Morgunblaðið - 13.07.1944, Blaðsíða 12
\
gser að viðstöddu fjölmenni.
Síra Æjarni Jónsson iarðsöng.
Athöfnin hófst með bæn á heim
ili bróður hins látna, Þorvald-
ar Thoroddsen, Reynimel 27.
Við húskveðju ljek Þórir
Jónsson. fiðluleikari, vögguvísu
úr Pilti og stúlku, eftir Emil,
en Páll Isólfsson Ijek undir á
píanó.
Bekkjarbræður Emils úr
Mentaskólanum báru kistuna í
kirkju. Síra Bjarni flutti bæn
og minningarorð. Sungnir voru
sálmarnir „Á hendur fel þú hon
um“ og „Ó, blessuð stund“. við
kirkjuathöfnina. Kristján Krist
jánsson söngvari söng ,.Sortnar
þú ský“. eftir Jón Thoroddsen,
með lagi eftir Emil. Söngvarar
úr karlakórnum ,.Fóstbræður“
sungu Requiem, eftir Kurling
og stjórnaði Jón Halldórsson
söngnum.
í kirkjunni ljek, auk Páls ís-
ólfssonar organleikara, útvarps
hljómsveitin. Ríkisútvarpið ljet
útvarpa athöfninni.
Úr kirkjunni báru kistuna
frændur og nánustu vinir Em-
ils. í kirkjugarð báru kistuna
samstarfsmenn hins látna úr
Leikfjelagi Reykjavíkur og vin
ir haios.
Geisimikið barst af blómum
og krönsum frá fjelögum og ein
staklingum. Bar útförin öll vott
um hinar miklu vinsældir, sem
Emil Thoroddsen átti að fagna.
Jarðsett var í Fossvogskirkju-
garði.
Biskupínn vísilerar
Ausiur-Skaffafells-
prófasfsdæml
Á MÁNUDAGINN var lagði
herra biskupinn, sjera Sigur-
geir Sigurðsson, af stað í vísitas
íuför um Austur-Skaftafells-
prófastsdæmi.
Bjóst hann við að vísitera
Hofskirkju í Öræfum 13. júlí
kl. 13, Mýrakirkju sunnudag-
inn 16. júlí kl. 11. Bjarnanes-
kirkju kl. 17 sama dag, Stafa-
fellskirkju i Lóni mánudaginn
17. júlí kl. 13.
Vísitasían byrjar í öllum
kirkjunum með guðsþjónustu.
Síðan sjera Jón Pjetursson
prestur að Kálfafellsstað sagði
af sjer prestsskap frá síðustu
fardögum, hefir aðeins verið
einn þjónandi prestur í Aust-
ur-Skaftafellsprófastsdæmi, sr.
Eiríkur Helgason í Bjarnanesi,
og hefir hann verið settur pró-
fastur í prófastsdæminu.
Biskupinn er væntanlegur
heim úr förinni um 20. þ. m.
f f
Þriðji dagur Alls herjarmóts I. S. í.
Kjartan Jóhannsson Í.R. setur
met í 400 metra
K, R. með 117 siig — í. R. §7 st.
Happdræffi íþrófia-
nefndar Hafnar-
fjarðar
DREGIÐ hefir verið í happ-
drætti Iþróttanefndar Hafnar-
fjarðar og kom upp nr. 9687.
Vinningar á þessu eina númeri
voru: ísskápur, rafmagnselda-
vjel og rafmagnsofn. *
Vinnandi getur vitjað mun-
anna til Lofts Bjarnasonar, eða
Jóns Magnússonar.
ALLSIIERJARMÓT Í.S.Í
Enn eitt Islandsmet var sett
}>að Kjartan Jóhannsson, I.R.,
JÍIjóp hann á 52,3 sek. —
Úrslit urðu annars sem hjer
segir:
400 m. hlaup: 1. Kjartan Jó-
hannsspn (í. R.) 52.3 sek. 2.
Brynjólfur Ingólfsson (K. R.)
54.0 sek. 3. Finnbjörn Þorvalds
son (í. R.) 55.0-sek. 4. Jóhann
Bernharð (K. R.) 55-5 sek. —
Tími Kjartans er sem fyrr seg-
ir nýtt met. Gamla metið, 52.6
sek., setti Sveinn Ingvarsson
(K. R.) 1938. — Kjartan hljóp
á ystu braut.
Þrístökk: 1. Skúli Guðmunds
son (K. R.) 13.64 m. 2. Oddur
Helgason (Á) 13.31 m. 3. Jón
Hjartar (K. R.) 13.10 m. 4.
Oliver Steinn (F. H.) 12.98 m.
Spjótkast: 1. Jóel Kr. Sig-
urðsson (í. R.) 54.29 m.' 2. Jón
Hjartar (K. R.) 51.61 m. 3.
Finnbjörn Þorvaldsson (I. R.)
48.88 m. 4. Jens Magnússon (K.
R.) 46.97 m.
4x100 m. boðhlaup: 1. A-
sveit K. R. 46.8 sek. 2. A-sveit
I. R. 46.8 sek. 3. B-sveit K. R.
47.3 sek. 4. B-sveit í. R. 50.4
sek.
5000 m. hlaup: 1. Oskar Jóns
son (í. R.) 17:00.0 mín. 2. Ind-
riði Jónsson (K. R.) 17:06.0
mín. 3. Steinar Þorfinnsson (Á)
17:27.0 mín. 4. Haraldur
Björnsson (í. R.) 17:34.0 mín.
Sleggjukast: 1. Gunnar Huse
by (K. R.) 37.86 m. 2. Vilhjálm
ur Guðmundsson (K. R.) 36.65
hjelt/áfram í gærkvefdi. —
á mótinu. Að þessu sinni var
sem setti met í 400 m. hlaupi.
R.) 34.53 m. 4. Olafur Guð-
mundsson Q. R.) ?8.44 m.
Eftir þriðja dag mótsins
slanda stigin þannig: K. R. 117
stig, í. R. 87 stig, F. H. 42 stig
og Ármann 38 stig.
Mótinu lýkur í kvöld. Verð-
ur þá kept í 10.000 m. hlaupi og
fimtarþraut.
Því miður náði blaðið ekki
í mynd af Kjartani
Kmid Zfemsen hefir
að iíkindum unnið
happdrætiisbíl Vals
TALIÐ ER líklegt, að Knud
Zimsen, fyrverandi borgar-
stjóri, hafi unnið happdrættis-
bíl Vals. Zimsen hafði keypt
10 miða, númeraða í röð, af
manni, sem hafði fengið til
sölu 50 miða, númeraða í röð.
Sá maður heíir haft spurnir af
miðum á öllum tugunum, nema
þeim síðasta, en þá miða hafði
Zimsen keypt.
Dregið var um bílinn 5. júlí
s.l., og kom upp númerið
14449. Enginn hefir vitjað vinn
ingsins, en Zimsen hefir dval-
ist um tíma uppi í sveit, og er
því ekki víst, að hann hafi at-
hugað númerið á miðdm þeim,
sem hann keypti.
Bágar ásiæður
AÐFARANOTT laugardags,
í. þ. m. brann bærinn Dæli í
Sæmundarhlíð í Skagafirði til
kaldra kola Engu varð bjarg-
að af innbúi og alt var óvá-
trygt. Bóndinn á Dæli heitir
Baldvin Jóhannsson. Bjó hann
þ&rna með konu sinni og eiga
þau þrjú börn, öll innan við
fermingu.
Ástæður á þessu heimili eru
því mjög erfiðar. Mikil fátækt
fyrir og svo brennur á einni
nóttu alt, sem til var. Vel væri
það gert, ef einhverjir vildu
rjelta þessum fátæku hjónum
hjálparhönd og Ijelta raunir
þeirra.
Morgunblaðið veitir fúslega
m. 3. Helgi Gumundsson (K. i ipótlöku gjöfum í þessu skyni.
Lax hækkar í verði
VIÐSKIFTARÁÐ hefir á-
kveðið nýtt hámarksverð á
laxi og hefir verðhækkun orðið
þar nokkur.
Nýr lax kostar nú í heildsölu
kr. 7.00 hvert kg., en var áð-
ur kr. 5.50. — I smásölu kost-
ar hann nú, ef seldir eru heilir
laxar, kr. 8.25, áður kr. 6.50,
og í sneiðum kr. 10.00 í stað
kr. 8.00.
A reyktum laxi hefir verð-
hækkunin orðið hlutfallslega
jafnmikil. Kostar hann nú í
smásölu, í heilum eða hálfum
laxi, kr. 20.35 hvert kg., í bút-
um kr. 22.50 og í beinlausum
sneiðum kr. 27.00.
Njósnari skotinn í
London.
London í gærkveldi.
I DAG var hjer í London
skotinn belgiskur njósnari, sem
starfaði fyrir Þjóðverja. Hann
kom til Bretlands undir því yf-
irskyni, að hann væri að flýja
undan nasistum. —Reuter.
12
Jarðariðr
Emils Thoroddsen
JARÐARFÖR Emils Thor-
oddsen- tónskálds fór fram í
Fimtudagur 13. júlí 1944
Lundaveiði
í Vesimannaeyjum
Vestmannaeyjum í gær.
Frá frjettaritara vorura.
LUNDAVEIÐI er nú fyrir
nokkru hrafin hjer. Heldur hef-
ir veiðst illa, það sem af er.
Lundaveiðitíminn stendur yf-
j ir í 5 vikúr og í góðri veiði geta
: voiðst á heimalandinu og í út-
; eyjum uffl 100 kippur á viku
í eða 10 þús. fuglar. En mjög er
j þetta misjafnt og getur stund-
um verið lítil eða engin veiði.
Það þykir mjög skemtilegt að
veiða lunda og á síðari árum
hefir það heldur farið í vöxt,
að menn eyði sumarleyfi sínu
við lundaveiði og liggja þá að
öllu jöfnu við í úteyjum.
Lundinn er seldur á kr. 1,25
stk. og þykir mjög gott að fá
fuglinn, þar eð bgerinn er kjöt-
laus.
Eden ræðir afstöðu
Dana
Frá danska blaða-
fulltrúanum.
UTANRÍKISRÁÐHERRA
Breta, Anthony Eden, talaði í
dag í neðri málstofu breska
þingsins um afstöðu Dana. Ed-
en svaraði fyrirspurn á þessa
leið:
,,Það er gleðilegt, að frjálsir
Danir skuli nú hafa fulltrúa í
Ráðstjórnarríkjunum, eins og
hjer í Bretlandi og Bandaríkj-
unum.
Danska þjóðin er nú hernum
in af óvinaher. Konungur Dan-
merkur hefir frá síðastliðnu
hausti verið fangi Þjóðverja,
og engin stjórn er nú í land-
inu. Þess vegna geta Danir ekki
lýst sig hernaðarþjóð og'gengið
þannig í lið með hinum sam-
einuðu þjóðum. En hverjum og
einum er það ljóst, að í raun-
inni berjast Danir með hinum
sameinuðu þjóðum og eru ein
þeirra. Margir Danir berjast nú
í fylkingum hinna sameinuðu
þjóða, og mótspyrna Dana
heima gegn Þjóðverjum eykst
stöðugt og veldur þeim æ meira
tjóni“.
Eden ræddi síðan myndun
frelsisráðs Dana, sem nú stjórn
ar hinni virku mótspyrnu gegn
Þjóðverjum, og sigraði þá eft-
irminnilega með allsherjarverk
fallinu nú á dögunum.
Það er því barátta í Dan-
mörku eins og í öllum þeim
löndum í Evrópu, sem Þjóðverj
ar hafa hernumið, og stjórn
Breta veitir hiniun stríðandi,
frj álsu Dönum viðurkenningu
sína með gleði.
Sprengja veldur slysi.
London: — Fjögur bresk
börn fórust nýlega með þeim
hætti, að eitt þeirra spyrnti í
málmhylki, sem lá á svæði,
sem heræfingar höfðu verið
haldnar á skömmu áður. —<
Sprakk hylki þetta' þegar. —•
Fimta, barnið sakaði ekki.
Uppreisn bæld niður.
Bogota, Columbia í gærkveldi:
Uppreisn sú, sem hjer var
hafin af Diogenes Gil ofursta,
hefir verið bæld niður og Gil
sjálfur er flúinn, að því er hjer
er opinberlega tilkynt í kvöld.
■— Reuter.