Morgunblaðið - 11.07.1944, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 11.07.1944, Blaðsíða 12
12 Þriðjudagur 11. júlí 1944 Maður ferst Flugvirki yfirgefíð Tvö slys á Ák- ureyri Flugvirkið, sem á myndinni sjest, hefir orðið fyrir loftvarnaskotum yfir Norður-Ítalíu og sjást flugmennirnir vera að varpa sjer úr því í falihiífum (örvarnar). — Myndin var tek- in úr annari flugvjel, sem hærra flaug. Allsherjarmótið hófst í gær. Sett var eitt íslandsmet og eitt drengjamet í. R. með ÞAÐ SLYS vildi tii við Gröf í Lundarreikjadal að bifreið hvolfdi og beið maður bana við það. — Var það Guðmundur Bjarnason, dvravörður í Báru- húsinu á Akranesi. Guðmundur ætlaði ásamt öðr- um manni á veiðar í Reykholts dal, en viltust. Sneru þeir þá við, og óku til baka, en á sivs- staðnum er verið að steypa brú, en á meðan hefir bráðabirgða- brú verið komið fyrir. Er þeir komu að brúnpí, á nokkurri ferð, fór eiit hjólið út af planka, en um leið kastaðist bifreiðin til og upp á veginn og hvolfdi henni þar. Maður sá. er undir stýri var, fór þegar út og kallaði hann til Guðmundar. en fekk ekkert svar. Reyndist Guðmundur vera dáinn. Sennilegt þykir, að hann hafi reynt að komast út, um leið og bifreiðinni hvoldi, og hafi höfuð hans orðið á milli. Guðmundur lætur eftir sig konu og tvö börn. Verkfall í Sandgerði dœmt ólög- tegt FJELAGSDÓMUR dæmdi í gær mál Vinnuveitendafjelags Islands, fyrir hönd Finnboga Guðmundssonar, Gerðum. gegn Alþýðusambandi íslands, fyrir hönd Verkalýðs- og sjómanna- fjelags Gerða- og Miðnes- hrepps, út af verkfalli í Sand- gerði þann 27. janúar til 1. febr. fyrra árs. Var Verkalýðsfjelagið dæmt fyrir að hafa átt sök á ólöglegu verkfalli, eða stöðvun róðra- bátanna í Sandgerði, og sektað um kr. 200.00 svo og dæmt til að greiða stefnanda kr. 1500.00 í skaðabætur og 300 krónur í málskostnað. Frá MilliþinganeFnd í skólamálum MILLIÞIN GANEFND í skólanefnd heklur nú fund hvern virkan dag, og svæ næstunæstu vikur. Auk þess skifta nefndarmenn með sjer störfum og rannsaka nú þau svör, er nefndinni hafa horist varðandi hina ýmsu skóla, svo sem t. d. barnaskóla, gagn- fræðaskóla. hjeraðsskóla og mentaskóla. Svör þessi eru enn mikils til of fá, og telur nefnd in það mjög miður farið, er ekki verður úr því bætt. I nefndinni eiga sæti þess- ýf menn: Prófessoro Ásmundur Guömundsson, form., Helgi Elíasson, frséðslumálastjóri, frú Aðalbjörg Sigurðardóttir, Ármann Ilalldórsson, skóla- atjóri, Ingimar Jonsson, skóla- stjóri, Kristinn Ármannsson, yfirkennari og Sigfús Sigur- hjartarson, alþm. ALLSHERJARMOT I. S. I., hið 14. í röðinni, hófst í gær á íþróttavellinum. Gengu íþrótta mennirnir fylktu liði inn á völl inn undir fánum, en Lúðrasveit in Svanur ljek. Þá setti forseti íþróttasambandsins, Ben. G. Waage, mótið með snjallri ræðu. Á mótinu setti Ólíver Steinn 1 (F. H.) nýtt íslandsmet í lang- stökki, stökk 6,86 m. (íslands- met var áður 6.82 m.). Enn- fremur setti Óskar Jónsson (í. R.) nýtt drengjamet í 800 m. hlaupi, hljóp á 2:05.6 mín. Úrslit urðu annars sem hjer segir: Langstökk: 1. Oliver Steinn (F. H.) 6.86 m. 2. Skúli Guð- mundsson (K. R.) 6.70 m. 3. Brynjólfur Jónsson (K. R.) 6.22 m. 4. Magnús Baldvinsson (í. R.) 6.15 m. — Fyrra metið, 6.82 m.. átti Sig. Sigurðsson (K. V.); sett 1937. 800 m. hlaup: 1. Kjartan Jó- hannsson (í. R.) 2:02.2 mín. 2. Hörður Hafliðason (Á.) 2:03.0 mín. 3. Brynjólfur Ingólfsson (K. R.) 2:05.1 mín. 4. Óskar Jónsson (í. R.) 2:0Á6 mín. — Fyrra drengjametið 2:06.7 mín., átti Árni Kjartansson (Á), sett 1941. 100 m. hlaup: — 1. Oliver Steinn, FH 11.7 sek. 2. Finn- björn Þorvaldsson IR, 11.8 sek. 3. Árni Kjartansson Á, 12.0 sek. og 4. Sævar Magnússon FH 12.2 sek. • Stangarstökk: — 1. Þorkell Jóhannesson FH 3.25 m. 2. Sig- urður Steinsson ÍR 3.00 m. 3. fiest slig Oliver Steinn. Magnús Gunnarsson FH 2.92 m. og 4. Kjartan Magnússon FH 2.92 m. Kringlukast: — 1. Gunnar Huseby, KR 41.74 m. 2. Ólafur Guðmundsson ÍR 38.40 m. 3. Bragi Friðriksson KR 38.32 m. og Haraldur Hákonarson Á 34.12 m. 1000 m. bóðhlau. . — 1. Sveit ÍR 2:08.3 mín. 2. A-sveit KR 2:09.9 mín. B-sveit KR og sveit Ármanns urðu jafnar á 2:13-0 mín. Keppa þær aftur á morg- un um 3. og 4. sæti. Stigin eru þá eftir 1. daginn sem hjer segir (stigunum fyrir 3. og 4. sæti í boðhlaupinu er skift jafnt á milli K. R. og Ár- manns): í. R. með 31 stig, K. R. 28 stig, F. H. 26 stig og Ár- mann 11 stig. Mótið heldur áfram á morg- un. Hefst það kl. 8 e. h. með fimleikasýningu úrvalsflokks karla úr K. R. undir stjórn Vignis Andrjessonar, en síðan verður kept í kúluvarpi, 200 m. hlaupi, hástökki, 150*0 m. hlaupi, 110 m. grindahlaupi og 10 km. göngu. — K. R. sjer að öllu leyti um mótið að þessu sinni. Fjölment hjeraðs- mól Sjálfslæðis- manna í Rangár- vallasýslu SJÁLFSTÆÐISMENN í Rengárvallasýslu efndu til hjeraðsmóts að Hellu um síð- astliðna helgi. Var mótið með miklum glæsibrag og afar fjöl- ment. Voru þar saman komin á 10. hundrað manns. Guðmundur Erlendssori, for- maður Sjálfstæðisfjelags Rang árvallasýslu, setti mótið. Síðan fluttu ræður alþingismennirnir Ingólfur Jónsson að Hellu og Pjetur Ottesen, en Lúðrasveit- in Svanur ljek á staðnum. Svo var stiginn dans fram eftir kvöldi. Mótið fór prýðilega fram, vín sást varla á nokkrum manni og veðrið hið ákjósanlegasta. Virt ist hinn mikli mannfjöldi, sem þarna var saman kominn, sam- hentur um að gera samkom- una sem ánægjulegasta. Veslur-íslendingur fellur í Normandi Winnipeg 5. júlí: VESTtJR-ISLENDINGUR- INN, Eggert Stefánsson, fjell í. bardaga í FrakkUtndi, þrem- ur dögum eftir að innrás Bandámanna hófst. Eggert er f yrsti V estur-lslendin gurinn, sem fellur í orustunni um Frakkland. Tilkynningin um fall Eggerts barst íoreldrum hans frá her- málaráðuneyti Kanada. For_ eldrar Eggerts eru Guðmund- jir A. Stefánsson og kona hans, sem dveljast nú í Winnipeg. Eggert var 21 árs að aldri og skráðist í Winnipeg Rifle Regiment 5. janúar, 1943. — Bróðir Eggerts er í iæknadeild kanadiska flughersins. TVO SLYS urðu á Akur- eyri um helgina. Maður fjell af hestbaki og beið bana af og drengur er ók reiðhjóli á bifreið og slasaðist mjög mik- ið. Klukkan 10 á laugardags- kvöldið þ. 8. þ. m. fannst mað- ur liggjandi á veginum skámmt fyrir norðan Gróðrar- stöðina og var það þegar til- kynnt lögreglunni, sem ásamt hjeraðslækni fór á slysastað. Reyndist þetta vera Guðmund ur Halldórsson, til heimilis að„ Ilafnarstræti 2 þar í bæ. Lífsmark var með Guð- mundi er læknirinn kom að og var Guðmundur þegar fluttur í sjúkrahús, en þar ljest hanu skömmu síðar. Álitið er að Guðmundur, er var á leið heim, hafi riðið á stag frá símastaur, og hafí höfuð hans lent á steini og höfuðkúpan brotnað. Á föstudagskvöldið |). 7. þ. m. varð 12 ára drengur, Sig- tryggur Sigtrýggsson, fyrip vörubifreið. Sigtryggur kom á hjólhestí niður Krabbastíg, en er hanii kom að gatnamótum Oddeyr- argötu. Varð árekstur þessi! mjög harður og meiddist drengurinn mjög mikið. Var, hann þegar fluttur í sjúkra- hús. Sundfólk K. R. á Akureyri SUNDFÓLK K. R. kom til Akureyrar á laugardagskvöld. Á sunnudagskvöldið fór fram sundkepni x ýmsum sundgrein- um. Einnig höfðu KR-ingarnir sundsýningu og björgunar- sund. Margt áhorfenda var og skemti sjer hið besta. í gær- kvöldi var ákveðið að halda aftur sundmót og fyrirhugað að þá færi fram kepni í boð- sundi milli K. R. og Akureyr- inga, 10 menn frá hvorum. —■ Einnig keppa þá sundstúlkur frá Akureyri við KR-stúlkurn- ar. Þá mun og hinn ágæti sund maður Norðlendinga, Sigurður Jónsson, keppa við nafna sinn í K. R. Á miðvikudag heldur flokk- urinn til Dalvíkur og keppir þar, en á fimtudag verður hann í Grenivík og á Siglufirði á föstudag. Sundfólkið heldur til í íþrótta höllinni á Akureyri, en þar er flokkurinn gestur hjá K. A. Bílslys í Hafnarfirði Lögreglan lýsir eftir bifreiðarstjóra ÞAÐ SLYS varð í Hafnar- firði s.l. laugardag, að kona varð fyrir bifreið á gatnamót- um Reykjavíkurvegar og Hell- jsgötu. Konon meiddist nokkuð og ók bifreiðarstjórinn henni heim. — Lögreglan í Hafnar- firði biður bifreiðarstjórann að koma á lögreglustöðina þar á staðnum til viðtals.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.