Morgunblaðið - 18.07.1944, Blaðsíða 1
RÚSSAR TÓKU SEX BORGIR í GÆR
Balnandi veSur
í Normandi:
Auknar loflárásir
LONDON í gær.
Eftir Ian Munro.
AMERÍSKAR sprengjuflug-
vjelar gerðu í dag einhverjar
hörðustu loftárásir, sem gerðar
hafa verið síðan innrásin hófst,
á samgönguæðar Þjóðverja í
Frakklandi. Veður hefir nú
breyst mjög til hins betra á
vígstöðvunum og eykst þá loft-
hernaðurinn um leið. í aðal-
herstöðvum bandamanna í
kvöld er opinberlega tilkynt,
að loftárásirnar í dag „sjeu hin
ar þýðingarmestu“.
Harðar árásir voru gerðar á
svifs-prengjustöðvarnar í Pas
de Calais-svæðinu. Ennfremur
á Vitry, sem er 160 km. fyrir
austan París, á Nevers, sem er
um 200 km. suður af París. —
Þá voru- gerðar miklar loft-
árásir á brýr víða 1 Frakk-
landi, brýr á Signu og Loire-
fljóti, milli Nantes og Orleans.
Flugvirki og Liberator flug-
vjelar gerðu og árásir á Metz-
járnbrautarstöðina og á járn-
brautarstöðina í Belfort, sem er
aðeins nokkrar mílur frá sviss-
nesku landamærunum.
I öllum þessum árásum mistu
bandamenn 1 sprengjuflugvjel
og 1 orustuflugvjel.
í fyrrinótt gerðu flugsveitir
bandamanna árásir á stöðvar í
Ruhr. •— Reuter.
Ein amerísk herdeild hefir
í dag eðilagt 16 skriðdreka
fyrir Þjóðverjum í hörðum
árásum hjá Pont Ilerbert.
Fyrir austan Pont Ilerbert
hafa Bandaríkjamenn rjett
víglínu sína og sótt fram um
5Ö0 metra.
Hárðir bardagar við
Evrecy.
' Gríðanlega harðir bardagar
liáfa geysað í dag á vígstöðv-
uiium á Evrecysvæðinu, þar
sem Bretar og Kanadamenn
bferjast. Ilafa Þjóðverjar gert
þarna hörð gagnáhlaup. Bret
ar hafa haft frumkvæðið á
þessum slóðum og sótt fram
Montgomery
trúir á sigur
á þessu ári
Bondon í gærkveldi.
MONTGOMERY hershöfðingi
sagði nokkur orð í útvarp frá
Normandie í kvöld. Hann mælti
m. a.: „Þegar jeg talaði við liðs
foringja mína og hermennina á
innrásardaginn, sagði jeg þeim,
að ef þeir ynnu sitt verk vel af
hendi, þá væri hægt að gera
ráð fyrir, að sigra mætti Þjóð-
verja á þessu ári“.
„Jeg hefi ekki breytt um skoð
un. Jeg held, að það sjeu mikl-
ar líkur til, að sigra megi Þjóð-
verja á þessu ári.Það gengur yf
irleitt ágætlega fyrir okkur“.
„Rússar vinna stórsigra á
austurvígstöðvunum og þar eru
margir • Þjóðverjar afskrifaðir.
Það er ágætt“.
„Það gengur yfirleitt alt á-
gætlega núna, en þið vitið samt
eins vel og jeg, að Þjóðverjar
eru ágætir hermenn í varnar-
baráttu“.
Fyr um daginn hafði Mont-
gomery sent Sir Bertram Ram-
say flotaforingja, sem stjórn-
aði innrásarflotanum, brjef og
þakkað honum fyrir aðstoð þá,
sem flotinn hafði veitt við inn-
rásina.
2—3 kílómetra og hafa her-
^sveitir þeirra sótt fram frá
,,hæð 113". Það er ekki full-
Jjóst hvor aðilinn hefir þorp-
ið Esquay á sínu valdi, en
ndkið hefir verið barist um
]>að undanfarna daga. Fyrir
norðan og norðaustan Noyei'S
eru og harðir bardagar háðir.
Breskar hersveitir hafa
náð á sitt vald „hæð 126“,
sem er hæsti staður á þessii
svæði og sem hefir mikla
hernaðarlegá þýðingu. Bretar
hafa náð á sitt vald þorpinu
Vendes. sem ’ er rhn 6 km.
suðvestur af Tilly.
Guðmundur
Finnbogason
fyrv. lands-
bókavörður
varð bráð-
kvaddur í gær
SÚ SORGARFREGN barst
hingað til bæjarins í gær, frá
Sauðórkrók, að Guðmundur
Finnbogason fvrv. lands-
bókavörður væri dáinnr
Hann fór að heiman á
laugardág norður í land, í
fylgd með Guðjóni Samúels-
svni húsameistara.
Kl. að ganga 5 í gær var
Guðmundur heitinn staddur
á Sauðárkróki. Var hann
þar í heimsókn hjá kunn-
ingjafólki sínu; var þar glað-
ur og reifur að vanda, er
hann alt í einu leið út af og
var örendur.
Síðustu tvo mánuði mun
hann hafa kent nokkurrar
veilu fyrir hjarta, en eigi svo
að hann teldi sjer hættulegt.
Með Guðmundi. er fallinn
frá einn af vinsælustu og
afkastamestu fræðimönnum
þjóðarinnar.
Weygand skotinn?
LONDON: — Yfirmönnum í
franska hernum, sem hafðir
eru í fangelsi í Königsberg, hef
ir verið sagt, að Weygand,
fyrverandi yfirhershöfðingi
franska hersins, hafi verið
„skotinn“, er hann gerði til-
raun til að flýja“.
Franskur liðsforingi, sem kom
nýlega frá Königsberg, sagði,
að þýsku hernaðaryfirvöldin
hafi skýrt frönsku liðsforingj-
unum í fangabúðunum frá
þessu.
Ameriknmenn í
úthverinm St. Lo
ITERSVEITIR BANDARÍKJAMANNA á Normandi-
vígstöðvunum eru komnir inn í iithverfi Saint Lo borgar og
standa þar yfir harðir bardagar. Bandaríkjamenn komust
inn í borgina í dag um tíma, en Þjóðverjar tefldu þá fram
skriðdrekum oog hörfuðu Bandaríkjameim aftur til úthverf-
anna.
Stöðug framsókn á
miðvígstöðvunum
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
RÚSSAR skýra frá því í herstjórnartilkynningu sinni
í kvöld, að í dag hafi þeir tekið sex allstórar borgir. Eftir
þessu að dæma er ekkert lát á sókn Russa. Ekki hafa Rúss-
ar enn sagt neitt um sóknina, sem Þjóðverjar skýrðu frá
á laugardag, frá Tarnopol og Lutsk, en frjettaritarar segja,
ajð þessar fregnir muni vera rjettar hjá Þjóðverjum, og að
Rússar muni hafa unnið þarna allmikið á.
8. herinn
fekur Árezzo
RÓM í gær.
HERSVEITIR úr 8. hernum
breska, sem tóku Arezzo í gær-
dag, hafa h'aldið áfram sókn
sinni og sótt norður yfir Arno-
fljótið. Framsókn bandamanna
á þessum slóðum kom Þjóðverj
um algjörlega á óvart. Náðu
bandamenn á sitt vald einni brú
yfir Arno, sem Þjóðverjum
hafði ekki unnist tími til að
eyðileggja á undanhaldinu. —
Handtóku bandamenn verk-
fræðingasveit við brúna, sem
hafði fengið skipun um að
sprengja hana.
Ameríkumenn ná hæð-
um við Livorno.
Fimti herinn ameríski hefir
unnið nokkuð á við Livorno og
meðal annars náð á sitt vald
hæðum við borgina. Frá hæðum
þessum sjest til Pisa og segja
bandamenn, að skakki turninn
hallist enn eins og hann hefir
gert öldum saman. — Bardag-
ar hafa verið harðir á þessum
slóðum. Nálgast bandamenn nú
hina svonefndu Gotnesku línu,
sem Þjóðverjar hafa verið að
víggirða undanfarið af miklu
kappi og þar sem búist er við
að þeir verjist á meðan þeir
hafa nokkur tök á.
Litlar skemdir í Arezzo.
Fregnritarar, sem fóru með
8 hernum inn í Arezzo segja,
að hin frægu fresco-málverk í
listasafni borgarinnar sjeu ó-
skemd. Dómkirkjan hefir held-
ur ekki orðið fyrir skemdum og
borgin er yfirleitt furðanlega
lítið skemd. — Reuter.
Giftingarhringurinn
LONDON: — Kona alþingis-
manns í London týndi nýlega
giftingarhring sínum, þegar
hún var að hjálpa garðyrkju-
manni að búa um spergla. —
Grænmetissali einn hefir nú
skilað konunni hringnum.
Borgirnar, sem teknar
voru í gær.
Borgirnar. sem Rússar tóku
í gær, eru þessar: Sebetzh í
Kalinin-hjeraði, nokkra kíló-
metra frá landamærum Lit-
haugalands. Var borginni í virki
í hinni svonefndu Reier-varn-
arlínu Þjóðverja. Á þessum
slóðum segjast Rússar hafa tek-
ið 60 borgir og bæi í viðbót.
Fyrir norðan Drissa segjast
Rússar hafa haldið áfram sókn
og tekið Osveva. Sú borg er 16
km. frá landamærum Lithauga-
lands og 80 km. austur af
Dvinsk. Þarna tóku Rússar enn
fremur 30 bæi og þorp.
Á vesturbökkum Niemen-
fljóts hafa Rússar haldið áfram
að stækka brúarsporð sinn og
tekið um 20 bæi og þorp fvrir
norðvestan og vestan Volkov-
ysk. Þar tóku Rússar í dag
borgina Svisloch, sem er í Bialy
stick-hjeraðinu.
Sóknin til Brest Litovsk.
í sókninni til Brest Litovsk
hafa Rússar og sótt fram í dag
og tekið þrjár borgir, Pruzany,
Shereshov og Drugichin og 200
bæi og þorp.
SHeresho er 50 km. norðaust-
ur af Brest Litovsk, rjett við
Slonim þjóðveginn. Drugichin
er 90 km. fyrir austan Brest
Litovsk, og stendur við járn-
brautina frá Pinsk.
í herstjórnartilkynningu
Rússa í kvöld er sagt, að ekki
hafi orðið neinar breytingar á
öðrum vígstöðvum, en sem
nefndar eru í tilkynningunni,
en á sunnudag segjast Rússar
hafa eyðilagt á öllum vígstöðv-
unum 100 skriðdreka fyrir Þjóð
verjum og skotið niður 94 þýsk
ar flugvjelar.
Grodno fallin.
Á sunnudag tilkyntu Rússar
að þeir hefðu tekið Grödno.
200 sprengikúlur
á mínútu.
SVÍAR hafa nú fengið til
loftvarna sinna by:sur, sem
skjóta 200 sprengikúlum á mín-
útu.