Morgunblaðið - 14.07.1944, Blaðsíða 1
31. árgangtir,,
155. tbl. — Föstudagur 14. júlí 1944
Isafoldarprentsmiðja h.f,
Sumarsókn Rússa
Sótt að St. Lo úr þrem úttnm
Svifsprengjum
sbofið frá
A kortinu er merkt með dökku það svæði, sem Rússar hafa
tekið í sumarsókn sinni. Sjest framsókn þeirra á vígstöðvum
Eystrasaltslandanna og í Finnlandi.
London í gærkveldi.
FLUGSPRENGJUR þær, sem
fallið hafa á England í dag,
virðast koma úr annari átt en
þær, sem komið hafa að und-
anförnu. Er helst haldið, að
þeim sje skotið frá stöðvum í
Belgíu.
Þá er og talið, að um nokkr-
ar tegundir sje að ræða af
sþrengjum þessum, þar sem
þær haga sjer með nokkuð ólík
um hætti. I flestum stöðvast
hreyfillinn, áður en þær steyp-
ast til jarðar, en upp á síðkast-
ið hefir orðið vart við sprengj-
ur, sem renna til jarðar með
hreyfilinn í gangi. — Reuter.
Mikil slys á augum.
London: — Svifsprengjurnar
valda miklum slysum á augum
manna, sjerstaklega er hættu-
legt að vera nærri gluggum,
þar sem þær geta sprungið
nærri.
Rússar hafa tehið Vilna
London í gærkveldi:
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
DAGSIvIPAN var gefin út í
Moskva í kvöld, þar sem
Stalin tilkynnir, að Vilna sje
nú algerlega á valdi rússneska
hersins eftir harðar orustur
um borgina og hafi alls fallið
þar um 8000 Þjóðverjar. Þá
segir dagskipanin, sem út er
gefin til ChernyakoWskys her-,
foringja, að Rússar sjeu þeg-
ar komnir nokkuð til vesturs
frá borginni.
Að öðru leyti bera fregnir
frá Rússlandi í kvöld það með
sjer, að sókn Rússa er nú hæg
ari á allri víglínunni frá
Pskov, og til Pripetmýranna,
en hún hefir verið undanfarna
daga, en á vígstöðvunum fyr-
ir norðan Onegavatn segjast
Rússar hafa tekið nokkur
_þorp af Finnum og tekið bæ-
inn öuokarvi.
Herst j órnartilkynnin^ar
Herstjórnartilkynning Rússa
í kvöld greinir fyrst frá fram-
sókninni fyrir nofðan -Onega-
vatn, en ræðir síðan um bar-
dagana milli Pskov og Novo-
sokolniki á þessa leið: „Fyrir
vestan Novo-Reshev hjeldu
hersveitir vorar áfram sókn-
arbardögum og tóku þar höf-
uðstað Kalininhjeraðsins og
sóttu inn í allmörg þorp þar
um slóðir“.
Síðan heldur tilkynningin
áfram að segja frá bardögum
fyrir norðan og sunnan tdritsa
sem tekin var í gær, og tóku
Rússar einnig þar allmörg
þorp. Fyrir norðvestan Polotsk
var bærinn Drissa tekinn og
nokkrir aðrir bæpr og þorp.
Síðan rifeðir tilkynninin inn
töku Vilna og sókn í vestur
frá þeirri borg, en á svæðinu
milli Vilna og Pripetmýranna
er ekki getið um breytingar.
Þjóðverjar segjast hafa
hrundið ölhun árásum Rússa
á þessum slóðum í gær og’ dag,
' en tala um það, að þeir hafi
I ,„losað sig úr tengslum við ó-
, vinina“ norðar, en það þýðir
^ altaf að hörfað hafi verið
undan.
Fornfr.æg borg,
Vilna er fornfræg borg, var
upphaflega höfuðstaður Lit-
haugalands, en komst síðan
undir yfirráð Pólverja og eft-
ir það deildu Svíar, Pólverjar
og Rússar um borgina. Eftir
heimsstyrjöldina fyrri afhentu
Rfissar hana Litháum, en Pól-
verjar tóku hana af þeim her-
skildi. Er Pólland var að velli
lagt, 1939, ljetu Rússar Litháa
aftur hafa borgina, og er
Rússar lögðu Lithaugaland
undir sig 1940, varð -borgin
höfuðstaður Sovjet-Lithauga-
lands. Ibúar borgarinnar eru
um 200.000.
Bretar hörfa úr tveim
þorpum á Caensvæðinu
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
Bandaríkjamenn sækja nú að St. Lo úr þrem áttum.
en hefir gengið heldur lítið, þar sem varnir eru harðar.
Annarsstaðar, þar sem Bandaríkjamenn sækja fram, hef-
ir og sóknin ekki numið miklu og breytingarnar á víg-
svæði þeirra verið heldur litlar. — Willian Hardcastle,
sjerstakur frjettaritari vor í aðalstöðvunum, símar, að í
hinum grimmilegu gagnáhlaupum Þjóðverja fyrir suð-
v^tan Caen hafi Bretar á þessu svæði orðið að yfirgefa
aftur þorpin Colombelles og St. Honorino Chardonnertte,
og hörfa aftur yfir ána Orne og Caen-skurðinn.
Ein árás á
Munchen enn
Eondon í gærkveldi.
Mikill fjöldi amerískra
sprengjuflugvjela, alls um
1000. varðar sæg orustuflug-
vjela, rjeðust á Munchensvæð
ið í dag, en það er þriðji dag-
Urinn í röð, sém árás er gerð
á borg þessa. — Auk þess
rjeðust flugvjglar þessar á
Saarbriieken.
Loftorustur urðu nokkrar,
og mistu Bandarikjamenn 10
sprengjuflugvjelar í leiðangri
þessum og 8 orustuflugvjelar.
Átta orustuflugvjelum var
grandað fyrir Þjóðverjum í
lotforustum.
— Reuter.
Bonesteel fekur við
nýju embætti
SAN FRANCISCO, Calif.
— (AP) Charles II. Bonesteel
herhöfðingi, sem stjórnaði
ameríska hernum á Islandi
1941 og 1942 hefir verið skip-
aður herhöfðingi á vestur varn
arsvæði Bandaríkjanna. Tekur
hann við af Delcos C. Emmnos
hershöfðingja, sem hefir verið
skipaður í þýðingarmikla
stöðu, en sem ekki hefir verið
birt hver er._____
Stefán Þorvarðarson
á konungsfundi
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
Hinn nýji sendiherra Islands
í London, Stefán Þorvarðarson'
gekk í dag á fund Georgs VI.
Bretakonungs í Buckingham-
höll og afhenti honum embætt-
isskilríki sin.
Ný loftvarnabyrgi
opnuð í London
Lonaon I gærkveldi.
Herbert Morrison, innanrík-
isráðherra, tilkynnti á þingi
í dag, að stórt neðanjarðar
loftvarnarbyrgi hefði verið
opnað í London síðastliðinn
sunnudag, og annað myndi
verða opnað í kvöld. Þá sagði
ráðherrann að þriðja byrgið
af þessari gerð yrði opnað
innan skamms.
Þjóðverjar hjeldu áfram að
skjóta svifsprengjum sínum á
Lóndon og Suður-England í
dag og harðnaði skothríðin
eftir því sem á daginn leið.
Ýmsar svifsprengjanna voru
skotnar niður, en af öðrum
var eignatjón pg manntjón.
______ Reuter.
Sendifulltrúi finst
dauður.
London: — Andre Dedekam,
fyrsti sendiráðsritari við
norsku sendisveitina í Washing
ton, fanst nýlega dauður ásamt
konu sinni í íbúð þeirra.
„Ekki er þetta þó alvarlegur
hnekkir", heldur Hardcastle
áfram, ,,og nú er að mestu kyrt
á þessum slóðum. Munu báðir
aðilar vera að endurskipu-
leggja lið sitt þarna“.
„Erfitt verkefni“.
Herfræðingur í aðalstöðvun-
um lýsir afstöðunni þannig:
„Þetta verður erfitt verkefni.
Besta tækifærið til þess að
brjótast í gegn virðist vera fyr
ir sunnan Erquay og virðast
Þjóðverjar vita það, éf maður
á að dæma eftir hörku þeirri
í gagnáhlaupum, sem komið
hefir fram af þeirra hálfu á
þessum slóðum. Hafa Þjóðverj-
ar haft góðan tíma til þess að
fullgera varnir sínar við Orne-
ána, og þegar bardaginn byrj-
ar þar, verður hann ef til vill
hinn harðasti í allri herför-
inni“.
Herstjórnartilkynningin.
Herstjórnartilkynning banda
manna í kvöld um bardagana
í Normandí er á þessa leið:
„Herir bandamanna sækja
hægt en stöðugt fram fyrir
norðan Lessay. — Fyrir sunn-
an Carentan höfum vjer sótt
fram um tæpan kílómeter og
rekið óvinina Tír þorpinu St.
Andree de Bochon. — Einnig
hefir nokkuð unnist á við Bay-
eaux—St. Lo veginn, nærri
Barre de Semilly.
Flugsveitir strandvarnarliðs-
ins rjeðust í morgun á nokkur
skip óvinanna á austurhluta
Ermarsunds. Tvær flugvjelar
fórust. —
Orustuflugvjelar rjeðust á
olíuforðabúr við Senc fyrir suð
austan París og járnbrautir um
hverfis Chartrer .
Stims^r. kominn til
Bretlands.
London í gærkveldi: — Stim-
son hermálaráðherra Bandaríkj
anna er nýlega kominn til Bret
lands frá Italíu, og mun hann
fara eftirlitsferð um bækistöðv
ár ameríska hersins á Bret-
landi, líta á sjúkrahús o. fl.
— Reuter.