) Mars eftir Heinecke
20.50 Frá útlöndum (Axel Thor-
steinson).
21.10 1 ming Guðmundar Frið-
jóns:. nar (V. Þ. G.) íslensk
lög.
21.38 ii’jettir.
Dagskrárlok.
LO.G.T.
ST. FREYJA nr. 218.
Fundur á morgun kl. 8,30.
Frjettir frá Stórstúkuþingi.
Æðsti templar.
f------—--------------
UPPLÝSINGASTÖÐ
um bindindismáþ opin í dag
kl. 6—8 e. h. í Templarahöll-
inni, Fríkirkjuveg 11.
Kaup-Sala
Til sölu
BÓKASKÁPUR
Upplýsingar í Bókabúðinni
Klapparstíg 17.
Áf sjerstökum ástæðum er
til sölu ný
AMERÍSK
RAFMAGNSELDAVJEL.
Uppl. eftir kl. 7, Efstas. 37.
BARNAVAGN
til sölu í Miðtúni 52.
Tyrkir skjóta á flugvjel.
London: — Fyrir skömmu
kom amerísk Liberatorflugvjel
frá árás á Balkanlöndin. Var
flugvjelin löskuð og hugðist
flugmaðurinn lenda á flugvell-
inum við Konstantínópel, en er
flugvjelin nálgaðist völlinn,
hófu Tyrkir að henni skothríð
og hittu hana tvisvar áður en
hún gat lent. Þetta er þriðja
flugvjelin, sem nauðlendir í
Tyrklandi á skömmum tíma, og
hefir verið skotið á þær allar.
Vinna
TÖKUM AÐ OKKUR
að ryðhreinsa, tjarga og gera
við húsþök. Magnús & Björg-
vin, sími 4966.
HREIN GERNIN GAR
húsamálning, viðgerðir o. fl.
Óskar & Óli. Sími 4129.
HREIN GERNIN G AR
Sími 5474.
Homung & Möller
PÍANÖ
til sölu. Tilboð sendist Mbl.
merkt „Píanó“.
NOTUÐ HÚSGÖGN
keypt ávalt hæsta verði. —
Sótt heim. — Staðgreiðsla. ■—
Sími 5691. — Fornverslunin
Grettisgötu 45.
Fundið
HRÍFUSKAFTA-BÚNT
fundið. Rjettur eigandi vitji
þess að Reykjum við Sund-
laugarveg. i
Utan- og innanhiiss
HREINGERNINGAR
Jón & Guðni. — Sími 4967.
HREIN GERNIN GAR
Pantið í síma 3249.
Birgir og Bachmann.
TÖKUM LAX, KJÖT FISK
og aðrar vörur til reykingar.
Reykhúsið Grcttisgötu 50. —
Sími 4467.
Kensla
HRAÐRITUNARSKÓLI
Helga Tryggvasonar. — Sími
3703.
Kall fósturjarSar
innar
Framhald af bls. 8.
byggist. En það eru fleiri sem
eiga að gefa gjafir. Það er þjóð-
in öll. Fyrirliðar og forystu-
menn eiga að vinna svo að öll-
um alvörumálum þjóðarinnar,
að bróðurhugur verði jafnan í
öndvegi. Og vinnandi stjettir
lahdsins verða líka að leggja
hönd á plóginn. Bændur verða
að brjóta lönd, svo vjelar megi
vinna.
Fósturjörðin kallar til allra
þegna sinna: Leggist á eitt
til að klæða landið. Það er
hennar metnaður „að foldar
sárin grói“. Veitið. sjómönn-
um meira öryggi. Þjóðin á öll
að leggja meira af mörkurA til
allra hugsanlegra bjargráða fyr
ir hina hraustustu drengi þjóð-
arinnar, svo þeir hverfi ekki
fyrir örlög fram frá konu og
börnum, frá allri þjóðinni. Og
einnig þjer kvenfjelagskonur,
bindist samtökum í ykkar fje-
lagsskap, ræktið blómgarða til
að prýða býlin. Það má minna
á fyrirmyndarkonuna Guð-
björgu í Múlakoti. Sú kona er
búin að gera garðinn frægan.
Tómstunda vinnan getur orð-
ið merkasta verk, jafnvel er
vandfarnast með þær stundir.
Og til ungmennafjelaga og
allrar æsku um land alt, kall-
ar fósturjörðin: Varist vín-
nautn alla. Varist ósiðsemi í
orðum og athöfnum. Hún vill
fá hrausta og prúða æsku, til
að búa í frjálsu landi. Að síð-
ustu hrópar hún til allra lands-
ins barna: Virðið kirkju og
kristna trú. Því, ef Guð er með
oss, er ekkert á móti oss. —
„Trúðu á tvent í heimi, tign
sem æðsta ber, Guð í alheims
geimi, guð í sjálfum þjer“.
Ef þjóðin vill muna þetta,
mun sjálfstæði íslands borgið
um ókomin ár.
17. júní 1944.
Guðni Gíslason,
Landeyjum.
F j ármálaráðstef nan
Framh. af bls. 2.
sem segir, að sjerhver þjóð geti
mist viðskiptavini sína með því
að stuðla að því, að framleiðsla
þeirra eflist og hagur þeirra
blómgist. Góðir viðskiptavinir
eru viðskiptamenn, sem eiga
við hagsæld að búa.
Fyrri grundvallarreglan leið
ir af sjer þá síðari. En hún er
á þessa leið: Hagsældin er, eins
og friðurinn, ódeilanleg. Við
getum ekki látið það viðgang-
ast, að sumir njóti hennar á
kostnað annara. Örbirgðin,
hvar sem hún finst, ógnar okk-
ur öllum og grefur ræturnar
undan velmegun okkar“.
Ennfremur sagði Morgent-
hau:
„En ráðstafanir, sem miða að
því að festa gengið, einar munu
ekki nægja til þess að koma
skipulagi á fjármálin, sem kom
ast í óreiðu af völdum styrjald
arinnar. Þær miða frekar að
því að treysta viðskiptin. í kjöl
far slíkra ráðstafana verða að
sigla margar aðrar, sem ryðja
úr vegi mörgum tálmunum al-
heimsviðskiptanna.
Milliríkjalán eru nauðsynleg
til varanlegrar endurskipulagn
ingar“.
L O K A Ð
I vegna sumarleyfa
t
X
dagana 8.—24. jú1!. — Þeir, sem eiga föt í
hreinsun hjá okkur, góðfúslega sæki þau
fyrir 8. þ. m.
FATAPRESSAN FOSS.
AUGLtSING ER GULLS ÍGILUI
Nokka duglega
JÁRNSMIÐI
OG
S
.»
❖
i
t
%♦
VJEL VIRKJA
vantar okkur nú þegar.
^JJeilir L.p.
Sími 1981 og 5831.
♦I**I**I*%*%*
’VVVVV'
TILKYNIMIIMG
frá Happdrætti Frjálslynda safnaðarins.
Með leyfi stjórnarvaldanna, verður
drætti í Happdrætti Frjálslynda safnaðarins
frestað til 15. ágúst. 1944.
%
x
x
x
❖
t
BÁRUHðSIO Á AKRAAIESI
er til sölu, ef um semst. Túboð sendist brjef-
lega til Guðmuncjar Egilssonar, Akranesi.
r
v
V
?
?
V
y
?
?
¥
?
?
Jarðarför föður míns
STEINGRÍMS JÓHANNSSONAR
e? ákveðin á föstudaginn, 7. júlí, og' hefst í Dóm-
kirkjunni kl. 11 f.h.
Frá Dómkirkjunni ver.ður ekið til Eyrarbakka
og jarðsett þar kl. 2 e.h.
Júlíus Steingrímsson.
Jarðarför móður og tengdamóður okkar
JÓHÖNNU A. KERÚLF
fer fram föstudaginn 7. júlí kl. 14,30 og hefst með
bæn að Kirkjuteig 5.
Þórhildur Sigurðardóttir, Gunnar Eiríkssón.
Jarðarför mannsins míns, föður okkar og tengda-
föður,
EINARS JÓNATANSSONAR
fer fram frá Elliheimilinu Grund, föstudaginn 7. þ. m.
kl. 1.
Jóhanna Jónsdóttir, börn og tengdaböm.